Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 61

Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 61
MORGUNlBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 61 4 Almenningsálitið hunsað Kæri Velvakandi. Það ætlar að fara líkt um niður- stöður nefndar þeirrar, sem skipuð var til að kanna viðskiptahætti Út- vegsbankans og Hafskips, og nefndarinnar sem skilaði skýrslu um starfsemi Hjálparstofnunar kirkjunnar. í báðum tilvikum er almennings- álitið hunsað svo gjörsamlega, að við því verður vart búist í framtíð- inni að landsmenn taki hið minnsta mark á því þótt skipaðar séu opin- berar nefndir til að rannsaka hin ýmsu mál sem upp koma og kunna að þykja grunsamleg. Að fordæmi stjómarmanna Hjálparstofnunar kirkjunnar, sem samþykktu að víkja sjálfum sér ekki frá störfum, vitna nú bæði ráðherra og formaður bankaráðs Útvegsbankans og segjast ekkert athugavert sjá við það að banka- stjórar bankans hafi setið sem fastast meðan á rannsókn stóð! Þeir bæta því raunar við að þeir séu líka ósammála höfundum skýrslunnar um Útvegsbankann í veigamiklum atriðum. Þetta sögðu þeir líka hjá Hjálparstofnun kirkj- unnar. Og þegar fréttamenn spyija nánar út í þessi atriði er þeim svar- að næstum út í hött með orðunum: „Bara ósammála nefndinni", basta! Það var þá líka þörf að láta vinna skýrsluna, samkvæmt lögum frá því 24. desember sl. eða hitt þó heldur! Ráðherra segir sem svo: „ ... tiltekin atriði í skýrslunni sem ég hefði haft öðruvísi...“! Því fylgdist hann þá ekki með skýrslu- gerðinni? Var það ofætlan? Og hagsmunagæslu Útvegs- bankans var þá í engum atriðum ábótavant, eða hvað? En það er ein- mitt gagnstætt því sem kemur fram í skýrslu rannsóknamefndarinnar, sem segir, að hagsmunagæslu bankans hafi í mörgum atriðum verið ábótavant! Þær ógöngur sem Útvegsbankinn er kominn í eru sem sagt engum að kenna, hvorki núver- andi bankastjórum sem komu „svo nýlega inn í störf sín“, né þeim sem áður gegndu störfum. Að vísu segir ráðherra, að málinu sé enn ekki lokið og það sé enn í höndum bæði skiptaráðanda og rannsóknarlögreglu. Enginn skyldi þó halda að niðurstöður þessara aðila verði virtar að heldur, þegar þar að kemur. Það má setja stórt spuminga- merki við þá spumingu fólks á hvaða leið siðgæðið í þessu landi sé og þá einkanlega hjá ýmsum opinberum eða hálfopinbemm aðil- um. Víst er um það að nú síðustu mánuði hefir það goldið mikið af- hroð, vegna framferðis ýmissa aðila, sem gegnt hafa opinberum eða hálfopinbemm embættum, í nefndum og ráðum, og á sjálfri lög- gjafarsamkundu þjóðarinnar, Alþingi. Mætti nefna mörg dæmi umfram þau er koma fram í málefnum Hjálparstofnunar og Útvegsbank- ans. Brotthlaup þingmanna Banda- lags jafnaðarmanna í aðra flokka er eitt dæmið. En látið skal staðar numið að sinni. Borgari 'f Hvað um fólkið út á landi Ingvi Hrafn? Sigurbjörg hringdi: Vegna ummæla Ingva Hrafns, um að sjónvarpið hyggist segja upp samningum við erlenda fréttastöð, um útvegun fréttaefnis vil ég segja þetta. Þó að Stöð 2 fái myndir frá þessum sömu aðilum þá fáum við sem eigum heima úti á landi ekkert af þeim að sjá ef ríkissjónvarpið ætlar að hætta með þær. Er nú ekki kominn