Morgunblaðið - 08.02.1987, Page 2

Morgunblaðið - 08.02.1987, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987 Að skapa mynd má líkja yið ferðalag Rætt við Jóhönnu Bogadóttur myndlistarmann Blaðamaður þrýstir fingr- inum á útidyrabjölluna og bíður eftir suðinu, sem heyrist í þessum rafknúnu hurðum, sem eru í hveiju húsi háu sem lágu. Hann hrindir hurðinni upp í flýti hræddur um að þessi lágværi niður stöðvist áður en hon- um hefur tekist að opna. Það kemur stundum upp í honum undarleg til- finning, þegar hann ýtir á svona sjálfvirkar hurðir. Hann eins og dettur inn í ævintýri, sem hann las fyrir löngu. Ævintýrið um hellinn, sem laukst upp er ýtt var á stein- hellu....bergið opnast og hann stendur í dimmum gangi og fikrar sig upp þrepin... „Ég er héma uppi“, heyrir hann kallað hátt yfir höfði sér. Blaða- maður flýtir sér í átt til raddarinnar um leið og hann hristir minninguna af herðum sér. Á efsta stigapallinum stendur grannvaxin, fíngerð kona með jarpt slegið hár, í brúnu pilsi og skyrtu með ljósgræna pijónatreyju á öxlunum og réttir fram höndina og segir: „Sæl, ég heiti Jóhanna Bogadóttir." Hún býður honum að ganga inn í forstofu og síðan inn í stofu þar sem stendur hringborð með könnum og tekatli á því miðju og stólar eru í kring. I stofunni eru falleg blóm og sófi, sem sveip- aður er ljósu klæði. Þama era líka borð með blúndudúkum og á veggj- um bókahillur og myndir. En þessi stofa er ekki bara venjuleg stássstofa heldur líka vinnustofa, því í þeim hluta hennar, sem glugg- inn er stærstur hefur verið stúkuð af vinnuaðstaða með ljósu tjaldi. Þar hanga uppi ófullgerðar myndir málaðar á striga og steinn er á gólfínu. „Ég er fædd og uppalin í Vest- manneyjum," segir hún þegar við höfum komið okkur fyrir. „Ég dvaldi líka oft á sumrin á Siglufirði þaðan, sem móðurættin er. Það má því segja að ég sé alin upp á tveim verstöðvum. -Engan fisk er þó að sjá í mynd- um þínum? „Nei, ég ræ á önnur mið, segir hún af umburðarlyndi, því auð vitað er það ekki sjálfgefið að myndefnið snúist um fisk þó listamaðurinn hafi alist upp í sjávarplássum. Hún heldur áfram með frásögnina í lág- um tóni: „En það var svo eftir stúdentspróf, að ég ákvað að fara í myndlistamám. Ég byijaði í Mynd- lista- og handíðaskólanum en hætti til að vinna fyrir utanferð. Ég hélt til Frakklands árið 1966 og sótti listaskóla bæði í Suður- Frakklandi og París. Eftir það lá leiðin til Kaup- mannahafnar þar sem ég nam við Akademíuna í einn vetur. Fór síðan til íslands og eignaðist hana dóttur mína. Ég var fimm ár heima en hélt svo aftur til Frakklands og nokkra síðar til Svíþjóðar þar sem ég stundaði myndlistamám í þtjú ár við Akademíuna í Stokkhólmi. í þessum skólum lagði ég stund á fijálsa myndlist og síðustu árin í Svíþjóð stundaði ég einkum grafík og það gerði ég einnig eftir að ég kom heim en hef síðan farið smátt og smátt meira út í málverkið og teikningar." - Hvað ræður vali á lífsstarfi-, klassísk spuming en nauðsynleg? „Hjá mér var ekki beinlínis um val að ræða heldur þörf,“ segir hún. „Ég var alltaf að fikta við myndlist en síðan varð þetta stöð- uga fíkt alvara, sem ég gat ekki bægt frá. Ég ólst upp í stórfjöl- skyldu, í Hlíðarhúsi í Vestmanna- eyjum, þar sem þótti sjálfsagður hlutur að teikna og búa til hluti, lagfæra og gera ýmislegt skapandi. Reyndar var á heimilinu föðurbroð- ir minn, sem vann ýmsar skreyting- ar fýrir bæjarbúa, skrautskrift og fleira." -Hvað gerir það að verkum að einn leggur fyrir sig skapandi störf en aðrir venjubundin störf? „Það geta verið margar ástæður fyrir því. En eitt af því sem mér fínnst hafa verið kveikjan að því að ég valdi þetta starf er hrifning á náttúranni og af mikilfengleika lífsins, sem mig langaði til að túlka á einhvem hátt og sameinast. Skap- gerðin hefur líka mikið að segja, en þeir sem fara út í myndlist sem aðalviðfangsefni þurfa að vera full- ir bjartsýni." -Á þetta ekki við um allt? „Jú, en myndlistarstörf hafa þá sérstöðu að listamaðurinn stendur alveg einn, hefur ekkert til að styðj- ast við.