Morgunblaðið - 18.02.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
35
••
Ongulstaðahreppur:
Sýna „Láttu ekki deig-
an síga, Guðmundur“
Sóknarpresturinn er í aðalhlutverkinu
LEIKFÉLAG Öngulstaða-
hrepps frumsýnir á föstudags-
kvöldið leikritið Láttu ekki
deigan síga, Guðmundur eftir
Hlín Agnarsdóttur og Eddu
Björgvinsdóttur. Leikstjóri er
Svanhildur JÓhannesdóttir.
Tónlistin er eftir Jóhann G.
Jóhannsson.
Stúdentaleikhúsið sýndi þetta
verk við gífurlegar vinsældir fyrir
fáeinum árum.
Aðalhlutverkið, Guðmund, leik-
ur Hannes Örn Blandon, nýi
sóknarpresturinn í Öngulstaðar-
hreppi. A meðfylgjandi mynd, sem
tekin var á æfingu nýlega, er
hann í miklum kvennafans - en
leikritið fjailar einmitt að vissu
leyti um lífsuppgjör hans með öll-
um þessum konum. Leikritið
spannar 20 ár, frá menntaskóla-
árum Guðmundar á Bítlatímabil-
inu fram á daginn í dag.
Menntamálaráðuneytið:
Fyrstu stöðurnar vegna
hákólakennslu auglýstar
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur nú auglýst fyrstu stöðurn-
ar vegna fyrirhugaðrar háskóla-
kennslu á Akureyri. Gert er ráð
fyrir að kennsla hefjist næsta
haust.
Stöðumar sem sem hér um ræð-
ir em staða námsbrautarstjóra í
hjúkrunarfræðum og staða náms-
brautarstjóra í iðnrekstrarfræði. Er
ætlunin að þeir undirbúi nánar
kennslu í þessum námsbrautum,
sem fyrirhugað er að hefjist á Akur-
eyri nú í haust.
íþróttafélag
Menntaskólans
50 ára:
Félagar
hlaupa frá
Húsavík til
Akureyrar
ÍÞRÓTTAFÉLAG Menntaskól-
ans á Akureyri, ÍMA, verður 50
ára í dag. í tilefni dagsins ætla
15 félagar í ÍMA að hlaupa frá
Húsavík til Akureyrar - og hafa
þeir safnað áheitum vegna
hlaupsins.
Snemma morguns verður lagt af
stað í langferðabifreið frá Akureyri
tii Húsavíkur og síðan hlaupið til
baka, eins og áður sagði. Reiknað
er með að hlaupagikkimir fari
gegnum miðbæinn á Akureyri milli
klukkan 14.00 og 14.30 í dag.
Hlaupið verður norður Skipagötu,
suður göngugötuna, upp kirkju-
tröppurnar og upp í skóla. Sam-
koma verður í Möðruvallakjallara,
í raungreinahúsi MA, eftir að hlaup-
ararnir koma þangað . Jóhann
Sigurjónsson, skólameistari, og
Díana Gunnarsdóttir formaður
ÍMA, flytja þar ávörp. Boðið verður
upp á kaffiveitingar. Allir em vel-
komnir í Möðmvallakjallara sem
lengi sem pláss er.
Dalvíkingar hafa enn hug á að koma á fót uppboðsmarkaði:
Skammsýni að tala um fjar- #
skiptamarkað sem einu lausnina
- segir Jóhann Antonsson, sem sæti á í Fiskmarkaðsnefnd Dalvíkur
Sjónvarp
Akureyrí
MIÐVIKUDAGUR
18. febrúar
§ 18.00. Sjónhverfing (lllusions).
Bandarisk kvikmynd frá 1983 með
Karen Valentine, Brian Murrey og
Ben Masters í aðalhlutverkum.
Virtur tískuhönnuður (Valentine)
leitar eiginmanns síns, sem sagð-
urer látinn ÍFrakklandi. (leit sinni
kemst hún að því að eiginmaöur
hennarvar ekki sá sem hann
sagðist vera. Leikstjóri er Walter
Grauman.
19.35.Teiknimynd. Glæframúsin
(Dangermouse).
20.00. Bjargvættrinn (Equalizer).
Menn fagna og gera sér glaðan
dag í brúðkaupsveislu þegar
hryðjuverkamenn ráðast inn og
taka alla gesti í gíslingu.
§20.50. Tiskuþáttur. Umsjónarmaður
er Helga Benediktsdóttir.
§21.20. Húsiöokkar(OurHouse).
David lendir í klandri þegar hann
ætlar að vinna sér inn vasapen-
inga.
§22.15. Flugslys 77 (Airport 77).
Bandarísk kvikmynd frá 1976 með
Jack Lemmon og James Stewart
í aðalhlutverkum. Flugvél full af
farþegum lendir í sjþnum í hinum
fræga Bermunda þríhyrning.
Skrokkur vélarinnar helst heill.
Þeir sem lifa af eiga litlar birgðir
af súrefni og verða að bjarga sér
á eigin spýtur því sambandslaust
erviðumheiminn.
00.10. Dagskrárlok.
SJÁVARGULL nefnist ný versl-
un sem opnaði í Brekkugötu 7b
um síðustu helgi. Eigendur eru
hjónin Þráinn Lárusson og Ingi-
björg Baldursdóttir. Hér er um
að ræða „fisk- og sælkeraversl-
un,“ eins og Þráinn lýsti því í
samtali við Morgunblaðið.
