Morgunblaðið - 18.02.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
Lev Polugaevski heilsar Gunn-
ari Hanssyni forstjóra IBM á
íslandi við komuna til landsins.
Milli þeirra stendur Mikhail Tal
og lengst til hægri er Þráinn
Guðmundsson, forseti Skák-
sambands íslands.
Lajos Portisch og Viktor
Korchnoi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
IBM skákmótið hefst á fimmtudaginn:
„Fólk segir að heppn-
in fylgi þeim sterkasta“
- sagði Viktor Korchnoi við komuna til landsins í gærkveldi
„Ég verð ekki alltaf jafnheppinn og ég var á Wijk aan Zee skák-
mótinu. Ég var mjög heppinn á því skákmóti, en fólk segir að
heppnin fylgi þeim sterkasta. Ég held ég verði ekki jafn heppinn
aftur og ég verð að beijast af krafti til þess að ná góðum ár-
angri," sagði stórmeistarinn Viktor Korchnoi, þegar Morgunblaðs-
menn hittu hann að máli á Keflavíkurflugvelli í gærkveldi, við
komu hans og fjögurra annarra stórmeistara til landsins til þess
að taka þátt í IBM skákmótinu, sem hefst á fimmtudaginn. Mótið
sem er í 14. styrkleikaflokki, er hið sterkasta sem haldið hefur
verið hér á landi og eitt hið sterkasta sem haldið verður í heiminum
í ár.
Auk Korchnoi komu þeir Lajos
Portisch frá Ungverjalandi, Mikh-
ail Tal og Lev Polugaevski frá
Sovétríkjunum og Simen Agde-
stein frá Noregi. Jan Timman frá
Hollandi var væntanlegur síðar í
gærkveldi og seinnipartinn í dag
koma síðustu tveir keppendumir,
þeir Nigel Short frá Englandi og
Ljubomir Ljubojevic frá Júgó-
slavíu, en Korchnoi og Short voru
saman í 1.-2. sæti á Wijk aan Zee
skákmótinu í Hollandi, sem lauk
fyrir fáum vikum. Helgi Ólafsson
tók einnig þátt í því móti og hann,
Jóhann Hjartarson, Jón L. Amason
og Margeir Pétursson taka þátt í
IBM mótinu fyrir íslands hönd.
Aðspurður um andstæðingana
nefndi Korchnoi sérstaklega þá
Portisch og Ljubojevic og sagðist
eiga þeim grátt að gjalda.
„Þetta er mjög sterkt mót, en
ég mun að sjálfsögðu reyna að
sýna mitt besta og reyna að læra
af því að etja kappi við svo öfluga
andstæðinga," sagði Simen Agde-
stein frá Noregi, sem er yngstur
þeirra keppenda sem taka þátt í
mótinu, aðeins 19 ára gamall, en
þrátt fyrir það með næsthæstu
skákstigatölu Norðurlandabúa.
Agdestein sagði að hann hefði
aldrei áður tekið þátt í jafn sterku
skákmóti og aðspurður um sigur-
möguleika sína taldi hann þá ekki
mikla og sagði það stórviðburð ef
hann ynni.
Portisch sagðist ekkert vera far-
inn að hugsa um möguleika sína
á mótinu. Hann sagðist ekki hafa
komið til íslands í 30 ár og kvaðst
vilja hvílast næstu tvo dagana og
átta sig á landinu áður en hann
færi að hugsa um mótið. Portisch
tefldi hér á 2. borði fyrir Ungveija
á heimsmóti stúdenta árið 1957.
Hann sagðist hafa búist við meiri
kulda hér, en ekki þoku eins og
algengt væri í Evrópu. Um erfíð-
asta andstæðinginn sagði Portisch
hlæjandi: „Ég sjálfur".
„Þetta er mjög athyglisvert mót
og verður erfítt. Ég get ekkert
sagt um möguleika mína, en ég
get svarað þeirri spurningu eftir
tvær vikur. Andstaeðingamir eru
mjög sterkir," sagði Mikhail Tal,
aðspurður um möguleika sína.
„Þetta er mjög sterkt mót og and-
stæðingamir verða erfiðir,“ sagði
Lev Polugaevski. „Ég hef oft teflt
við íslensku stórmeistaranna. Þeir
hafa mikla hæfileika til að bera
og verða erfíðir andstæðingar,"
sagði hann ennfremur.
