Morgunblaðið - 17.03.1987, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1987
Fagmenn
Þátturinn af Höllu Linker, ís-
landsdrottningunni í Englaborg-
inni, var áhugaverður þrátt fyrir að
stjómandinn, Hans Kristján Amason,
væri tekinn að ryðga allhressilega í
ættjarðarkvæðunum og þrátt fyrir
fremur dauflegan endasprett er Hans
ræddi við Höllu á ópersónulegum
útiveitingastað. Ég hefði kosið að
kynnast enn frekar hinu sérstæða
umhverfí Höllu en mér til mikillar
gleði blaktir íslenski fáninn yfir fag-
urblárri sundlauginni og Halla ekki
fyrr stigin út úr kádíljáknum við
glæsivilluna en hið íslenska skjaldar-
merki heilsar henni við innganginn.
Þeir Stöðvarmenn em annars bara
duglegir að filma á erlendri gmndu,
er skemmst að minnast New York-
sprangs Valgerðar Matthíasdóttur,
en Vala rabbaði þar stuttlega við
fslenska listamenn, það er að segja
er hún gaf sér tíma frá dagskrár-
kynningu. Tel ég mjög misráðið hjá
þeim stöðvarmönnum að blanda
þannig saman áhugaverðum heim-
sóknum til landans og dagskrárkynn-
ingu.
Átök
Þegar tekist er á um þjóðarkökuna
og verkföll dynja á þjóðinni reynir
mjög á fréttamenn ljósvakamiðlanna.
Undirritaður er jafnvel þeirrar skoð-
unar að fréttamennimir geti óafvitað
haft nokkur áhrif á samningsgerðina.
Tökum til dæmis Kennaraverkfallið
þar sem tekist er á um framtíð fram-
haldsskólans þar sem æ erfiðara
reynist að ráða fullmenntaða kennara
í ákveðnar stöður og stórir hópar
kennara eiga orðið bágt með að sinna
.heimavinnu sökum yfirvinnuáiags. í
fréttum ljósvakamiðlanna hefur svot-
il eingöngu verið vikið að hinni beinu
kennsluskyldu kennara en iítið kann-
að baksviðið, svo sem símenntun
kennaranna og hið gífurlega magn
kennsluefnis er kennarar framleiða
hér og sjaldnast ratar í bækur en
dagar oftast uppi í ljósritum, glærum
og fyrirlestrum. Mikil vöntun er hér
á handhægu kennsluefni f fjölmörg-
um greinum og því lendir það oftast
á kennurum að smíða kennsluefnið.
Erlendis ergjaman greitt sérstaklega
fyrir slíka hluti enda framleiðsla
kennsluefnis hinn mesti gróðavegur.
Hér er eingöngu horft til hins sýni-
lega vinnuframlags er mæla má í
kennslustundum. í Upplýsingasam-
félaginu gilda slík viðmið ekki lengur.
Kennarinn stendur í fremstu víglínu
upplýsingabyltingarinnar þar sem hin
vel menntuðu samfélög verða ofan á
í flestu tilliti. Lítum bara til þeirra
landa þar sem velmegunin er mest,
svo sem Sviss og V-Þýskalands, þar
er lögfest að kennarar skuli ætíð
hljóta hæstu laun ríkisstarfsmanna.
íslenskir fréttamenn ættu að gefa
gaum að umfangi málsins er þeir
athuga launadeilur en því miður er
sjaldnast skyggnst undir bláyfirborð-
ið. Þó tókst einum fréttamanninum
í fyrradag að toga út úr verkalýðsleið-
toga að lægstu laun borgarstarfs-
manna hefðu til skamms tfma numið
23 þúsund krónum fyrir átta stunda
vinnudag. Slíkar upplýsingar segja
mikla sögu en það verður að fylgja
þeim eftir, tala við launþegana, skoða
starfsvettvanginn og ræða um stöðu
launþegans í samfélaginu. Verkalýðs-
félögin ættu líka að nýta þá peninga
er þau hrifsa af launþegunum til að
ráða blaðafulltrúa er gætu kynnt fjöl-
miðlunum kröfugerðina í heild.
Launþegamir eiga fullan rétt á því
að krefjast faglegra vinnubragða af
verkalýðsforkólfunum ekki síður en
fréttamönnunum. En það er kannski
ekki við góðu að búast þegar menn
eru bundnir á flokksklafa og geta sig
hvergi hreyft þrátt fyrir gott hjarta-
lag. Mikið vildi ég að rfkisfjölmiðlam-
ir losnuðu enn frekar af flokksklafan-
um og að einkastöðvamar gerðu
fréttamönnunum fært að skoða betur
baksvið fréttanna.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Stöð tvö:
Þetta er barnið mitt
■i Bonnie og Craig
05 Wilkerson er
hamingjusamt
ungt par, sem virðist ekk-
ert skorta á hamingjuna.
