Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
55
Theodorakis
í tónleikaf ör
til Tyrklands
Gríska tónskáldið Mikis Theo-
dorakis, sem líklega er þekkt-
astur fyrir að semja tónlistina við
söngleikinn Zorba, sagði á þriðjudag
að hann hyggðist reyna að koma á
sáttum milli Tyrkja og Grikkja, en
tónskáldið er í þann veginn að leggja
upp í tónleikaferðalag til Tyrklands.
Theodorakis sagði á fréttamanna-
fundi að í ferðinni myndi hann stjóma
femum tónleikum, en jafnframt
reyna að ná til „víðsýns fólks, sem
kysi framsókn, beggja megin Eyja-
hafs“, eins og hann orðaði það. Það
gæti síðan reynt að fá ríkisstjómir
sínar til þess að friðmælast. „Það eru
einlægir friðarsinnar til í báðum lönd-
um, sem vilja að þegar verði hafist
handa um friðarviðræður."
Andreas Papandreou, forsætisráð-
herra Grikklands, hefur hins vegar
sagt að engar slíkar viðræður geti
farið fram fyrr en Tyrkir kalli heim
herlið sitt á Kýpur og viðurkenni full-
veldisrétt Grikklands á Eyjahafi.
Theodorakis var spurður hvort
ekki yrði litið á för hans Tyrklands
sem stuðning við herforingjastjómina
í Ankara, en sagði hann að það væri
nú annað: „Heimsókn mín mun vera
framsóknaröflunum í Tyrklandi
stuðningur — ekki afturhaldinu. Ég
mun vera í fylkingu þeirra sem beij-
ast fyrir mannréttindum. Það er sama
fólkið og vill friðmælast við Grikki."
Theodorakis lét af þingmennsku
sinni fyrir Kommúnistaflokk Grikk-
lands fyrr á árinu og sagðist ætla
að helga sig tónlistinni eingöngu.
Umrædd tónleikaför til Tyrklands er
hluti af för hans um ísrael, Portú-
gal, Austurríki og Vestur-Þýskaland.
kostlegu listaverkum, sem standi
sem klettur í stórsjó; óhagganlegt
og óháð tíma“. Þá er birt mynd úr
ræmunni, en á henni sést Guðrún
einmitt, og undir myndinni stendur
„Stórsigur Tarkovskys".
Tarkovsky, sem er útlagi gerði
myndina í Svíþjóð. Um efni hennar
segir The Economist „í myndina
hefur Tarkovsky lagt allar vonir
sínar um frelsi undan efnishyggj-
unni. Þessi saga er um sáttmála
manns við Guð, um það þegar Hann
bænheyrir manninn og reisir heim-
inn úr rústum, en í staðinn afsalar
maðurinn sér eignarréttinum." Ekki
er látið þar við sitja, heldur sagt
að myndin beri með sér ótrúlega
sjálfstjóm sanns listamanns og hún
mærð á alla lund.
uppskriftina vestur, með það í huga
að Long John Silver færi að ij'ölda-
framleiða tertuna.
Nú hafa matreiðslumenn fyrir-
tækisins baksað við að baka tertuna
um nokkurt skeið, án árangurs. Að
þeirra ósk sendi Rannveig tvær til-
búnar tertur með m/s Hofsjökli, þar
sem þeir höfðu ítrekað klúðrað
kreminu að eigin sögn. Nýjustu
fréttir herma að enn hafi sérfræð-
ingum vestan hafs ekki tekist að
baka tertuna svo öllum líki.
Rannveig sagðist hafa rekist á
uppskriftina að tertunni í dönsku
blaði, um það leiti sem hún og Stur-
laugur gengu í hjúskap, árið 1945.
Þótt erlendir aðilar falist nú eftir
uppskriftinni féllst Rannveig góð-
fúslega á að leyfa lesendum
Morgunblaðsins að spreyta sig á
henni.
í tertunni em sjö eggjahvítur,
250 gr af sykri og 250 gr af hnetu-
kjömum eða möndlum. Möndlumar
em hakkaðar í vél. Síðan er sykrin-
um, eggjahvítunum og hnetunum
blandað saman. Þetta deig er sett
í tvö form ög bakað í ofni í 20-25
mínútur við 190 °C. í kremið notar
Rannveig eggjarauðumar sjö, 3-4
matskeiðar af sykri, 100 gr af
smjöri, rifíð súkkulaði eftir smekk
og agnarögn af sterku kaffí. Þessu
er öllu blandað saman og síðan
smurt á milli laga og ofan á tertuna
þegar botnamir hafa bakast.
COSPER.
IOZSO
Félagsvist
kl. 9.00
Gömlu dansarnir
kl. 10.30
TkHljómsveitin Tíglar \*
ÍF MiðasaJa opnai kl. 8.30
tk Góð kvöldverðlaun
)♦- Stuð og stemmning á Gúttógleði
Til eru þeir hlutir, sem vert er að hugleiða, þegar þú
kaupír nýjan bíl, t.d. varahlutaverð og tryggingaið-
gjöld.
Þeir eru margir bíleígendurnir, sem hafa vegna
árekstra eða annarra óhappa þurft að kaupa vara-
hluti á óheyrílegu verðí, ef þeir voru þá yfir höfuð fá-
anlegir.
Við hjá Bílaborg h/f höfum jafnan kappkostað að
halda niðri verði, ekki bara á nýjum bílum, heldur
Iíka á varahlutum.
Sú staðreynd að okknr heftir tekist þetta kemttr með-
al annars fram i því að kaskótryggíngaíðgjöld
MAZDA bífreíða ertx mtm lœgri en annarra sam-
bærilegra bífreiða.
Hér nefnum víð dæmi um verð varahluta í nokkrar
Templarahöllin
Eiriksgötu 5 - Sím/ 20010
Staður allra sem vilja skemmta sér án áfengis.
gerðir MAZDA bíla:
Frambrettí
á MAZDA 323 ’81-«5
kostar 7.240 krónur.
Hvað kostar frambretti
á bílinn þinn?
Framljós
á MAZDA 323 ’86—87
kostar 3.539 krónur.
Hvað kostar framljós
á bílinn þinn?
Okkar vinsæla villibráðakvöld verður föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld í Blómasal
Hótels Loftleiða.
Forréttir:
Hreindýrapaté með ávaxtasósu
eða
Villibráðaseyði með rifsberjum og sveppum
Aðalréttir:
Smjörsteikt rjúpubringa með villibráðasósu
eða
Heilsteiktur hreindýravöðvi með Kvannarótasósu
eða
Ofnsteikt villigæs með Waldorf salati
Eftirréttir:
Heit bláberjakaka með rjóma
eða
Kampavíns kryddað ferskt ávaxtasalat
og að sjálfsögðu okkar rómaði sérrétta matseðili.
Sigurður Þ. Guðmundsson leikur Ijúfa tónlist
fyrir matargesti.
Borðapantanir í síma 22322—22321
á MAZDA 626 ’83—87
kostar 2.337 krónur.
Hvað kostar grill
á bílinn þinn?
Kúplingsdiskur
í MAZDA 323
kostar 1.246 krónur.
Hvað kostar kúplíngs-
diskur í bílinn þinn?
í MAZDA 323 '81^85
kosta 1.068 krónur.
Hvað kosta bremsu-
borðar í bílinn þinn?
HOTEL LOFTLEIÐIR
BILABORG HF.
SMIÐSHÖFÐA 23, SlMI 68-12-99
HOTEL
FLUCLEIOA