Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Morgunblaðið/Einar Falur
Jóhann Pétur Sveinsson lögfæðingur er einn þeirra sem kýs í Há-
túni 12.
Undirbúningfur kosninganna:
Kjördeild fyrir
fatlaða í Hátúni
Skemmtun í Njálsbúð:
Fjórir menn réðust á
Árna Johnsen þingmann
Menn úr klappliði Framsóknarflokksins, segir Árni
ÁRNI Johnsen, alþingismaður og
þriðji maður á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi, varð fyrir
aðkasti fjögurra ungra manna á
skemmtun i Njálsbúð á vegum
hestamanna miðvikudaginn fyrir
páska. Mennirnir réðust hvað
eftir annað að Árna með höggum
og spörkum, þrátt fyrir að hann
bæri ekki hönd fyrir höfuð sér.
Guðjón Siguijónsson, dyrarvörur
á skemmtuninni, sagði fram-
komu þessara manna ljótan blett
á samkomunni og svo virtist, sem
pólitískur ágreiningur hefði ráð-
ið gerðum þeirra.
Guðjón Sigutjónsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að Ami hefði
komið þama með félögum sínum
til að skemmta sér og ekki á nokk-
um hátt unnið til þess að verða
fyrir aðkasti þessara manna. Þetta
hefðu verið einhverjir pörupiltar,
hlynntir öðrum stjórnmálaflokki en
Árni og það virtist hafa gert gæfu-
muninn. Árni hefði sýnt mikla
stillingu og ekki tekið á móti þeim,
eins og þeir virtust helzt hafa ósk-
að. Guðjón sagði, að fólki hefði
fallið þetta illa og reynt að koma í
veg fyrir ofsóknir þessar.
„Ég leit inn á samkomu í Njáls-
búð síðastliðið miðvikudagskvöld,"
sagði Ámi í samtali við Morgun-
blaðið, „ásamt nokkrum félögum
mínum frá Hvolsvelli. Fljótlega fóru
nokkrir ungir menn að abbast upp
á mig, dangla í mig og hrinda, en
ég leiddi það hjá mér. Eg þekki
þessa menn ekki að öðm leyti en
því, að ég kannaðist við einhvetja
þeirra úr klappliði Framsóknar-
flokksins á sameiginlegum fundum
allra flokka í Suðurlandskjördæmi
að undanfömu.
Ágengni þeirra óx smán saman,
þeir helltu yfir mig víni, spörkuðu
og slógu og í eitt skiptið réðust
þeir flórir að mér og hertu að hálsi
mér með hálsbindinu unz það slitn-
aði. í hvert skipti, sem þeir réðust
að mér, kom fólk til varnar, en
þeir létu sér ekki segjast. Þeir hafa
ugglaust viljað fá mig til að tusk-
ast við sig, blessaðir mennimir, en
Heimaklettur haggast ekki við
svona fikt, þó fast hafi verið slegið.
Það er í raun skárra að svona menn
skeyti skapi sínu á mér en ein-
hveijum veikbyggðari," sagði Árni
Johnsen.
„Aðstaða fyrir hreyfihamlaða
vegna kosninganna hefur verið
í Hátúni 12 í mörg ár og til að
flýta fyrir atkvæðagreiðlsu vilj-
um við beina þeim tilmælum til
þeirra sem hyggjast kjósa þar,
að þeir verði búnir að afla sér
heimildar til þess,“ sagði Ellen
Snorrason forstöðumaður Mann-
talsskrifstofu Reykjavíkur.
Ellen sagði að oft tefðust kosn-
ingar vegna þess að afla þyrfti
heimildar fyrir kjósendur. Það tæki
oft langan tíma og gæti verið baga-
legt fyrir þá sem heilsu sinnar
vegna ættu erfitt með að bíða. Kjós-
endur sem kjósa í Hátúni 12, þurfa
að afsala sér kosningarétti á uppr-
unalegum kjörstað. Heimildarinnar
er aflað með því að hringja í síma
29709 um klukkustund áður en
farið er á kjörstað í Hátúni 12, til
að flýta fyrir kosningu.
Fylgi stj órnmálaf lokkanna:
Litlar breytingar
í könnun DV
LITAR breytingar hafa orðið á
fylgi stjórnmálaflokkanna að
undanförnu ef tekið er mið af
könnun DV, sem birt var I gær,
og hún borin saman við könnun
sem blaðið birti iyrir um tíu dög-
um.
