Morgunblaðið - 18.02.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FÉBRÚAR 1987
29
*
Irak:
Forsetinn staðfest-
ir sex dauðadóma
Baghdad. Reuter.
SADDAM Hussein, forseti íraks,
hefur staðfest dauðadóma yfir
sex mönnum, sem sakaðir voru
um spillingu. Meðal hinna dauða-
dæmdu er Abdul Mohammed
Latif al-Mufti, fyrrverandi borg-
arstjóri í Baghdad og þjóðhetja.
íraska fréttastofan sagði, að for-
„Gorbatschow“-
vodka mótmælt
Oberstdorf, Reuter.
SOVÉSKUM íþróttamönnum á
alþjóðlegu skíðamóti í Oberst-
Alnæmi:
Fórnar-
lömbum
fjölgar um
heimallan
Genf, Reuter.
ALÞJÓÐA heilbrigðisstofnunin
hefur greint frá því að alnæmis-
sjúklingum hafi fjölgað um tvö
þúsund siðastliðinn mánuð. Nú
eru því 40.536 alnæmissjúklingar
í 91 landi. Fyrir mánuði síðan
var vitað um 38.400 sjúklinga í
84 löndum.
29.500 manns í Bandankjunum
hafa smitast af hinum banvæna
sjúkdómi. í Evrópu hafa 4542 menn
fengið alnæmi, flestir í Frakklandi,
eða 1253. Vestur-Þjóðverjar og
Bretar sigla í kjölfarið.
Jonathan Mann, yfirmaður al-
næmisdeildar heilbrigðisstofnunar-
innar, sagði á blaðamannafundi að
undanfama sex til níu mánuði hefði
veira á sama meiði og alnæmisveir-
an greinst í mönnum í Vestur-
Afríku.
dorf í Vestur-Þýskalandi var
greint frá því á mánudag að
auglýsingaspjöld fyrir „Gorb-
atschow“-vodka, sem er þýsk
stafsetning á Gorbachev, yrðu
ekki tekin niður.
Skíðasveit Sovétmanna fór fram
að Alþjóða skíðasambandið (FIS)
léti fjarlægja spjöldin vegna þess
að þau væru ekki í samræmi við
herferð Mikhails Gorbachev, leið-
toga Sovétríkjanna, gegn áfengis-
neyslu.
Auglýsingarnar hafa sést greini-
lega í sjónvarpsútsendingum frá
mótinu, sem hófst 11. febrúar og
lýkur 21. Gianfranco Kasper, fram-
kvæmdastjóri FIS, sagði að fyrir-
t.ækið, sem framleiðir „Gorbatsch-
ow“-vodka styðji mótið og hafi
samningsrétt til að auglýsa vöru
sína.
Rússneskur útflytjandi í Berlín
hóf að framleiða vodka undir vöru-
merkinu „Gorbatschow" og var
drykkurinn vinsæll meðal Rússa í
borginni á fyrra hluta þessarar ald-
ar.
setinn hefði gefíð út tilskipun, þar
sem staðfestir væru dauðadómar
yfír borgarstjóranum fyrrverandi
og fimm öðrum embættismönnum,
sem höfðu með brúa- og vegagerð
að gera undir stjórn Mufti.
Mennirnir eru sakaðir um að
hafa þegið mútur og umboðslaun
af ótilgreindum erlendum fyrirtækj-
um fyrir að veita þeim upplýsingar
til að auðvelda forráðamönnum
þeirra tilboðagerð.
Irösk blöð sögðu, að mennirnir
sex hefðu unnið með öðrum emb-
ættismönnum, sem flúið hefðu land.
Al-Mufti var sviptur embætti
borgarstjóra í Baghdad og hand-
tekinn í fyrra, skömmu eftir að
hann tók við æðsta heiðursmerki
Iraks, Rafidain-orðunni, fyrir yfir-
umsjón með framkvæmdum við
vamarvirki á fenjasvæðunum fyrir
utan Basra.
