Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 50

Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 Systir mín. + Axelta Jónsdóttir, frá Köldukinn, lést þann 25. nóvember í sjúkrahúsi Stykkishólms. Siguröur Jónsson, Köldukinn. t Eiginmaður minn og faðir okkar, BJÖRN BERGSTEINN BJÖRNSSON, Sólheimum 30, lést af slysförum 26. þessa mánaðar. Ólöf Helgadóttir og börn. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGURÁSTAR STURLAUGSDÓTTUR, Hjaltabakka 12, áður húsfreyja að Nýp á Skarðsströnd, fer fram frá Lágafells- kirkju laugardaginn 29. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameins- félagið. Rannveig Kristjánsdóttir, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Vilborg Kristjánsdóttir, Björn Kristjánsson, Herberg Kristjánsson, Ásta K. Skúladóttir, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær eiginkona mfn, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÆMUNDA ÞORVALDSDÓTTIR, Silfurgötu 28, Stykkishólmi, veröur jarðsungin laugardaginn 29. nóvember frá Stykkishólms- kirkju kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hinnar látnu vinsamlega láti Hjartavernd njóta þess. Páll Oddsson, Áslaug Pálsdóttir, Ólafur Gústafsson, Sesselja Pálsdóttir, Þorbergur Bæringsson, Ásgerður Pálsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þorvaldur Páisson og barnabörn. + Útför eiginmanns míns, RAGNARS GUÐMUNDSSONAR, Núpi, Vestur-Eyjafjallahreppi, fer fram frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 29. nóvember kl. 14.00. Valgerður Einarsdóttir. + Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARI L. JÓHANNESSON, fyrrum verkstjóri hjá Flugleiðum, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Ásgerður Einarsdóttir, Einar Arason, Karl Arason, Jóhannes Arason, Arnfríður Aradóttir, Haukur Matthíasson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför EYJÓLFS ÞÓRARINSSONAR, Lagarási 2, Egilsstöðum. Ingibjörg Einarsdóttír, Þórhallur Eyjólfsson, Þórey Eyjólfsdóttir, Bergþóra Eyjólfsdóttir, Sigurður Eyjólfsson, Einar Eyjólfsson, Björgvin Eyjólfsson, Sigurbjörg Alfreðsdóttir, Benedikt Steindórsson, Anders Karlsson, Margrét Petersen, Guðný Einarsdóttir, Ólöf Elfasdóttir, Metúsalem Þórarinsson. Minning: AriL. Jóhannesson fv. yfirverkstjóri Fæddur 2. febrúar 1910 Dáinn 20. nóvember 1986 Ari L. JóhannesSon, fyrrverandi yfírverkstjóri, lést 20. þessa mánað- ar á 77. aldursári. Með honum er genginn einn af frumheijum í flug- sögu okkar íslendinga, mikill persónuleiki og virtur vel af sam- starfsmönnum sínum. Hann var um 36 ára skeið verkstjóri og síðan yfírverkstjóri hjá Flugfélagi íslands hf. og síðar Flugleiðum hf., og má nærri geta að á frumbýlingsárum flugsins hafí oft þurft að taka snöggar ákvarðanir þegar veður gerast válynd og ekki var í nein hús að venda með þann flugvéla- kost sem notaður var. Sagði hann okkur margar sögur af því þegar farið var út í Kötumar á Akureyrar- polli eða þegar binda þurfti niður Douglas-ana á Melgerðismelum vegna veðurofsa sem oft geisuðu inni í Eyjafirði og þegar keyrt var í kapp við vélamar inn á Melgerði. Allt þetta leysti hann vel af hendi og naut hann mikils trausts flug- manna sem nutu þjónustu hans og hans góðu konu, Asgerðar Einars- dóttur, sem hefur alla tíð staðið við hlið manns síns í starfí hans og þegar hann veiktist fyrir um það bil 20 árum. Þá sýndi Ari hve mik- ið þrekmenni hann var — alltaf reis hann upp aftur og var ekki í rónni fyrr en hann var kominn til starfa á ný. Eftir að hann lét af störfum, fyrir aldurs sakir, fór hann að vinna við atvinnurekstur sona sinna í Keflavík og hafði yndi af því, því ekki var honum að skapi að setjast í helgan stein, enda alinn upp við að taka til hendinni eins og títt var um ungmenni á önd- verðri öldinni. Voru þau látin vinna hin ýmsu verk sem til féllu. Ari fékk ungur áhuga á flugi og gekk til liðs við nokkra unga áhuga- menn á Akureyri og stofnuðu þeir Svifflugfélag