Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 32

Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987 Vestmannaeyjar: Kaupmenn óhressir með verðkönnun Verðlagsstofnunar Vestmannaeyjum. ATHYGLI hefur vakið könnun Verðlagsstofnunar á verðlagi mat- vara á Isafirði og i Vestmannaeyjum sem sagt var frá í Morgun- blaðinu fyrir helgina. Segir Verðlagsstofnun þessa könnun staðfesta að verðlag sé mun hærra á þessum stöðum en hægt sé að skýra með flutningskostnaði og birgðahaldi. Fréttaritari leitaði álits for- svarsmanna tveggja matvöruverslana og einnar heildverslunar á þessari könnun. „Eg er ósáttur við þessa útkomu. Mitt fyrirtæki hefur starfað hér í yfir 50 ár og er það vissa mín að þetta fyrirkomulag, birgðahald fyrir innlenda framleiðendur og beinn innflutningur á ýmsum vörum, er til mikillar hagsbótar fyrir verslun og verðmyndun hér,“ sagði Krist- mann Karlsson stórkaupmaður. Kristmann sagði að af þeim 34 fyr- irtækjum sem fyrirtæki hans annaðist sölu fyrir greiddu nú 26 fyrirtæki allan kostnað við að koma vörunni til Vestmannaeyja. „Fulltrúar verðlagsstjóra, sem komið hafa nokkuð reglulega í heimsókn til okkar, hafa ekki gert athugasemdir við verðlag eða verð- myndun hjá mér og ég sagði það við verðlagsstjóra og fulltrúa hans, þegar ég heimsótti þá í haust, að ég ætti erfitt með að svara ásökun- um stofnunarinnar um þessi mál þegar einu upplýsingarnar sem full- trúar hans gefa mér væru að ekkert væri athugavert og verðlag í góðu lagi." Kristmann sagðist hafa ýmis- Brú kynnir hjálparstarf Rauða krossins RAUÐI kross íslands tekur þátt í alþjóðlegu hjálparstarfi auk starfseminnar hérlendis. Um þetta hjálparstarf verður haldinn kynningarfundur í fundarsal RKÍ að Rauðarárstíg 18 (áður Hótel Hof) fimmtudaginn 19. febrúar kl. 20.30. Fundarboðandi er Brú, félag áhugamanna um þróunarlönd. Erindi flytja þessir aðilar frá Rauða krossinum: Jón Ásgeirsson, Jakobína Þórðardóttir, Pálína Ás- geirsdóttir og Sigríður Guðmunds- dóttir. Þær Pálína og Sigríður eru nýkomnar heim frá hjálparstarfi á vegum Alþjóða Rauða krossins, önnur frá Thailandi og hin frá Súd- an. Að loknum erindum verða pallborðsumræður undir stjórn Bemharðs Guðmundssonar blaða- fulltrúa þjóðkirkjunnar. Við pall- borðið sitja auk framsögumanna Guðjón Magnússon formaður RKÍ og Jóhannes Reykdal Dagblaðinu. Fundarstjóri verður Andrés Svanbjömsson verkfræðingur. Veitingar verða í boði RKÍ og er fundurinn öllum opinn. (Fréttatilkynning) legt annað út á fullyrðingar Verð- lagsstofnunar að setja. „Það er von mín að verðlagsstjóri og hans full- trúar geri sér dagamun og komi í heimsókn með allar niðurstöður og haldi fund með okkur.“ Gísli Geir Guðlaugsson hjá Tang- anum sagði að í verðkönnun sem gerð var í haust hefði komið fram að meðalverð á matvöru og gosi í Eyjum hefði reynst 5,8% hærra en á höfuðborgarsvæðinu. Hluti af þeim verðmismun, um 2%, væri óhjákvæmilega vegna flutnings- kostnaðar. „Það er augljóst mál að staðir með lítinn markað hljóta að leggja í mun meiri rekstrarkostnað á hvetja einingu en þeir sem við stærri markaðssvæði búa. Það verð ég að segja að tilgang þessarar könnunar skil ég ekki, þar sem allt það svartasta er fram dregið en ekki getið um þær vörutegundir sem ódýrari eru hér en á höfuð- borgarsvæðinu. Það er ekki verið að upplýsa verslanir um það sem bætur mætti fara í eistaka liðum, svo þeir aðilar sem við þessa þjón- ustu starfa gætu lagað sitt starf eftir því.“ Guðmundur Búason kaupfélags- stjóri sagðist út af fyrir sig geta tekið undir þau rök Verðlagsstofn- unar að verslanir væru of margar. „Ég tel það ekki óeðlilegt að ein- hveiju muni á verðlagi hér og á höfuðborgarsvæðinu vegna flutn- ingskostnaðar, svona 2-3%. Stór- markaðirnir bjóða ýmsar vörur á mun lægra verði en verslanir al- mennt í Reykjavík sem lækkar þá meðalverðlag þar. Við eigum í vissri samkeppni við stórmarkaðina og fer talsverð verslun héðan til Reykjavíkur. Það gerir afkomuna því lakari hjá okkur. Við verðum nú að leggja allt kapp á að ná nið- ur vörubirgðum, minnka birgða- kostnaðinn og auka veltuhraðann." — hkj. Morgunblaðið/Sigurgeir Konurnar hafa verið harðsæknar á sjóstangaveiði- mótum og slegið mörgum karlinum við. Hér hefur Þuríður Bemódusdóttir innbyrt vænan ufsa og er lukkuleg með afrekið. Morgunblaðið/Sigurgeir Magnús Magnússon með þann stóra. Er þetta ekki draumur allra sjóstangaveiðimanna? Vestmannaeyjar: 25 ár frá stofnun SJÓVE Vestmannaeyj um. SIÐAR í þessum mánuði munu sjóstangaveiðimenn í Vest- mannaeyjum halda það hátiðlegt með veglegum fagnaði, að liðin eru 25 ár frá stofnun SJÓVE, Sjóstangaveiðfélags Vestmanna- eyja. Talsverður hópur fólks, bæði karlar og konur, hefur lagt rækt við þessa íþrótt sem krefst af iðkendum þolinmæði, þraut- seigju, leikni með stöng og umfram allt sjóhreysti. Árlegt hvítasunnumót félagsins er löngu orðið að einum þessara föstu punkta í tilverunni hjá Eyjabúum. Magnús Magnússon veit allt um SJÓVE og hefur verið mótsstjóri hjá félaginu svo lengi sem saga þess hermir, aðeins fellt niður störf í fáein skipti þá hann hefur tekið sér stöng í hönd og róið á miðin. Fréttaritari fékk hann í stutt spjall. Sagði Magnús að Jóhann Sig- urðsson, umdæmisstjóri Flugleiða í London, hefði átt hugmyndina að fyrsta sjóstangaveiðimótinu í Eyj- um og hefði Flugfélag íslands haldið mótið 1960. Flugfélagið hélt „Nei, góði besti, konur hafa ve- rið með frá byrjun á stóru mótun- um. En það var ekki fyrr en á hvítasunnumótinu 1979 að kven- fólkið okkar fór að láta að sér kveða.“ — Ætlið þið að halda uppá tíma- mótin? „Við verðum með góða afmælis- veislu að sjálfsögðu, tilefnið er fyrir hendi. En fyrst og fremst ætlum við að minnast afmælisins með því að gera hvítasunnumótið í ár sér- lega veglegt. Við eigum von á öllum helstu sjóstangaveiðmönnum lands- ins og erlendum veiðigörpum líka. Amar Ingólfsson, mikill völundar- smiður, hefur tekið að sér að smíða verðlaunagripi, sem munu vinnast til eignar." Magnús Magnússon sagði að fé- lagið hefði í sínum röðum mikið af dugnaðarfólki sem ætíð væri tilbúið að sinna kalli félagsins og félagið hefði í gegnum árin notið vináttu og vinsemdar margra. Þar vildi