Blöðin sögðu, að mennirnir sex
hefðu fengið „stórar upphæðir inn
á bankareikninga sína erlendis“.
Ekki var tilgreint, hvenær aftök-
urnar fæm fram.
Svíþjóð:
Reuter
Tígrisdýr hjá tannlækni
Það er ekki á hveijum degi sem tannlæknar eru beðnir að draga
tönn úr tígrisdýri. Á dögunum varð að draga tönn úr Reesha,
átta ára og 570 punda Síberíutígur í dýraathvarfi í nágrenni Los
Angeles. Tveir tannlæknar buðu sig fram til verksins sem gekk
að óskum.
Sýningu myndar um
morðið á Palme frestað
ERLENT
Stokkhólmi, Reuter. AP.
TALSMAÐUR sænska sjónvarps-
ins sagði í gær, að það hefði
ákveðið að fresta sýningum á
hinni umdeildu sovésku kvik-
mynd um morðið á Olof Palme.
Formælandi sænska sjónvarpsins
sagði að myndin yrði sýnd skömmu
fyrir miðnætti 6. mars næstkom-
andi. Sænska sjónvarpið hafði
áætlað að sýna myndina þegar ár
væri liðið frá morðinu, en Claes
Palme, bróðir hins látna forsætis-
ráðherra, fór þess á leit að sýning-
unni yrði frestað. „Það væri
ósæmilegt að sýna kvikmynd um
morðið, sem enn hefur ekki tekist
að upplýsa," hafði sænska blaðið
Aftonbladet eftir Claes Palme í gær.
Sjónvarpsmyndin er um 50
mínútna löng og nefnist „Hver
myrti Olof Palme". Hún er leikin
að hluta.
Frestunin kemur í framhaldi af
mótmælum bandaríska sendiráðs-
ins í Stokkhólmi. Sendiráðsmenn
höfðu samband við sænska sjón-
varpið í síðustu viku og lýstu yfír
áhyggjum sínum vegna myndarinn-
ar. I henni er gefíð í skyn, að
leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA,
hafi verið riðin við morðið.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐ-
INGA OG HAGFRÆÐ-
INGA HELDUR
RÁÐSTEFNU UM
SKATTAMÁL ÞANN 18.
FEBRÚARíSÚLNASAL
HÓTELS SÖGU OG
HEFSTRÁÐSTEFNAN KL.
13.30.
FUNDARSTJÓRI VERÐUR
TRYGGVIPÁLSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI
FJÁRMÁLASVIÐS
LANDSBANKA ÍSLANDS.
Ráðstefnan er öllum opin
GesturráðstefnunnarerJohn Norregárd hagfræðingurOECD
og fjallar hann um alþjóðlega þróun í skattamálum.
DAGSKRÁ RÁDSTEFNUNNAR ER SEM HÉR SEGIR:
13.30 Mæting
13.40 Setning ráðstefnunnar, Brynja Halldórsdóttir, varafor-
maður Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
13.45 Erindi:
John Norregárd, hagfræðingur hjá OECD,
GeirH. Haarde, aðstoðarmaðurfjármálaráðherra,
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra
iðnrekenda.
15.00 Kaffi
15.20 Hringborðsumræður. Þátttakendur verða:
Þórður Friðjónsson, forstöðumaður Þjóðhagsstofnun-
ar, verðurstjómandi umræðnanna,
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
Garðar Valdimarsson, ríkisskattstjóri,
GeirH. Haarde, aðstoðarmaðurfjármálaráðherra,
Jón Sigurðsson, fyrrv. forstjóri Þjóðhagsstofnunar,
Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags ísl. iðn-
rekenda.
LÖGÐ VERDUR ÁHERSLA Á FAGLEGA UMFJÖLLUN UM SKATTAMÁL
OG FYRIRHUGADA BREYTIIMGU Á SKA TTLAGIMINGU.