Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 Italska knattspyrnan: T ekst Maradona og félögum að vinna titilinn ífyrsta sinn í sögu Napolí? DIEGO ARMANDO Maradona, stjama heimsmeistarakeppninn- ar í Mexfkó sem leikur nú með Napolí á Ítalíu, er á góðri leið með að gera Napolí að ítölskum meisturum í fyrsta sinn í 60 ára sögu félagsins. Maradona er fyrirliði Napoli og leikur stórt hlutverk í liðinu eins og nærri má geta. Þetta er annað keppnistímabil hans hjá félaginu, en hann var keyptur frá Barcelona fyrir 7,5 milljónir dollara, sem sam- svarar um 290 milljónum íslenskra króna. Forráðamenn Napoli segja að þessi peningar koma til með að skila sér aftur í kassann og gott betur, því á heimaleiki liðsins 4 San Paolo-leikvanginn komi að meðaltali 70 þsund áhorfendur til að horfa á snillinginn. Háværar raddir um að Napoli verði meistari Eftir 4:0 sigurinn gegn Empoli á sunnudaginn, þar sem Maradona skoraði sitt fimmta mark í vetur, eru enn háværari raddir um að Napoii verði ítalskur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið er nú í efsta sæti deildarinnar eft- ir 10 umferðir, tveimur stigum á undan Juventus. Forráðamenn Napoli gera sér vonir um að liðið auki forskot sitt um næstu helgi þar sem þeir eiga að mæta Verona á meðan Juventus fær mjög erfiða andstæðinga, Roma, á útivelli. Napoli var stofnað 1926 og hef- ur leikið 50 ár í 1. deild. Stærsti sigur liðsins var 1962 þegar þeir urðu fyrsta 2. deildarliðið til að vinna ítalska bikarinn. Þeir urðu einnig bikarmeistarar 1976 en hafa aldrei orðið deildarmeistarar. Liðið hefur ekki komist í toppsæti deild- arinnar í 11 ár en þangað komst það eftir sigur á Juventus sem þeir höfðu ekki unnið í 29 ár. Milliríkjadómarar: Þrír teknir af listanum Á stjórnarfundí Knattspyrnudóm- arafélags íslands fyrir skömmu voru þrfr dómarar teknir af milli- rfkjalistanum vegna þess aö frammistaða þeirra hefur ekki verið nægjanlega góð. Að sögn Inga Jónssonar, form- anns KDSÍ, fengu Kjartan Ólafsson Hlaupi frestað GÖTUHLAUPI þvf sem fram átti að fara f Keflavík á laugardaginn hefur verið frestað um viku vegna ársþings FRÍ. Hlaupið fer því fram laugardaginn 6. desember. og Þorvarður Björnsson ekki góðar einkunnir eftirlitsdómara á leikjum, sem þeir dæmdu erlendis, og sama væri að segja um dómara- störf Þórodds Hjaltalíns innan- lands. Því væri Ijóst að þeir fengju ekki störf á mitliríkjaleikjum, sem eftir er tímabilsins, en það rennur út 1. júlí á næsta ári, og þess vegna hefðu þeir verið teknir af listanum. Guðmundur Haraldsson, Óli P. Ólsen og Eysteinn Guðmundsson hafa hins vegar fengið góða dóma fyrir dómarastörf sín og eru áfram á milliríkjalistanum. Ingi sagði, að þeir, sem nú væru fallnir út, væru ekki endanlega úti í kuldanum, því ef þeir standa sig vel innanlands til 1. júlí, þá eigi þeir möguleika á að komast aftur inn á listann. Þrjár breytingar frá síðasta ári Framkvæmdastjórinn, Ottavio Bianchi, sem tók við liðinu á síðasta keppnistímabili sagðist ekki hafa breytt leikstíl liðsins. „Þessi góði árangur liðsins er vegna stöðugleika þess og trú leik- manna á að þeir geti þetta,“ sagði Bianchi. Hann hefur keypt þrjá nýja leikmenn. Fernando De Na- poli, einn besta leikmann ítalska landsliðsins í Mexíkó, sem kom inná miðjuna og í framlínuna komu Andrea Carnevale frá Udinese og Francesco Romano frá 2. deildar- liðinu Triestina. „Það eru 50 prósent líkur á því að Napoli verður meistari," sagði Sven Eriksson, þjálfari