Morgunblaðið - 18.02.1987, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
Stórmót IBM:
af 15 mögulegum sem verður að
teljast mjög sómasamlegur árang-
Sterkasta skákmót
sem haldið hefur
verið á Norðurlöndum
Á fimmtudaginn kemur hefst á Hótel Loftleiðum langöflugasta
skákmót sem haldið hefur verið hér á landi og raunar á Norður-
löndunum öllum. Það er IBM á íslandi sem heldur rnótið í tilefni
af afmæli fyrirtækisins í samvinnu við Skáksamband íslands. Eins
og allir vita er IBM stærsta tölvufyrirtæki í heimi. Það hefur oft
stuðlað að aukinni útbreiðslu skáklistarinnar, frægust eru IBM
mótin í Hollandi sem haldin voru mörg ár í röð í Amsterdam. Þau
mót hættu fyrir u.þ.b. fimm árum, en í fyrra hélt IBM stórt opið mót
í Vín í Austurríki. Nú nýtur islenska skákhreyfingin síðan velvilja
fyrirtækisins og mun þetta vera öflugasta mót sem IBM hefur haldið.
Meðalstig keppenda á IBM mót-
inu verða 2582 stig og er mótið í
14. styrkleikaflokki FIDE. Það er
það öflugasta sem haldið hefur
verið í heiminum það sem af er
árinu og er ekki vitað um að önnur
sterkari mót séu á döfinni á næst-
unni.
Öflugustu mót sem haldin hafa
verið hér á landi voru í 11. styrk-
leikaflokki. Það voru Reykjavíkur-
skákmótið 1978, þar sem
meðalstigin voru 2522 og Afmælis-
mót Skáksambands íslands 1985
þar sem meðalstigin voru 2518.
Sterkasta skákmót sem haldið hef-
ur verið á Norðurlöndum fram að
þessu var minningarmótið um
Nimzowitsch sem fram fór í
Næstved í Danmörku haustið 1985.
Það komst í 13. flokk og meðalstig-
in voru 2553.
Keppendur á mótinu:
stig: aldur:
Viktor Korchnoi 2625 55
Ljubomir Ljubojevic 2620 37
Nigel Short 2615 21
Lajos Portisch 2610 49
Mikhail Tal 2605 50
Jan Timman 2590 35
Lev Polugajevsky 2585 52
SimenAgdestein 2560 19
Helgi Ólafsson 2550 30
Jóhann Hjartarson 2545 24
Jón L. Árnason 2540 26
Margeir Pétursson 2535 26
Það hefur aldrei áður verið hald-
ið mót hér á landi með jafnfáum
innlendum þátttakendum, en samt
sem áður eru það íslensku keppend-
urnir §'órir sem eru stigalægstir
og það þótt þeir ú'órir myndi lands-
lið sem í Dubai var metið það sjötta
sterkasta í heimi. Þetta segir sitt
um styrkleika gestanna og það er
ljóst að íslendingamir hafa aldrei
lent i eins mikilli eldraun og þess-
ari. Hvemig svo sem þeim vegnar
í baráttunni verða þeir a.m.k.
reynslunni ríkari þegar upp verður
staðið.
Það er orðið erfitt að ímynda sér
stórmót í Reykjavík haldið á öðmm
stað en Hótel Loftleiðum, þó salim-
ir hafi stundum reynst of litlir
þegar spennan í mótum fer að auk-
ast. Vænta má að fyrri aðsóknar-
met verði slegin á IBM mótinu, um
næstu helgi er t.d. að vænta all-
margra sænskra skákáhugamanna
sem koma gagngert til að horfa
á. Skákskýringar í hliðarsölum og
sjónvarpskerfí ættu þó að tryggja
að allir geti fylgst með lokamínút-
unum, þó ekki komist nema
takmarkaður fyöldi inn í skáksalinn
sjálfan.