Akureyrar og vom í þeim hópi menn eins og Jóhannes R. Snorrason, Aðalbjöm Kristbjam- arson og Viktor Aðalsteinsson, svo nokkrir séu nefndir. Allir vom þeir alla tíð miklir vinir Ara og mat hann þá mikils. Ég get ekki látið hjá líða að minnast samstarfs okkar, sem varði í 22 ár. Var hann mér ætíð sem besti vinur og miðlaði mér af þekk- ingu sinni sem hann hafði öðlast í farsælu starfí sem hann lagði alla tíð mikla rækt við og þótti vænt um. Ég sakna þess að fá ekki leng- ur að njóta samverustunda og viðræðna um flugmálin sem vom honum hugleikin enda starfsvett- vangur hans í nærri 4 áratugi og á þeim ámm hefur orðið mjög ör þróun, sem hann upplifði, frá Norseman, Kataiinum, Douglas- vélunum og Boeing-þotunum. Ég vil að endingu þakka alla þá tryggð og vináttu sem hann sýndi mér og votta ég Asgerði og sonum þeirra og dóttur og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Aðalsteinn Dalmann Októson Gamals vinar og drengskapar- manns er hér minnst með nokkmm orðum. Ari L. Jóhannesson, fyrrv. verk- stjóri í hlaðdeild Flugfélags íslands hf. og síðar Flugleiða hf., verður í dag borinn til hinstu hvflu. Hann lést í Landspítalanum að kvöldi 20. þ.m. eftir örstutta legu þar. Hann hafði um margra ára skeið átt við vanheilsu að stríða, en bar ávallt höfuðið hátt, barmaði sér aldrei og var sístarfandi meðan hann hafði fótavist. Hann var harðger og sterkur að eðlisfari. Ari fæddist þann 2. febrúar 1910 að Skálmar- dal í Múlahreppi, Barðastrandar- sýslu, sonur hjónanna Oddnýjar Guðmundsdóttur og Jóhannesar Guðmundssondar bónda, sem lengi bjuggu að Ingunnarstöðum í sama hreppi. Foreldrar Ara eignuðust 13 böm sem flest komust til fullorðins- ára og var Ari fjórði í röðinni. Eins og þá háttaði til í sveitum landsins vöndust bömin snemma til vinnu og aðstoðar við fjölbreytileg störf bæði innan heimilis og utan. Bar Ari þess glögg merki að hann var vinnuhagur vel og dugmikill til allra verka. Honum var ógeðfellt að láta hlutina drabbast niður, tók heldur til verka og lauk því sem gera þurfti án tafar. Merk saga hefír varðveist frá æskuárum Ara. Hann var um skeið í seli með frænda sínum og nafna við fjárgæslu, alllangt frá byggð í Múlahreppi, en selið var frá bænum Firði. Frændinn brá sér til byggða og skildi 10 ára snáðann einan eft- ir hjá fénu, enda hugðist hann koma samdægurs til baka í selið. Hríðar- veður var og kuldi þennan dag og varð hann úti nokkum spöl frá sel- inu. Drengurinn mátti því dúsa einn með fénu, og hagamúsunum í myrkrinu þar til farið var að undr- ast um ferðir fjárgæslumannsins og leitarmenn fundu líkið og dreng- inn einan í selinu. Voru þá liðnir 7 dagar og matur á þrotum. Þrek og kjarkur drengsins vakti mikla at- hygli og þótti hann sýna einstæða hugarró og þolgæði með því að reyna ekki sjálfur að komast til byggða eftir að sýnt var að eitthvað hafði hent frænda hans. Hann gekk að öllum störfum í selinu eins og þeir vom vanir frændumir og naut hlýjunnar af fénu á nóttunni. Þetta litla ævintýri í uppvextinum sýndi svo ekki varð um villst hvað bjó í Ara, hann var alla tíð kjarkmaður og hljóp ekki hugsunarlaust út í óvissu. Eftir að hafa um skeið búið í Hafnardal og Hnífsdal fluttist Ari með fjölskyldunni til ísafjarðar og mun þá hafa verið um fermingar- aldur. Þar dvaldist hann nokkur ár og stundaði m.a. bifreiðaakstur, var einn með fyrstu bifreiðastjórunum þar. Um tvítugsaldur brá Ari sér í vinnumennsku að Eyjólfsstöðum í Vatnsdal en þaðan lá leiðin til Blönduóss þar sem hann gerðist aðstoðarmaður tveggja lands- kunnra lækna, vom það Páll Kolka og Jónas Sveinsson. Ari var nokk- urs konar apótekari á Blönduósi á þeim ámm, lærði að vinna hin ýmsu verk sem tengdust viðamiklu og vandasömu starfi héraðslækna þess tíma. Minntist hann oft ferða- laga með læknana er hann ók með þá um héraðið, stundum við afar erfíð skilyrði. Mátti hann þá oft aðstoða við aðgerðir sem aðeins menntað og þjálfað hjúkmnarfólk annast í dag. Á þessum ámm kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Ásgerði Einarsdóttur, ættaðri + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför fööur okkar, HELGA TRYGGVASONAR, Þingvallastrœti 4, Akureyri. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Helga Helgadóttir, Tryggvi Helgason, María Helgadóttir. úr Borgarfírði, en hún var þá við nám í Kvennaskólanum á Blöndu- ósi. Ari kunni alla tíð vel að meta hina frábæm og góðu húsmóður, sem hefír verið honum stoð og stytta, ekki síst eftir að heilsan fór að bila. Þau vom alla tíð mjög sam- hent og heimili þeirra til fyrirmynd- ar. Eftir nokkurra ára dvöl á Blönduósi fluttist Ari með brúði sína til Akureyrar og vann til að byija með hjá Kaupfélagi Eyfírðinga. Hann var einn af stofnendum Svif- flugfélags á Akureyri og þá hófust kjmni okkar sem aldrei bar skugga á upp frá því. Heimili Ásgerðar og Ara hefír verið mér afar kært allt frá þeim ámm er þau bjuggu á Akureyri, var annálað fyrir gest- risni og hlýju og áttum við flug- mennimir þar ávallt notalegt athvarf. Fljótlega gerðist Ari starfs- maður Flugfélags íslands á Akur- eyri, annaðist afgreiðslu flugvél- anna og akstur með farþega milli bæjarins og Melgerðismela. Munu margir minnast hans frá þeim ámm. Ari og Ásgerður eignuðust 3 sjmi, Einar og Karl sem báðir em verktakar og Jóhannes niðursuðu- fræðing. Aliir hafa sjmimir rejmst foreldrum sínum vel og var Ara afar annt um þá og studdi eftir bestu getu. Eina dóttur eignaðist Ari á Vestfjarðaárunum. Er það Amfríður, gift Hauki Matthíassyni lögregluvarðstjóra í Reykjavík. Hef- ir alla tíð verið náið samband milli heimilanna og mat Ari ávallt mikils hina glæsilegu dóttur. Hefír hún erft marga góða kosti föðurins. Ari Jóhannesson var einn af þeim mönnum semn alltaf virtist eiga tíma aflögu ef rétta þurfti með- bræðmnum hjálparhönd, var greið- vikinn og hlýr við þá sem minna máttu sín og þurftu á stuðningi að halda. Það er ekki síst þess vegna að margir munu í dag sakna góðs vinar. Flugmenn fyrri ára áttu mik- il og góð samskipti við Ara, ekki síst meðan flugbátamir vom í för- um, að ógleymdum ámnum meðan Melgerðismelar vom aðalflugvöliur- inn norðanlands. Hleðsla flugféla er vandaverk með hliðsjón af þungamiðju. Ari bar mjög gott skynbragð á þá hluti og af með- fæddri samviskusemi fórst honum það svo vel úr hendi að við voram famir að treysta tölum sem upp vom gefnar án þess að vigta far- angur, hann hafði vogina inn- byggða í hendi sér. Ari vann öll störf af trúmennsku og ósérhlífni, taldi ekki eftir sér að vaka jrfir flugvélunum þegar illa viðraði og ætlaðist þá einnig til þess að aðrir starfsmenn sýndu í verki vilja sinn um að félaginu vegn- aði vel sem þeir unnu hjá og verðmæta væri vandlega gætt. Hann var dugmikill verkstjóri, vildi hafa hlutina í lagi og geri ég ráð fyrir að undirmenn hans hafí kunn- að vel að meta það og þá ekki síður forráðamenn þeirra flugfélaga sem hann vann hjá. Þegar nú að leiðar- lokum vegir skiljast um stund er mér efst í huga þakklæti fyrir hálfr- ar aldar vináttu og samstarf. Ég og fjölskylda mín sendum öllum ættingjum Ara innilegar samúðar- kveðjur. Megi hinn látni hvíla í Guðs friði. Jóhannes R. Snorrason Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. , Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Hann afí, sem var einn af mínum kæmstu og bestu vinum, er nú far- inn í sitt hinsta ferðalag. Hann sem var svo frískur að morgni var horf- inn okkur að kvöldi. Með honum er genginn stórbrotinn drengskap- armaður og víst er um, að það skarð, sem hann skilur eftir sig, verður seint fyllt. Hann afí, Ari L. Jóhannesson, fæddist 2. febrúar 1910 í Skálmar- dal í Barðastrandarsýslu. Hann var sonur hjónanna Jóhannesar Guð- mundssonar og Oddnýjar Guð- mundsdóttur, einn af 13 systkinum. Trúmennska og hugrekki vom hon- um í blóð borin og sýndi sig þá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.