Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
11
Aída á hátíð-
arsýningu
Hátíðarsýning' verður í ís-
lensku óperunni sunnudags-
kvöldið 17. maí nk. Þar verður
óperar Aida flutt í síðasta
sinn á þessum vetri og sett í
sérstakan viðhafnarbúning í
tilefni þess.
Á sýningunni á sunnudags-
kvöldið verður sama hlutverka-
skipan og var á frumsýningunni
og kemur Sigríður Ella Magnús-
dóttir til landsins til að syngja
hlutverk Amnerísar. Þessi sýn-
ing verður tekin upp af Sjón-
varpinu til endursýninga síðar.
Áð lokinni sýningunni á Aidu
verður uppboð á listaverkum
þeim sem íslenskir myndlistar-
menn færðu íslensku óperunni
að gjöf fyri' í vetur. Álls eru
þetta um 30 listaverk eftir
marga af þekktustu myndlistar-
mönnum þjóðarinnar og mun
Haraldur Blöndal stýra upp-
boðinu. Veitingar verða bomar
fram í hléi og eftir sýninguna
og allt gert til að gera hana sem
hátíðlegasta.
Operan Aida eftir Verdi er
eitt af stórverkum óperubók-
menntanna og_ langviðamesta
verkefni sem íslenska óperan
hefur ráðist í til þessa. Hefur
sýningin fengið mikið lof áheyr-
enda og gagnrýnenda og alls eru
sýningamar á Aidu nú orðnar
rúmlega 30 talsins.
Sem fyrr segir verða sömu
flytjendur á sýningunni nú og
voru á frumsýningunni. Aðal-
hlutverkin syngja þau Ólöf
Kolbrún Harðardóttir, Garðar
Cortes og Sigríður Ella Magnús-
dóttir en með önnur stór hlut-
verk fara Kristinn Sigmundsson,
Viðar Gunnarsson og Hjálmar
Kjartansson. Hljómsveitarstjóm
er í höndum Páls P. Pálssonar
en Bríet Héðinsdóttir leikstýrði
verkinu. Búningar og leikmynd
em eftir Unu Collins.
Vængir duttu af
PA-28-flugvéi í Bandaríkjunum;
Skoða þarf nokkrar
íslenskar flugvélar
FYRIRMÆLI hafa borist frá .
Bandaríkjunum þess efnis að all-
ar einhreyfilsflugvélar af gerð-
inni PA-28 frá Piper í
Bandaríkjunum, sem náð hafa
5.000 flugtímum eða meira,
skulu skoðaðar eftir ákveðnum
fyrirmælum áður en þær ná
5.050 tímum. Hér á landi munu
vera um það bil þrjátíu vélar af
gerðinni PA-28, ein sem komin
er yfir 5.000 flugtíma og tvær
sem munu vera að nálgast þann
tímafjölda.
Björn Bjömsson, deildarstjóri
Loftferðaeftirlitsins sagði í samtali
við Morgunblaðið, að ástæða fyrir-
mælanna væru sú að vængir slíkrar
flugvélar hefðu dottið af í flugi í
Bandaríkjunum fyrir skömmu með
þeim afleiðingum að hún hrapaði
og áhöfnin fórst. Hún mun hafa
flogið í 7.488 tíma og var af gerð-
inni PA-28-181 og er ein slík vél
til hérlendis.
Bjöm sagði algengt að slík fyrir-
mæli bærust Loftferðaeftirlitinu.
„Skoða þarf allar þær vélar, sem
flogið hafa meira en 5.000 tíma og
á grundvelli slíkrar skoðunar verður
tekin ákvörðun um hvort skoða
beri yngri vélamar nánar. Sérstak-
lega þarf að sprunguskoða væng-
bitana," sagði Bjöm.
Flugvél Lufthansa af gerðinni Boeing 727—200, en slíkar vélar
verða i íslandsfluginu fyrri hluta sumars.
Lufthansa flýgur til
Dusseldorf og Miinchen
LUFTHANSA býður upp á
beint flug frá Keflavíkurflug-
velli til DUsseldorf og MUnchen
frá 31. maí til 6. september.
Flogið verður frá Keflavíkur-
flugvelli til DUsseldorf og
þaðan til MUnchen. Flogið er
einu sinni í viku, á sunnudög-
um.
PEX-fargjald til Dússeldorf er
16.200 krónur og til Múnchen
19.900 krónur. Lágmarksdvöl er
vika og hámarksdvöl þrír mánuð-
ir. PEX-fargjald er bundið við
fyrirframákveðna brottfarartíma,
sem ekki er hægt að breyta. Sér-
fargjald til Dússeldorf er 29.260
krónur og til Múnchen er það
35.800 krónur. Það er bundið við
sömu tímatakmörk og PEX-far-
gjaldið, en er hinsvegar með
hreyfanlegum brottfarartímum.
Fargjald á svokölluðum „Business
Class" með Lufthansa er 40.560
krónur til Dússeldorf og 49.740
til Múnchen. Á „First Class" til
Dússeldorf kostar ferðin 55.160
krónur og til Múnchen 67.660
krónur. Ofan á öll þessi verð
leggst síðan flugvallaskattur að
upphæð 750 krónur.
Flogið verður með Boingvél
727-200 í júní og júlí en seinni-
hluta sumars verður skipt yfir í
Boing 737-300.
HIN GOMLU
KYNNI
ELDRI BORGARAR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
Veitingahúsið Broadway hefur undanfarin ár staðið fyrir skemmtidag-
skrá fyrir eldri borgara, sem hlotið hefur nafnið „HIN GÖMLU KYNNI“.
Þessi kvöld hafa vakið mikla ánægju og ávallt verið næg þátttaka. Nú
hefur verið ákveðið að endurtaka þessi kvöld og mun fyrsta skemmti-
kvöldið verða fimmtudaginn 21. maí.
Við óskum eftir áframhaldi á því góða samstarfi sem skapast hefur
milli veitingahússins og öldrunarstofnana hér í Reykjavík og nágrenni.
Húsið opnað kl. 18.00-23.30
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur
vinsælustu lögin ykkar.
Kynnir:
Bryndís Schram
Sverrir Hermanns
son, menntamála
ráðherra.
Skemmtidagskrá:
Heiðursgestur:
Flosi Ólafsson
leikari flytur ávarp.
Töframaðurinn
Baldur Brjánsson sýnir kúnstir
Söngkonan frábæra Hjördís Geirsdóttir syngur með
hljómsveit Jóns Sigurðssonar.
Tískusýning undir stjórn Unnar Arngrímsdóttur,
eldri borgarar sýna. -
Við komuna verður tekið á móti gestum
með fordrykk og síðan vísað til sætis og
sest til borðhalds.
Matseöill:
RjómalögÖ rósinkálsúpa.
GrilluÖ lambasteik.
Kaffi og konfekt.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í þessari
kvöldskemmtun sem fyrst í veitingahúsið
Broadway í síma 77500 daglega.
Ath! Starfsfólk öldrunarstofnanna at-
hugið að ef um hópa er að ræða,
vinsamlega hafið samband í tíma.
Góða skemmtun!
DIDÍ)AIDWA>'