Morgunblaðið - 16.05.1987, Side 1
72 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
109. tbl. 75. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 16. MAI 1987________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
íranir stóryrtir:
Ráðumst hiklaust
á bandarísk skip
London, Reuter.
DÓMSMÁLARÁÐHERRA írans
sagði í Teheran í gær að íranir
myndu ekki hika við að ráðast á
bandarísk skip á Persaflóa, að
því er íranska fréttastofan IRNA
greindi frá.
Forskot
Thatcher
18 prósent
Perth, Skotlandi, Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hefur átján
prósenta forskot á Bandalag
fijálslyndra og jafnaðarmanna
og V erkamannaflokkinn sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem
breskt dagblað birti i gær.
Thatcher hefur ekki haft meira
forskot á andstæðinga sina síðan
hún komst tíl valda árið 1979.
Thatcher og Neil Kinnock, for-
maður Verkamannaflokksins, hófu
í gær baráttuna fyrir kosningamar
11. júní. Thatcher lofaði í ræðu, sem
hún flutti í bænum Perth á Skot-
landi, að selja fleiri ríkisfyrirtæki
og sagði að skuggi hemaðarmáttar
Sovétríkjanna myndi falla yfir Bret-
land ef Verkamannaflokkurinn
kæmist til valda.
Kinnock sagði að sú skipan mála,
sem Thatcher vildi koma á væri
hrottafengin: „Hún er rotin og býð-
ur upp á óréttlæti, eymd og
misskiptingu."
Samkvæmt könnuninni, sem birt-
ist í Evening Standard, myndi
Thatcher vinna rúmlega 150 sæta
meirihluta á þingi. Þar fær íhaids-
flokkurinn 46 prósenta fylgi,
Verkamannaflokkurinn 28 prósent
og Bandalagið 25 prósent.
Sjá „Efnahagsbati eykur sig-
urlíkur ... “ á síðu 35.
Haft var eftir Abdulkarim
Musavi Ardebili að íranski herinn
myndi ef til vill hika við að ráðast
á skip frá Kuwait vegna þess hversu
nálægt landið er íran, „en það verð-
ur hiklaust ráðist á bandarísk skip“.
Richard Murphy, aðstoðarmaður
bandaríska utanríkisráðherrans,
sem verið hefur á ferðalagi um ríki
við Persaflóa, sagði að Bandaríkja-
menn væm að semja við Kuwait
um að skip þaðan sigldu undir
bandarískum fána. Þá myndu skip-
in njóta verndar bandaríska sjóhers-
ins á Persaflóa' Stjómvöld í Kuwait
hafa grigið til þessa ráðs vegna
þess að íranir hafa ráðist á skip
undir þeirra fána.
IRNA hafði eftir yfirmanni
íranska sjóhersins að haldið yrði
áfram að stöðva skip, sem gmnur
léki á að hefðu farm fyrir íraka um
borð. Hvorki sá fáni, sem skipið
sigldi undir, né eigandi þess gæti
hindrað sjóherinn í að gegna hlut-
verki sínu.
Andstæðingar Atlantshafsbandalagsins efndu til mótmæla við bandariska sendiráðið í Osló
dag. Kom til átaka milli fólksins og lögreglumanna og var fjöldi manna handtekinn.
Reuter
á fimmtu-
Línurnar lagðar fyrir ráðherrafund NATO í Reykjavík:
Samkomulag takí líka tíl
Asíu-flauga Sovétmanna
Horfið frá niðurstöðum Reykjavíkurfundar leiðtoganna, segir Tass
Stavanger, Bonn, London, Moskvu, Reuter.
