Morgunblaðið - 28.11.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
51
þegar er atvikin höguðu því þannig
til, að hann, þá aðeins tæpra 10
ára að aldri, varð aleinn að dvelja
í Fjarðarseli í Kerlingarfírði fjarri
mannabyggðum í fulla sjö sólar-
hringa, eftir að föðurbróðir hans,
Ari Guðmundsson, sem hann dvaldi
hjá við fjárgæslu í selinu, hafði orð-
ið úti í aftakaveðri við öflun
matfanga, aðeins örfáa faðma frá
Fjarðarseli. Ekki brást drengurinn
þó mállausum skepnunum né því
sem fyrir hann hafði verið lagt,
þrátt fyrir myrkur og torkennileg
hljóðin í vindinum, íjarri manna-
byggðum. En þannig var afí alla
tíð, traustur og ósérhlífínn.
Stærsta gæfuspor sitt steig afí
er hann kvæntist ömmu, Ásgerði
Einarsdóttur, sem fædd er í
Reykjavík, dóttir hjónanna Einars
Ólafssonar og Þórstínu Gunnars-
dóttur. Þau kynntust á Blönduósi,
er afí starfaði þar sem einskonar
apótekari hjá tveim landskunnum
læknum, þeim Páli Kolka og Jónasi
Sveinssyni. Amma stundaði þá nám
við kvennaskólann þar í bæ. Þau
giftu sig á Blönduósi 30. desember
1933 og héldu því hátíðlegt 50 ára
gulibrúðkaupsafmæli sitt, nú fyrir
rétt tæpum þremur árum. Sam-
heldni þeirra afa og ömmu var
einstök og ást og umhyggja gagn-
vart hvort örðu áberandi í fari
þeirra.
Snemma á búskaparárum sínum
fluttust þau til Akureyrar, þar sem
afí var einn af stofnendum svifflug-
félagsins og störfum tengdum
fluginu helgaði hann stærstan hluta
starfsævi sinnar, fyrst hjá Flugfé-
lagi íslands á Akureyri, en þar hóf
hann störf á lýðveldisdaginn 17.
júní 1944. Síðar varð hann verk-
stjóri hjá Flugfélagi íslands í
Reykjavík, seinna Flugleiðum, og
starfaði þar í ein 30 ár eftir að fjöl-
skyldan fluttist suður.
Bömin íjögur: Arnfríður, Einar,
Karl og Jóhannes, slitu bamsskón-
um fyrir norðan, þar til fjölskyldan
fluttist suður 1951 og þau hjónin
eignuðust hlýlegt og fallegt heimili
að Neðstutröð 2 í Kópavogi. Alltaf
mættu okkur bamabömunum ein-
stök velvild og hlýja í „tröðinni"
hjá ömmu og afa. Og ekki var hann
hár í loftinu litli langafastrákurinn
úr Keflavík þegar hann var farinn
að átta sig á hvaða beygju átti að
taka í Kópavoginn til langömmu
og langafa og lét óspart í sér heyra,
að þar skyldi beygt en ekki haldið
áfram.
Afí var ákaflega tónelskur maður
og á kvöldin eftir annasaman vinnu-
dag naut hann þess að halla sér
aftur í stólnum sínum og hlusta á
fallegan söng og góða tónlist.
Hann afí var sérlega vinnusamur
maður og fylginn sjálfum sér og
er þó vægt til orða tekið, því ann-
arri eins athafnaþrá hef ég sjaldan
kynnst. Eftir að hann lét af störfum
hjá Flugleiðum fyrir aldurs sakir lét
hann sig ekki muna um að aka á
milli Kópavogs og Keflavíkur, oft
daglega í misjöfnu veðri, ef hann
vissi um einhver verkefni sem hann
gat leyst af hendi fyrir bömin sín
eða bamabömin. Hann vildi helst
vera þar sem eitthvað var að ger-
ast og var jafnan fyrstur á staðinn,
þar sem hans var þörf.
