Morgunblaðið - 18.02.1987, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
40. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
ÍRAR AÐ KJÖRBORÐINU
Þingkosningar voru á írlandi í gær og var útlit fyrir mikla kjör-
sókn. Talning átti hins vegar ekki að hefjast fyrr en í dag og ekki
er búist við, að úrslit liggi endanlega fyrir fyrr en á morgun. Slagur-
inn stóð aðallega á milli Garret FitzGerald, forsætisráðherra og
leiðtoga Fine Gael, og Charles Haughey, leiðtoga Fianna Fail. í skoð-
anakönnunum hefur Haughey lengstum verið spáð góðum sigri en
síðustu daga hefur dregið nokkuð saman með flokkunum. Myndin
var tekin þegar Haughey greiddi atkvæði í gærmorgun.
Víetnam:
Tólf ráðherrum
vikið úr stjórn
Bangkok, Thailandi. AP. Reuter.
TILKYNNT var í Víetnam í gær, að tólf ráðherrar hefðu verið rekn-
ir og 18 nýir tilnefndir. Eru þetta mestu hreinsanir í landinu síðan
kommúnistar komust þar til valda en meðal þeirra, sem vikið var
frá, er varnarmálaráðherrann, Van Tien Dung, sem stjómaði sókn-
inni gegn Suður-Víetnam.
Ríkisútvarpið í Víetnam skýrði
frá hreinsununum en til þeirra er
gripið aðeins tveimur mánuðum eft-
ir að þrír háttsettir menn í
kommúnistaflokknum sögðu af sér.
Eru þær augljóslega gerðar til að
yngja upp í forystusveitinni, sem
er komin að fótum fram, skipuð
mönnum, sem hafa staðið í hemaði
alla sína tíð og kunna lítt til stjóm-
unarstarfa. Eftir að kommúnistar
náðu völdum í öllu Víetnam hefur
efnahag þjóðarinnar hrakað svo
mjög, að nú eru þjóðartekjumar ein-
hveijar þær lægstu, sem um getur.
Sovétmenn hafa veitt Víetnömum
mikinn íjárstuðning en vitað er, að
þeir eru famir að ókyrrast yfir
ástandinu og stöðnuninni í landinu.
Ítalía:
Craxi vill ekki
sleppa stólnum
Róm. Reuter.
BETTINO Craxi, forsætisráð-
herra Ítalíu, gaf í gær í skyn,
að hann ætlaði ekki að standa
við samning, sem ríkisstjórnar-
flokkarnir gerðu með sér í
ágúst sl. og á að tryggja stöð-
ugleika í ítölskum stjórnmál-
Samkvæmt samningnum á
Craxi að afhenda forsætisráð-
herraembættið í hendur manni úr
Kristilega demókrataflokknum í
apríl nk. og sá, sem við tekur, á
að gegna því fram að kosningum
á næsta ári.
I sjónvarpsviðtali við Craxi í
gær sagði hann, að þessi fyrir-
huguðu skipti gerðust æ erfiðari
og ólíklegri með degi hveijum.
Kristilegir demókratar, sem líkar
illa, að Craxi, leiðtogi Sósíalista-
flokksins, skuli hafa farið með
stjómarforystuna í hálft fjórða ár,
hafa hins vegar alltaf litið svo á,
að samningurinn væri óafturkall-
anlegur. Stjómmálaskýrendur
segja, að það fari nú eftir við-
brögðum kristilegra demókrata
hvort stjómin fellur og efnt verður
til kosninga bráðlega.
Sovétríkin:
Kosningar
verði lýð-
ræðislegri
SIÐAR á þessu ári verður efnt til
kosninga sums staðar i Sovétríkj-
unum og verða þær með öðru
sniði og lýðræðislegra en áður
hefur tíðkast. Skýrði Tass-frétta-
stofan frá þessu í gær.
A fundi í miðstjóm kommúnista-
flokksins í síðasta máni'ði hvatti
Mikhail Gorbachev, Sovétleiðtogi, til
að efnt yrði til leynilegra kosninga
og fleiri en einum manni leyft að
bjóða sig fram. Sagði hann, að efna-
hagsleg endurreisn í landinu væri
undir þessum breytingum komin.
Tass sagði, að nýju reglumar yrðu
látnar gilda í kosningum til sumra
sveitarstjóma á sumri komanda.
