Morgunblaðið - 18.02.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.02.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987 Reuter Harmsaga oghetjudáð Ungir drengir sitja hágrátandi við lík móður og frænku, sem hné niður örend eftir að hafa fram- kvæmt mikla hetjudáð þegar eldur kviknaði í íbúð hennar í Chicago. Hin látna hét Johnnetta Hodges og var 26 ára gömul. Hún bjargaði syni sínum og frænda út úr brennandi íbúð á þriðju hæð. í annarri ferð inn í eldhafið kom hún móður sinni til bjargar og leiddi hana út. Þegar hún ætlaði að fara inn í húsið þriðja sinni hné hún örmagna niður og dó. Hún var hjartaveik og barnshafandi og komin fimm mánuði á leið. Austur-Berlín: „Múrbrj óturinn“ leiddur fyrir rétt Berlín, AP. HAFIN eru í Austur-Berlín réttar- höld yfir 69 ára gömlum Banda- ríkjamanni, sem hefur oftlega haft í frammi mótmæli ofan á Berlínarmúrnum. Hefur maður- inn verið nefndur „múrbijótur- inn“ sökum þessa athæfis. Talsmaður bandaríska sendiráðs- ins í Austur-Berlín sagði að réttar- höldin hefðu hafíst á mánudag. Austur-þýskir landamæraverðir handtóku John Runnings 18 nóvem- ber. Hafði hann þá klifrað upp á múrinn vopnaður hamri, sem hann lét dynja á steinsteypunni. Austur- þýsku hermennimir kipptu honum ofan af múmum og mun Runnings hafa slasast lítillega við fallið sem var um fjórir metrar. Landamæra- verðir höfðu þá þrisvar handtekið Runnings og skilað honum vestur yfir. Samkvæmt lögum í Austur- Þýskalandi er hámarksrefsing við óleyfilegum ferðum yfir landamærin tveggja ára fangelsisvist. Jafnframt er kveðið á um að þá sem gerast sekir um ítrekuð brot megi dæma í átta ára fangelsi. Ekki er vitað hvort gefin hefur verið út ákæra á hendur Runnings fyrir ítrekuð brot. Bandaríkin: 13 deyja úr kulda New York, AP. SNJÓKOMA hefur valdið usla í syðri hluta Bandarikjanna síðustu daga og var ekkert lát á ofankom- Undirbúningsfundur í Vínarborg: Rætt um fyrirkomulag' afvopnunarviðræðna Vilji fyrir viðræðum um fækkun herafla í Evrópu Vínarborg, Reuter, AP. FULLTRÚAR ríkja Atlantshafs- bandalagsins og Varsjárbanda- lagsins áttu í gær klukkustundar- langan fund í franska sendiráðinu í Vínarborg. Ræddu þeir hvemig haga skyldi nýjum þætti afvopnunarviðræðna i stað MFBR-viðræðnanna svonefndu sem staðið hafa i 13 ár. Tómas Á. Tómasson, sendiherra í Moskvu, sat fundinn fyrir íslands hönd. Fulltrúar allra þeirra 23 ríkja, sem aðild eiga að bandalögunum tveimur sátu fundinn í gær og ríkti bjartsýni í röðum þeirra að honum loknum. NATO-ríkin lögðu til að annar undirbúningsfundur yrði haldinn og sagði fulltrúi Sovétríkj- anna að austantjaldsríkin væru hlynnt því þótt nokkrir dagar myndu líða þar til þau gæfu form- legt svar við þeirri málaleitan. Búist er við að undirbúningsviðræðurnar muni standa í sex mánuði. Hingað til hafa MFBR-viðræð- umar snúist um jafnan og gagn- kvæman samdrátt venjulegs herafla í Mið-Evrópu og hafa 19 ríki tekið þátt í þeim. Komið hafa fram hug- myndir um að hefja nýjar viðræður um samdrátt hefðbundins herafla