hann sérstaklega tiltaka formenn og bátaeigendur, sem hefðu lagt félaginu til báta sína við mótahald. Núverandi formaður SJÓVE er Pét- ur Steingrímsson. — hkj. Þessi mynd var tekin þegar aflinn var veginn á hvítasunnumótinu 1963. Þorsteinn Guðjónsson og Adólf Bjarnason telja og vigta en Hrafn Johnsen tannlæknir (t.h.) skráir. Morgunblaðið/Sigurgeir Undanþágur að baki og komnir með próf upp á vasann. Frá vinstri talið: Sigurgeir Jónsson kennari, Óskar P. Friðriksson, Guðmundur Pálsson, Ingi Páll Karlsson, Björgvin Sigurjónsson, Haraldur Trausta- son, Ingibergur Vestmann, Sigurður Jónsson, Friðrik Ásmundsson skólastjóri. Skipstjórar á undan- þágum öðlast réttindi ein þrjú slík mót og komu margir útlendingar til Eyja til þátttöku í mótinu. Það var svo í febrúar 1962 að nokkrir Eyjamenn tóku sig sam- an og stofnuðu SJÓVE og voru þeir í fyrstu stjórninni Þórhallur Jónsson verkfræðingur, Axel Ó. Lárusson kaupmaður og Steinar Júlíusson umdæmisstjóri Flugfé- lagsins. Mörgum þótti þetta hálf- gerð fíflalæti, að róa til fískjar með veiðistöng. Mönnum voru hugleikn- ari öflugri veiðarfæri. Þetta átti allt eftir að breytast og nú er litið á þetta sem íþrótt, meira að segja keppnisíþrott. Ég leyfí mér að draga í efa að nokkur eða fá íþróttamót hérlendis séu betur undirbúin en sjóstangaveiðimótin og óvíða eru verðlaunagripimir fleiri eða glæsi- legri. — Og þetta er ekki bara karla- klúbbur? V ost mannaeyj u m. NÝLEGA lauk réttindanám- skeiði fyrir skipstjórnarmenn á undanþágum sem haldið var á vegum Stýriinannaskólans í Vestmannaeyjum. Sjö menn sóttu námskeiðið og stóðust þeir allir prófið með láði. Hafa þeir því öðlast 80 rúmlesta skipstjórnar- réttindi. Námskeiðið hófst um miðjan október og var skólasókn sérlega góð og áhuginn á náminu mikill. Flestir luku náminu með framhalds- einkunn sem gefur þeim möguleika á að sækja átta vikna framhalds- námskeið sem veitir 200 rúmlesta réttindi. Hæstu einkunn á námskeiðinu hlaut Guðmundur Pálsson, 9,45, sem er ágætiseinkunn. Óskar P. Friðriksson hlaut einnig ágætisein- kunn, 9,10, og þriðji varð Haraldur Traustason með 8,73. — hkj. Guðmundur Pálsson varð efstur á réttindanámskeiðinu. Hér tek- ur hann við prófskírteininu úr hendi Friðriks Ásmundssonar skólastjóra. GENGIS- SKRANING Nr. 32 - 17. febrúar 1987 Kr. Kr. Toll- Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi Dollari 39,150 39,270 39,230 St.pund 59,990 60,173 60,552 Kan.dollari 29,340 29,430 29,295 Dönskkr. 5,7342 5,7517 5,7840 Norskkr. 5,6262 5,6435 5,6393 Sænskkr. 6,0496 6,0681 6,0911 Fi. mark 8,6615 8,6881 8,7236 Fr.franki 6,4952 6,5151 6,5547 Belg. franki 1,0451 1,0483 1,0566 Sv.franki 25,6050 25,6835 26,1185 Holl. gyllini 19,1546 19,2133 19,4303 V-þ.mark 21,6418 21,7081 21,9223 ít.lira 0,03039 0,03049 0,03076 \usturr.sch. 3,0754 3,0848 3,U41 Port. escudo 0,2779 0,2787 0,2820 Sp. peseti 0,3067 0,3076 0,3086 Jap.yen 0,25575 0,25653 0,25972 Írsktpund 57,554 57,731 58,080 SDRISérst) 49,3436 49,4946 50,2120 ECU, Evrópum. 44,6056 44,7423 45,1263

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.