Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
50 erlendir blaðamenn
koma í boði Tetra-Pak
UM 50 blaðamenn frá ýmsum
Evrópulöndum koma hingað til
lands í byrjun júní í boði sænska
fyrirtsekisins Tetra-Pak. Blaða-
mennirnir starfa allir við mjólk-
urfræði- og matvælatímarit og
eru i félagi sem nefnt er „Skál-
klúbburinn" og Tetra-Pak hefur
stutt árum saman.
Nokkur matvælafyrirtæki og
Upplýsingaþjónusta landbúnaðar-
ins sjá um skipulagningu dvalar
hópsins hér. í frétt frá Upplýsinga-
þjónustunni kemur fram að Tetra-
Pak bauð klúbbnum í ferð til
Bandaríkjanna fyrir tveimur árum,
og áður til Afríku, Suður-Ameríku
og Asíu, en aldrei hefur verið jafn
mikil ásók í nokkra ferð og til ís-
lands núna.
VITASTÍG 13
26020-26065
Opið í dag kl. 1-3
MEISTARAVELLIR. 2ja herb.
íb. 60 fm. Sér inng. Góð íb.
Verð 2,2 millj.
HOLTSGATA. 3ja herb. góð
íb., 70 fm. Sérinng. Verð 2,7
millj.
ENGIHJALLI. 3ja herb. góð íb.
90 fm. Nýstandsett. Þvottahús
á hæðinni. Stórar svalir.
NJÁLSGATA. 3ja-4ra herb. íb.
65 fm. Verð 2,2-2,3 millj.
KRUMMAHÓLAR. 3ja herb.
góð íb. 70 fm í lyftublokk auk
bílsk. Stórar suðursv.
HRAFNHÓLAR
4ra herb. íb. 117 fm auk bílsk.
Nýl. innr.
KAMBASEL. 4ra herb. góð íb.
115 fm. Suðursv. Verð 3,5 millj.
ESKIHLÍÐ. 4ra herb. íb. 115 fm.
Suðvestursv. Góð íb. Verð 3,5
millj.
FRAMNESVEGUR. 3ja herb. íb.
85 fm. Sérinng. Verð 2,8 millj.
RAUÐALÆKUR. Góð 4ra herb.
íb. 100 fm á jarðhæð. Sérinng.
Verð 3,4-3,5 millj.
Vegna mikillar sölu vantar okkur
allar gerðir eigna á skrá
Skoðum og verðmetum
samdægurs
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson,
HEIMASÍMI: 77410.
Metsölubfad á hverjum degi!
Hafnarfjörður
Hverfisgata. Járnv. timburh.
með þremur íb. á jarðh., miðh.
og í rish. Grunnfl. húss um 50
fm. Ekkert áhv. Tilboð.
Álfaskeið. 2ja herb. 65 fm
íb. á jarðh. V. 1,6 millj.
Miðvangur. 3ja herb.
endaíb. V. 2,5 millj. Einkasala.
Selvogsgata. 2ja herb. falleg
íb. á jarðh. V. 1,4 millj.
Brattakinn. 3ja herb. jarðh.
Sérinng. V. 1,7 millj.
Hverfisgata. 2ja herb. rish.
V. 950 þús. Einkasala.
Kjarrmóar — Garðabær.
3ja herþ. sem nýtt 110 fm raðh.
á tveimur hæðum. Skipti á 3ja
herb. íb. m. bflsk. koma til greina.
Siglufjörður
4ra herb. 96 fm efri hæð í timb-
urh. Allt sér. V. aöeins 500 þús.
Opið ídag kl. 13.00-16.00
Ámi Gunnlaugsson m
Austurgötu 10, sfmi 50764.
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALDIMARS'
LOGM JOH ÞORÐARSON HDL
Vorum að fá til sölu:
Ný úrvals eign við Neðstaleiti
með frábæru útsýni. Raðhús á tveimur hæðum meö bílskúr 234,3 fm
nettó. Ennfremur geymsla í risi um 40 fm. Á efri hæö eru 4 rúmg.
svefnherb., baö, fatabúr og stór sjónvarpsskáli. Á neöri hæð, forstofa,
eldhús með þvottahúsi og búri, bað, tvær saml. stofur og bílskúr. Svalir
á efri hæð, verönd á neðri hæð. Teikn. og nánari uppl. aðeins á skrifst.
Á vinsælum stað í Fossvogi
Glæsil. raðhús um 180 fm nettó auk bilskúrs. 4 svefnherb. á neöri
hæö. Glæsil. suöurstofur á efri hæö. Ræktuð lóð. Skuldlaust. Laust
fljótl. Nánari uppl. og teikn. aðelns á skrifst.
Góð eign á góðu verði
3ja herb. suðuríb. i lyftuhúsi í Hólahverfi, ekki stór en vel skipulögö.
Laus fljótl. Stór og góður bílskúr fylgir.
