Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
27
Reuter
Myndrænasta kona í Bandaríkjunum?
Ungfrii Georgia Sophia Bowen var kjörin myndrænasta stúlkan í keppni um hver er fegnrsta
kona Bandaríkjanna. 52 stúlkur kepptu um hnossið og réðust úrslit í gær.
Breyting á afstöðu Sovét-
manna varðandi efnavopn
Genf, AP.
SOVÉTMENN tilkynntu í gær
breytingu á afstöðu sinni að því
er varðar einn þátt i þeim marg-
hliða samningaviðræðum, sem
staðið hafa yfir varðandi bann
við efnavopnum. Af hálfu Banda-
ríkjamanna hefur þessu verið
lýst sem „mikilvægri breytingu"
á afstöðu Sovétmanna.
Yuri Nazarkin, aðalfulltrúi Sov-
étmanna á 40 þjóða ráðstefnunni
um afvopnun í Genf, lagði það til
í ræðu, sem hann flutti í gær, að
aðildarríkin að hugsanlegum samn-
ingi um efnavopn, skuldbyndu sig
til að tilkynna um magn og stað-
setningu efnavopnabirgða sinna
innan 30 daga frá því að slíkur
samningur tæki gildi.
Þetta er sama skilyrðið og
Bandaríkjamenn báru fram tillögu
um árið 1984 í uppkasti að samn-
ingi um bann við efnavopnum.
Fyrri afstaða Sovétmanna var á
þann veg, að tilkynnt yrði í áföngum
um birgðir efnavopna í tengslum
við eyðileggingu þeirra, sem fram
ætti að fara á tímabili, er stæði
yfir frá 6 mánuðum til 10 ára, eft-
ir að samningurinn tæki gildi.
Thomas Bartheli, varaformaður
bandarísku sendinefndarinnar,
sagði í gær, að Sovétmenn „hefðu
greinlega gert mikilvæga breytingu
á afstöðu sinni, en við erum enn
ekki vissir um, að hve miklu leyti
hún fullnægir þörfum okkar. Við
verðum því að kanna afstöðu þeirra
gaumgæfílega." Hann kvaðst hins
vegar fagna því, að Sovétmenn
hefðu tekið afstöðu til atriðis, sem
Bandaríkjamenn hefðu áhyggjur af.
Á fundi með fréttamönnum sagði
Nazarkin ennfremur, að Sovétmenn
væru tilbúnir til að fallast á „sjálf-
virkt eftirlit á staðnum," sem fram
færi í tveimur áföngum í samræmi
við hugsanlegan samning um efna-
vopn.
Talið að 40.000 selir
hafi veiðst við
Osló, frá fréttaritara Morgunblaðsins, J. E. Laure.
UM 23.000 selir hafa nú verið
veiddir í net fyrir utan strendur
Noregs samkvæmt uppiýsing-
um þeim, sem norska sjávarút-
vegsráðuneytið hefur undir
höndum. Ef reiknað er með
því, að nær helmingur þeirra
dýra, sem veiðast, falli úr netun-
um og sökkvi til botns, þá hafa
nær 40.000 selir nú látið lífið í
netum við Noreg.
Selamergðin veldur norsku stjórn-
inni miklum áhyggjum. í fyrsta
lagi eru aðildarlönd Evrópubanda-
lagsins því andvíg, að Norðmenn
veiði meira af sel. Samtök græn-
friðunga hafa og lýst yfir stríði á
hendur Norðmönnum vegna sel-
veiðanna. Halda grænfriðungar
því fram, að það sé sjómönnum
sjálfum að kenna, að hundruð
þúsunda sela leita nú upp að Nor-
egsströndum.
„Við erum sannfærðir um, að
selirnir hafið leitað suður á bóginn
vegna þess að skortur er á fæðu
í hinu eðlilega umhverfí þeirra.
Margir af þeim selum, sem veiðast
í netin, er illa famir af hungri.
Noreg
Þetta stafar af því, að gengið hef-
ur verið of nærri fiskistofnunum
á Barentshafi og við Jan Mayen,"
segir Michael Gylling Nielsen, tals-
maður grænfriðunga.
Sjómennimir hafa hins vegar
lagt hart að norsku stjóminni að
auka selveiðikvótann. Vandamálið
er hins vegar, að norski selveiði-
flotinn hefur gengið úr sér á
undanfömum árum. Því verði
stjómin að auka stuðning sinn til
þess að unnt verði að gera út
fleiri selveiðiskip.
Nicaragua:
Einn leiðtoga
contraskæruliða
segir af sér
Bandaríkjastjórn fagnar afsögninni
San Jose, Costa Rica, AP, Reuter.
ADOLFO Calero, einn þriggja
leiðtoga contra-skæruliða, sem
beijast gegn stjórn sandinista í
Nicaragua, hefur sagt af sér
trúnaðarstörfum innan heildar-
samtaka skæruliða. Kvaðst
hann hafa „fómað“ stöðu sinni
til að tryggja áframhaldandi
stuðning Bandaríkjastjómar við
skæruliðahreyfinguna. Tals-
maður Reagans Bandaríkjafor-
seta kvað ríkisstjórnina fagna
afsögn Caleros og binda vonir
við að hún muni styrkja and-
stöðu við stjórn sandinista.
Calero tilkynnti um afsögn sína
á mánudag á blaðamannafundi í
Miami í Bandaríkjunum. Heildar-
samtök skæruliða í Nicaragua
nefnast „Sameinaða andspymu-
fylkingin" en Calero hyggst áfram
stjóma „Lýðræðisfylkingunni"
sem á aðild að samtökunum og
kveðst hafa um 18.000 menn und-
ir vopnum.
Arturo Cmz, leiðtogi fylkingar
hófsamra skæruliða, hafði hótað
að segja af sér ef Calero léti ekki
af störfum fyrir „Lýðræðisfylking-
una“. Andstæðingar Caleros höfðu
sakað hann um óhóflegt ráðríki
og kváðust óttast að Bandaríkja-
stjóm léti af stuðningi við hreyf-
inguna ef hann yrði áfram leiðtogi
skæruliða. Bandarískir embættis-
menn óttuðust að að fulltrúar á
Bandaríkjaþingi myndu reynast
ófúsari en ella að veita contra-
skæruliðum áframhaldandi fjár-
stuðning ef innibyrðis deilur settu
svip sinn á samtök þeirra. Banda-
ríkjastjóm áætlar að veita 105
milljónum dala til skæruliða í Nic-
aragua á þessu ári. Talsmaður
Reagans forseta sagði Frank
Carlucci, öryggisráðgjafa forset-
ans, hafa hitt leiðtoga skæruliða
að máli nýlega og rætt breytingar
á forustuliði þeirra.
Um leið og Calero tilkynnti um
afsögn sína sagði hann að Pedro
Joaquin Chamorro, fyirum ritstjóri
dagblaðsins La Prensa, hefði tekið
við af honum. Chamorro starfaði
við blaðið fram til ársins 1984 en
þá flúði hann til Costa Rica og
hefur starfað að útgáfumálum fyr-
ir contra-skæruliða.
BAÐSÖNGVARAR!
BLÖNDUNARTÆKIN SEM
FULLKOMNA ÁNÆGJUNA!
Danfoss baðblöndunartækin eru hitastillt.
Þú ákveður hitastigið og skrúfar frá - Dan-
foss heldur hitanum stöðugum. Danfoss
blöndunartækin eru stílhrein og þau er
auðvelt að þrífa.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2.SÍMI 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA