Morgunblaðið - 18.02.1987, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
Kyrrlát kvöldstund
á Hótel Hjartabrot
_ Morgunblaðifl/Þorkell
Ásmundur Jónsson og Hilmar Örn Hilmarsson skála fyrir plötunni
nýútkomnu.
Síðastliðinn fímmtudag var gef-
in út piatan „Kyrrlát kvöld-
stund á Hótel Hjartabrot". Á henni
er tónlist úr kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, „Skyttumar",
sem sýnd er í Háskólabíói um þess-
ar mundir.
Höfundur tónlistarinnar er Hilm-
ar Öm Hilmarsson, en það er
hljómsveitin Omamentals, sem flyt-
ur. í henni em auk Hilmars þau
David Ball og Rose McDowall. Upp-
tökur plötunnar fóm fram í
Lundúnum, nánar tiltekið í Paradise
og Southem Studios, en Hilmari
innan handar var fyrmefndur David
sem er einna þekktastur fyrir að
vera fyrmm helmingur hljómsveit-
arinnar Soft Cell. Utgefandi plöt-
unnar er Grammið.
Af þessari plötu hefur lagið „No
Pain“ hljómað töluvert í útvarpi að
undanfömu og má í því, auk fyrr-
nefndra.heyra Einar Öm Bened-
iktsson lesa upp texta og þeyta
trompet. Þess má geta að líkur
standa til þess að hljómsveitin
Omamentals haldi til San Fransisco
í byijun mars, en þar munu m.a.
koma fram þeir Frank Zappa og
David Byme.
íslenskir sjónvarpsáhorfendur
hafa áður heyrt kvikmyndatónlist
Hilmars Amar, en hann samdi tón-
listina við sjónvarpsleikrit Nínu
Bjarkar Ámsidóttur, „Líf til ein-
hvers".
Lið Menntaskólans í Reykjavík
fagnar sigri þegar úrslitin eru
ljós. Frá vinstri eru þeir niugi
Jökulsson, Sveinn Valfells HI.,
Auðunn Atlason og Birgir Ár-
mannsson.
„Menn skyldu ekki leggja eyrun
við því hégómlega falsi, sem and-
stæðingar okkar bera á borð
fyrir fundargesti...“ Illugi Gunn-
í ræðustól.
I
I
i
Morgunblaðið/Einar Falur
í ræðukeppni geta handahreyfingar og annað látbragð haft mikið
að segja. Böðvar Jónsson í Fjölbrautaskóla Suðumesja kann augljós-
lega tökin á hvomtveggja.
Hér er brúðkaupsmyndin af Paulu og Bob. Standandi era frá vinstri: Johhny Fingers og Garry Roberts
úr Boomtown Rats, Toney Hadley (Spandau Ballet), John Taylor og Simon LeBon (Duran Duran)
Martin Kemp (Spandau Ballet), George Michael (fyrrverandi helmingur WHAMI), Gary Kemp og Steve
Norman (Spandau Ballef), og Aled Jones, en hann er velskur kórdrengur, sem söng við brúðkaupið.
Sitjandi em frá vinstri: Midge Ure (Ultravox), John Keeble (Spandau Ballet), brúðurin og brúðguminn,
og loks David Bowie. Tekið skal fram að brúðarkjóllinn er úr rauðu silki í samræmi við húðflúrið.
Bob Geldof ekki eins
heilagur og haldið var?
Nú er mikið rættum hversu
skothelt hjónaband þeirra Bob
Geldofs og Paulu Yates er, því að
breska síðdegispressan hefur að
undanfömu birt fréttir þess efnis
að hann hafí verið í tygjum við
Emmu nokkra Mclntosh, en stúlkan
sú er 21 árs gömul gengilbeina á
bar í miðborg Lundúna.
Það var Emma sjálf, sem skýrði
frá þessu, en samkvæmt henni
kynntust þau Bob fyrir réttu ári
og áttu í ástarsambandi þar til ör-
skömmu fyrir brúðkaup hans og
Paulu, en þau höfðu þá búið saman
um langt skeið. Meðal annars út-
listaði Emma það nákvæmlega
hvemig hún og Bob hefðu notið
ásta í tilteknum legubekk í húsi
rokkstjömunnar og Paulu í Chelsea.
Paula tekur þessum sögusögnum
af lítilli alvöm. „Upp á æru og trú!
Ég skil bara ekíci hvemig Bob hef-
ur haft nokkra orku eftir handa
annarri konu. Auðvitað hef ég allt-
af vitað að Bob er óknyttadrengur.
Þess vegna elska ég hann!“
Bob fínnst þetta hins vegar ekki
jafnfyndið og Paulu. „Það er rétt
að við Emma þekkjumst, en við
vomm bara vinir. Ég vona að hún
hafí fengið vel greitt fyrir að segja
þessa hluti, en ég ætla ekki að tjá
mig frekar um málið. Það munu
lögfræðingar mínir gera.“
Og þá er bara að bíða eftir fram-
haldinu.
Gibba gibb
Gibb-bræðumir Áströlsku, sem
Halli og Laddi sungu svo fjálg-
lega um um árið, hafa nú sameinast
að nýju í hlómsveitinni Bee Gees.
Það er Barry Gibb, sem hefur
orðið fyrir þeim, en tvíburabræð-
umir Robin og Maurice, em hljóð-
látari. „Við ætlum okkur að slá í
gegn á ný!“ segir Barry. „Við gerð-
um það hér áður fyrr og munum
gera það aftur." Barry segir a>
þeir bræður hafí gert sér grein fyr-
ir að þeir hafí orðið „of vinsælir",
þ.e.a.s. að neytendur hafi einfald-
lega fengið sig fullsadda af þeim
eftir að lög þeirra höfðu tröllriðið
hljóðhimnum hins frjálsa heims og
hluta hins ófíjálsa. „Áheyrendumir
þurftu að hvfla sig á okkur, svo að
það vomm við sem tókum okkur
hvíld".
Nú em bræðumir í hljóðnámu
og vinna að nýrri plötu í samvinnu
við útsetjarann gamalreynda, Arif
Mardin. Það eitt gefur til kynna
að þeir hafi lagt diskóið á hilluna,
en Barry segir: „Það verða ein-
hveijar falsettu-raddanir á plöt-
• unni, en að uppistöðu til verður hér
um eitthvað í ætt við harðan
rytmablús að ræða.“ Þá em bræð-
umir búnir að ráða almagnaðan
foringja til þess að sjá um mynd-
böndin við plötuna — þann sama
og stjómaði gerð myndbanda við
„Billie Jean", „Take On Me“ og
„Money for Nothing". Að sögn
verður engin sykureðja á þeim
vígstöðvum heldur, því myndböndin
eiga öll að vera í hrollvekjustfl.
Gamlir aðdáendur geta því búist
við ýmsu frá Bee Gees á árinu.
Gib-bræður komnir i stellingar.