Morgunblaðið - 18.02.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
Bjarnarf] örður;
Tími þorrablóta
Bjarnarfirði.
TÍMA þorrablóta er nú að ljúka
og þorraveðrið að taka við af
góðviðrinu sem var í janúar. Þá
kemur hver sveit saman út af
fyrir sig og heldur uppi skemmt-
an með átveislu mikilli.
Síðustu helgina í janúar voru
þannig haldin þorrablót í Hólmavík
og Drangsnesi. Var þar mikil
skemmtan með góðum mat og
höfðu menn jafnframt á orði, að
allt það sem væri fært til gaman-
mála á þorrablóti, væri mönnum
jafnframt fyrirgefið, að gamalli
hefð. Hafði þetta heyrst í útvarpi,
frá formanni fræðsluráðs Norður-
lands eystra.
Þá voru svo haldin þorrablót á
Laugarhóli, fyrir Bjamarfjörð, og í
Broddanesi við Kollafjörð, helgina
fyrsta í febrúar.
Þorrablótið í Bjamarfírði var
jafnframt fjölskylduskemmtun og
þar böm með foreldrum sínum. Að
venju var súrmeti og það sem hér
er nú helst kallað hvunndagsmatur
á borðum, en þó var þar allt það,
er annars staðar kallast þorramat-
ur. Má að vísu segja að hákarl
tilheyri ekki daglegum matseðli hér
um slóðir.
Er menn svo höfðu tekið vel til
matar síns, upphófst skemmtan
'með upplestri, söng, leikjum og
spilum. I upplestri lauss máls var
minnst sveitarinnar í fomum lýsing-
um. Þá voru ljóð
sungin. Vitanlega
bæði flutt og
vom þau svo
frumsamin af heimamönnum.
Merkast var þar efni tveggja ljóða
er sungin vom. Annað þeirra fjall-
aði um það sem blasti við augum
héraðshöfðingjans á Hóli, hvemig
fólksflóttinn hefir verið úr sveitun-
um og hve lítið þarf til að fullkomna
hann á viðkvæmum stöðum. Þá var
ljóð um hveijar breytingar hafa
orðið á félagsstarfsemi og ung-
mennafélögum á undanfömum
áratug.
Allt frá því að vinna grettistök,
til þess að nú vantar grettistök í
ýmsum málum á heimavelli. Vöktu
þessi tvö ljóð óskipta athygli sam-
komugesta, kannske eiga þau
nokkuð við ástandið hér, nú á
tímum, en ekki síður víða annars
staðar á landinu og þá kannske
sérstaklega hér á Vestfjörðum og
á landinu norðanverðu.
Að þessari skemmtan lokinni, var
svo ýmist farið í leik með bömunum
og/eða spilað, bæði á spil og lítils-
háttar á hljóðfæri. Lauk þessu
þorrablóti ekki fyrr en um miðja
nótt og höfðu allir góða skemmtan
af. Ekki var samt fluttur annáll
ársins með skotum á náungann,
heldur litið til vandamálánna í
víðara samhengi. Fór því enginn
heim með syndakvittun af þessu
þorrablóti. — SHÞ
Ju ncl 51 S
IS01 BL 1 1 'SA
Blitsa lökk á parketið og korkinn. Níðsterk gólflökk í sérflokki.
LAðBr
»sjidbaserel
*andbaserfí
fanckers
Spurðu fagmanninn,
hann þekkir Blitsa lökk,
Þú færð Blitsa lökk hjá:
0
Byko, Kópavogi,
Byko, Hafnarfirdi,
Húsasmiðjunni,
Litnum,
Litaveri,
Málaranum,
Dúkalancli,
Pétri Hjaltested,
Dropanum, Keflavík,
Skafta, Akureyri,
Penslinum, ísafirði,
S.G. Búðinn Selfossi
Málningarvörum hf.,
Málningarþjónustunni,
Kaupfélöginn um allt land.