FUNDI kjarnorkuáætlana-
nefndar Atlantshafsbandalags-
ins í Stavanger í Noregi lauk i
gær. Fundinn sátu varnarmála-
ráðherrar þeirra 14 ríkja sem
aðild eiga að nefndinni. í sameig-
inlegri yfirlýsingu fundarmanna
er þess krafist að Sovétmenn
Reuter
Chirac og Sakharov
Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands, er nú staddur í Moskvu
og ræddi hann í gær stuttlega við Andrei Sakharov í bakherbergi í
Sovésku vísindaakademíunni. Sakharov bað Chirac að tala máli sam-
viskufanga á fundi hans með Mikhail Gorbachev síðar um daginn.
fjarlægi meðaldrægar flaugar
sínar bæði í Evrópu og Asiuhluta
Sovétrikjanna. Sovéska frétta-
stofan Tass sagði kröfu þessa
vera í ósamræmi við niðurstöður
Reykjavíkurfundar leiðtoga stór-
veldanna.
Caspar Weinberger, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sem hvatti
til þess að fundurinn ályktaði um
Asíu-flaugamar, vildi ekki láta uppi
hvort Bandaríkjastjóm hygðist
breyta þeim samkomulagsdrögum
sem lögð hafa verið fram í Genf í
ljósi þessarar niðurstöðu ráðherr-
anna. Fundarmenn fögnuðu því að
bættar horfur væm á samkomulagi
milli stórveldanna um verulega
fækkun meðaldrægra kjamorku-
flauga. Þeir lögðu jafnframt áherslu
á nauðsyn þess að viðhalda þeim
kjamorkuherafla sem væri ómiss-
andi til varna Vestur-Evrópu og
minntu á að vamaráætlanir Atl-
antshafsbandalagsins væru grund-
vallaðar á kenningunni um
sveigjanleg viðbrögð á átakatímum.
Sovéska fréttastofan Tass sagði
að yfirlýsing ráðherranna bæri þess
merki að þeir hefðu ekki komist að
samkomulagi varðandi skamm-
drægar kjamorkuflaugar í Evrópu,
sem draga 500 til 1.000 kílómetra,
en Sovétstjórnin hefur lagt til að
þær verði upprættar með öllu.
„Varðandi meðaldrægar flaugar
kröfðust fundarmenn þess að vikið
yrði frá því samkomulagi sem lá
fyrir eftir Reykjavíkurfund leið-
toganna," sagði í tilkynningu
fréttastofunnar.
Talsmaður vestur-þýsku ríkis-
stjómarinnar birti í gær óvænta
yfírlýsingu frá Helmut Kohl kansl-
ara þar sem hann lagðist gegn því
að samið yrði um útrýmingu
skammdrægra flauga í Evrópu og
hvatti til samkomulags um uppræt-
ingu allra kjamorkuflauga, sem
draga allt að 1.000 kílómetra. Sagði
kanslarinn að samkvæmt þeim
drögum sem kynnt hefðu verið í
Genf væri ekki tekið tillit til vígvall-
arvopna sem Vestur-Þjóðverjum
stæði mest ógn af. Ráðgjafi kansl-
arans um vamarmál, Horst Teltsch-
ik, dró yfirlýsingu Kohls síðar
tilbaka og sagði að hann krefðist
þess ekki að samið yrði um öll kjam-
orkuvopn í Evrópu í einu lagi. Sagði
hann að Kohl vildi aðeins að kjam-
orkuvopn, sem drægju allt að 500
km yrðu tekin með í reikninginn,
en þau ætti ekki að gera að skil-
yrði, ef stórveldin kæmust að
samkomulagi um meðaldræg vopn.
Sjá nánar um afvopnunarmál-
in á síðu 32.
Flugráni
afstýrt
Ungur Pólveiji tók í gær gísla í
strætisvagni í Varsjá og heimtaði
að ekið yrði til Okecie-flugvallar. Á
flugvellinum hótaði hann að
sprengja handsprepgju ef honum
yrði ekki flogið til Ítalíu. Maðurinn
gerði alvöru úr hótun sinni þegar
ekki var gengið að kröfum hans
og særðist einn maður í sprenging-
unni. Ræninginn var handtekinn
rétt eftir að sprengjan sprakk. Á
myndinni er hann leiddur á brott.
Reuter