Samkvæmt könnun blaðsins nýt-
ur Alþýðuflokkurinn stuðnings 15%
kjósenda, sem afstöðu hafa tekið,
en hafði 14,3%, Framsóknarflokk-
urinn 16,4% (17,2%), Sjálfstæðis-
flokkurinn 31,4% (30,9%),
Alþýðubandalágið 12,7% (12,9%),
Samtök um kvennalista 8,6% (9,5%)
og Borgaraflokkurinn 12,1%
(11,7%). Bandalag jafnaðarmanna
nýtur stuðnings 0% kjósenda (0%),
Flokkur mannsins 0,7% (1,1%) og
íjóðarflokkurinn 2,0% (1,4%). Listi
Stefáns Valgeirssonar í Norður-
landskjördæmi eystra nýtur stuðn-
ings 1,2% kjósenda (0,9%).
Úrtakið í könnun DV, sem fram-
kvæmd var að kvöldi þriðjudags,
var 1.200 manns. Jafnt var skipt á
milli Stór-Reykjavíkursvæðisins og
landsbyggðarinnar. Spurt var:
Hvaða lista mundir þú kjósa ef
þingkosningar færu fram nú? Þátt-
takendur í könnuninni sem voru
óákveðnir voru 27,2% og þeir sem
vildu ekki svara voru 10,7%.
Formannahringborðið:
Lokaslagnr kosninga-
baráttunnar í sjón-
varpinu annað kvöld
LOKASLAGUR kosningabarát-
tunnar verður háður í ríkissjón-
varpinu annað kvöld, föstudags-
kvöld. Til leiks mæta formenn
og talsmenn þeirra sjö flokka,
sem bjóða fram í öllum kjördæm-
um.
Ingvi Hrafn Jónsson stjómar
Formannahringborðinu og hefst
þátturinn kl. 20.50, strax að lokn-
um fréttum, og stendur í tæpa tvo
tíma. Þátturinn hefst með því að
formenn flokkanna fá eina mínútu
í framsögu til að fjalla um helstu
mál kosningabaráttunnar og verður
dregið um röð þátttakenda. Þá taka
við 70 til 80 mínútna umræður þar
sem hveijum þátttakanda eru _ætl-
aðar um það bil 10 mínútur. í lok
þáttarins fá formenn flokkanna
síðan eina mínútu til að segja nokk-
ur lokaorð og þá í öfugri röð frá
því sem var í upphafi þáttarins.
Þátttakendur verða Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Albert Guðmundsson
Borgaraflokki, Jón Baldvin Hannib-
alsson formaður Alþýðuflokksins,
Steingrímur Hermannsson formað-
ur Framsóknarflokksins, Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins, Guðrún Agnarsdóttir fyrir
hönd Samtaka um kvennalista og
Pétur Guðjónsson formaður Flokks
mannsins.
Kosið í nýjum
Reykhólahreppi
^ Miðhúsum, Reykhólasveit.
Á sameiginlegum fundi hrepps- Kosningar til hreppsnefndar
nefnda Austur-Barðastrandar- hins nýja hrepps fara fram 20.
sýslu, sem haldinn var annan júní og 4. júlí verða hreppamir
páskadag á Reykhólum, var sameinaðir formlega.
samþykkt að hinn nýi samein- Á þennan fund mætti Jóhann
aði hreppur skuli bera nafnið G. Bjamason frá fjórðungssam-
Reykhólahreppur. bandi Vestfjarða. _ Sveinn
Kannanir o g kosmngaúrslit
Viku fyrir alþingiskosningamar
1983 naut Sjálfstæðisflokkur-
inn stuðnings um 45% kjósenda
samkvæmt könnun sem Hagvangur
gerði fyrir Morgunblaðið. I könnun
DV um sama leyti var fylgi flokks-
ins 41%. í samræmi við þetta var
álitið að flokkurinn kynni að fá allt
að 26 þingmenn kjöma. Þegar talið
var upp úr kjörkössunum kom í ljós
að Sjálfstæðisflokkurinn hafði hlot-
ið 38,7% atkvæða og 23 þingmenn
Iqoma. Þama munaði vemlega á
fylgi flokksins í skoðanakönnunum
annars vegar og kosningum hins
vegar.