Fjölmörg hin seinni ár þjáðist afi
af þrálátum astma, en bugaðist lítt
þótt á móti blési og beit á jaxlinn,
eins og forðum daga í Fjarðarseli.
Þrátt fyrir mikla vinnusemi afa
var ijölskyldan alltaf aðaláhugamál
hans og fylgdist hann alla tíð af
lífí og sál með okkur bömunum í
starfí og leik eins og sannkallaður
ættarhöfðingi.
Alltaf var hann afí góður vinur
og félagi, og gott til hans að leita
og þiggja af honum ráðleggingar.
Þar ríkti ekkert kynslóðabil.
Þær em ófáar ánægjustundimar
sem við hjónin höfum átt með þeim
afa og ömmu í Neðstutröðinni.
Gaman höfðum við af því að hlusta
á afa segja okkur sögur af því sem
á daga hans hafði drifíð og aldrei
leiddist okkur þá, þvi frásagnar-
hæfíleikar afa vom miklir og stutt
í glettnina. Oft var setið ffameftir
kvöldi og spjallað og enduðu slíkar
heimsóknir oftast þannig að við
gistum næturlangt hjá þeim afa og
ömmu.
Nú er leiðir skilur að sinni viljum
við þakka fyrir þau ár, sem við feng-
um að njóta hans afa, fullviss um
það að hann hefur átt góða heim-
komu og að við munum hittast aftur
síðar, þótt annars staðar verði. Við
biðjum góðan Guð að blessa og
styrkja elsku ömmu, sem nú sér á
eftir sínum trygga lífsfömnaut.
Blessuð sé minningin um hann afa.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Stefán G. Einarsson
og fjölskylda.
I dag verður jarðsunginn félagi
okkar í Lionsklúbbi Kópavogs Ari
Jóhannesson. Hann fæddist 2. febr-
úar 1910 í Skálmardal í Barða-
strandarsýslu, og var því 76 ára
er hann lést 20. nóvember sl. Ari
kvæntist eftirlifandi konu sinni Ás-
gerði Einarsdóttur frá Reykjavík
árið 1933. Bömin fy’ögur, Amfríð-
ur, Einar, Karl og Jóhannes, eiga
alls 22 böm og bamaböm.
Ari var mikill félagsmálamaður
og ætíð tilbúinn að leggja sitt af
mörkum til góðra málefna. Þau Ari
og Ásgerður bjuggu allmörg ár á
Akureyri þar sem Ari var verkstjóri
hjá Flugfélagi íslands. í þá daga
var gott að eiga traustan starfs-
mann sem gat gengið að hveiju sem
þurfti. Hugur Ara stóð lengi vel til
starfa sem flugliði, en á þeim ámm
vom námsstyrkir takmarkaðir og
ekki auðvelt að velja sem í dag um
ýmis störf. Ari var um skeið for-
maður í Svifflugfélagi Akureyrar.
Ari og Ásgerður fluttust til Kópa-
vogs 1951 þar sem þau hafa síðan
átt heima að Neðstutröð 2. Þar
bjuggu þau sér fagurt heimili og
var ætíð gott að koma til þeirra,
spjalla um málefni dagsins og und-
irbúa ýmis störf á sviði félagsmála.
Ari var í stjóm Rauða krossins í
Kópavogi í nokkur ár.
Árið 1959 þegar Lionsklúbbur
Kópavogs var stofnaður var Ari
meðal stofnfélaga. Hann var virkur
félagi, var í mörgum nefndum
klúbbsins og um skeið gjaldkeri.
Góð umgengni, drífandi framtaks-
semi og umfram allt góður drengur
eru eiginleikar sem koma upp í
huga okkar þegar Ara er minnst.