EGILLARNASONHF.
f PARKETVAL
SKEIFUNNI 3, SÍMI 91-82111
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ANDREW WILSON
Forsætisnefnd 27. þings sovéska konunúnistaflokksins þakkar traust, sem henni var sýnt við þing-
setningu. í fremstu röð frá vinstri eru: Yegor Ligachev, annar flokksritari, Mikhail Gorbachev,
aðalritari, og Andrei Gromyko, forseti.
Gorbachev og lýðræðið
ÞEGAR flokksþing sovézka kommúnistaflokksins féllst á hug-
myndir Mikhails Gorbachev um að koma á lýðræðislegra skipulagi
í Sovétríkjunum var það „spor í rétta átt“, segir andófsmaðurinn
Roy Medvedev. í tveggja stunda viðtali sem greinarhöfundur
átti við sagpifræðinginn í bókum hlaðinni vinnustofu hans í
Moskvu, sagði Medvedev að fyrirætlanir um að fleiri en einn yrðu
í framboði þegar kosið væri til helztu embætta flokksins, og að
atkvæðagreiðsia yrði leynileg, væri „sigur fyrir Gorbachev, sér-
staklega þegar haft er í huga að vinur hans, Alexander Yakovlev,
náði kjöri sem fulltrúi í stjómmálaráðið, Politburo“.
Yakovlev, yfírmaður áróðurs-
deildar flokksins og ötull
málsvari fyrir „glasnost" (hrein-
skilni í upplýsingamiðlun) og
„perestroika" (nýskipan) var kjör-
inn varamaður — án atkvæðisrétt-
ar — í þessa æðstu stjóm
flokksins.
Medvedev telur að Yakovelev
eigi að sinna eftirliti með hug-
myndafræði flokksins og taka við
þeim störfum af Yegor Ligachev,
sem almennt er talinn ganga
næstur Gorbachev að völdum.
„Ligachev er verkfræðingur,"
segir Medvedev. „Hann er ekki
ýkja vel heima í fræðilegum atrið-
um. Hann tók skýrt fram að hann
tæki sennilega við umsjón efna-
hagsstefnunnar — sem að sjálf-
sögðu er afar þýðingarmikið
starf.“
Hve langt gekk Gorbachev í
gagnrýni sinni á Brezhnev? spurði
ég-
„Hann nefndi engin nöfn,
hvorki Brezhnevs né Stalíns, en
öllum í stjórnkerfinu var full íjóst
að hveijum gagmýni hans beind-
ist.“
Og flokksformaðurinn í Úkr-
aínu, Vladimir Shcherbitsky —
síðasti fulltrúi íhaldsafla Brezhn-
evstímans, hvemig tókst honum
að halda stöðu sinni?
„Áframhaldandi seta Shcherb-
itskys í stjómmálaráðinu var liður
í óhjákvæmilegri málamiðlun.
Shcherbitsky reyndist njóta meiri
stuðnings í miðstjóminni en
Gorbachev hafði reiknað með.
Engu að síður kom Ligachev fram
með harðorða gagnrýni á land-
búnaðinn í Úkraínu, sem var
bersýnilega beint gegn honum.
Staðreyndin er sú að Gorbachev
hætti ekki á harðar deilur um
Shcherbitsky á flokksþingi þar
sem taka varð ákvarðanir um
mikilsverð stefnumál fyrir fram-
tíðina.
Honum var ljóst hvað var þýð-
ingarmest, og hvað hafði minni
þýðingu fyrir helztu stefnumál
hans. Hann vildi samstöðu."
Völdin í höndum
flokksins
Völdin verða áfram algjörlega
í höndum flokksins, sagði
Medvedev. En Gorbachev hefur
komið á róttækum breytingum.
„Eftir tuttugasta og sjöunda
flokksþingið á síðasta ári skipti
hann um menn í helmingi emb-
ætta ritara miðstjómarinnar á
öllum valdasviðum. Nú vill hann
algjöra breytingu á embættaskip-
aninni, alveg frá grunni.