Sjá einniggrein á bls. 20—21.
Yfirmenn á kaupskipunum:
Samningar undir-
ritaðir um miðnætti
NÝIR kjarasamningar yfirmanna á kaupskipum, nema skipstjóra,
og viðsemjenda þeirra voru undirritaðir skömmu fyrir miðnætti
í nótt. Gert hafði verið ráð fyrir að samningamir yrðu undirritaðir
í gærdag, en þegar til átti að taka kom upp ágreiningsatriði um
túlkun ákveðinna atriða og tók þennan tíma að jafna ágreining-
inn, að sögn Þórarins V. Þórarinssonar, framkvæmdastjóra VSI.
Félög bryta, loftskeytamanna, stýrimanna og vélstjóra eiga aðild
að samningnum og verður allsherjaratkvæðagreiðsla um hann, sem
gert er ráð fyrir að Ijúki eftir um það bil fjórar vikur. Viðræður
við skipstjóra hefjast í næstu viku.
Þórarinn sagði að samningurinn samningur kaupskipaútgerðarinn-
væri mjög viðamikill og fæli í sér
verulegar breytingar frá eldri
samning. Launakerfíð væri ein-
faldað og margar tilfallandi
greiðslur færðar til fastra launa.
Hann sagði að erfitt væri að áætla
launakostnaðinn vegna samnings-
ins, en búist væri við að hann
kostaði svipað og nýgerður kjara-
ar við Sjómannafélag Reykjavíkur,
en gengið væri lengra í því að
gera nútímalegan samning, eins
og þann sem vinnuveitendur hefðu
viljað gera við SFR. Samningurinn
gildir í tvö ár og laun munu taka
sömu breytingum og gerast á al-
mennum vinnumarkaði.
Fræðslustjóramálið:
Vísað frá eða
svæft í nefnd
ALLT bendir til þess að frumvarpið um að Hæstiréttur skipi nefnd
er rannsaki deilur menntamálaráðuneytisins og fræðsluyfirvalda í
Norðurlandsumdæmi eystra verði annað hvort svæft í nefnd, eða að
því verði vísað frá. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins
telur að frávísunartillagan verði samþykkt. Afstaða þingmanna Fram-
sóknarflokksins ræður úrslitum hvað frávisun varðar, en einhverjir
þeirra vilja heldur svæfa málið í nefnd en visa þvi frá, að sögn
Steingríms Hermannssonar forsæ
„Ég á ekki von á öðru en að
frávísunartillagan verði samþykkt,"
sagði Þorsteinn í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Ég mun greiða frávísunartillög-
unni atkvæði mitt,“ sagði forsætis-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði það vera alveg ljóst að
forsendur fyrir öðru væru brostnar,
eftir að Sturla hefði stefnt í málinu
og það væri þar með komið til dóm-
stólanna. Eftir það væri óeðlilegt að
Alþingi fjallaði frekar um málið.
Forsætisráðherra var spurður
hvort hann teldi að þingmenn Fram-
sóknarflokksins myndu ekki verða
við tilmælum hans að greiða frávís-
unartillögunni atkvæði sitt: „Ég
skipa þingmönnum ekki fyrir, en ég
hef eindregið lagt til að þeir greiði
frávísuninni atkvæði," sagði
Steingrímur, „en það er rétt að það
fer í taugamar á sumum þingmönn-
um Framsóknarflokksins hvað hart
sjálfstæðismenn ganga fram í þessu
máli og gegn þeim Ingvari og Guð-
mundi. Því eru sumir sem vilja
fremur að málið verði látið daga
uppi í nefnd, og ég persónulega sætti
mig við hvora leiðina sem er.“
„Hefði verið óhugsandi
fyrir nokkrum mánuðumu
- segir Ólafur Ragnar Grímsson,
sem ræddi við Sakharov og Gorb-
achev á Friðarráðstefnu í Moskvu
Ólafur Ragnar Grímsson og Andrei Sakharov ræðast við í Kreml.