“ -Gerðir þú þér grein fyrir þessari hlið á starfínu í upphafi? „Já, en ég var ekki að hafa áhyggjur af því hvort ég yrði skuld- um vafinn eftir sýningu og ætti ekki fyrir litum og penslum. Ég held að flestir ungir listamenn hugsi þannig. Þeir láta bara hveijum degi nægja sína þjáningu, það er ekki um annað að ræða. Én stundum hugsa ég, þarf þetta að vera svona? 'Ætti þjóðfélagið ekki að auðvelda listamönnum lífsafkomuna?" -Er sjálfsagðara að styrkja listamenn en aðr- ar stéttir? „Já, vegna þess að störf listamanna falla hvorki undir launuð störf í þjóðfélaginu né mark- aðslögmál neyslunnar en allir njóta þeirra. Fólk gerir sér kannski ekki alltaf grein fyrir því, hve lífsnauðsynlegt það er að menningin fái að blómg- ast. Það er hins vegar erfitt að segja um hveijir era hinir raunveralegu vaxtarsprotar en við verðum að gefa öllum tækifæri til að vaxa og sýna hvað í þeim býr.“ -Finnst þér þú hafa fengið þín tækifæri? „Já, það finnst mér og ég er þakklát fyrir það.“ Jóhanna Bogadóttir hefur sýnt bæði hér og víða erlendis. Hún hefur verið með einkasýningar og tekið þátt í samsýn- ingum og á verk á ýmsum listasöfnum, til dærnis Atheneum listasafninu í Helsinki, Alvar Alto safn- inu, Listasafni Islands og Nútímalistasafninu í New York.- Við spyijum hana um gildi þess að sýna utan heimalandsins? „Það er mikilvægt að fá viðbrögð frá ólíkum og stærri þjóðfélögum en við búum við hér. Hafa þessar sýningar verið geysilega uppör- vandi fyrir mig. En þó að ágætt sé að sækja næringu erlendis þá fínnst mér alltaf gott að vera hér heima í ró og næði. Hér á ég mínar dýpstu rætur og hér höfðar náttúr- an sterkast til mín. Hingað sæki ég efniviðinn í myndir mínar að miklu leyti.“ Hesturinn og hús hestsins. Kartöflurnar, sem vaxa í jörðinni fyrir utan Hafið, stormurinn og lognið, á eftir Eldfjallið, sem bærir á sér, fjal- lið, lækurinn, sem rennur. Vatn, glerbrot, spýtur, tijábútar, sem brenna. Eldurinn, lífíð, dauðinn, baráttan fyrir voninni, þessi fagra veröld. Þetta era yrkisefni Jóhönnu eins og hún lýsir þeim í riti sænska gfaríktríennalsins.- Hvemig verða hugmyndir hennar til? „Þær verða til á löngum tíma,“ segir hún. „Það geta liðið tvö til þijú ár frá því að fyrsta skissan verður til, tími ótal rissa og próf- mynda áður en verkið er tilbúið. Venjulega er ég að vinna að fleiri myndum samtímis. Það er eins og myndefnið þurfi að geijast með mér. Ákveðin hugmynd verður til, sem byijar að vaxa stundum eins og illgresi, en það verður að fá að skjóta rótum líka. En hvaðan hug- myndirnar koma og hvers vegna þær verða til er ekki gott að segja. Kannski endurpegla þær eitthvað af Iífsundrinu. Ef til vill er myndlist- armaðurínn að reyna að komast á staði, sem hann hefur ekki dvalið á áður. Að skapa myndverk má líkja við ferðalag og mér þykir gaman að ferðast.