sem taki til Evrópu allrar, frá Atl- antshafi til Úralfjalla. Hafa bæði Sovétmenn og Bandaríkjastjóm lýst sig fylgjandi þessu ekki síst í ljósi þess að MBFR-viðræðumar hafa enn ekki skilað áþreifanlegum ár- angri. Austantjaldsríkin hafa lagt að til þau 35 ríki sem undirrituðu lokasamþykkt Helsinki-ráðstefn- unnar um öryggi og samvinnu í Evrópu árið 1975 eigi aðild að af- vopnunarviðræðunum í Vínarborg. Atlantshafsbandalagið hefur enn ekki mótað sameiginlega afstöðu til þessa. Fulltrúar ríkjanna áttu klukkustundarlangan fund í gær- dag og ræddu samningsstöðuna. Fulltrúar hlutlausra ríkja sem tóku þátt í ráðstefnunni í Helsinki hafa þrýst á Atlantshafsbanda- lagsríkin um þátttöku í viðræðum um afvopnun í Evrópu. Claus Jiirg- en Citron, aðalsamningamaður vestur-þýsku ríkisstjórnarinnar, kvaðst telja ólíklegt að óháðu ríkin myndu taka þátt í viðræðunum í Vínarborg en bætti við að Atlants- hafsbandalagsríkin myndu fræða ríkisstjómir viðkomandi ríkja um gang viðræðnanna. Samkvæmt skýrslum Alþjóða herfræðistofnunarinnar í London hafa Varsjárbandalagsríkin rúmar 2,7 milljónir manna undir vopnum í Evrópu en Atlantshafsbanda- lagsríkin rúma 1,8 milljón manna. Þá hafa Vasrsjárbandalagsríkin einnig yfirburði á sviði skriðdreka, flugvéla, sem bera ekki kjarnorku- vopn, og hefðbundins herafla. unni í gær. Varð meðal annars að loka skólum í sjö ríkjum af völdum snjókomunnar. Þrettán menn hafa dáið af völdum veðursins. Þá dró ekkert úr frosthörkunum í norðausturríkjunum og var t.d. 23 stiga frost í efrihluta New York- ríkis. Hins vegar hefur dregið úr hvassviðri og kuldinn því ekki jafn bítandi og um helgina. í Charleston í Vestur Virginíu olli snjókoman bilun í orkuveri með þeim afleiðingum að rafmagn fór af 2.500 heimilum, meðal annars af embættis- bústað ríkisstjórans, Arch Moore. Á mánudagskvöld var 20 senti- metra djúpur jafnfallin snjór í suðvesturhluta Virginíu og meðal- dýptin var 15 sentimetrar í Norður Karólínu og Vestur Virginíu. Ekkert lát var á hríðarveðrinu í gær og veð- urfræðingar gerðu ráð fyrir áfram- haldandi snjókomu. Veðrið hefur valdið miklum sam- gönguörðugleikum og hlutust þúsundir umferðaróhappa af völdum þess. Finnland: Samar fá útvarp og" vilja sjónvarp Gorbachev á ferð um Eystrasaltsríkin Fyrsti sovézki leiðtoginn sem þangað fer Moskvu, Reuter. AP. MIKHAIL S. Gorbachev, aðalrit- ari Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna, kom í gær til Riga í Lettlandi í upphafi ferðar um Eystrasaltsríki Sovétríkjanna. Mun það vera í fyrsta sinn, sem leiðtogi Sovétríkjanna heimsæk- ir Eystrasaltsríkin frá því þau voru innlimuð í Sovétríkin. Útvarpið í Moskvu sagði að Gorbachev vildi kynnast efnahags- ástandinu og mannlífi í ríkjunum þremur, Eistlandi, Lettlandi og Lit- haugalandi, af eigin raun. Eystrasaltsríkin hafa verið fremri öðrum ríkjum Sovétríkjanna á sviði efnahags- og atvinnulífs. Er búizt við að leiðtogar þar muni leggja að Gorbachev að veita sér aukið sjálfsforræði í efnahagsmál- um. Vilja þeir fá aukið