Bæði starfa úti og hafa
notið velgengni í starfi, en
þó skyggir eitt á — þau
eiga ekki böm. Þau hafa
leitað til læknis vegna
þessa, en án árangurs.
Loks fer svo að þau ákveða
að reyna að ættleiða barn
þar sem virðist besta, ef
ekki eina leiðin til þess að
eignast bam.
Wilkerson-hjónin verða
þess vegna himinlifandi
þegar þeim er boðið bam,
aðeins nokkrum mánuðum
eftir umsókn. Þau útbúa
sérstakt barnaherbergi fyr-
ir Tracey litlu og sækja
hana á nærliggjandi fæð-
ingarheimili.
Næstu mánuði svífa þau
hjónin um á rósrauðu skýi
með telpuna, en brátt dreg-
ur þó annað ský fyrir sólu.
í ljós kemur að kynmóðir
barnsins vill barnið aftur
og virðist eiga góða mögu-
leika á því lögum sam-
kvæmt.
Kimberley Downs, en
svo heitir móðirin, vill
barnið sitt aftur og þar sem
ekki er liðið hálft ár frá
því að hún gaf það frá sér
á hún kröfu til þess. Hún
er flutt að heiman og í eig-
in Mð, vinnur fyrir sér og
er trúlofuð föður bamsins.
Hun virðist því eiga nokkra
möguleika fyrir rétti; ekki
síst þegar í ljós kemur að
dómarinn vill að Tracey
fari til kynforeldra sinna.
Ekki eru þó öll kurl komin
til grafar enn.
1«
Craig og Bonnie með stúlkuna Tracey.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
17. mars
6.45 Veöurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin — Jón
Baldvin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Guð-
mundur Saemundsson talar
um daglegt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Mamma í upp-
sveiflu" eftir Ármann Kr.
Einarsson. Höfundur les
(12).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesiö úr forustugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tið. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnirlög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón
Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 i dagsins önn — Félags-
leg þjónusta. Umsjón:
Hjördis Hjartardóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Áfram
veginn", sagan um Stefán
Islandi. Indriði G. Þorsteins-
son skráði. Sigriöur Schiöth
les (17).
14.30 Tónlistarmenn vikunn-
„ ar. Mikis Theodorakis.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Suðurlandi. Umsjón: Hilmar
Þór Hafsteinsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Siödegistónleikar.
a. Hugleiöing um gamalt tékkn-
eskt sálmalag eftir Josef
Suk. Strengjasveit tékkn-
esku Filharmoniusveitarinn-
ar leikur; Alois Klíma
stjórnar.
b. Menúett i F-dúr op. 31
eftir Louis Spohr. Félagar
úr Filharmoníusveit Vínar-
borgar leika.
17.40 Torgið — Neytenda- og
umhverfismál. Umsjón:
Steinunn Helga Lárusdóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt
mál. Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Guðmundur
Sæmundsson flytur.
19.35 Breytingar í opinbeTri
þjónustu. Davíð Á. Gunn-
arsson forstjóri ríkisspítal-
anna flytur erindi.
20.00 Lúðraþytur. Umsjón:
Skarphéðinn H. Einarsson.
20.40 íþróttaþáttur. Umsjón:
Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson.
21.00 Perlur. Dean Martin.
21.30 Útvarpssagan: „Heima-
eyjarfólkið'' eftir August
Strindberg. Sveinn Víkingur
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
17. mars
18.00 Villi spæta og vinir
'hans. Níundi þáttur. Banda-
rískur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Ragnar Ólafsson.
18.20 Fjölskyldan á Fiðrildaey.
Sextándi þáttur. Ástralskur
framhaldsmyndaflokkur fyrir
börn og unglinga um ævin-
týri á Suöurhafseyju.
Þýðandi Gunnar Þorsteins-
son.
18.45 íslenskt mál. 16. Um
orðtök sem tengjast glímu.
Umsjón: Helgi J. Halldórs-
son.
19.00 Sómafólk —
(George and Mildred.) 19. Af
beðmálum. Breskur gaman-
myndaflokkur. Þýðandi Ólöf
Pétursdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn. Umsjón:
Guðmundur Bjarni Harðar-
son og Ragnar Halldórsson.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Söngvakeppni sjón-
varpsstööva. Fimmti kynn-
ingarþáttur íslenskra laga.
20.45 Svarti turninn.
(The Black Tower.) Þriðji þátt-
ur. Breskur myndaflokkur f
sex þáttum, geröur eftir
sakamálasögu P. D. James.
Roy Marsden leikur Adam
Dalgliesh lögregluforingja.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
21.40 Vestræn veröld.
(Triumph of the West.) 2.