Niðurstöður fyrmefndra kann-
ana bentu ennfremur til þess að
Alþýðuflokkurinn fengi 7,3% fylgi.
í reynd fékk hann hann 11,7% at-
kvæða. Fylgi Framsóknarflokksins
í könnununum var á bilinu 16,8%
til 17,9% en í reynd 18,5%. Fylgi
Bandalags jafnaðarmanna var mælt
9,9% til 10,9% en í reynd 7,3%. Þá
var fylgi Alþýðubandalagsins í
könnununum frá 13,1% til 15% en
í reynd 17,3%. Loks var fylgi
Kvennalistans mælt 7,2% en varð
í reynd 5,5%.
Munur af þessu tagi milli skoð-
anakannana annars vegar og úrslita
kosninga hins vegar þarf ekki að
koma á óvart. Að sönnu geta niður-
stöður kannana á fylgi flokka
stundum farið býsna nærri úrslitum
kosninga, einkum ef þær em gerðar
stuttu fyrir kjördag. En niðurstöður
kannana em þó ekki formleg kosn-
ingaspá. Eins geta viðhorf kjósenda
breyst á skömmum tíma eða óá-
kveðnir kjósendur raðað sér á
flokka í öðmm hlutföllum en um-
sjónarménn skoðanakannana ætla.
Nú hafa kannanir á fylgi stjóm-
málaflokkanna hér á landi verið
gerðar um nokkurt árabil. Þeir sem
rýna í niðurstöðumar skömmu fyrir
kosningar og bera þær saman við
úrslitin sjá að athyglisverð regla
virðist gilda í flestum tilvikum.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins og nýrra
framboða (sem á annað borð hafa
fengið einhvem hljómgmnn) er
mun meira í könnunum en kosning-
um. Fylgi Alþýðubandalagsins og
Framsóknarflokks er aftur á móti
mun minna í könnunum en kosning-
um. Dæmið sem ég tók af niður-
stöðum kannana Hagvangs og DV
1983 sýnir þetta svart á hvítu.
X
í FYRRAKVÖLD vomm við Har-
aldur Ólafsson dósent að reyna að
svara því í sjónvarpsþætti hjá Ólafi
Sigurðssyni fréttamanni . hvort
skoðanakannanir hefðu áhrif á það
hvemig kjósendur greiddu atkvæði.
Ég hallaðist að því að svo gæti
verið að einhveiju leyti, einkum
þegar í hlut eiga kjósendur sem
ekki hafa mjög fastmótaðar skoð-
anir á þjóðmálum. Hitt getum við
þó ekki vitað - nema spyija hvern
og einn kjósanda - með hvaða hætti
þessi áhrif em nákvæmlega. Rök-
lega séð geta áhrifin verið með
ýmsum hætti. Menn kunna að
hætta við að styðja flokk sem geng-
ur mjög illa í könnunum og velja
næst besta kostinn, þar sem ella
sé atkvæðinu kastað á glæ. Eða
menn veita flokki eða frambjóðanda
stuðning, þvert gegn fyrri áform-
um, eingöngu vegna þess að hann
á í vök að veijast. Óg svo fram-
vegis.
Varpa má fram þeirri spumingu
hvað það sé sem valdi reglunni, sem
nefnd var hér að framan, um mis-
mun á fylgi ákveðinna flokka í
könnunum og kosningum. Er þar
um einhveija innbyggða mælingar-
skekkju að ræða? Eða eru þar
kannski á ferð bein áhrif frá könn-
ununum sjálfum? Getur verið að
fjöldi kjósenda sem sér t.d. að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur þokkalegt
fylgi ákveði þess vegna að kjósa
annan flokk. Og hið sama gildi -
með öfugum formerlqum - um Al-
þýðubandalag og Framsóknar-
flokk? Ég efast satt að segja um
að hægt sé að flnna nokkur mark-
tæk svör við þessum spumingum.
Vangaveltur um efnið em þar fyrir
alls ekki óleyfilegar eða með öllu út
í hött, auk þess sem þær geta ver-
ið ágæt dægradvöl fyrir fólk - eða
atvinnubótavinna fyrir skrafskjóður
fjölmiðlanna.