Morgunblaðið - 18.02.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
55
Reykbindindisnámskeið
fyrir ófrískar konur?
Móðir skrifar:
Eftir að hafa lesið grein í Velvak-
anda fyrir nokkru eftir fyrrverandi
reykingamann vaknaði hjá mér eft-
irfarandi spuming. Hvers vegna í
ósköpunum er ekki boðið upp á
námskeið í reykbindindi hjá
Krabbameinsfélaginu fyrir ófrískar
konur?
Vinkona mín sagði mér frá því
að þegar hún átti sína dóttur fyrir
tveim árum hafi varla verið minnst
á skaðsemi reykinga á fóstur í
þeirri uppfræðslu sem hún fékk í
kerfínu hvað þá að boðið hefði ver-
ið upp á námskeið til að hætta að
reykja. Ekki virðist ástandið hafa
skánað mikið síðan þá því önnur
vinkona mín sem er nýlega búin
að eiga barn spurðist víða fyrir um
það hvort ekki væri boðið upp á
aðstöðu fyrir verðandi mæður til
að hætta að reykja og fékk allstað-
ar þau svör að slík sérþjónusta
væri ekki til. Ef þetta er rétt þá
er það að mínu áliti fyrir neðan
allar hellur. Annað sem ég vildi vita
er hvort æskilegt sé fyrir ófrískar
konur að nota nikótín-tyggjó til að
6252-1295 skrifar:
Það eru kosningar í vor. Undan-
farin ár hefur eitt mál bundið
íslendinga þétt saman, um þetta
hætta að reykja?
Að lokum vil ég þakka Krabba-
meinsfélaginu fyrir námskeiðin í
reykbindindi. Maðurinn minn hætti
nefnilega á einu slíku í júní í fyrra
og stendur sig eins og hetja. Því
hefði enginn trúað að óreyndu eftir
Ianga hörmungarsögu misheppn-
aðra tilrauna.
mál hefur verið talað, skrifað, rifíst
í mörg ár, sama þótt valdarán eigi
sér stað í Chile, eldgos og jarð-
skjálftar alls staðar, opinberir
embættismenn reknir í röðum, stór-
fyrirtæki fari á höfuðið með
skandal, þá er samt alltaf eitt mál
sem bindur þjóðina saman. Þetta
er auðvitað bjórmálið. Alþingis-
menn eru núna búnir að hafa sjálfa
sig og aðra að fíflum með því að
geta ekki tekið afstöðu í þessu
máli. Nú er svo komið að alþingis-
menn þora ekki einu sinni að
minnast á þetta mál af ótta við þá
hneisu ef málið fengi sömu af-
greiðslu og áður, þ.e.a.s. japl jaml
og fuður í marga mánuði og síðan
engin niðurstaða önnur en sú að
alþingismenn eru menn sem þurfa
mikinn tíma í það sem lítið er. Það
sem þó er sorglegast af öllu er að
alþingismenn geta ekki einu sinni
afhent þennan ofjarl sinn þjóðinni
allri til viðureignar. Og þetta er
manni boðið upp á; Alþingi talar
og talar um bjór, tekur síðan enga
afstöðu í málinu, og talar síðan og
talar um þjóðaratkvæðagreiðslu.
Sko! þetta fer nú að verða svolítið
þreytandi.
Niðurstaðan af öllu saman er
síðan sú að enginn bjór er til á ís-
landi nema á Svörtum fyrir milljón
og það þrátt fyrir að Alþingi hafi
talað og talað um bæði bjór og þjóð-
aratkvæðagreiðslu og komist að
þeirri niðurstöðu að þeir geti ekki
komist að niðurstöðu.
Það hlýtur að vera einhver þama
á Alþingi sem getur tekið af skarið
og komið málinu í þjóðaratkvæða-
greiðslu í kosningunum í vor. Er
þetta nokkuð spuming úr þessu?
Það er alltof lítill tími fyrir röfl á
Alþingi fyrir kosningar svo það
hlýtur að vera núna eða aldrei!
Á heimilum leynast víða hættur sem fjölskyldan verður að
vera sér meðvitandi um. Gæta verður þess að höldur og sköft
ílátanna á eldavélinni snúi til veggjar, þannig að stuttir hand-
leggir geti ekki teygt sig í þau og steypt yfir sig sjóðandi
og brennheitu innihaldinu.
Þj óðaratkvæða-
greiðslu um bjórinn
Bladburóarfólk
óskast!
* AUSTURBÆR KÓPAVOGUR
Þingholtsstræti o.fl. Laufbrekka o.fl.
Meðalholt
Stórholt VESTURBÆR
Aragata o.fl.
jttwgiiutMitMfr
MAVA
SUÐARVOGI 42 — 104 REYKJAVIK
(Gengið inn (ra Kænuvogi) SÍMI 688727'
Hvítlakkaðar baðinn-
réttingar á góðu verði.
Og nú erum við í Borgartúni 28