Við öllu búnir
íParís
Réttarhöld eru nú að hefj-
ast í París yfir líbanska
hryðjuverkamanninum
Georges Abdallah og er
af þeim sökum mikill ör-
yggisviðbúnaður í borg-
inni. Þessi mynd var tekin
á Saint Michel-torgi og
eru lögreglumennimir
augljóslega við öllu búnir.
Líbanon:
Barist um
yf irráðin í
Beirutborg
Beirut. AP, Reuter.
Grimmilegir bardagar geisa
□ú í Beirut milli shíta annars
vegar og ýmissa flokka vinstri-
manna og drúsa hins vegar. Er
tekist á um yfirráðin yfir Aust-
ur-Beirut, borgarhluta múham-
eðstrúarmanna. Nabih Berri,
leiðtogi shíta, sagði í gær, að
umsátrinu um flóttamannabúð-
ir Palestínumanna yrði aflétt í
dag.
Talið er, að tugir manna hafi
fallið og nokkur hundmð særst í
blóðugum átökum milli amal-
hreyfíngar shíta og kommúnista,
sem njóta stuðnings drúsa. Er bar-
ist hús úr húsi og segir fólk, sem
flúið hefur vígvöllinn, að ekki sé
hægt að segja um hveijum vegni
betur því að einn stríðsmaður sé
öðrum líkur. Shítar, sem Sýrlend-
ingar styðja, eru nú einna valda-
mestir meðal múhameðstrúar-
manna í Líbanon og er talið líklegt,
að í átökunum nú vilji kommúnist-
ar og drúsar ekki aðeins lækka
rostann í shítum heldur einnig
Sýrlendingum. „Við erum búnir að
fá okkur fullsadda af amal-liðum
og ætlum okkur að hreinsa til í
borginni," sagði einn þeirra.
Nabih Berri, leiðtogi shíta, sagði
í Damaskus í gær, að í dag yrði
hætt umsátrinu um flóttamanna-
búðir Palestínumanna í Beirut. Er
þeirri yfirlýsingu þó treyst mátu-
lega því að ekki er alveg ljóst hvort
hann hefur fulla stjóm á sínum
mönnum.
Reuter
Sovétríkin:
Gennady Gerasimov, talsmaður
utanríkisráðuneytisins, sagði á
blaðamannafundi í Moskvu, að
hann vissi ekki hvort Koryagin
væri nú þegar laus en sl. föstudag
hefði ríkisstjórnin ákveðið að gefa
honum upp sakir. „Hann verður
látinn laus í dag eða á morgun,"
sagði Gerasimov.
í viðtali við fréttamann AP sagði
Greasimov, að auk Koryagins hefði
Alexander Ogordnikov verið látinn
laus en hann var dæmdur árið
1980 í sex ára nauðungarvinnu
Gerasimov vildi ekkert um það
segja hvort Koryagin yrði leyft að
fara úr landi en kona hans, Gal-
ina, býr í Hollandi. Varð hún að
sjálfsögðu himinlifandi þegar hún
frétti, að maður hennar yrði látinn
laus en kvaðst ætla að bíða með
yfírlýsingar þar til hún hefði náð
tali af honum sjálfum. Koryagin
er 48 ára gamall sálfræðingur og
var dæmdur árið 1981 í sjö ára
fangelsi fyrir að hafa komið á
framfæri skýrslu um að andófs-
menn í Sovétríkjunum væru lokaðir
inni á geðveikrahælum.
Kimnum andófs-
mönnum sleppt
Moskvu. AP, Rei'ter.
SOVÉSK stjórnvöld hafa ákveð-
ið að láta lausa andófsmennina
Anatoly Koryagin og Alexander
Ogorodnikov og
„mjög líklega"
verður gyðing-
urinn Iosif
Begun einnig
látinn laus bráð-
lega. Sovéskur
embættismaður
greindi frá þessu Anatoly
í gær. Koryagin
fyrir að stofna kristilegt félag seint
á síðasta áratug. Gerasimov sagði,
að nú hefðu 150 andófsmönnum
verið sleppt úr fangelsi og að verið
væri að endurskoða mál jafn
margra. Sagði hann, að þeir, sem
hefðu verið látnir lausir, hefðu
heitið að láta af andsovéskri starf-
semi en margir fanganna fyrrver-
andi bera hins vegar á móti því.