olnbogarými til að ráða sínum atvinnumálum sjálfir og losna undan stjóm sér- fræðinga í Moskvu, sem láti stjóm- ast um of af ákvæðum fimm ára áætlunarinnar. Eystrasaltsríkin voru innlimuð í Sovétríkin árið 1939. Afkoma íbúa þar hefur verið betri ön annars staðar í Sovétríkjun- um. Tugþúsundir íbúa ríkjanna voru fluttir nauðungarflutningum til Síberíu í tíð Josefs Stalin og Rússar fluttust þangað í staðinn, einkum til Lettlands. Er nú svo komið að í Riga, sem er 100.000 manna borg, er aðeins um helmingur íbúa lettn- eskir. Meirihluti íbúa í Lithaugalandi, sem liggur að Póllandi í vestri, er kaþólskrar trúar og er draumur þeirra að fá páfa í heimsókn. Búist er við að Gorbachev hitti trúarleið- toga í heimsókninni til Lithauga- lands. Gorbachev hélt ræðu á friðar- þingi í Moskvu í fyrradag og sagði talsmaður Bandaríkjastjómar í gær að við fyrstu sýn virtist sem leið- toginn hefði ekki haft neitt nýtt fram að færa á sviði afvopnunar- mála. Þó hefði ræða hans ekki verið rannsökuð til hlítar. Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara NEFND á vegum finnska ríkis- ins og ríkisútvarpsins ályktaði í gær að samar í Norður-Finnl- andi ættu rétt á útvarpsstöð, sem sendir út á þeirra eigin máli, eins og aðrir borgarar. Og í ráði er að þeir fái einnig sjónvarpsútsendingar á samísku. Finnskir samar hafa haft eigin útvarpsrás síðan í upphafi þessa mánaðar. Helsta efni útvarpsins hefur verið fréttir og fréttaskýr- ingar á samísku. Næsta skref verður að gera dagskránna fjöl- breyttari og gera t.d. bama- og unglingaþætti. Einnig á að hefja sjónvarpsútsendingar. Gert er ráð fyrir að fínnska ríkisútvarpið og ríkissjóður beri kostnað af samaútvarpinu. í upp- hafi átti að stofna sérstakt út- varpsfélag í hémðum sama, en frá því var horfið vegna þess hversu fámennir samar eru í Finnlandi, eða um þrjú til flögur þúsund manns. Samar búa einnig í norðurhluta Svíþjóðar og Noregs. Hafa samar þegar fengið útvarp á samísku þar og einnig hafa verið gerðir sjón- varpsþættir handa heimamönnum. Samar em að vísu tífalt fleiri í Svíþjóð og Noregi en í Finnlandi, en lifnaðarhættir þeirra og mál- lýskur em frábrugðnar hverri annarri. Því þarf samaútvarpið að framleiða þætti á ýmsum mállýsk- Morgunblaðsins. um sama, sem geta verið gjörólík- ar. Morðið á Olof Palme: Þingnefnd vill yfirheyra Ingvar Carlsson Stokkhólmi, frá fréttaritara Morgun- blaðsins, Erik Liden. DEILUNUM í Svíþjóð varðandi gang leitarinnar að morðingja Olofs Palme ætlar seint að linna. Nú hefur stjórnarskrárnefnd þjóðþingsins ákveðið að kalla Ingvar Carlsson forsætisráð- herra fyrir sig til að gefa skýrslu um afskipti ríkisstjórnarinnar af rannsókn málsins. Þá hafa þeir, sem nú hafa tekið við yfirstjóm málsins, ákveðið að láta kanna til hlítar ýmsar nýjar upplýs- ingar, sem fram eiga að hafa komið í því. Þeim lögreglumönnum, sem vinna að rannsókn málsins, hefur hins vegar verið fækkað vemlega og em þeir nú um 70 en vom um 140 áður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.