„Ég held ég geti fullyrt að ég
sé með eitt mesta úrval landsins
af fiski. Ég flyt hann hvaðan sem
er af landinu því til að fólk geti
treyst á verslunina verður fískur-
inn alltaf að vera til. Það hafa
nefnilega alltaf verið vandræði
með hráefnisöflun í fiskverslunum
ÞRÁTT fyrir hugmyndir Hilmars
Daníelssonar um stofnun hiutafé-
lags um fiskmiðlun á Dalvík er
fiskmarkaðsnefnd Dalvíkur
ákveðin í því, eftir sem áður, að
koma upp uppboðsmarkaði í bæn-
um. Það er þvi þriðji markaðurinn
sem unnið er að stofnun í Eyja-
firði. Eins og greint hefur verið
frá hér í blaðinu vinna Akur-
eyringar að stofnun „fjarskipta-
markaðar" og Hilrnar Daníelsson
á Dalvík að fiskmiðlun - kaup
færu í gegnum telefax og síma,
og seljandinn landaði hjá viðkom-
andi kaupanda.
„Akureyringar segja að útgerðar-
og fiskvinnslumönnum sem þeir hafi
haft samband við á svæðinu hafí
ekki litist á að fá landmarkað á
Akureyri og það passar einmitt við
þau svör sem við höfum fengið því
menn tala um að. ef og þegar land-
markaður komi upp á svæðinu sé
Dalvík ákjósanlegasti staðurinn,"
sagði Jóhann Antonsson, sem sæti á
í nefndinni, í samtali við Morgun-
hér á Akureyri. Ég ákvað því að
hafa alltaf fisk á boðstólum, þó
ég þurfi að flytja hann langt að.
Hann er dýrari þannig an það
kemur ekki niður á verðinu í versl-
uninni." Hjá Þráni eru einnig
ýmsar aðrar matvörur á boðstóln-
um.
Þráinn er lærður kokkur og
sajjjðist veita viðskiptavinunum
faglegrar ráðleggingar í matar-
gerð. Þess má geta að í versluninni
býður hann upp á tilbúna fiskrétti
- og áður en langt um líður ætlar
hann einnig að vera með tilbúna
kjötrétti, á föstudögum og laugar-
dögum.
blaðið. Johann sagði að sér fyndist
augljóst að ekki væri hægt að byggja
upp eitt kerfi fyrir sunnlendinga og
annað fyrir Norðlendinga varðandi
fiskmarkaðsmál. „Verðlagsráðskerf-
ið, sem unnið hefur verið eftir í
mörg ár, er nú að líða undir lok. Það
er verið að þreifa sig inn í nýtt kerfí
í Hafnarfirði og Reykjavík, þar sem
verið er að undirbúa landmarkaði,
og ég tel að við getum aldrei verið
nema hluti af því kerfi. Sams konar
háttur verður að vera, í grófum drátt-
um, á öllu landinu. Heyrst hafa
efasemdarraddir eftir utgerðarmönn-
um og fiskverkendum um að þeir
muni setja sinn fisk á markað en ég
held að þegar reynsla verður komin
á þetta á suðurlandi komi þörfín jafnt
upp hér og þar. Viðhörf munu þá
breytast eins og gerst hefur í Hafnar-
fírði. Hvaleyri og Sjólastöðin ætla til
dæmis að landa á markaðinn og
kaupa síðan hráefni þaðan; með
þessu ætla fyrirtækin að ná upp sér-
hæfíngu í vinnslunni - sérhæfíngu
með tegundir og jafnvel stærðir.
Síðan er hægt að greiða liærra hrá-
efnisverð þegar sérhæfingin hefur
náðst.,“ sagði Jóhann.
Hann sagði það sína skoðun að
hér nyrðra yrðu menn að ná fram
sams konar sérhæfingu í vinnslunni.
„Það er skammsýni að tala um fjar-
skiptamarkað sem einu lausnina.
Þeir sem tala um slíkt sjá ekki þróun-
ina sem á eftir að verða. í báðum
hugmyndunum, Hilmars og Akur-
eyringanna, eru hlutimir teknir úr
samhengi við sýnilega þróun. En
vafalítið á eftir að koma upplýsinga-
kerfi, í sama dúr og Akureyringamir
eru að tala um - en þá fyrir allt
landið," sagði Jóhann.
Aðspurður sagði Jóhann nauðsyn-
legt að byggja hús fyrir fískmarkað-
inn á Dalvík og það væri mjög dýrt.
„En þetta er ekki komið á fram-
kvæmdastig ennþá. Við ætlum að
bíða og sjá hvemig nýja kerfíð kem-
ur út fyrir sunnan. Við erum að bíða
eftir upplýsingum að sunnan eftir
að línumar fara að skýrast - þegar
þær koma getum við farið að skipu-
leggja okkar markað endanlega."
Jóhann kvaðst á þeirri skoðun að
„fjarskiptamarkaður" yrði fyrst og
fremst til að hjálpa til við gámaút-
flutning en ekki til að skapa miðlun
- yrði ekki til þess að vinnslan gæti
„unnið sig inn í framtíðina".
Jóhann sagði hugmynd dalvísku
nefndarinnar að stofnað yrði rekstr-
arfélag um markaðinn, þar sem
hagsmunaaðilar ættu hlut, en annað
aðskilið hlutafélag yrði stoftiað um
fasteignina.
Samgöngur eru taldar skipta
miklu ntáli þegar fiskmarkaður er
settur. Johann sagði nefndina telja
flutningaleiðir góðar, bæði á sjó og
landi.
„Sjávargull“ í Brekkugötunni