Morgunblaðið - 16.05.1987, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
Heitar deilur á Súðavík um hlutabréfakaup í Frosta hf
Hreppsnefnd Súðavikurhrepps ásamt fundarstjórum. Talið frá vinstri: Jónína Guðmundsdóttir varamaður Barða Ingibjartssonar, Hrafn-
hildur Þorsteinsdóttir, Sigríður Hrðnn Eliasdóttir, varaoddviti, Hálfdán Kristjánsson, Auðunn Karlsson, oddviti, Steinn Ingi Kjartansson,
sveitarstjóri og fundarstjóri, Heiðar Guðbrandsson, annar fundarstjóri.
Tillögu um sáttaleið var
hafnað en vinnubrögð við
sölu hlutabréfa fordæmd
19 ræðumenn tóku 39 sinnum til máls á fimm klukkutíma löngum fundi
Isafirði.
Á ALMENNUM borgarafundi sl. sunnudag höfnuðu inu á staðnum. Yfir eitthundrað manns sótti fundinn
Súðvíkingar tillögu um að leitað yrði sátta í deilumáli en við nýafstaðnar alþingiskosningar voru 170 manns
hreppsins og fimm einstaklinga sem hafa tryggt sér á kjörskrá í hreppnum. Nítján ræðumenn tóku 39 sinn-
meirihlutaaðstöðu í Frosta hf. stærsta atvinnufyrirtæk- um til máls á fundinum, sem stóð í tæpa fimm tíma.
Augljóst er að mjög alvarlegur
ágreiningur er risinn milli íbúa
Súðavíkur um málefni Frosta hf.,
eftir að fimm einstaklingar, sem
allir eru lykilmenn í rekstri fyrir-
tækisins, tiyggðu sér meirihlutaað-
ild í fyrirtækinu. En þá hafði
hreppsnefnd hafnað forkaupsrétti
og almennt hlutafjárútboð meðal
íbúa hreppsins og starfsmanna fyr-
irtækisins höfðu fengið dræmar
undirtektir.
Auðunn Karlsson oddviti Súða-
víkurhrepps setti borgarafundinn
sl. sunnudag. Stakk hann upp á
Steini Inga Kjartanssyni sem fund-
arstjóra, en uppástunga kom einnig
um Heiðar Guðbrandsson. Steinn
Ingi náði kosningu og byrjaði hann
á að skipa Heiðar Guðbrandsson
sem varafundarstjóra. Síðan til-
nefndi hann Maríu Kristófersdóttur
og Önnu Lind Ragnarsdóttur sem
fundarritara, en gat þess jafnframt
að öll umræða á fundinum yrði tek-
in upp á segulband.
Hreppnum tryggð rétt-
indi í Frosta hf.
Auðunn Karlsson var fyrstur á
mælendaskrá. Rakti hann ítarlega
þróun máia frá því Frosti hf. inn-
leysti öll hlutabréfin önnur en bréf
hreppsins á síðastliðnu ári, og
hvemig staðið var að breytingum á
samþykktum hlutafélagsins til að
treysta áhrif hreppsins á stjóm fyr-
irtækisins.
Innlausnarverð bréfanna sem
keypt vom nam 70,3 milljónum
króna og átti að greiða helminginn
út á árinu en hitt á 7 ámm verð-
tryggt með 2% ársvöxtum.
Þá var staðan sú, að Súðavíkur-
hreppur átti 42,57% hlutaQár, en
Frosti hf. 57,43%. Samkvæmt lög-
um má hlutafélag aðeins eiga 10%
hlutafjár í sjálfu sér, svo selja varð
innan skamms tíma 47,43% hluta-
Qárins.
Hreppurinn notaði tækifærið á
meðan hann átti alla stjómarmenn-
ina í Frosta hf. til að breyta
samþykktum þess til þess að
tryggja:
1. Að atvinnustarfsemin væri að
mestu bundin við sveitarfélagið. 2.
Aðild hreppsins að stjóm félagsins.
3. Að. þessum samþykktum yrði
ekki raskað þótt aðrir kæmust í
meirihlutaaðstöðu. 4. Að koma
þessum breytingum á áður en haf-
ist væri handa við sölu hlutabréfa.
