Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 60

Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 60
Þjónusta íþínaþágu SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. VJterkarog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Dæmt í kaffibaunamálinu í sakadómi Reykjavíkur; Fj órir dæmdir en for- Vetrar- vertíð erhafin sljórinn var sýknaður DÓMUR í kaffibaunamálinu var kveðinn upp í sakadómi Reykjavík- ur í gær. Erlendur Einarsson fyrrverandi forstjóri SÍS var sýknaður að fullu en Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri verslunardeildar SÍS hlaut 12 mánaða fangelsisdóm, þar af níu mánuði skilorðsbundna. Aðrir starfsmenn fyrirtækisins hlutu dóma sem hér segir: Sigurður Árni Sigurðsson 7 mánaða dóm, Gísli Theódórsson 3ja mánaða dóm og Arnór Valgeirsson 2ja mánaða dóm. Refsing Sigurðar Arna, Gísla og Amórs er skilorðsbundin til tveggja ára. Hjalti áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar þegar í gær en aðrir tóku sér frest. Málið Qallar um innflutning SÍS i' juá kaffí fyrir Kaffíbrennslu Akur- eyrar 1979-1981. Notaðir voru tveir vörureikningar fyrir hverja send- ingu. Tók skrifstofa SÍS í London lán fyrir lægri reikningnum, en sendi þann hærri til Kaffíbrennsl- unnar, en mismunurinn rann til SIS. Sagði í dóminum að talið væri sannað að um fjársvik hafí verið að ræða. Sýknað var af ákæru um skjala- fals þar sem báðir vörureikningam- ir voru gefnir út af sama aðila og ■íifkki breytt síðar. Þá hafí ekki verið um ranga tilgreiningu í blekkingar- skyni að ræða. Loks hafí rangar upplýsingar til gjaldeyrisyfírvalda ekki leitt til þyngri refsingar en sekta og sök því fymd. Olíufélögin undirbúa hækk- unarbeiðni: Bensín- lítrinn í 27,70 krónur? FULLTRÚAR olíufélaganna eru að undirbúa beiðni til verðlagsyfirvalda um verð- breytingar á olíuvörum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins telja þeir þörf á að hækka bensín um rúm 5% og svartolíu um rúm 10% frá 1. mars næstkomandi. Ekki er búið að ganga endan- lega frá hækkunarbeiðni olíufé- laganna en búist er við að það verði gert í vikunni og beiðnin lögð fram í lok vikunnar. Miðað við verð á birgðum í dag er tal- in þörf á hækkun bensínlítrans úr 26,30 í 27,70 krónur, eða um 5,3% og á svartolíutonninu úr 5.700 krónum í 6.300 krónur, eða um 10,5%. Gasolíulítrinn kostar nú 6,90 kr. og getur það verð haldist í rúman mánuð, á meðan núver- andi birgðir endast. Hins vegar er von á tveimur gasolíuformum í þessum mánuði, sem væntan- lega verða á talsvert hærra verði, og hefur því komið til tais hjá olíufélögunum að fara fram á hækkun gasolíuverðsins um næstu mánaðamót til að jafna verðsveiflumar út á lengri tíma. Varðandi þátt Erlendar sagði að það væri ósennilegt að hann hafí ekki vitað hvemig staðið var að innflutningnum, tveim settum reikninga og afslætti. Enginn hafí þó borið um það svo óyggjandi væri, að um bein eða óbein afskipti forstjórans hafí verið að ræða. Þá væri ósennilegt að Erlendur hafi ekki hugað að því hvemig hagnaður skrifstofunnar í London myndaðist og viðbrögð hans, þegar upplýst var um afsláttinn og meðferð hans, ekki til þess fallin að styrkja fram- burð hans. Þrátt fyrir þetta þyki dómnum ekki nægjanlegum stoðum skotið undir sönnun fyrir sök Er- lendar og bæri því að sýkna hann. Um Hjalta Pálsson sagði að vegna stöðu hans og framburðar annarra væri sannað að hann hafí átt hlut að því að ákveða fram- kvæmd viðskiptanna, sem hafi leitt til þess að SÍS náði undir sig afslátt- unum og vöxtunum og að gjaldeyr- isyfírvöldum vom sendir hærri