Á útsýnisstað við Funafold
Stór og glæsil. raöhús í smiðum. 4 rúmg. svefnherb. Tvöf. bílskúr.
Allur frág. fylgir utanhúss. Húsin eru rétt við Gullinbrú í Grafarvogi.
Byggjandi Húni sf.
Með 24 mánaðargreiðslum
3ja og 4ra herb. úrvalsfbúðir i smíðum við Jöklafold. Byggjandi Húni
sf. Mánaðargr. eftlr vali i allt að 2 ár fyrir þá sem kaupa í fyrsta sinn.
Sameign fullfrág. Teikn. og uppl. á skrifst.
í Árbæjarhverfi óskast
3ja-4ra herb. rúmg. ib. Mikil og góö útb.
Við Blikahóla eða í nágr.
Fjársterkir kaupendur óska eftir 3ja-4ra herb. góðri ib. og 5-6 herb.
rúmg. íb. Afh. eftir samkomul. Góðar greiðslur.
Miðsvæðis í borginni
Fjársterkir kaupendur óska eftir 3ja-6 herb. ibúðum, sérhæðum og
einbhúsum. Margir bjóöa útborgun ó kaupverði fyrir rétta eign.
Opið í dag, laugardag,
kl. 10.00-12.00
og kl. 13.00-16.00.
ALMENNA
FASTEIGWASAIAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Sinfóníutónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá:
Rimski—Korsakov
Rússneskir páskar
Prokoféff Píanókonsert nr. 3
Nielsen Sinfónía nr. 5
Einleikari: Barry Douglas
Stjórnandi: Arthur Weisberg
Fyrsta verkið á tónleikunum,
Rússneskir páskar, eru í raun trúar-
legt verk og stefín tekin upp úr
söngvasafni rússnesku rétttrúnaðar-
kirkjunnar. Markmið höfundar var
að túlka hátíðahald, sem vitað er
að stundum var í Rússlandi til foma,
á mörkum heiðni og kristni. Stefin
eru mjög fom tónlesstef og til gam-
ans má geta þess að hugsanlega
liggur þama þráður í millum til
íslenskrar þjóðlaga, sem mörg hver
sækja lagferli sitt til sléttsálma
Gregors mikla, t.d. eins og upphafs-
stefið, sem hefur nærri sama
upphafstónferli og lagið „Austan
kaldinn á oss blés". Þ6 að hér kunni
að ráða tilviljun er það samt um-
hugsunarefni að íslenska lagið sækir
stefform sín til sama upprana og
Barry Douglas
þau rússnesku í þessu verki Kor-
sakovs. Verkið var hátíðlegt í
flutningi hljómsveitarinnar, en trú-
lega hafa hlustendur átt von á meiri
gleðilátum, eins og venjulega á sér
stað í tónverkum, sem túlka eiga
alls konar hátíðarhald.
Annað verkið á efnisskránnni,
Píanókonsert nr. 3 eftir Prokoféff,
var leikið af ungum íra, Barry
Douglas, er nýlega vann Tsjaikov-
sky-keppnina í Moskvu. Slíkt gera
ekki nema þeir allra bestu, að skáka
rússneska skólanum, enda kom það
á daginn ( píanókonsertinum, að
Barry Douglas er feikna góður
píanóleikari, teknískur, kraftmikill
og músíkalskur. Það verður gaman
að fylgjast með honum á næstu ámm
og sjá hvemig hann vinnur úr mikl-
um hæfileikum sínum.
Síðasta verkið var sú fímmta eftir
Carl Nielsen, sem er trúlega nokkuð
erfitt verk fyrir þá sem eru óreyndir
í Nielsen. Þrátt fyrir að Nielsen hefði
ekki sérstakt „prógramm" í huga,
er hann að fjalla um manninn og
það miskunnarleysi (fyrri heims-
styijöldin), er hann þarf að yfirvinna
og óbugaður að horfa til nýrrar
framtíðar. Þetta er stórbrotinn óður
um átök hins illa og góða, þar sem
söngur mannsins er truflaður af
trommubamingi, sem samkvæmt
Nielsen á að verka eins og „frunta-
leg“ árás, en verkinu lýkur með
hugleiðingu mannlegrar sáttar
(Adante un poco tranquillo) er síðan
biýst út fögnuð þess er trúir á komu
nýs og betri tíma. Það var margt
fallega gert f þessu viðamikla verki,
og auðheyrt að hljómsveitarstjórinn,
Arthur Weissberg, kann vel til verka.
Ráðið í aðalhlutverk í Tristan og ísold:
Montínn af litlu systur
- segir Hrafn Gunn-
laugsson, en Tinna
systir hans leikur eitt
aðalhlutverkið
GENGIÐ hefur verið frá ráðn-
ingu leikara í öll helstu hlutverk
kvikmyndarinnar Tristan og
ísold, sem Hrafn Gunnlaugsson
leikstýrir og er höfundur að.