Lögmaður ráðinn
Stjómin réð Jónatan Sveinsson
hæstaréttarlögmann til að móta til-
lögur í þessa veru, sem hann lagði
síðan fyrir framhaldsaðalfund í
Frosta hf. að kvöldi 27. október sl.
Fundinn sátu allir aðalmenn í
hreppsnend og lýstu allir ánægju
sinni með tillögumar. Hluthafa-
fundur var svo boðaður í Frosta hf.
15. desember, þar sem tillögumar
vom lagðar fram og samþykktar. í
6. málsgrein segir að enginn megi
eiga hærra hlutfall í félaginu en
48% af virku hlutafé. Stjóm skal
skipuð 3 mönnum. Hluthafar kjósa
2, en hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
hefur rétt til að tilnefna einn aðal-
mann í stjóm meðan hreppurinn á
ekki minna en 11% af hlutafé.
Lengra ekki hægt
að ganga
Auðunn taldi að ekki yrði hægt
að ganga lengra í að tryggja hags-
muni hreppsins ef fást ættu aðilar
til að kaupa það hlutafé sem falt
yrði. Væri litið svo á að hrepps-
nefndin teldi ekki kappsmál að hafa
frekari afskipti af fyrirtækinu, en
þama kæmi fram. Taldi hann að
það hefði verið undirstrikað þegar
hreppsnefndin hafnaði forkaups-
rétti á fundi sínum 15. desember.
Óheilindum og trúnað-
arbrotum vísað á bug
Áburði og óheilindi og trúnaðar-
brot vísaði Auðunn afdráttarlaust á
bug. Hann sagði að eftir að hrepp-
urinn hefði hafnað forkaupsrétti
hafi þeir sem seinna stóðu að stofn-
un hlutafélagsins Togs rætt um að
taka höndum saman um lausn á
vandanum. En það var samdóma
álit þeirra að ekki kæmi til greina
að kaupa hluti fyrr en bréfin hefðu
verið boðin út eins og gert var.
Auðunn sagði jafnframt að hann
og Jónatan Ásgeirsson hefðu báðir
samþykkt það að bjóða starfsmönn-
um Frosta og íbúum hreppsins að
kaupa bréfin á stjómarfundi 15.
desember.
Þegar útboðsfresti lauk höfðu 17.
einstaklingar staðfest kaup á hluta-
bréfum auk þeirra fimmmenning-
anna sem létu það fylgja tilboði sínu
að þeir hygðust stofna félag til
kaupanna. Kauptilboð þessara
fimm aðila var samtals í 43,47%
af hlutafé, sem er rúmlega helming-
ur af virku hlutafé.
Á stjómarfundi 1. maí var gerð
grein fyrir hveijir hefðu samþykkt
kauptilboð félagsins á lögmætan
hátt og framkvæmdastjóra falið að
kalla eftir hlutafjárgreiðslum.
Viljayfirlýsing
Guðmundar Heiðars
kom of seint
Auðunn sagði að viljayfirlýsing
frá Guðmundi Heiðarssyni um kaup
á 20% hlutafjár hefði komið of seint
í óstaðfestu símskeyti, auk þess sem
þá hafi legið fyrir staðfest kauptil-
boð í allt falt hlutafé að undanskild-
um 3%. Því hafi ekki komið til álita
að taka viljayfirlýsinguna alvarlega.
Hvað varðar fullyrðinguna um
vanhæfi Auðuns og Jónatans Ás-
geirssonar til að fjalla um sölu
hlutabréfanna í stjóm Frosta hf. las
Auðunn upp úr álitsbréfi lögfræð-
ings Frosta hf., Jónatans Sveins-
sonar, þar sem segir að þeir sem
vefengja söluna til Togs hf. hafi
ekki vefengt söluna til stjómar-
mannanna sjálfra á hlutabréfum.
Hann segir jafnframt að sá grund-
vallarmisskilningur liggi fyrir að
stjómin hafí verið að semja um
sölu hlutabréfa. Hlutabréfín vom
til sölu á þegar tilgreindu verði, sem
aðrir áttu kost á að nýta sér. Sölu-
skilmálar vom löngu ákveðnir og
almennir og því afgreiðsla stjómar-
innar á erindi þeirra sem sendu inn
tilboð ekki samningsaðgerð heldur
staðfesting á almennum skilmálum.