Þetta verður gert samkvæmt
nýjum reglum um leynilegar kosn-
ingar í stað handauppréttinga,
sem Stalín kom á. Hann segist
vilja, að þessar reglur gildi um
kosningar til stjóma sovétlýðveld-
anna en ekki til kosninga í
miðstjóm að svo stöddu.
Þetta er ein leið til að draga
úr áhrifum nómenklátúra-kerfís-
ins (valdakerfisins innan flokks-
ins, þar sem hópur valdamanna
ræður öllu og býður fram einn
lista manna að sínu skapi til allra
starfa) og binda enda á æviskipun
í opinber embætti."
Medvedev sagði að ekki kæmi
til álita á þessu stigi að beita „lýð-
ræðislegum" kosningum við kjör
í áhrifamestu stöður flokksins, þar
með talið til embættis aðalritara.
„Með 20 ára feril að baki þarf
Gorbachev að treysta á stuðning
of margra sem kosnir voru sam-
kvæmt gamla kerfínu. Ef leyni-
legum kosningum hefði verið beitt
fyrir tveimur ámm er trúlegt að
Viktor Grishin, siðspilltur formað-
ur flokksdeildarinnar í Moskvu,
hefði verið kjörinn flokksleiðtogi
en ekki Gorbachev.“
Einn tilgangurinn með að koma
á lýðræðislegri kosningum er að
vekja áhuga kjósenda á stjóm-
málastarfínu. Almenningur hefur
engan áhuga á stjórnmálum og
veit raunar ekki hvað þau em í
skilningi þeirra, sem við lýðræði
búa.
„En enginn veit hve langt
Gorbachev ætlar að ganga. Nema
hvað hann stefnir að „lýðræðisleg-
um“ breytingum.
„Við höfum hinsvegar fengið
að sjá þrennt markvert — lausn
Andrei Sakharov úr útlegð innan-
lands, hreyfingu i þá átt að kveðja
heim sovézka hermenn frá Afgan-
istan, og umtalsverðar breytingar
á ritaraembættum miðstjómar-
innar,“ sagði Medvedev.
„Gorbachev ætlar sér að vera
áfram flokksleiðtogi, og hann
mun fara sínu fram með gát. Eitt
af því sem háir honum er skortur
á kjama hæfra stuðningsmanna
í embættum bæði innanlands og
í utanríkisþjónustunni."
Medvedev ber á móti því að
ágreiningur ríki milli Gorbachevs
og Ligachevs. En meðan Gorb-
achev þarf að móta stefnuatriði
varðandi hugmyndafræðina, fæst
Ligachev meira við hagnýtari
mál. Hann vildi gjaman taka til
hendi við endurskipulagningu
landbúnaðarins.
Ligachev var ósveigjanlegri í
skoðunum en Gorbachev, sagði
Medvedev. Hann var drifQöðrin á
bak við baráttuna gegn áfengis-
vandamálinu. Hann var sagður
standa að baki hræringa er mið-
uðu að því að banna reykingar í
landinu, og hann studdi ákvörðun-
ina um að nema úr gildi bann við
sýningum á kvikmyndinni „Iðr-
un“, sem er gagnrýnin á Stalín.
Var það ósigur fyrir Gorbachev
að geta ekki tryggt Boris Yaltsin,
nýjum formanni flokksdeildarinn-
ar í Moskvu, sæti í stjómmálaráð-
inu?
„Nei,“ sagði Medvedev. „Sú
stöðuhækkun hefði hvort eð er
verið ótímabær. Hún mátti bíða,
ef til vill þar til á næsta flokks-
þingi, síðar á þessu ári.“
Þrátt fyrir andstöðu gegn lýð-
ræðisáformum Gorbachevs frá
mönnum sem vikið hefur verið úr
framkvæmdanefndum flokksins í
ýmsum bæjar- og sveitafélögum,
em margir mennta- og listamenn
þeirrar skoðunar að sovézka leið-
toganum takist að útrýma íhalds-
öflunum og tryggja framgang
„glasnost“.
Höfundur er Moskvu-
fréttaritari brezka blaðsins
The Observer.