Morgunblaðið - 17.03.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRHXJUDAGUR 17. MARZ 1987
23 ára Keflavík
urmær Ungfrú
Suðurnes 1987
Keflavík.
KRISTÍN Jóna Hilmarsdóttir úr
Keflavik var valin Ungfrú Suður-
nes 1987 í Stapa á laugardaginn.
Kristin er 23 ára og stundar hún
nám í Verslunarskóla íslands.
Foreldrar hennar eru Hilmar R.
Sölvason og Björg B. Jónsdóttir.
Mikill áhugi var meðal Suður-
nesjamanna fyrir þessari keppni og
komust færri að en vildu í Stapan.
Að titlinum kepptu 9 stúlkur sem
komu fyrst fram í sundbolum og
síðan í kvöldkjólum. Að því loknu
völdu stúlkumar vinsælustu stúlk-
una úr sínum hópi og þann titil
hlaut Kristín Gerður Skjaldardóttir
úr Vogum sem er 17 ára. Næst var
besta ljósmyndafyrirsætan valin og
þann titil hlaut Berta Gerður Guð-
mundsdóttir sem er 20 ára
Njarðvíkingur. Páll Ketilsson rit-
stjóri Víkurfrétta sem hefur séð um
ljósmyndun og kjmningu á stúlkun-
um stóð að valinu ásamt dómnefnd-
inni.
Hápunktur kvöldsins var svo
þegar Kolbrún Gunnarsdóttir
Ungfrú Suðumes 1986 lét titilinn
af hendi til Kristínar Jónu Hilmars-
dóttur sem verður fulltrúi Suður-
nesja í keppninni um Ungfrú ísland
1987. Kristín hlaut margvíslegar
gjafir og má þar nefna 40 þúsund
frá Sparisjóðnum í Keflavík og sól-
arlandaferð frá ferðaskrifstofunni
Terru.
- BB
Stúlkurnar komu fyrst fram í sundbolum, þær eru frá vinstri: Kristín Vilhjálmsdóttir Vogum, Kristín
Gerður Skjaldardóttir Vogum, Kristín Jóna Hilmarsdóttir Keflavík, Ingigerður Sæmundsdóttir Njarðvík,
Hafdís Kjærnested Finnbjörnsdóttir Garði, Guðbjörg Sigríður Finnsdóttir Sandgerði, Guðbjörg Jóns-
dóttir Keflavík, Berta Gerður Guðmundsdóttir Njarðvík og Aðalbjörg Drífa Aðalsteinsdóttir Keflavík.
Kristin Gerður Skjaldardóttir úr
Vogum var valin vinsælasta
stúlkan.
Berta Gerður Guðmundsdóttir Ungfrú Suðurnes 1987, Kristín
úr Njarðvík var valin besta (jós- Jóna Hilmarsdóttir úr Keflavík.
myndafyrirsætan.
Dömur og herrar:
Nú drífíð þið
ykkur í leikfími!
Tímar við allra hæfi
5 vikna námskeið
byrjar 23. mars
Þarftu að missa
15 kíló?
Leikfimi fyrir konur á öllum
aldri.
Hressandi. mýkjandi. styrkj-
'andi ásamt megrandi
æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja
léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og
þær sem eru slæmar í baki eða
þjást af vöðvabólgum.
Fnbxraðsbða
Brautryðjendur
Júdódeild Ármanns, sem
verður 30 ára á þessu ári, er
brautryðjandi í frúarleikfimi.
Mörg hundruð, ef ekki þús-
undir kvenna, hafa tekið þátt
i starfi okkar- viltu ekki slást
í hópinn? Fyrsti prufutíminn
ókeypis.
Innritun
og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl.
13-22 í síma
Nýtt!
Bjóðum nú einnig músík-
leikfimi
Karlmenn
Hinir vinsælu herratímar eru
í hádeginu.
Ljósalampar, nýinnréttuð
gufuböð og sturtur. Kaffi og
sjónvarp í heimilislegri setu-
stofu.
