Morgunblaðið - 17.03.1987, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 17.03.1987, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJTJDAGUR 17. MARZ 1987 15 Eldri félagar úr Skólahljómsveit Kópavogs á hljómleikunum. Ljósmynd Þorkell Þorkelsson Skólahljómsveit Kópavogs 20 ára Tónllst Egill Friðleifsson Skólahljómsveit Kópavogs efndi til tónleika í Háskólabíói sl. laugardag. Tilefnið var 20 ára afmæli hljómsveitarinnar, en árið 1967 hóf Björn Guðjónsson að kenna ungum Kópavogsbúum lúðrablástur og hefur ótrauður haldið því starfi áfram og getur nú litið ánægður um öxl og glaðst yfir góðum árangri. Sá, sem þess- ar línur ritar, man vel eftir því er Skólahljómsveit Kópavogs var að stíga sín fyrstu spor. Eftir aðeins fárra mánaða starf vakti hún verulega athygli fyrir góðan blástur. Má segja að hún hafi verið í fararbroddi íslenskra skóla- hljómsveita síðan og öðrum hvatning til dáða. Ekki veit ég hve mörgum ungmennum Bjöm Guðjónsson hefur komið til mú- síkalsks þroska á þessum tíma, en þeir hljóta að skipta hundruð- um. Það er því ekki lítið sem hann hefur komið í verk þessa tvo ára- tugi á akri tónlistarinnar enda þekktur fyrir dugnað og ósér- hlífni. Það er rós í hnappagati hvers bæjarfélags að hafa slíkan mann í þjónustu sinni og geta Kópavogsbúar verið stoltir af skólahljómsveitinni, sem svo oft hefur komið fram við hin margvís- legu tækifæri, bæði í heimabæ sínum og víða annars staðar. Raunar voru tónleikamir í Há- skólabíói í þremur hlutum. Fyrst lék hin eiginlega skólahljómsveit. Þar hljómuðu hressilegir marsar frísklega blásnir af glöðum ung- mennum, sem nú skörtuðu nýjum einkennisbúningum í fjörlegum litum. Þar mátti m.a. heyra nýja útsetningu á laginu úr myndinni „Brúin yfir Kwai-fljót“ lipurlega gerða af Páli P. Pálssyni og var hér ágætlega flutt. Þá heyrðum við í Jassbandi Kópavogs undir stjóm Arna Schevings, sem hóf leik sinn með því að blása mjúk- lega frægan foxtrott ættaðan frá San Francisco (snarstefjað skauf- halaskokk á máli Hallgríms Helgasonar) og lét vel í eyrum eins og annað sem þeir léku. Að lokum lék svo Homaflokkur Kópavogs undir stjóm Björns nokkur vel valin lög, en bæði Jass- bandið og Hornaflokkurinn eru afleggjarar skólahljómsveitarinn- ar og var öllum flokknum vel tekið og Bjöm hylltur að verðleikum. Tónleikamir voru vel sóttir, en kynnir var Jón Múli Ámason, launkíminn að vanda. Til hafningju með afmælið Skólahljómsveit Kópavogs og bestu þakkir fyrir marga ánægju- stund. f rVoLVO 240 Á SÉR ÐEINS EINN KEPPINAUT ELDRI VOLVO 240 HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENNINA OG LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA Opið í Volvosal. Skeifunni 15. alla virka daga frá 9-18 og á laugardögum frá 10-16. • SAMKVÆMT NIÐURSTÓÐU KANNANA SÆNSKA BÍLGREINASAMBANDSINS VOLVO 240 DL Verð frá kr. 646.000.- Vió lánum ollt oó 50%. Tökum notoóo bíla upp / nýjo. SKEIFUNNI 15, SlMI: 91-35200.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.