vömreikningamir. Dómurinn sagði sannað, með játningu Sigurðar Áma, að hann hafí átt hlutdeild í fjársvikum, skjalafalsi og gjaldeyrisbrotum. Honum hafí ekki mátt dyljast að um refsiverða háttsemi var að ræða. Varðandi Gísla sagði að honum hafí ekki getað dulist að um óeðli- leg viðskipti var að rasða þegar hann starfaði í London og hann væri sekur um hlutdeild í fjársvik- um og gjaldeyrisbrotum 1979-1980. Amór var sakfelldur fyrir hlut- deild í fjársvikum, skjalafalsi og gjaldeyrisbrotum á árinu 1981, þar sem hann hélt við notkun tvöfaldra vömreikninga og leynd gagnvart Kaffibrennslunni með starfí sínu. Dóminn kváðu upp Sverrir Ein- arsson sakadómari og endurskoð- endumir Jón Þ. Hilmarsson og Sigurður Stefánsson. Sjá endurrit af niðurstöðum sakadóms Reykjavíkur á miðopnu, bls. 30 og 31. Vetrarvertíðin er alls staðar komin í fullan gang og sá guli hefur verið að gefa sig í netin. Skipverjar á Gullfara sjást hér handleika gol- þorska í Grindavíkur- höfn eftir velheppnaðan róður. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Versti slysakaflinn í Norð- urárdal byggður upp í vor BIRGIR Guðmundsson umdæmisverkfræðingur Vegagerðarinnar í Borgamesi, segir að hringvegarkafli sá í Norðurárdal, þar sem um 200 umferðarslys hafa orðið síðustu tvö ár, sé á langtímavegaáætlun og verði að öllum líkindum byggður upp fyrir árið 1990. í vor verð- ur versti hluti vegarins endurbyggður. Vegarkafli sá sem um ræðir er um 20 kílómetra langur og nær frá enda bundins slitlags við bæinn Klettstíu að Fomahvammi. í gær var í Morgunblaðinu haft eftir Sverri Guðmundssyni í Hvammi að um 200 umferðaróhöpp hefðu orðið á þessum kafla síðustu tvö ár, þar af 25-30 í þessum mánuði. Birgir Guðmundsson sagði aftur á móti að 23 umferðaróhöpp á þessum vegarkafla hafí verið skráð í lög- regluskýrslur á síðasta ári. Þó sagðist hann ekki vilja rengja tölur Sverris því mörg þessara óhappa væru sjálfsagt ekki þess eðlis að lögreglu þyrfti að kalla til. Birgir sagði að verið væri að vinna að vegaáætlun núna og ekki orðið ljóst hvemig hún verður end- anlega en samkvæmt langtíma- áætlun fyrir tímabilið 1987—1990 er gert ráð fyrir að vegurinn um Norðurárdal verði byggður upp. Birgir sagði ekki ósennilegt að það næðist að laga verstu kaflana á þeim tíma og alversti kafíinn færi raunar af í sumar því nýbúið er að bjóða út tæplega 4 kílómetra langan kafla við Litluá og eiga fram- kvæmdir að hefjast þar í vor. Birgir var spurður hvort Vega- gerðin hefði ekki reynt að þrýsta á um að fá fé til endurbóta á þessum vegarkafla, og hvort tilgáta Sverris Guðmundssonar um að vegurinn hefði orðið útundan hjá þingmönn- um kjördæmisins væri rétt. Birgir sagði að það væri örugglega engin tilviljun að vegaspottar út úr kjör- dæmum yrðu útundan, og benti á veginn um Hvalfjörð og Oxnadals- heiði í því sambandi. Hinsvegar hefði Vegagerðin miðað við að þessi vegarkafli yrði endurbyggður fyrir 1990 samkvæmt langtímaáætlun og talið sig geta við það unað. „Það eru margir um hituna sem vilja fá veg og vegir eru víða slæm- ir hér í umdæminu, meðal annars á Snæfellsnesi. Við höfum síðan þurft að líða fyrir stórframkvæmd- ir, eins og Borgarfjarðarbrúna og veginn fyrir ólafsvíkurenni, sem komu niður á öðru vegakerfí hér. Samt getum við ekki kvartað því í fyrra fengum við í okkar hlut tæpa 70 kílómetra af bundnu slitlagi svo við erum í miðju kjördæma hvað lengd vega með slitlagi varðar, og við erum mun betur settir nú þegar þessar stóru framkvæmdir eru að baki," sagði Birgir Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.