Upptökur fara fram hérlendis í
júlí og ágúst, en erlendis í sept-
ember. Kostnaður við þann hluta
myndarinnar sem gerist á íslandi
er áætlaður 64 milljónir króna.
Með aðalkvenhlutverk í myndinni
fara Tinna Gunnlaugsdóttir, Krist-
björg Kjeld og Helga Backman, en
með helstu karlhlutverk Egill Ólafs-
son, Helgi Skúlason, Sigurður
Sigurjónsson, Sveinn M. Eiðsson
og Flosi Ólafsson. Mikill fjöldi ann-
arra leikara kemur fram í myndinni,
þar á meðal sænsku leikaramir
Sune Mangs, Reine Brynolfsson og
Johan Neuman.
Þetta er í fyrsta skipti sem þau
systkynin Tinna og Hrafn vinna
saman að kvikmynd, en þau eru
böm Herdísar Þorvaldsdóttur, leik-
konu og Gunnlaugs Þórðarsonar.
„Ég var mjög montinn af litlu syst-
ur strax í vöggu, ég var þá sjö ára,“
sagði Hrafn í gær í samtali við
Morgunblaðið. „Það er orðið langt
síðan við yfirgáfum föðurhús og
héldum í sitt hvora áttina. Ég veit
að við höfum bæði náð að skapa
okkur það sjálfstæði í gegnum árin
sem gerir svona samstarf mögu-
legt, þótt tilfinningatengslin séu
allt frá blautu bamsbeini. Ég
hlakka til að vinna með Tinnu,“
sagði Hrafn ennfremur.
A meðan á vinnslu Tristan og
ísold stendur, verður gerð fyrir
sænska sjónvarpið, sérstök heimild-
armynd Hrafninn, sem fjallar um
Hrafn. Fylgst verður með upptöku
myndarinnar frá því hún hefst og
allt til frumsýningar.
Framleiðandi Tristan og ísold er
íslenska kvikmyndafyrirtækið
F.I.L.M. í samvinnu við Sænsku
kvikmyndastofnunina og Cinema
Art, ásamt fleiri erlendum aðiljum.
Blönduós:
34 bændur undirrita samn-
ing um kaup á minkaskálum
Blönduósi.
NÝLEGA voru opnuð á Blöndu-
Morgunblaðið/Jón Sig.
34 bændur, allt austan úr Þingeyjarsýslum vestur á Strandir, undir-
rita hér samninga um kaup á jafnmörgum minkaskálum við bygg-
ingavörudeild SIS, Kaupfélag Húnvetninga og Kaupfélag Skagfirð-
inga.
ósi tilboð í efni til byggingar 34
minkabúa á Norðurlandi. Alls
bárust 9 tilboð en sameiginlegt
tilboð Kaupfélaganna á Blöndu-
ósi og Sauðárkróki og bygginga-
vörudeildar SÍS reyndist
hagstæðast og er tilboðsverð
þeirra fyrir 60 metra langan
minkaskála um 606 þús. Að sögn
Magnúsar Sigsteinssonar hjá
Búnaðarfélagi íslands (BÍ) er
þetta tilboð mjög hagstætt og
a.m.k. 25—30% ódýrara, en ef
farnar hefðu verið hefbundnar
leiðir við efnisöflun. Góð tilboð
bárust einnig frá Húsasmiðjunni,
verslun Friðriks Jónssonar,
Garðasmiðjunni og BYKO, en
þau reyndust örlitið hærri og
voru öll innan við 700 þúsund.
Tilboði SÍS og kaupfélaganna á
Blönduósi og Sauðárkróki var tekið
og vom samningar um kaupin gerð-
ir á Blönduósi sl. laugardag. í
samningum segir að byggingarefn-
ið verði afhent í júlí á Blönduósi
eða Sauðárkróki, allt eftir því hvar
viðkomar.di bóndi býr. Af þeim 34
bændum sem tilboði þessu tóku eru
20 búsettir vestan Vatnsskarðs og
fá því efnið afhent á Blönduósi.
Gísli Pálsson á Hofi í Vatnsdal
er einn helsti frumkvöðull í þessu
máli og hefur verið óþreytandi við
að koma því á þetta stig. Gísli sagði
að hér væri um að ræða hús yfir
10.500 minkalæður og lauslega
áætlað er skinnaverðmæti eftir
þennan læðufjölda um 72,8 milljón-
ir. Magnús Sigsteinsson, bútækni-
ráðunautur hjá BÍ, annaðist
útreikninga á tilboðum og teiknaði
hann jafnframt alla minkaskálana.
Að sögn Magnúsar verður þessi leið
við byggingarefniskaup farin í
framtíðinni.
Það má segja að með þessu fram-
taki hafi verið unnið eitt stærsta
átak í viðhaldi byggða um langa
hríð og landsbyggðaumræðunni að
þessu sinni komið á framkvæmda-
stig. — Jón Sig.