Morgunblaðið - 17.03.1987, Page 34

Morgunblaðið - 17.03.1987, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1987 Nemendur bínda vonir við að deilan leysist fljótt YFIR framhaldskólunum í Reykjavík hvfldi ró og friður þegar Morgunblaðsmenn heim- sóttu nokkra þeirra í gærmorg- un. Kennarar sátu heima á fyrsta degi verkfalls og hið sama var að segja um bróðupartinn af nemendunum. Á flestum stöðum var þó um einhveija kennslu að ræða þvi nokkrir stundakennar- ar og kennarar í verklegum greinum standa utan HÍK. Við- mælendur úr hópi nemenda voru óhressir með hvernig komið væri. Skammt er til prófa og töf í námi getur reynst dýr. Var þó að heyra að flestir bindi vonir við að deilan leysist í þessari viku. Samastaður verkfallsmanna verður opnaður í dag í samkomusal Sóknar við Skipholt í Reykjavík. „Við ætlum að reka þessa „kenn- arastofu" eins lengi og þörf er á,“ sagði Gísli Þór Sigurðsson sem situr í svæðisstjóm HÍK í Reykjavík. „Hér geta menn hist, þegið veiting- ar og fengið fréttir. Hugmyndin er að einhver úr saminganefnd komi hingað og fræði okkur um stöðuna 1-2 á dag. Þá mun verkfallsstjóm hafa miðstöð hér. Hennar hlutverk verður væntanlega fyrst og fremst að athuga ástandið í grunnskólun- um þar sem gætu verið smátilfelli sem þyrfti að leiðrétta." Gísli sagði að 1100 kennar tælq'u þátt í verkfallinu á landinu. 300 þeirra era grannskólakennarar þar af tæpur helmingur hér í Reykjavík. Kenndir 25 tímar af 1400 í Menntaskólanum í Reykjavík var kennt í örfáum bekkjum en 10 kennarar af 65 taka ekki þátt í verkfallinu. Kennslufært er í um 25 tímum af 1400 vikulegum. Guðni Guðmundsson rektor sagði að nem- endur hefðu verið sendir heim fyrir helgina með ítarlega námskrá og þeim sagt að lesa undir drep, eins og hann orðaði það. „Segja má að þijár vikur séu fram að fyrstu próf- um. Við vonumst auðvitað til þess að verkfallið standi ekki nema stutt- an tíma. Meiningin er að keyra einfaldlega áfram þegar því lýkur og reyna að fara yfír það námsefni sem nemendur hafa lesið heima." Rétt ráðstöfun hjá kennurum Gnúpur Halldórsson og Þórir Auðólfsson nemendur í fjórða bekk 'höfðu þegar tekið til við lesturinn og hreiðraðu um sig í lesstofunni Iþöku. „Ef þetta verður stutt verk- fall er það svo sem ágæt hvíld, en dragist það á langinn gæti það orð- ið mjög slæmt," sögðu þeir. Þeir töldu kennara hafa gert rétt í því að nota tækifærið til að setja aukin þrýsting á stjómvöld, nú þegar skammur tími væri til prófa og Alþingiskosninga. „Ef þeim tekst að fá leiðréttingu kjara sinna með verkfallinu var það rétt ráðstöfun," sagði Gnúpur. „Ég styð kennara og þeirra Iaunakröfur, þótt það sé auðvitað hart að lenda í verkfalli einmitt á þessum tíma,“ sagði Anna S. Ólafs- dóttir nemandi í 5. bekk sem lá yfír skraddum í íþöku. „Kennaram- ir sögðu okkur bara að halda áfram að lesa. Ég vona að verkfallið verði ekki lengur en í viku,“ bætti hún við. Nemendur níunda bekkjar áhyggjufullir Verkfallið raskar einnig töluvert starfsemi grannskólanna, og þá aðallega námi í efstu bekkjum þar sem háskólamenntaðir kennarar era félagar í HÍK. Hópur af nem- endum í 8. bekk Hagaskóla var á leið heim úr skóla þegar blaðamann bar að garði. Þau sögðust aðeins geta sótt átta tíma í viku, í stað um 30. í öðram bekkjum hefði verk- falli hinsvegar mun minni áhrif á kennsluna. „Verkfallið má ekki dragast á langinn, þá komum við illa undirbúin í vqrprófín. Það gæti orðið mjög erfítt fyrir suma,“ sögðu þau. „Kennaramir settu okkur bara undir næstu tíma, án tillits til hven- ær þeir yrðu. Það vora engar ráðstafanir gerðar ef til verkfalls kæmi, við höfum þessvegna aðeins námsskrána frá því í haust að fara