Morgunblaðið - 18.02.1987, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
Litli, ljúfi Lúkas
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Lúkas (Lucas). Sýnd í Bíóhúsinu.
Stjömugjöf: ☆ ☆ >/2
Bandarísk. Leikstjórí og hand-
ritshöfundur: David Seltzer.
Framleiðandi: David Nicksay.
Tónlist: Dave Grusin. Kvikmynda-
taka: Reynaldo Villalobos. Helstu
hlutverk: Cory Haim, Kerri Green,
Charlie Sheen og Courtney
Thorae-Smith.
„Yfirborðslegt" er uppáhaldsorð
Lúkasar. Amerískur fótbolti og
klappstýrur er yfírborðslegt en skor-
dýraveiðar og sinfóníur eitthvað
dýpra. Þess vegna m.a. er Lúkas
einn af þessum sem strítt er í skólan-
um. Enda er hann einn af þeim sem
stynur á síðasta degi sumarfrísins:
„Æ, nú byijar skólinn á morgun."
Lúkas er ekki eins og aðrir 14 ára
krakkar. Hann hittir Maggie í sum-
arfríinu og þau verða miklir vinir.
Hún er hjartanlega sammála honum
um þetta yfírborðslega í lífínu þar
til þau byija í skólanum að Maggie
gengur í klappstýruliðið og verður
skotin í fyrirliða fótboltaliðsins.
Þessi fyrsta bíómynd Davids Seltz-
er lofar góðu um hann sem kvik-
myndaleikstjóra en hann hefur áður
fengist við heimildamyndagerð og
skrifað kvikmyndahandrit. Lúkas er
persónuleg mynd, stundum hlægileg
og stundum sorgleg eins og gengur
og gerist og með alvarlegum undir-
tóni, sem brýst fram í kostulegu
atriði þegar Lúkas litli hleypur í allt-
of stórum fótboltabúningi inná völl-
inn og ætlar að bjarga skólaliðinu
frá niðurlægingu.
Eins og Lúkas sjálfur er myndin
aldrei yfírborðsleg. Seltzer fjallar á
fallegan hátt og alvarlegan um titil-
persónu sína án þess að týna nokkum
tímann góðu skopskyninu og er
dyggilega studdur í þeirri viðleitni
af hinum unga leikara, Cory Haim,
sem er þrælgóður og vorkunnsamur
í titilhlutverkinu með alltof stór gler-
augu og gapandi munninn.
Lúkas er mynd um strák, sem er
einmana og utanveltu af því hann
er öðruvísi og hún er um heldur
misheppnaðar tilraunir hans til að
vera „eins og aðrir“ með því að ganga
í fótboltalið skólans, sem er eins
vonlaust fyrir hann og fótbrotinn
mann að ganga upp í Drangey.
í oft fyndnu handritinu leynist
boðskapurinn um að best sé að vera
maður sjálfur þótt maður sé álitinn
skrítinn. Og það lýsir skemmtilega
sambandi Maggie (Kerri Green), fyr-
irliðans Cappie (Charlie Sheen) og
Lúkasar. Allt eru þetta perluvinir en
Cappie og Lúkas eru báðir skotnir í
Lúkas reynir að komast i fót-
boltaliðið í mynd Bíóhússins.
Maggie og Lúkas skilur það ekki að
Maggie skuli taka eitthvað eins lítil-
Qörlegt og fótboltafyrirliða fram yfír
hann sjálfan.
Þetta er svolítið öðruvísi mynd og
þótt hún sé kannski pínulítið væmin
eins og efnið býður uppá passar
Seltzer sig á að yfírkeyra það ekki
og hann á auðvelt með að láta manni
þykja vænt um bæði Lúkas og mynd-
ina sína.
Aðalumboðið hf.
Eigum til fyrirliggjandi:
Wagoneer LTD 1986 m/öllu:
ss. 6 cyl., vökvastýri, litað gler, álfelgur, rafdrifnar rúður, raf-
drifin sæti, 5 dyra, 6 Jensen-hátalarar, útvarp og segulband,
fjarstýrður hurðaopnari, veltistýri, sjálfvirkur hraðastillir, sentral-
læsingar, leðurklædd sæti, loftkæling, toppgrind. Selec Trac þróað-
asta fjórhjóladrifið. Verð 1280 þús.
Sýningarbíll á staðnum.
Jafnframt fyrirliggjandi m/Intercooler Turbo diesel vél með
sama útbúnaði. Verð 1320 þús.
Getum útvegað allar gerðir bíla eftir óskum hvers
og eins.
Cherokee Chif með sama
búnaði + sóllúgu.
Verð 1180 þús.
Upplýsingar gefur
r v/Miklubraut
. sími621055.
