Morgunblaðið - 28.11.1986, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.11.1986, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 Hirðlækmr flýtti fyrir andláti Georgs finunta London, Reuter. FLÝTT var fyrir andláti Ge- orgs fimmta, Bretakonungs, með því að sprauta hann með morfíni og kókaíni. Ein ástæð- an fyrir líknardrápinu var að tryggja að kvöldblöðin, sem konungsfjölskyldunni þóttu óvirðuleg, yrðu ekki á undan morgunblöðunum að skýra frá láti hans. Óháða brezka sjónvarpið (ITV) sagði að upplýsingar þessar kæmu fram í grein í desember- hefti söguritsins History today. Francis Watson, sem skráði ævi- sögu hirðlæknisins Dawsons lávarðar, greinir þar frá því hvem- ig andlát Georgs fimmta bar að. Hann byggir greinina á dag- bókum lávarðsins. Þar kemur fram að Mary drottning og Játvarður áttundi, sem tók síðan við konungdæminu, hafi sagt Dawson að þau vildu ekki að lífí yrði haldið í konungi fyrst hann væri hvort eð er hald- inn banvænum sjúkdómi og aðeins tímaspursmál hvenær hann yrði allur. Dawson er sagður hafa skráð eftirfarandi í dagbækur sínar; „Akvörðunin um tímasetningu andláts líkama konungs var enn- fremur tekin vegna mikilvægi þess að morgunblöðin yrðu fyrri hinum ósæmandi síðdegisblöðum að skýra frá dauðanum. Blöðin vissu að hann ætti skammt eftir ólifað og kynni jafn- vel að deyja áður en þau færa í pressuna. Ég bað því konu mína að hringja í The Times og segja þeim að bíða svolítið með blaðið." George fímmti dó í janúar 1936. Hann var konungur Breta í 26 ár. Hann var afi Elísabetar drottningar. Talsmaður hennar sagði í gær að hún vissi af grein- inni en að hún vildi hvorki stað- festa sannleiksgildi greinarinnar né tjá sig um hana. í dánarvottorði konungs stend- ur að hann hafí dáið úr lungna- sjúkdómi og hjartveiki. Að sögn ITV-stöðvarinnar dó hann rúmri klukkustund eftir að hann fékk sprautuna banvænu. Að sögn Watssons rejmdi hirðlæknirinn að réttlæta líknardrápið í dagbókum sínum. „Margra klukkustunda bið eftir hinum mekaníska endi, þegar hið raunveralega líf hefur yfirgef- ið líkamann, hefur aðeins í för með sér þjáningar fyrir aðstand- endur. Kvalir þeirra era slíkar að þeim er lítil huggun í hughreyst- ingu eða bæn,“ reit hann. Watson segist hafa vitað um aðdragand- ann að andláti Georgs fimmta áður en ævisaga Dawsons kom út árið 1950. Hann hafi hins veg- ar látið málið kyrrt liggja af tillit- semi við konungsflölskylduna og læknir hennar. Nú væra aðstæður hins vegar aðrar þar sem allir, sem málið var skylt, væra látnir. Bráðabirgðafjárlög Evrópubandalagsins: Landbúnaðurinn gleypir tvo þriðju Umframbirgðirnar aukast og’ kostnaðurinn vex Brilssel, Reuter. FJÁRLAGARÁÐHERRAR Evr- ópubandalagsins náðu í gær samkomulagi um bráðabirgða- fjárlög fyrir árið 1987. Þeir höfnuðu hins vegar þeirri hug- mynd, að stofnaður yrði sérstak- ur sjóður til að koma offram- leiðslunni í lóg. Samkvæmt bráðabirgðafjárlög- unum verða útgjöld EB á næsta ári 36,2 milljarðar ECU en það er samevrópskur gjaldmiðill og svarar hver eining til 42,4 ísl. kr. Evrópu- þingið á eftir að samþyklq'a lögin og segja embættismenn EB, að þá muni koma í ljós, að útgjöldin eru vanáætluð. Stafar það af því, að litlum böndum hefur tekist að koma á landbúnaðarframleiðsluna auk þess sem ógreiddur er hallinn frá fyrra ári, 1,3 milljarðar ECU. Peter Brooke, flármálaráðherra Bretlands, sem var í forsæti á fjár- lagafundinum, sagði, að ráðherr- amir hefðu haft um það fyrirmæli frá Evrópuþinginu að fínna ein- hverja leið til að koma matvæla- birgðunum á markað. Sjálft lagði þingið til, að í þessu skyni yrði stofnaður sjóður, sem hefði yfir að ráða 2,5 milljörðum ECU, og að mjólkurkvótinn yrði minnkaður. Ráðherramir féllust ekki á sjóðs- stofnunina og sögðu, að úrbætur í landbúnaðarmálum væri í verka- hring landbúnaðarráðherranna. Framlög til landbúnaðarins era tveir þriðju af fjárlögum Evrópu- bandalagsins og vegna síaukinnar birgðasöfnunar hækkar hlutfallið stöðugt. Nú era smjörbirgðimar 1,5 milljón tonn, nautakjötið 590.000 tonn, komið 16,4 millj. tonn og hafsjór af víni og ólífuolíu. Áætlað er, að geymslukostnaðurinn á næsta ári verði fjórir milljarðar ECU. Evrópuþingið hefur löngum stað- ið dyggan vörð um hagsmuni bænda en nú er það farið að ókyrr- ast veralega. Vilja þingmennimir gjama lifa þann dag, að eitthvað verði aflögu til annarra mála en landbúnaðarins, t.d. til að draga úr atvinnuleysinu. Afganistan: Hermdarverk Sovétmanna halda stöðugt áfram - segja sovézkir liðhlaupar Toronto, AP. FIMM sovézkir hermenn, sem um í Afganistan, eru nú komnir gerðust liðhlaupar í Rauða hern- til Kanada og hyggjast byija þar Iran: Líf látnir fyrir eiturly fj asmygl Teheran. Reuter. FIMM menn, sem dæmdir voru fyrir eiturlyfjasmygl, voru ný- lega leiddir fyrir aftökusveit i Suðaustur-íran og skotnir, að því er íranskt dagblað skýrði frá í gær. Tveir hinna dauðadæmdu voru Afganir. Tveir mannanna vora enn fremur ákærðir fyrir að hafa tekið þátt í árás á eiturlyfjalögreglu stjómar- innar, að sögn blaðsins. Ekki var tekið fram, hvenær aftökumar hefðu farið fram. nýtt líf. Þeir skýrðu svo frá í gær, að þeir hefðu gengið i Iið með skæruliðum i Afganistan sökum hermdarverka þeirra, sem Sovétmenn hefu framið þar í landi. Einn hermannanna, Vladislav Naumo frá Volgograd, sem er 24 ára gamall, sagði við fréttamenn, að hermdarverkin í Afganistan héldu stöðugt áfram. „Við höfum allir séð hermdarverk. Það er ekki unnt að dveljast þama án þess að sjá þau. Það er einmitt af þessum sökum, sem við gengum í lið með skæraliðum. Við höfum allir orðið áhorfendur að loftárásum á þorp og séð særð böm og konur." Haft var eftir öðram úr hópi Sovétmannanna, Sergei Busov, að þrír sovézkir hermenn, sem leitað höfðu hælis í Bretlandi og Banda- aríkjunum, en síðan ákveðið að snúa heim aftur, hefðu allir verið teknir þar af lífi. HAGKAUP G0ÐIR SK0R Á GÓÐU VERÐI REYKJAVIK AKUREYRI NJARÐVIK Póstverslun: Sími 91-30980 ÓSA SiA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.