Morgunblaðið - 18.02.1987, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 18.02.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987 33 Morgunblaðið/Sigrún Frá síðustu sýningu Leikfélags Hveragerðis, sem var „Til söngs“, bókmenntasýning eftir Jónas Árnason. Skipulagstillögur um gamla Vesturbæinn TILLÖGUR að hverfisskipulagi fyrir gamla Vesturbæinn verða kynntar á fundi íbúasamtaka Vesturbæjar 19. febrúar. Fund- urinn verður haldinn í Hlað- varpanum á Vesturgötu 3 og hefst klukkan 20.30. Kynnendur verða Guðrún Jóns- dóttir arkitekt og samstarfsmenn hennar sem unnið hafa að tillögum þessum. Meðal annars verður fjall- að um utivistarsvæði í hverfinu, umferðarmál, húsverndun og hverfisþjónustu opinberra aðila og einkaaðila. Þá verða sýndar tillög- ur að deiliskipulagi fyrir einstaka reiti í hverfinu. Uppdrættir sem sýna tillögur um ofangreinda þætti hafa verið til sýnis í Hlaðvarpanum að undan- förnu og í dag, miðvikudaginn 18. febrúar, kl. 17.00—18.30. Hægt verður að spyrja höfunda nánar um tillögurnar í Hlaðvarpanum. Leikfélag Hveragerðis 40 ára Hveragerði. "LEIKFÉLAG Hveragerðis á 40 ára afmæli þ. 23. febrúar næst- komandi. Hyggst leikfélagið halda veglegan afmælisfagnað í Hótel Örk þ. 20. febrúar til að fagna þeim áfanga. Þar verður ýmislegt til gamans gert og er 'von forráðamanna félagsins að sem flestir velunnarar félagsins mæti til fagnaðarins. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti formann leikfélagsins, Valdimar Inga Guðmundsson, að máli og bað hann fara nokkrum orðum um sögu leikfélagsins. Hann sagði svo frá: „Það var 23. febrúar 1947, sem 13 áhugamenn um leiklist tóku sig saman og stofnuðu Leikfélag Hveragerðis, en í nokkur ár hafði Ungmennafélagið staðið fyrir sýn- ingum. Strax þetta vor leit fyrsta uppfærslan dagsins ljós, en það voru tveir einþáttungar — „Á þriðju hæð“ og „Box og Cox“. Síðan þá hefur margt á daga félagsins drifíð. Félagið hefur átt sín góðu og slæmu ár eins og geng- ur, þó hafa góðu árin verið mun fleiri og vonandi verður svo í fram- tíðinni. Leikfélag Hveragerðis hefur á stuttum en litríkum æviferli sett upp 39 leikrit, þ.e. hefðbundin Ieik- verk. Þá eru kabaréttsýningar, bókmenntakynningar, barna- skemmtanir og skemmtidagskrár fyrir ýmsa aðila talið í hundruðum. Oft hefur verið unnið við þröngan kost, en alltaf hafa félagarnir í leik- GOSPEL-TÓNLEIKAR verða haldnir í kvöld, miðvikudaginn 18. febrúar kl. 21.00, í Broad- way. Þar kemur fram úrvalslið kristinna tónlistarmanna m.a. Þorvaldur Halldórsson, Hellen Helgadóttir, Guðný og Elísabet Eir ásamt Magnúsi Kjartanssyni, Gunnbjörg Óladóttir, Hjalti Gunnlaugsson og Helga Bolla- dóttir, dúettinn TAKK þ.e. Halldór Lárusson og Árný Jó- hannsdóttir og söngkórinn Ljósbrot. Munu þau m.a. flytja lög af nýtú- komnum hljómplötum. Tónleikamir era haldnir til styrktar byggingu JÓHANN Hjartarson, stórmeist- ari, sigraði glæsilega á hraðskák- móti DV síðastliðinn laugardag, þar sem tóku þátt sextán fremstu skákmenn landsins. Hlaut Jó- hann 14*/2 vinning í 15 umferð- um. Verðlaun vora samtals 65 þúsund krónur en að auki styrkti DV Skák- samband íslands sérstaklega í tilefni mótsins. félaginu haft stoltið og metnaðinn að leiðarljósi og engin laun nema ánægjuna. Meðal verkefna Leikfélagsins má nefna Fjalla-Eyvind, Ævintýri á gönguför, Deleríum Búbónis, og í samvinnu við Leikfélag Selfoss Skálholt, Skugga-Svein og Atóm- stöðina. Allt era þetta nöfn sem vekja Ijúfar minningar, bæði hjá leikendum og áhorfendum. Leikfélagið ætlar að halda hátíð- Á tónleikunum í Broadway verða flutt lög af nýútkomnum plötum kristinna tónlistarmanna. Grospel-tónleik ar í Broadway lega uppá afmælið þ. 20. febrúar í Hótel Órk og er það von okkar í stjórninni að sem flestir félagar og gestir komi og samgleðjist okkur á 40 ára afmælinu í hinum nýju og stórglæsilegu salarkynnum Hótel Arkar.