Roma, um möguleika Napoli. „Liðið hefur enga veika hlekki og svo hafa þeir Maradona..." • Diego Maradona og félagar í Napolí eru í efsta sæti ftölsku 1. deildarinnar í knattspyrnu. Hér er snillingurinn f leik með liði sínu gegn Juventus, en Napolí vann 3:1. Stef nt að því að hafa Getraunir ailt árið „VIÐ stefnum að þvf að verða með getraunir allt næsta sumar. Það er allsendis óvíst hvernig það tekst, en við munum láta reyna á það“, sagði Birna Efnarsdóttir framkvæmdastjóri Getrauna f samtali við Morgunblaðið. Víða erlendis, t.d. í Vestur- Evrópu, er spilað í knattspyrnuget- raunum allt árið og á sumrin eru sett upp knattspyrnumót beinlínis í þeim tilgangi að halda getraunum Enska landsliðið: Don Howe hafnað ENSKA Knattspyrnusambandið hefur hafnað tillögu Bobby Rob- sons, landsliðsþjálfara, um að Don Howe verði ráðinn ffullt starf sem aðstoðarþjálfari landsliðs- ins. Fyrr í mánuðinum óskaði Rob- son eftir því að Howe, sem verið hefur aðstoðarmaður hans i hluta- starfi undanfarin 6 ár, yrði fastráð- inn í fullt starf, en Knattspyrnu- sambandið ákvað í gær að verða ekki við bón landsliðsþjálfarans. Don Howe sagði framkvæmda- stjórastarfi sínu hjá Arsenal lausu í lok síðasta keppnistímabils eftir að hafa stjórnað liðinu í um tvö ár. Hann segist vera ánægður með hlutastarfið hjá landsliðinu, en Robson óttast að Howe neyðist til að ráða sig í fullt starf erlendis. Að undanförnu hefur hann þjálfað í Saudi Arabíu og hefur verið beð- inn um að halda þar áfram. NÝR UMBOÐSMAÐUR Á AKRANESI Kynning á @Husqvarna saumavélum laugardag kl. 12—16. Husqvarna saumavélar borga sig. Erla Ásgeirsdóttir kynnir 6 gerðir Husq- varna saumavéla og þar á meðal nýjasta undrið í saumavélalínunni frá Husq- varna, PRISMA 990. Verð á Husqvarna saumavélum frá kr: 14.421,- stgr. náMniarHgmstan tt Stillholti 16 - Pósthólf 151 - 300 Akranes - Sími (93)1799 Gunnar Asgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200 gangandi. Frægast þessara móta er Toto-keppnin , en í henni taka þátt mörg fræg lið frá ýmsum lönd- um . „Ég á von á því að við verðum fyrst og fremst með íslenska knatt- spyrnu á getraunaseðlunum í sumar", sagði Birna. „Það þýðir að vísu að við verðum stundum að vera með leiki úr fyrstu, ann- arri og þriðju deild á seðlinum vegna þess að hér eru stundum svo fáir leikir um helgar. Ef til vill neyðumst því til að leita út fyrir landsteinana að einhverju leiti og höfum nú þegar sett okkur í sam- band við þá aðila sem standa að Toto-keppninni. En núna er óvíst hvað kemur út úr því", sagði Birna. Almennt er búist viö því að Lottóið verði til þess að draga eitt- hvað úr áhuga fólks á getraunun- um, þó svo um ólíkan leik sé að ræða. En hafa getraunir nú þegar fundið fyrir samkeppninni? „Nei, ekki get ég nú sagt það," sagði Birna. „Enda er Lottóið svo nýfarið af stað. En við gerum okkur auðvit- að grein fyrir því að þetta er á vissan hátt samkeppni við okkur og að við verðum að gera okkar besta til að halda áhuganum á getraunum vakandi. Meðal annars þess vegna stefnum við að sumar- getraunum", Getrauna- seðillinn EFTIRTALDIR leikir eru á islenska getraunaseðlinum laugardaginn 29. nóvember 1986. Gladbach - Köln Aston Villa — Arsenal Leicester — Chelsea Liverpool — Coventry Luton — Charhon Man. City — Everton Newcastle — West Ham Norwich — Oxford QPR — Sheff. Wednesdey Southampton — Watford Tottenham — Nott’m Forest Wimbledon — Man. United
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.