Það eru engir aukvisar sem
sækja okkur heim að þessu sinni,
enda gerðu fulltrúar IBM strangar
kröfur um stigahæð þátttakenda.
Það eru einungis íjórir stigahæstu
skákmenn heims sem vantar og á
það sér eðlilegar skýringar. Kasp-
arov, heimsmeistari, hafði lýst vilja
sínum til að tefla á íslandi, en
vegna enn eins heimsmeistaraein-
vígis sem í vændum er á þessu
ári, mun hann lítið tefla á mótum
á næstunni. Þeir Karpov og So-
kolov eru að hefja einvígi um
áskorunarréttinn á Kasparov og
Jusupov, sem er fjórði stigahæstur,
gekk illa hér á landi 1985, svo
ekki var talið að þýddi að bjóða
honum.
Hér á eftir er farið stuttlega
yfír feril hvers af erlendu gestun-
um:
Viktor Korchnoi
Korchnoi er stigahæsti þátttak-
andinn og jafnframt aldursforseti
mótsins, fæddur í Leningrad 23.
marz 1931. Hann var ekki undra-
bam, en vann sig hægt og bítandi
upp í raðir fremstu skákmanna
Sovétríkjanna. Hann komst fyrst í
úrslit á Skákþingi Sovétrílq'anna
árið 1952 og náði þá sjötta sæti
sem þótti frábært hjá nýliða. Árið
eftir varð hann alþjóðlegur meist-
ari og 1954 varð hann í öðru sæti
á sovézka meistaramótinu. Þar með
hafði hann unnið sér farmiða á
alþjóðleg mót og hann nýtti tæki-
færin vel. Fyrst sigraði hann á
alþjóðlegu móti í Búkarest 1954
ogum áramótin 1955/56 varð hann
fyrst þekktur hér á íslandi þegar
hann varð efstur ásamt Friðrik
Ólafssyni á jólaskákmótinu í Hast-
ings. Fyrir þessa sigra var hann
útnefndur stórmeistari á þingi
FIDE í lok ársins 1956.
Það var ekki fyrr en 1960, er
Korchnoi var tæplega þrítugur, að
stóra stökkið kom og hann varð
skákmeistari Sovétríkjanna. Hann
komst síðan á áskorendamótið í
Curacao 1962 og varð í fímmta
sæti af átta keppendum. Sama ár
varð hann aftur Sovétmeistari. Um
frekari frama var þó ekki að ræða
í bili, því þá þegar var komið í ljós
að lífsmáti og skapgerð Korchnois
átti ekki samleið með kerfinu
eystra, þá þegar var orðið erfítt
fyrir hann að fá leyfí til að tefla á
Vesturlöndum. Það var t.d. ekki
fyrr en 1966 að hann var fyrst
valinn til að tefla í Ólympíuliði
Sovétmanna.
Árið 1968 sannaði Korchnoi svo
ekki varð um villst að hann væri í
hópi 3-4 beztu skákmanna í heimi,
er hann komst í úrslit áskorenda-
einvígjanna. Þar varð hann að lúta
í lægra haldi fyrir Spassky. í næstu
keppni, árið 1971, var hann sleginn
út í undanúrslitum af Tigran Petr-
osjan, fyrrum heimsmeistara. 1974
náði hann að hefna sín og slá Petr-
osjan út í sögulegu einvígi sem
leiddi til fulls íjandskapar með þeim
tveimur. í úrslitakeppninni um rétt-
inn til að skora á Bobby Fischer,
þáverandi heimsmeistara, tapaði
hann naumlega fyrir nýrri stjömu,
Anatoly Karpov.