Samningamir tóku í raun gildi
28. febrúar, þegar útboðsfrestur
hlutafjár rann út, því sölutilboð fé-
lagsins frá 16. janúar er bindandi
fyrir félagið. Lögfræðingurinn lýsir
því síðan yfir að Auðuni Karlssyni
og Jónatani Ásgeirssjmi hafi ekki
borið skylda til að víkja af stjómar-
fundi 1. maí hvorki á gmndvelli
vanhæfisákvæða 56. gr. né annarra
vanhæfísákvæða hlutafjárlaga.
Ekki hagsmunir
hreppsbúa
Auðunn Karlsson sagði að lokum
að hann gæti ekki skilið hvemig
það samræmdist hagsmunum
hreppsbúa að gera tortryggilega
menn á borð við Jóhann Símonar-
son, Jónatan Ásgeirsson og Barða
Ingibjartsson skipstjómarmenn á
skipum félagsins til margra ára og
Ingimar Halldórsson framkvæmda-
stjóra. Það hljóti að vera langsótt
og torskilin rök að eignarhald þess-
ara manna á hlutafé í Frosta hf.
skuli nú vera talin varhugaverð
hagsmunum félagsins og þá um
leið hagsmunum starfsmannafé-
lagsins og í raun allra Ibúa hrepps-
ins.
Auðunn sleit
samstarfinu
Sigríður Hrönn Elíasdóttir vara-
oddviti var næst á mælendaskrá.
Hún gagnrýndi mjög vinnubrögð
Auðuns Karlssonar og sagði að
hann hefði slitið meirihlutasam-
starfinu við félaga sína á S-listanum
og tekið upp meirihlutasamstarf við
A-listann. Gat hún þess að enginn
fundur hefði verið haldinn í hrepps-
nefnd á meðan hlutabréfin vom til
sölu. Sagðist hún hafa gagnrýnt
að hreppsnefnd skyldi ekki vera
látin fylgjast með framvindu mála.
Á aðalfundi Frosta hf. á síðastliðnu
ári gerði Auðunn það að kröfu að
aðeins einn maður færi með at-
kvæði hreppsins á aðalfundinum,
en Hálfdán Kristjánsson vildi að
hreppsnefndin öll mætti á fundinn
og skipti með sér atkvæðum hrepps-
ins. Áuðunn hótaði að taka upp
samstarf við A-listann ef samstarfs-
menn hans féllust ekki á tillöguna
um einn fulltrúa. Kom það síðan í
ljós á hreppsnefndarfundi 3. ágúst
í fyrra þegar fulltrúar A-listans
greiddu tillögu Auðuns atkvæði.
Nýr meirihluti
Þar með var í raun kominn nýr
meirihluti í hreppsnefnd. Tveir full-
trúar A-lista með Auðuni Karlssyni
oddvita af S-listanum. Hún sagðist
líta þannig á að Auðunn treysti
henni ekki til að fara með 'Aat-
kvæða Súðavíkurhrepps á aðalfundi
Frosta hf. þess vegna hefði það
komið henni mjög á óvart þegar
Auðunn bauð henni sæti í stjóm
Frosta hf. auk þess að vera ráð-
gjafi sinn í stjóminni. Hún neitaði
því þar sem hún leit þannig á að
Auðunn Karlsson vildí leika einleik
í málinu og hafa svo einhveija leppa
til að fylla í skörðin. Sagðist hún
ekki vilja vera neitt peð í leik sem
Auðunn Karlsson stjómaði.
Borgarafundur var haldinn í
Súðavík 25. september á sfðastliðnu
ári. Þá svaraði Auðunn fyrirspum
um upplýsingastreymi frá Frosta
hf. að það stæði til bóta. Á hrepps-
nefndarfundi 23. október er sama
staðan. Engar upplýsingar. Þá lagði
Sigríður Hrönn fram bókun í
hreppsnefnd um að þar sem bæði
oddviti og sveitarstjóri sætu í stjóm
Frosta hf. gagnrýndi hún að engar
upplýsingar hefðu fengist um gang
mála í fyrirtækinu. A sama fundi
ætlaði oddviti að sögn Sigríðar
Hrannar að knýja fram ákvörðun
um höfnun á forkaupsrétti á hluta-
bréfum. Á þessum sama fundi voru
lagðar fram tillögur að breytingum
á samþykktum Frosta hf. Hálfdán
Kristjánsson taldi það siðlaust að