„ÞAÐ að hitta þá báða, Sakh-
arov og Gorbachev, í einni og
sömu ferðinni og fylgjast með
Sakharov taka virkan þátt í
ráðstefnu sem þessari gefur
ákveðna vísbendingu um að
sovéska þjóðfélagið sé raun-
verulega að opnast, enda hefði
þetta verið óhugsandi fyrir
nokkrum mánuðum,“ sagði Ól-
afur Ragnar Grímsson í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi
við komuna heim frá Friðar-
ráðstefnunni í Moskvu. Ólafur
Ragnar var þar fulltrúi Þing-
mannasamtaka um alþjóðlegar
aðgerðir, en hann er sem kunn-
ugt er einn af forsetum þeirra
samtaka.
„Það kom mér á óvart hvað
Sakharov var hress og mikil orka
í honum. Hann tók mjög virkan
þátt í umræðum og því erfítt að
gera sér grein fyrir að þessi mað-
ur hefði fyrir nokkrum vikum
losnað úr áralangri útlegð í
Gorkí,“ sagði Ólafur Ragnar er
hann var spurður hvað honum
væri efst í huga eftir viðræðumar
við Sakharov. „Hann sýndi af sér
mikla persónu og ákveðni, en jafn-
framt mikla mannlega hlýju, en
maður sá þó að öðrum þræði var
hann einn og hann átti greinilega
dálítið erfítt með að tengjast
þessu nýja alþjóðlega umhverfi
sem hann var allt í einu kominn
í, sem fullgildur fulltrúi. Hann
hélt hins vegar sínum skoðunum
eindregið á lofti, hvatti til áfram-
haldandi lýðræðisþróunar í
Sovétríkjunum og hann hikaði
ekki við að láta í ljósi aðrar skoð-
anir í afvopnunarmálum en stjóm-
völd í Sovétríkjunum."
Ólafur Ragnar kvaðst hafa hitt
Sakharov tvisvar að máli og hefðu
þeir bæði rætt um ofangreind at-
riði og eins um tengsl hans við
ísland en þau Sakharovhjónin
hefðu lengi verið í vináttutengsl-
um við §ölskyldu Lenu Berg-
mann. Ólafur færði Sakharov bréf
frá Lenu og ennfremur gaf hann
honum tvenn pör af íslenskum
ullarvettlingum sem Sakharov
sagði að kæmu sér vel í kuldunum
í Moskvu. Talið barst síðan að
íslenskri ullarpeysu sem Sakharov
hafði átt og haldið mikið upp á
og sagði Ólafur Ragnar að ef til
vill lýsti það best þeim breytingum
sem orðið hafa á skömmum tíma
í Sovétríkjunum að hann skuli
hafa getað gengið um ganga
Kremlar með Sakharov, rætt um
þróunina í Sovétríkjunum, vini
hans á íslandi og gamla lopapeysu
og verða vitni að því stuttu síðar
þegar Sakharov fagnaði fyrir-
heitum Gorbachevs um áfram-
haldandi lýðraeðisþróun og aukin
mannréttindi. í þeim efnum væri
greinilegt að andófsmaðurinn og
þjóðarleiðtoginn væru orðnir sam-
heijar gegn þeim öflum sem
stæðu þar í veginum innan sov-
éska valdakerfísins.
Ólafur Ragnar átti þess einnig
kost að ræða við þjóðarleiðtogann
sjálfan í veislu að lokinni ræðu
Gorbachevs á Friðarráðstefnunni.
Talið barst að vonum að leið-
togafundinum í Reykjavík og
sagði Ólafur Ragnar að það hefði
verið greinilegt að sovéski leið-
toginn telji fundinn einn af mestu
atburðum á sínum stjórnmálaferli
og að hann hefði markað þátta-
skil í afvopnunarumræðum.
Ólafur Ragnar kvaðst þá hafa
spurt Gorbachev hvemig honum
litist á að koma aftur til
Reykjavíkur og ljúka því verki
sem þar var hafið. Hefði þá hið
bjarta yfírbragð Gorbachevs horf-
ið um stund og hann hefði hugsað
sig vel um en síðan sagt: „Þess-
ari spumingu get ég ekki svarað."
Taldi Ólafur Ragnar að þessi við-
brögð sovéska leiðtogans bæru
þess vott að hann teldi spuming-
una hugsanlega eiga rétt á sér.