Korchnoi þótti forráðamenn
sovézku skákhreyfingarinnar mjög
vilhallir Karpov og hafði óneitan-
lega mikið til síns máls. Sem fyrr
var hann óhræddur við að segja
meiningu sína og það leiddi til enn
meiri samskiptaörðugleika. Korch-
noi flýði síðan land árið 1976, á
meðan IBM mótið í Amsterdam
stóð yfír. Hann settist fyrst að í
Hollandi, síðan í Sviss, þar sem
hann er búsettur nú. Barátta
Korchnois við sovézka kerfíð var
þó rétt að byija, því kona hans og
sonur fengu ekki að fara úr landi
fyrr en árið 1983. Á meðan virtist
sem sú barátta veitti honum aukið
afl við skákborðið. I heimsmeist-
arakeppninni 1977 vann hann þijá
Sovétmenn í frægum einvígjum,
fyrst Petrosjan, síðan Polugajevsky
og loks Spassky. Árið eftir mætti
hann síðan Karpov í hinu fræga
heimsmeistaraeinvígi í Baguio á
Filippseyjum. Þar átti hann undir
högg að sækja lengst af. Karpov
komst í 5-2, en sá sem fyrstur
vann 6 skákir taldist sigurvegari.
Öllum á óvart náði Korchnoi að
jafna, 5-5, en þá varð hann of bráð-
ur á sér, tefldi alltof djarft með
svörtu og tapaði.
Árið 1981 tefldi hann annað
heimsmeistaraeinvígi við Karpov,
en var þá langt frá sínu bezta og
átti aldrei verulega möguleika á
að ná titlinum. Síðan þá hefur hon-
um ekki tekist vel upp í heimsmeist-
arakeppninni. 1983 var hann
sleginn út í undanúrslitum af Gary
Kasparov og 1985 náði hann ekki
að komast í einvígin. Undanfarin
ár hefur Korchnoi verið fremur
mistækur, stundum hefur honum
gengið hroðalega illa og fengið
slæma skelli gegn sér miklu lakari
mönnum. Hann varð t.d. neðstur í
Tilburg sl. haust. Síðustu mánuði
hefur hann hins vegar náð sér vel
á strik. Fyrst varð hann í öðru
sæti á eftir Kasparov í sterku móti
í Brússel í desember og í janúar
sigraði hann ásamt Short á al-
þjóðlega mótinu í Wijk aan Zee.
Vegna landflótta síns hefur
Korchnoi sett met sem seint verður
slegið, hann hefur fjórum sinnum
orðið skákmeistari Sovétríkjanna,
einu sinni Hollandsmeistari og þrí-
vegis skákmeistari Sviss.
Það sem fyrst og fremst ein-
kennir stíl Korchnois er hve mikill
baráttumaður hann er. Hann
minnir á Lasker, fyrrum heims-
meistara, að því leyti að hann tekur
stundum á sig lakari stöðu til að
geta síðar flækt taflið. Hann tekur
nú í fyrsta sinn þátt í móti á íslandi.
Ljubomir Ljubojevic
Þessi hvassi júgóslavneski
stórmeistari er fæddur í Belgrad
2. nóvember 1950. Miklir hæfíleik-
ar hans komu fljótt í ljós. Tvítugur
að aldri varð hann alþjóðlegur
meistari og aðeins ári seinna stór-
meistari. Vegna frábærs árangurs
á mótum á þessum tíma varð hann
strax næstum sjálfsagður arftaki
Gligorie sem fremsti skákmaður
Júgóslava. Til hans hafa því verið
gerðar miklar kröfur heima fyrir
og það má segja að hann hafí stað-
ið undir þeim flestum, nema hvað
heimsmeistarakeppnina snertir,
þar hefur hann ávallt verið sleginn
út í millisvæðamótum. Á þeim vett-
vangi virðast álög hafa verið á
honum. Strax árið 1973 tók hann
snemma örugga forystu á milli-
svæðamótinu í Petropolis í Brazilíu,
en í staðinn fyrir að fara með lönd-
um gegn Sovétmönnunum, ætlaði
hann sér ekki af og tapaði fyrir
þeim Geller, Smyslov og Bronstein.