tími til að Ingvi Hrafn átti sig á því að ríkissjónvarpið er ekki aðeins fyrir Reykvíkinga og nágranna? Fann lyklakippu Skilvís finnandi hringdi og kvaðst hafa fundið lyklakippu með íjórum húslyklum á. Eigandi hringi í s.71503. Týndi perlu- armbandi Kvenmaður hringdi: Þann 14. nóvember sl. týndi ég armbandsgullkeðju með perlum á. Þetta var á Fógetanum eða í ná- grenni hans. Finnandi vinsamlegast hringi í s.83185. Ríkissj ónvarpið má ekki gleyma landsbyggðar fólkinu Sigurbjörg hringdi: Ég er afskaplega óánægð með orð Ingva Hrafns um að segja eigi upp samningum við World Televisi- on. Við, sem ekki eigum heima á útsendingarsvæði Rásar 2, viljum fá áfram myndir frá þeim. Og ég er ekki sannfærð um að fólk horfi Ökumenn Hafið bifreið ykkar ávallt í fullkomnu lagi. Dimmviðri og slæm færð krefst aukinnar aðgæslu og minni hraða. Metið aðstæðumar hveiju sinni og munið að endurkast ljósanna af blautum götunum minnkar skyggni og krefst meiri varkámi. ekki á báða fréttaþættina, það er að segja það sem nær báðum út- sendingunum. Þó samkeppnin sé hörð má ekki gleymast að ríkissjón- varpið hefur skyldum að gegna við fleiri en íbúa Reykjavíkur. Því ekki að láta umboðslaunin renna til Krabbameins- félagsins og unglinga- heimilis RKÍ? Amma í úthverfi hringdi: Rauði Krossinn hefur sýnt mik- inn stórhug í því að reka neyðarstöð í Reykjavík fyrir unglinga sem eiga við vímuefna- eða önnur persónuleg eða félagsleg vandamál að stríða. Nú las ég um það í Morgunblaðinu að þetta heimili, Rauða Kross hús- ið, vanti fjármagn til áframhaldandi rekstrar. En þörfin er brýn og þama virðist eitthvað áþreifanlegt verið unnið að þessum málum. Áfengi er selt í einkasölu ríkisins en umboðslaun fyrir hinar ýmsu tegundir renna til einkaaðila sem hvergi koma nærri afleiðingum af neyslu vöm þeirra. Tillaga mín er sú að umboðslaun fyrir tóbak renni til Krabbameinsfélagsins og um- boðslaun fyrir áfengi renni til unglingaheimilis Rauða Krossins, þar sem ógæfubraut ungra vímu- efnanotenda hefst oftast á áfengis- neyslu. Svarið fyrir ykkur Samvinnu- bankamenn Óánægður samvinnumaður hringdi: Það er til marks um sljóieika við- skiptavina Samvinnubankans að enginn virðist hafa neitt að athuga við þá upplýsingu úr nýlegri könnun að bankinn skeri sig úr með okur á þeirri þjónustu sem hann lætur fólki í té. Við gamlir samvinnumenn og viðskiptavinir Samvinnubankans viljum gjama fá svör við því hvem- ig á þessum niðurstöðum stendur? Við teljum okkur raunar eiga inni svör við þessu spursmáli. Vill nú ekki bankastjórinn eða jafnvel sjálf- ur formaður bankaráðs, Erlendur Einarsson, gera svo vel að svara spumingunni opinberlega - helst hér í Velvakanda? esta verðið Já, nú borgar sig að lesa ef þig vantar góðan og fallegan klæðaskáp með plastfilmu í viðarlitum og hvítu. 10.380 I 12.980 Fura-eik-hvitt. H.200 B.95 D.54 Fura-eik-hvitt H.200 B. 142 D.54 Fura H.200 B. 144 D.58 Rennihuröir. 9.990 H.200 B.96 D.58 Rennihurðir. 20.810 Fura — eik — hvítt H.200 B.193 D.58 Rennihurðir. X Og margar aðrar gerðir. ^ihúsgagnahöllin lil-i -.T.-ÍJBILDSHÖFÐA 20— 112 REYKJAVÍK -91-681199og 681410

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.