eftir." Stefáni Guðjónssyni nemanda í 9. bekk leist illa á útlitið. Aðeins þijár vikur væra til samræmdra prófa. „Þegar ég vaknaði í morgun fannst mér gott að fá frí, en núna sé ég að þetta er ekki nógu gott út af prófunum." Hann sagði að sennilega væri sinn bekkur óvenju vel undirbúinn undir samræmdu- prófín. „Við eram það fá, að búið er að fara yfír mestalt námsefnið en í öðram bekkjum er mikið eft- ir,“ sagði Stefán. „Ég held að við getum ekki lesið mikið heima, það er svo margt sem þarf að fá aðstoð við,“ sagði Nanna H. Reykdal nemandi í 9. bekk að- spurð hvort hún væri farin að huga að heimanámi. „Ég missi helming- inn niður af mínum tímunum. Það er mjög slæmt fyrir okkur niundu bekkinga ef verkfallið dregst mjög á langinn," sagði Nanna. Skárra að hrikti í stoð- um núna en í haust Bjöm Jónsson skólastjóri sagði að nær helmingur kennara í Haga- skóla væri í verkfalli. Fimmhundrað nemendur era í skólanum þar af 140 í níunda bekk. „Það er skárra að hrikti í stoðum núna í nokkra daga, en að við þurfum að senda krakkana heim með götóttar stundatöflur í haust,“ sagði Bjöm Jónsson skólastjóri Hagaskóla. „Dæmið er einfaldlega hægt að ganga upp í grannskólunum, við fáum ekki hæft fólk til starfa þegar þessi laun era í boði. Verkfallið er í raun smáatriði - spumingin er hvort að skólakerfíð heldur áfram að drabbast niður," sagði Bjöm. Önnin ónýt dragist verkfall á langinn Félag framhaldskólanna boðaði til fundar á Lækjartorgi um kl. 17.00 í gær. Heimir Pálsson form- aður HÍK flutti stutt ávarp. Honum mæltist svo að verkfallið bitnaði þegar til lengdar væri litið ekki á nemendum, það væri hluti af bar- áttu fyrir bættri menntun á Islandi. í ræðu sinni hvatti formaður félags- ins, Hrannar Amarson, fundar- menn til þess að sína kennurum samstöðu. Barátta þeirra væri ekki aðeins fyrir bættum kjörum sér til handa, heldur einnig menntakerfi sem alið gæti upp komandi kynslóð- ir með sóma. Þrátt að til fundarins væri boðað með skömmum fyrirvara og hríðar- mugga væri í borginni þennan eftirmiðdag gaf þar að líta á annað hundrað nemenda úr flestum fram- haldskóianna. Omuðu þeir sér við rokktónlist hljómsveitanna „Rauðir fletir" og „Príma". „Við komum bara til þess að fylgjast með og fá fréttir," sögðu þrjár stúlkur úr Fjölbrautaskólan- GSsli Þór Sigurþórsson á „Kenn- arstofu" HÍK í Sóknarhúsinu við Skipholt. „Ég skil kennara og þeirra launa- kröfur," sagði Anna S. Ólafs- dóttir „Nemendum var sagt að lesa undir drep,“ sagði Guðni Guð- mundsson rektor. Algeng sjón i skólum landsins í gær: Auð og yfirgefin skólastofa. Morgunblaðið/Einar Falur um í Armúla, Herdís Bragadóttir, Jóna Guðmundsdólttir og Helga Barðadóttir. „Það er ekkert sniðugt ef þetta dregst á langinn, þá eyði- legst önnin," sögðu þær. „Þetta yrði í annað sinn á minni skólatíð sem kennsla raskast vegna vinnu- deilna," bætti Jóna við. „Síðast þegar það gerðist hætti ég í skóla." Kristján Steinarsson hafði heyrt fundinn augiýstan í „Útrás“, út- varpsstöð framhaldskólanema og ákveðið að fara niður á torg. Honum þótti verkfailið slæmt. „Ég er byij- aði nám á rafiðnaðarbraut í haust. Öll kennsla hjá mér fellur niður," sagði Kristján. „Mér fínnst ekki gott að missa svona úr. Annars býst ég við að verkfaliið standi svona í viku, varla lengur,“ bætti hann við. „Það er erfitt fyrir okkur að lesa ein heima,“ sagði Nanna H. Reykdal. Stjóm Félags framhaldskólanna fundaði í Fjölbrautaskólanum i Breiðholti i gær til að leggja á ráðin um aðgerðir næstu daga. „Mér fannst verkfallið ágætt í morgun, en núna sé ég að það er slæmt út af prófunum," sagði Stefán Guðjónsson. Verkfall kennara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.