Á millisvæðamótinu í Manila 1976
var hann of óöruggur, tapaði fjór-
um skákum og var vinningi frá því
að komast upp. Eftir það mót
gegndi hann herþjónustu og er
hann hóf taflmennsku að nýju tók
það hann töluverðan tíma að ná
fyrri styrkleika. Það tókst þó um
síðir og allan þennan áratug hefur
Ljubojevic óumdeilanlega verið í
hópi tíu beztu skákmanna heirns.
Landar hans hafa gífurlegt álit á
honum, en í heimsmeistarakeppn-
inni hefur hann fram til þessa
brugðist trausti þeirra. Síðustu at-
lögu sína gerði hann á millisvæða-
mótinu í Biel 1985 þar sem hann
virtist lengst af eiga frátekið sæti.
Undir lokin virtust taugamar hins
vegar ekki vera í lagi, þá tefldi
hann t.d. fræga maraþonskák við
Margeir Pétursson, sem endaði með
patti eftir 127 leiki og 14 tíma
taflmennsku.
Á síðasta ári tókst Ljubojevic vel
upp, hann hækkaði um 15 stig á
árinu og sigraði á stórmótum í
Reggio Emilia og á OHRA mótinu
í Amsterdam. Á mótinu í Wijk aan
Zee í janúar olli hann hins vegar
vonbrigðum með því að ná aðeins
50% vinninga. Hann teflir nú í
fyrsta sinn á íslandi og áhorfendur
hér munu áreiðanlega kunna að
meta frumlega og hvassa tafl-
mennsku hans
Nigel Short
Þrátt fyrir að Short sé aðeins
21 árs gamall, fæddur í Leigh 1.
júní 1965, hefur hann í meira en
áratug verið í sviðsljósinu í ensku
skáklífi. Hann er frægasta undra-
bamið frá því Fischer var og hét
og sló hvert aldursmetið á fætur
öðm. Það þarf sterk bein til að
þola jafnmikla umijöllun og Short
fékk sem bam og unglingur, um
tíma var það t.d. eitt helsta um-
fjöllunarefni brezkra skákrita,
hvort Short hefði kastað hæfileik-
um sínum á glæ með því að stunda
skólanám og spila á gítar í frístund-
um.
Þrátt fyrir þetta tók Short jöfn-
um framfömm og náði efsta sæti
á brezka meistaramótinu aðeins 14
ára gamall, þó ekki hreppti hann
titilinn. Alþjóðlegur meistari varð
hann ári seinna. Næsta stóra stökk
kom 1982 er hann sigraði óvænt
ásamt Hort á sterku opnu móti í
Amsterdam og náði áfanga að stór-
meistaratitli. 1984 varð hann
brezkur meistari og sama ár var
hann útnefndur yngsti stórmeistari
í heimi. Hann vann sér síðan rétt
til að tefla á millisvæðamótinu í
Biel 1985. Eftir slaka byijun þar
sýndi hann hvað í honum býr með
því að vinna hættulegustu keppi-
nauta sína á endasprettinum. í
aukakeppni vann hann sér síðan
sæti á áskorendamótinu í Mont-
pellier. Þar fékk hann 7 vinninga
ur.
Short gekk síðan mjög vel á ár-
inu 1986, hann byijaði á því að
sigra með yfirburðum á alþjóðlega
mótinu í Wijk aan Zee og á Ólymp-
íumótinu í Dubai átti hann hvað
stærstan þátt í að Englendingar
hrepptu silfrið. Þótt Short virðist
hár á stigum gæti hann verið enn-
þá hæm, hefði hann ekki í upphafí
Ólympíumótsins þegið það boð
FIDE að láta ekki reikna árangur
sinn til stiga.
Short hóf árið 1987 á því að sigra
í Wijk aan Zee annað árið í röð og
virðist stefna hraðbyri að því að
verða öflugasti skákmaður utan
Sovétríkjanna.