Hann sótti síðast fund í klúbbnum
12. þ.m. Ari átti í mörg ár við veik-
indi að stríða sem hann tók með
karlmennsku og vildi sem minnst
ræða um við aðra.
Við félagamir í Lionsklúbbi
Kópavogs höfum misst góðan og
eljusaman félaga. Við vottum Ás-
gerði og fjölskyldu dýpstu samúð
um leið og við kveðjum mætan
dreng og þökkum honum samfylgd-
ina.
Félagar úr Lions-
klúbbi Kópavogs.
Arnessýsla:
Sauðfjárbændur funda um framleiðslumálin
Greiðslur sláturleyfishafa mismunandi
FÉLAG sauðfjárbænda í Árnes-
sýslu hefur safnað saman upplýs-
ingum frá sláturleyfishöfum um
greiðslur og fyrirkomulag þeirra
til bænda í haust. Samkvæmt
yfirliti félagsins eru greiðslur
með nokkuð mismunandi hætti,
eins og rakið verður hér á eftir.
Félagið heldur fund um fullvirð-
isrétt og fullvirðis- og búmarks-
mál sauðfjárbænda að Borg í
Grimsnesi þriðjudaginn 2. des-
ember næstkomandi og hefst
hann klukkan 21.
Bjami Guðmundsson aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra kemur
á fundinn til að skýra úthlutun full-
virðisréttar og svara fyrirspumum.
Jóhannes Kristjánsson formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda segir
frá umfjöllun stjómar samtakanna
um markaðsmál og fleira.
í frétt frá Félagi sauðfjárbænda
í Ámessýslu kemur meðal annars
fram að Kaupfélag Suðumesja
(sláturhús í Grindavík) greiðir fullt
grundvallarverð inn á reikninga
innleggjenda þegar slátrun er lokið.
Innleggjendur geta tekið innistæður
sínar út eftir hentugleikum. Til frá-
dráttar koma sjóðagjöld en hvorki
flutningskostnaður né stofnsjóður.
Hjá Höfn hf. á Selfossi er 80%
grundvallarverð greitt inn á við-
skiptareikning 1. október og síðan
í upphafi hverrar viku á meðan
slátmn fer fram. Fullnaðargreiðsla
sem á samkvæmt lögum að fara
fram 15. desember er háð fjár-
hagslegri fyrirgreiðslu. Matkaup hf.
(sláturhús á Minni-Borg) greiðir
VERSLUNIN Gjafahornið var
nýlega opnuð á Grettísgötu 46,
horni Grettisgötu og Vitastígs,
og verslar þar með leikföng,
gjafavörur, jólavörur og allskyns
vefnaðarvöru.
Ætlunin er, að vera með kven-
1.750 krónur á hverja kind upp í
afurðir í næstu viku eftir innlegg.
Aðeins em dregin frá lögboðin
sjóðagjöld. Sláturfélag Suðurlands
hefur ekki svarað félaginu, en fram
kemur að þar hafí verið greiddar
1.350 krónur á hveija kind og
greiðslan lögð í banka í lok fyrstu
viku eftir innlegg.
fatnað og þá aðallega í yfírstærð-
um, einnig að konur geti fengið
saumað á sig fatnað úr efnum sem
til sölu em í versluninni.
Eigandi er Fjóla Einarsdóttir
Hilmar, en samstarfskona hennar
er Kristín J. Jónsdóttir.
Fjóla Einarsdóttír Hilmar og Kristín J. Jónsdóttir í versluninni Gjafa-
homið.
Ný verslun á Grettísgötu
Hudson-fatnaðurinn er þekkt þýsk gæða-
vara. Jakkar, peysur, buxur, pils.
Opið til kl. 16 laugardag.
IvmpDli
Laugavegi 26, s. 13300 — Glæsibæ, s. 31300
HERRAFÖT í
ÚRVALI
^4C6íAií fudfátnÍAJcó
H ERRADE I L D
P&O’
Austurstræti 14, s: 12345.