Morgunblaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 19
Staða ullar
iðnaðarins
verri en
nokkrusinni
- segir Jón Sigurðar-
son, framkvæmdastjóri
iðnaðardeildar SÍS
STAÐAN í ullariðnaðinum er
verri nú en hún hefur nokkru
sinni verið, að sögn Jóns Sigurð-
arsonar, framkvæmdastjóra
iðnaðardeildar SÍS. Sölutimabil-
inu er nú að ljúka og pantanirnar
að streyma inn. Jón sagði að of
snemmt væri að fullyrða um
árangur sölustarfsins, en sagði
að útlitið væri sæmilegt hvað
magn varðaði. Hins vegar væri
söluverðið ekki nógu hátt í
íslenskum krónum vegna lækk-
unar Bandaríkjadals.
Jón sagði að verulegur hluti af
sölu ullariðnaðarins væri í dollurum.
Fall dollarans gerði það að verkum
að verðhækkun á vörunum hefði
öll tapast og fyrirtækin sætu þá
uppi með allar kostnaðarhækkanir
sem orðið hefðu. Nefndi hann sem
dæmi að laun hækkuðu um 30—45%
á tímabilinu og einnig hefðu orðið
hækkanir á ýmsum aðföngum sem
keypt væru í Evrópumyntum.
Jón sagði að ullariðnaðurinn í
landinu hefði verið rekinn með halla
í fyrra og útlit væri fyrir áfram-
haldandi tap í ár, ef ekki yrðu
óvæntar breytingar.
Grunaður
um íkveikju
UNGUR Reykvíkingur var á
fimmtudaginn úrskurðaður í sex
daga gæsluvarðhald vegna gruns
um að hann væri valdur að bruna
i húsi við Barónsstíg á þriðjudag.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu kom upp eldur í kjallara
hússins við Barónsstíg 25 á þriðju-
dagskvöld. Þegar slökkviliðið kom
á vettvang reyndist eldur loga í
rusli í kjallaraherbergi og var hann
fljótslökktur. Nokkur reykur var þó
í stigagangi hússins. Maðurinn var
handtekinn á miðvikudag, grunaður
um íkveikju, og í gær var hann
úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Rannsóknarlögregla ríkisins er með
málið á sinni könnu.
ririr* »■ t * t r rrrm « rro * t>tt » t r»m » mMTT»V7r',ir
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAI 1987
Tijpar
<BMJ> JARÐVEGSDÚKUR
UNDIR GANGSTÉTTARHELLUR
• TYPAR kemur í veg fyrir að sandurinn
blandist undirlaginu eða
fljóti burt.
• TYPAR sparar jarðvegsvinnuna.
í VEGAGERÐ
• TYPAR dregur verulega úr kostnaði við
vegi, „sem ekkert mega kosta“
t.d. að sumarbústöðum, sveitabýlum o.s.frv.
• TYPAR kemur í veg fyrir að yfirborðið
sökkvi ofan í undirlagið.
• TYPAR = minni jarðvegsvinna.
í RÆSAGERÐ
• TYPAR kemur í veg fyrir að jarðvegurinn
renni inn í ræsið og stífli það.
• TYPAR hleypir vatni í gegnum sig.
• TYPAR er varanleg lausn.
TYPAR
skráselt vörumerki Du Pont
í BRIMVÖRN
• TYPAR kemur í veg fyrir að sjórinn grafi
undan stórgrýti í varnargörðum.
• TYPAR kemur í veg fyrir að stórgrýtið sökkvi
ofan í undirlagið.
• TYPAR = trygging.
örugg - ódýr
- varanleg lausn
Síöumúla 32 Sími: 38000
u.
f' "í/- fpit
1 *