Lajos Portisch
Portisch er fæddur 4. apríl
1937 í ungverska bænum Zalae-
gerszeg. Hann var orðinn u.þ.b.
tvítugur þegar hann fór að vekja
verulega athygli sem skákmaður.
Ein af hans fyrstu alþjóðlegu
keppnum var stúdentamótið 1957,
sem fram fór í Sjómannaskólanum
í Reykjavík. Þar var frammistaða
hans aðeins í meðallagi og í þau
þijátíu ár sem síðan eru liðin hefur
hann ekki komið til íslands. Þátt-
taka Ungveijanna á mótinu varð
söguleg af þeirri ástæðu að fyrsta-
borðsmaður þeirra, Pal Benkö,
baðst hér hælis eftir mótið sem
pólitískur flóttamaður.
Allt frá fyrstu tíð hefur Portisch
verið afar vandaður stöðuskákmað-
ur og styrkleiki hans liggur e.t.v.
fyrst og fremst í gífurlegri byijana-
þekkingu og miklum sjálfsaga.
Framfarir hans voru hægar en ör-
uggar. Hann varð fyrst skákmeist-
ari lands síns 1958, en alls hefur
hann unnið titilinn níu sinnum.
Sama ár varð hann alþjóðlegur
meistari og stórmeistari varð hann
1961. Árið 1962 tók hann við af
Szabo sem fyrstaborðsmaður í Ól-
ympíusveit Ungveija og því sæti
hefur hann haldið æ síðan, þrátt
fyrir að öflug ný kynslóð ung-
verskra stórmeistara hafí komið
fram á sjónarsviðið.
Frá 1961 hefur Portisch verið
með í hverri einustu heimsmeist-
arakeppni. Strax á millisvæðamót-
inu í Stokkhólmi 1962 var hann
mjög nálægt því að komast áfram
og síðan 1964 hefur hann ávallt
komist áfram, fyrir utan árið 1970.
í fyrstu áskorendakeppni sinni beið
hann afhroð gegn Tal, og 1968 var
hann einnig sleginn út í fyrstu
umferð, en tapaði þá fyrir Larsen
með minnsta mun. Á þessum árum
náði hann einnig mjög góðum
árangri á mótum og var almennt
viðurkenndur sem þriðji sterkasti
skákmaðurinn utan Sovétríkjanna,
á eftir Fischer og Larsen. Árið
1974 var Portisch í þriðja sinn sleg-
inn út í fyrstu umferð áskorenda-
einvígjanna, þá tapaði hann fyrir
Petrosjan með minnsta mun.
1977 komst Portisch loks í und-
anúrslit áskorendaeinvígjanna með
því að sigra Larsen örugglega í
fyrstu umferð, en var þá sleginn
út af Boris Spassky. Árið eftir átti
hann stærstan þátt í Ólympíusigri
Ungveija í Buenos Aires. 1979
sigraði hann ásamt Petrosjan og
Hiibner á millisvæðamótinu í Ríó,
en eftir að hafa hefnt sín á Spassky
í fyrstu umferð áskorendaeinvígj-
anna, var hann óvænt sleginn út
af Robert Hubner. 1982 sigraði
hann ásamt Torre á millisvæðamót-
inu í Toluca, en var svo óheppinn
að þurfa að mæta Korchnoi í fyrstu
umferð einvígjanna og náði sér
aldrei á strik. 1985 komst Portisch
einnig áfram, en var ekki farsæll
á áskorendamótinu í Montpellier
og komst ekki í einvígin.
Portisch nýtur geysimikillar
virðingar í skákheiminum sem byij-
anafræðingur og frá honum hafa
komið aragrúi merkilegra hug-
mynda. Þrátt fyrir að nýir ungir
menn komi sífellt fram á sjónar-
sviðið heldur hann stöðu sinni á
toppnum, þó hann hafí reyndar oft