“ -Það eru mikil átök í myndum Jóhönnu og margt að gerast, við spyijum hvort hún sé mikill átaka- maður? „Þeir sem þekkja mig lítið verða stundum hissa, þegar þeir sjá myndirnar mínar,“ segir hún. Én ég hef orðið vör við, að þær vekja oft sterk viðbrögð og hafa stundum verið umdeildar og má ég vera án- ægð með það, því það tilheyrir held ég minni leið í myndlistinni að vekja viðbrögð og ekki vill maður falla inn í eitthvert fyrirfram tilbúið kerfí heldur leita eigin leiða. Hitt er svo annað mál, hvort maður gerir nógu vel eða gæti lagt sig meira fram, unnið meira?" -Hvaða kröfur gerir þú til mynd- listagagnrýni? „Mér þætti æskilegt að umfjöllun um myndlist beindist að því að auka skilning og áhuga á henni. En með þeim skrifum, sem tíðkast hér á landi ber meira á því að gagnrýn- endur séu að dæma verkin og finnst mér eins og að í gegnum þessi skrif séu þeir stundum að reyna að upp- hefja sjálfa sig. Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur. Þar að auki era aðeins örfáir menn, sem fást hér við myndlistargagnrýni og það era alltaf þeir sömu ár eftir ár svo gagnrýnin er orðin einhæf að mínu mati. Þetta getur haft óeðlileg áhrif og skapað fordóma og viðhaldið þeim. Umræðan þyrfti að vera mik- ið fjölbreyttari. Én það er sjálfsagt erfítt að fá fólk til að skrifa um listir í dagblöðin í þessu litla þjóð- félagi þar sem allir þekkja alla.“ -Hvernig litist þér á að tekin væri upp stjörnugjöf í myndlist líkt og Stöð tvö hefur viðhaft við mat á bókmenntum og tónlist? „Væri þá ekki tilvalið að útbúa sérstakar úlpur fyrir listamenn, sem Jóhanna Bogadóttir í vinnustofu sinni. Ljósmynd Ólafur K. Magn- ússon. hægt væri að stimpla á stjömur, nokkurs konar stjörnuúlpur. Mikil- vægt væri þó, að stjörnurnar væru stórar og greinilegar, jafnvel sjálf- lýsandi svo hægt væri að telja þær á löngu færi. Svo öllum hégóma sé sleppt þá tel ég æskilegast að hægt væri að fjalla um verkin frá ýmsum hliðum án þess að komið væri með niðurstöðu. Því ef fólk er að skoða sýningar truflað af því að skilgreina og dæma í stað þess að njóta fer svo margt forgörðum." -Ýmislegt í störfum þínum hefur beinst að því að færa listina nær fólkinu, finnst þér myndlistin gerð fólki óaðgengileg? „Já, en ég tel þó, að hér sé nokk- uð breiður hópur, sem sýni myndlist áhuga en þessi áhugi gæti verið almennari. Mér finnst myndlistar- menn starfa á nokkuð lokuðum básum en tel öllu fólki eðlilegt að tjá sig með höndum og á skapandi hátt án þess að telja sig endilega listamenn. Þegar ég starfaði á myndverkstæðinu Umhverfi 80, varð ég vör við, að fullorðnum ekki síður en bömum fannst ákaflega gaman að spreyta sig. En það var. eins og þeim fyndist það ekkert sjálfsagt, því iðullega var spurt: Má ég líka? Margir spurðu líka verð- ur ekkert framhald á þessu? -Nú era alls kyns myndlistarná- mskeið í í gangi liggur ekki beinast við að fólk sæki þau, ef áhugi er fyrir hendi? „Jú, en það mættu vera til mögu- leikar á fijálsara fyrirkomulagi, því á namskeiðum er fólk bundnara og oft era meiri væntingar til þess. Gjarnan er spurt, ætlar þú að verða listamaður? Én það er margt í þjóð- félaginu, sem gerir fólk hrætt við að vinna að einhveiju skapandi. Mála myndir eða skrifa ljóð. Því nám og annað beinist svo mikið að nytsemisgildinu. Fijáls tjáning þyk- ir því ekki sjálfsögð. Þess í stað er fólk matað á hlutum, sem það gæti annars gert sjálft- það er meira að segja farið að dansa fyrir fólk í sjón- varpinu um áramótin." -Þú hefur starfað töluvert að frið- armálum og meðal annars með samstarfsnefnd friðarhreyfinga og samtökum um kjamorkuvopnalaust ísland, hvíla þessi mál þungt á þer? „Já þau hljóta að gera það, því um leið og manninum fínnst hann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.