Islandslax hf.:
Ný heitavatns-
hola boruð
Sparnaður um 26 milljónir króna á ári
Grindavík.
HJÁ íslandslax hf. í Grindavík
hefjast borunarf ramkvæmdir við
aðra heitavatnsholu í vikunni.
Áætlaður sparnaður við eigin
holu er 26 milljónir króna á ári
miðað við kaup á heitu vatni frá
Hitaveitu Suðurnesja.
Þessa dagana er unnið að undir-
búningi borunarframkvæmdanna
hjá íslandslax hf. Verið er að leggja
500 metra langan veg út í hraunið
frá heitavatnsholunni sem fyrir er
að nýja virkjunarstaðnum. Einnig
er lögð um 2 kílómetra löng leiðsla
frá ferskvatnsbrunni stöðvarinnar
fyrir kælivatn á borinn.
Að sögn Jóns Þórðarssonar fram-
kvæmdastjóra íslandslax hf. verður
þessi hola 800 metra djúp og er
fjárfesting upp á 20 milljónir króna.
„Alls mun þessi virkjun kosta okkur
5 milljónir króna á ári miðað við
afskriftir. Úr holunni þurfum við
að ná 1,1 milljón tonnum af heitu
vatni á ári. Spamaður fyrirtækisins
verður því 26 milljónir króna á ári
miðað við að kaupa vatnið frá Hita-
veitu Suðumesja fyrir utan kostnað
íif heitavatnslögn frá þeim sem við
yrðum að borga sjálfír. Með þessu
erú við að fá meiri orku og eignast
varaholu én nýlokið er viðgerð á
heitavatnsholunni okkar eftir að gat
kom á fóðringu," sagði Jón að lok-
um.
Eins og kunnugt er af fréttum
urðu miklar deilur er íslandslax hf.
fékk leyfi frá landbúnaðarráðuneyt-
inu til eigin vatnstöku eftir að
slitnaði upp úr samningaviðræðum
við Hitaveitu Suðumesja um verð-
lagningu heitavatnsins 1985.
Kr.Ben.
Samningar bygging-
armanna samþykktir
Félagar í Trésmiðafélagi Reykjavík-
ur samþykktu samhljóða á flöl-
mennum félagsfundi á laugardag-
inn nýgerða kjarasamninga við
Meistarasamband byggingar-
manna, Verktakasamband Islands
og Vinnuveitendasamband íslands.
Samningamir voru einnig sam-
þykktir á félagsfundi í Félagi
byggingariðnaðarmanna í Ámes-
sýslu á sunnudaginn með 19
atkvæðum gegn 8 og 9 sátu hjá.
Talsverð óánægja kom fram á fund-
inum með samningana, að sögn
Gylfa Guðmundssonar, formanns
félagsins. Reiknað er með fundum
í öðrum félögum byggingarmanna
um miðja vikuna, þar sem samning-
amir verða bomir upp til samþykkis
eða synjunar.
Tónleikar á Isafirði
TÓNLISTAilSKÓLI og Tón-
listarfélag ísafjarðar efna til
tónleika fimmtudaginn 19.
mars. Þar koma fram tveir
fyrrverandi nemendur Tón-
listarskólans á ísafirði, Björk
Sigurðardóttir og Kristrún
H. Bjömsdóttir, en þær hafa
stundað framhaldsnám við
Tónlistarskólann í Reykjavík
á undanförnum ámm.
Tónleikamir verða haldnir í
sal Grunnskólans á ísafirði og
hefjast kl. 20.30. Á efnisskránni
eru verk fyrir píanó og þver-
flautu eftir Hjálmar H. Ragnars-
son, C.Ph.E. Bach, J.S. Bach,
Paganini, Liszt og G. Paggi-
Björg leikur á píanó en Kristrún
á þverflautu, en þær ljúkabáðar
kennaraprófí í vor frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Björk er
uppalin á ísafírði og Kristrún
var búsett þar í nokkur ár og
eru þær í hópi tónlistarmanna
sem notið hafa handleiðslu Tón-
listarskólans á ísafírði.