Nýir straumar. Nýr heimild-
armyndaflokkur í þrettán
þáttum frá breska sjónvarp-
inu (BBC). ( þáttunum er
fjallaö um sögu og einkenni
vestrænnar menningar og
hvernig hún hefur breiðst
út svo aö áhrifa hennar
gætir á okkar tímum um alla
heimsbyggðina. Umsjónar-
maður er John Roberts
sagnfræðingur. Þýðandi og
þulur Óskar Ingimarsson.
22.35 Nýju kosningalögin. (
þættinum verður leitast við
að skýra tilgang og áhrif
laganna sem eiga að jafna
verulega mun á atkvæöis-
rétti milli kjördæma. Um-
sjónarmaöur Ólafur
Sigurösson.
23.15 Fréttir í dagskrárlok.
fÆ STOD2
QrÞRIÐJUDAGUR
17. mars
§17.00 Barnavændi
(Pretty Baby)
Bandarisk kvikmynd með
Keith Carradine og Brooke
Shields í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er Louis Malle.
Ljósmyndari er gagntekinn
af vændinu í New Orleans,
sérstaklega barnavændinu.
§18.50 Fréttahornið.
Fréttatimi barna og ungl-
inga. Umsjónarmaður er
Sverrir Guðjónsson.
19.00 Spæjarinn.Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 ( návígi. Vfirheyrslu- og
umræöuþáttur í umsjón
fréttamanna Stöðvar 2.
20.40 Matreiðslumeistarinn.
Matreiðsluþættir Ara Garð-
ars Georgssonar vöktu
verðskuldaða athygli á
siðasta ári. Nú er Ari mætt-
ur aftur i eldhús Stöðvar 2
og hyggst kenna áhorfend-
um matargerðarlist.
§21.05 Þetta er barnið mitt
(Thís Child Is Mine).
Bandarisk sjónvarpsmynd
með Lindsay Wagner og
Chris Saradon í aðalhlut-
verkum. Hjón ættleiða barn
en móðir barnsins sér sig
um hönd og notar öll tiltæk
ráð til að fá barnið aftur.
§22.35 NBA — Körfubolt-
inn.
Sacramento — Los Angeles
Lakers. Umsjónarmaður er
Heimir Karlsson.
§00.05 Heimsmeistarinn
að tafli. Fjórða skák milli
Nigel Short og heimsmeist-
arans Gary Kasparov.
00.30 Dagskrárlok.
þýddi. Baldvin Halldórsson
lýkur lestrinum.(16).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma.
Andrés Björnsson les 25.
sólm.
22.40 Listin aö deyja — rýnt i
Sturlungu. Úlfar Bragason
bókmenntafræðingur flytur
erindi. (Áður útvarpaö 10.
ÞRIÐJUDAGUR
17. mars
9.00 Morgunþáttur i umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Tónlistarget-
raun og óskalög yngstu
hlustendanna.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Skammtað úr hnefa.
Stjórnandi: Jónatan Garð-
arsson stjórnar þætti með
tónlist úr öllum áttum.
15.00 I gegnum tiðina. Þáttur
janúar sl.)
23.10 íslensk tónlist. Kynnt
verða verk af nýjum íslensk-
um hljómplötum:
a. „Burtflognir pappírsfugl-
ar'' eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Blásarakvintett
Reykjavíkur leikur.
b. „Æfingar" fyrir píanó eftir
Snorra Sigfús Birgisson.
Höfundurinn leikur.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
um íslensk dægurlög i um-
sjá Vignis Sveinssonar.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10J30, 11.00, 12.20, 15.00,
'16.00 og 17.00;
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
REYKJAVÍK
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
AKUREYRI
18.00-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Trönur. Umsjón. Finnur
Magnús Gunnlaugsson.
Fjallað um menningarlíf og
mannlíf almennt á Akureyri
og í nærsveitum.
ÞRIÐJUDAGUR
17. mars
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blööin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar.
Afmæliskveðjur, matarupp-
skriftir og spjall við hádegis.
Síminn er 611111. Fréttir
kl. 10.00, 11.00 og 12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur. Fréttapakkinn,
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með því
sem helst er f fréttum,
spjalla við fólk og segja frá.
Flóamarkaðurinn er á dag-
skrá eftir kl. 13.00. Fréttir
kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar síðdegispoppið og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Forstjóra-
popp eftir kl. 15. Fréttir kl.
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00-19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykjavík
síðdegis. Hallgrlmur leikur
tónlist, litur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu. Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Helgi Rúnar
Óskarsson kynnir 10 vin-
sælustu lög vikunnar.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas-
son á þriðjudagskvöldi.
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00-24.00 Vökulok. Þægi-
leg tónlist og fréttatengt efni
í umsjá Karls Garðarssonar
fréttamanns.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veður.
ALFA
Kriattlef ÉtvarptilM.
FM 102,9
ÞRIÐJUDAGUR
17. mars
08.00Morgunstund:' Guð:
orð og bæn.
8.15 Tónlist.
13.00 Tónlistarþáttur meí
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.