“ í stjórn LH era: Valdimar Ingi Guðmundsson formaður, Margrét Ásgeirsdóttir gjaldkeri og Gunnar Jónsson ritari. — Sigrún Þá vekja íbúasamtök Vestur- bæjar athygli á námskeiðinu Gamli bærinn í Reykjavík, en þar verður fræðst og rölt um Vesturbæinn og miðbæinn klukkan 18.00—19.30 á þriðjudögum, alls fímm skipti. Guðjón Friðriksson leiðbeinir á námskeiðinu og verður fyrsta skip- tið hinn 24. febrúar. (Úr fréttatilkynningu.) A» ^uglýsinga- síminn er 2 24 80 íS? J J yi «3 biblíuskóla sem samtökin Ungt fólk með hlutverk byggja á jörð sinni, Eyjólfsstöðum á Héraði. Biblíuskól- inn er nú fokheltur og bíður þess að verða fullgerður að innan. Ætl- unin er að gera mikið átak í byggingunni í sumar og mun m.a. koma hópur frá Bandaríkjunum til þess að aðstoða við bygginguna. Ætlunin er að á biblíuskólanum geti fólk fengið þjálfun til þess að taka þátt í kristilegu starfí en nú er orðin btýn þörf fyrir slíkan skóla hér á landi. Tónleikarnir munu hefjast eins og áður sagði kl. 21.00, miðar verða seldir við innganginn. (Fréttatilkynning) Jóhann Hjartarson sigraði á hraðskákmóti DV Úrslit urðu sem hér segir: 1. JóhannHjartarson I4V2 2. Jón L. Ámason IOV2 3. Helgi Ólafsson 10 4. Margeir Pétursson 9V2 5.-6. Guðmundur Sigutjónsson 9 5.-6. Karl Þorsteins 9 7. Hannes Hlífar Stefánsson 7V2 8. Friðrik Ólafsson 7 9. Ingvar Ásmundsson 6V2 10. SævarBjamason 6 Stjórnunðrfélag Islands m mm V 'A ÞJALFUNARBRAUT TOLVUSKOLANS Þau notendahugbúnaðarkerfi (ritvinnsla), töflureiknar, gagnasafnskerfi sem notuð eru í dag eru mjög öflug. Notendur nota hins vegar yfirleitt ekki nema hluta kerf- anna, það sem á vantar eru yfirleitt þeir hlutar kerfanna sem mesta vinnu spara. Á stuttum námskeiðum ná þátttakendur ekki að tileinka sér þessa flóknu hluti. Nú er í boði námsbraut þar sem nemendur eru þjálfaðir í notkun þessara kerfa. Þessi braut er ætluð fólki í atvinnulífinu sem vill ná færni á þessu sviði. Og með færninni margfaldast afköstin. Þessi braut er því tilvalin fyrir nýtt starfsfólk fyrirtækja. Námið er byggt upp sem 4 sjálfstæðir áfangar. Eftir að hafa tekið fyrsta áfang- ann, GRUNN, er hægt að taka þá áfanga af hinum þremur sem henta. ÁFANGAR: 1. GRUNNUR Kynning á einkatölvum. Helstu skipanir stýrikerfisins MS-DOS og öll helstu hjálparforrit þess. Kynning á ritvinnslukerfi, töflureikni og gagnasafnskerfi. Þetta er sami áfangi og áfangi 1 i Forritunar- og kerfisfræðibraut Tölvuskólans. Þetta er besta byrjendanámskeið um einkatölvur sem völ er á. Þrisvar til fjórum sinnum lengra og itarlegra en önnur byrjendanámskeið. 40 klst. 2. RITVINNSLA Nemendur fá þjálfun i notkun ritvinnslu. Farið verður í uppsetningu bréfa og skjala, helstu staðla, dreifibréf, samruna skjala og fleira. Nemendur velja annað hvort ritvinnslukerfanna Word eða Orðsnilld (WordPerfect). 32 klst. m íéé 3. TOFLUREIKNAR Þjálfun i notkun töflureikna. Helstu notkunarsvið, s. s. uppsetning likana, áætlanagerð, bókhald og töluleg úrvinnsla. Myndræn fram- setning gagna. Nemendur velja á milli kerfanna Lotus 1-2-3 og Multiplan. 32 klst. 4. GAGNASAFNSKERFI Þjálfun i notkun gagnasafnskerfisins dBase III + . Uppbygging gagna- safna, fyrirspurnir, skýrslugerð og póstlistar. Forritun i dBase III + . Einnig verður farið i flutning gagna milli kerfa t. d. úr dBase III + yfir i töflureikni eða ritvinnslu. 36 klst. m 1^1 Fyrsti GRUNN-áfanginn hefst 23. febrúar 1987. Kennt verður á morgnana, frá kl. 8 til 12. Tveim hópum verður kennt samhliða, hvor hópur um sig verður 3 daga aöra hvora viku og 2 daga hina vikuna. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri Tölvuskólans, Magnús Ingi Óskarsson, í síma 62 10 66. AStjórnunarfélag Islands TÖLVUSKOLI I Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66 I 11 sp 1 | f 1 1 * I i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.