Sveitakeppnin á Bridshátíð:
Útlendingarn-
ir röðuðu sér
íefstu
Brids
Arnór Ragnarsson
Sveit Steen Schou frá Dan-
mörku sigraði af öryggi í
sveitakeppni Bridshátíðar sem
lauk sl. mánudagskvöld á Hótel
Loftleiðum. Hlaut sveitin 148
stig af 175 mögulegum og má
segja að sveitin hafi verið búin
að vinna mótið fyrir síðustu
umferðina. Danska sveitin spil-
aði af miklu öryggi í mótinu. í
næstsíðustu umferð mætti
sveitin sænska landsliðinu og
var sá leikur einstefna til Dan-
anna og einsýnt að við þá yrði
ekki ráðið. í sveit Danmerkur-
meistaranna spiluðu ásamt
Steen Johannes Hulgaard,
Knut Aage Boesgaard og Peter
Schaltz.
Eins og áður sagði voru Danir
nær öruggir með fyrsta sætið
þegar einni umferð var ólokið en
margir áttu möguleika á 2. og
3. sæti.
Staðan var þá þessi:
Steen Schou 129
Bergen Hansa 115
Atlantic 114
Alan Sontag 113
Svíþjóð 110
Zia Mahmood 109
Aðalsteinn Jörgensen 107
Ármann J. Lárusson 105
Delta 105
Magnús Torfason 102
Tvær efstu sveitimar spiluðu
saman, þá spilaði Alan Sontag
gegn Atlantic, Zia Mahmood spil-
sætm
aði gegn Svíunum og Aðalsteinn
við sveit Armanns sem hafði stað-
ið sig með miklum ágætum í
mótinu. Alan Sontag sigraði Atl-
antic með miklum yfírburðum og
Svíamir sáu aldrei til sólar gegn
Zia og virtust ekki hafa náð sér
eftir slæmt tap gegn Dönum í 6.
umferð. Danimir héldu upptekn-
um hætti og unnu Norðmennina
og sigruðu í mótinu með nokkmm
yfírburðum.
Lokastaðan:
Steen Schou 148
Alan Sontag 137
Zia Mahmood 134
BergenHansa 126
Aðalsteinn Jörgensen 125
Sigfus Öm Ámason 122
Atlantic 120
Armann J. Lámsson 119
Samvinnuferðir/Landsýn 119
Delta 119
íslenzku sveitimar áttu enga
möguleika á sigri í þessu móti.
Það var ekki nóg með að etja
kappi við þessi frægu nöfn í brids-
heiminum heldur voru einnig með
í keppninni þijár norskar sveitir
sem allar voru erfiðar viðureignar
auk ítölsku sveitarinnar sem
reyndar olli vonbrigðum. Þá virð-
ist sem breiddin í íslenzka bridsin-
um virðist vera að aukast og
enginn leikur unninn fyrirfram
þeirra í milli.
Verðlaun í sveitakeppninni vom
þrenn. 1.200 dalir fyrir 1. sætið,
1.000 dalir fyrir annað sætið og
800 dalir fyrir 3. sætið. Auk þess
fengu sigurvegaramir úr frá
Grænlendingar mættu með sveit í keppnina og gekk vel framanaf
en róðurinn þyngdist hjá þeim þegar leið á keppnina.
Athugasemd
frá leiklistardeild útvarpsins
Vegna skrifa Ólafs M. Jóhannes-
sonar í pistli hans í Morgunblaðinu
Iaugardaginn 14. febrúar um að
ekki hafi af hálfu leiklistardeildar
verið staðið nógu vel að kynningu
í dagblöðum á verðlaunaleikritinu
19. júní eftir Iðunni og Kristínu
Steinsdætur skal eftirfarandi tekið
fram:
Auk rækilegrar kynningar á leik-
ritinu bæði í hljóðvarpi og sjónvarpi
var dagblöðum send kynning á því
ásamt mynd af nokkrum leikenda
og leikstjóra. Í kynningunni var
m.a. greint frá því að leikritið hefði
hlotið 1. verðlaun í leikritasam-
keppni RÚV 1986, auk þess sem
tilgreind vom ummæli dómnefndar
um það og sagt frá helstu hlut-
verkaskipan, nöfnum leikenda,
tæknimanna og leikstjóra.
Morgunblaðið var eina dagblaðið
sem ekki sá ástæðu til að birta
þessa kynningu. Þess má geta að
leiklistardeild sendir dagblöðum og
Miðli, dagskrárkynningarblaði
Þjóðviljans, reglulega kynningar á
útvarpsleikritum, bæði á fímmtu-
dagsleikritum, framhaldsleikritum
og leikritum fyrir böm og unglinga,
sem flutt eru síðdegis á laugardög-
um.
Með þökk fyrir birtinguna,
Gyða Ragnarsdóttir,
leiklistarfulltrúi.
i