Morgunblaðið - 16.05.1987, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ1987
25
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
A borgarafundinn mœttu rúmiega hundrað manns, sem er yfir 2/s af atkvæðisbærum mönnum i hreppnum. Mjög heitar umræður urðu
um málin, þar sem sjónarmið Auðuns Karlssonar og Hálfdáns Kristjánssonar skiptu fólki i tvo hópa. Þó bar nokkuð á þvi að fólk teldi að
þama væri einungis um að ræða valdabaráttu þessara tveggja manna og krafðist meðal annars einn hreppsnefndarmanna, Hrafnhildur
Þorsteinsdóttir, þess að þeir létu af þessu einkastríði.
ætla að knýja fram afgreiðslu um
að hafna forkaupsréttartilboði, án
þess að hreppsnefndin vissi hveiju
hún væri að hafna. Vildi hann fresta
afgreiðslu þar til staða sveitarfé-
lagsins væri ljós.
Vildu meirihluta
hreppsins
Sigríður Hrönn spurði hvort Auð-
unn Karlsson hefði þá þegar verið
farinn að hugsa um stofnun papp-
írsfyrirtækis til að hrifsa undir sig
öll völd í Frosta hf. Á hreppsnefnd-
arfundi tveim dögum síðar lagði
Hálfdán til að hreppurinn nýtti sér
forkaupsrétt. Sigríður Hrönn lagði
til að hreppurinn tryggði sér meiri-
hlutaaðstöðu í félaginu sem bak-
tryggingu. Jafnframt spurði hún
stjómarmennina í Frosta hvort þeir
ætluðu að gæta hagsmuna byggð-
arlagsins. Svöruðu þeir þvi að þeir
ætluðu fyrst og fremst að gæta
hagsmuna sveitarfélagsins. Síðan
selur Auðunn Karlsson sjálfum sér
og sínum meirihluta í félaginu. „Er
hægt að treysta slíkum mönnum?"
spurði Sigríður Hrönn.
Fundir við hentugleika
Hún gagnrýndi einnig fram-
kvæmd oddvitans á fundum hrepps-
nefndar. Sagði hún að oddvitinn
héldi einungis fundi þegar það hent-
aði honum. Gat þess jafnframt að
á fundi í febrúar hefði hann staðið
upp á miðjum hreppsnefndarfundi
og sagst verða að yfírgefa fundinn
vegna anna og beðið Sigríði Hrönn
að taka við án þess að láta hana
vita áður.
Fundur var haldinn í hreppsnefnd
Súðavíkurhrepps 2. maí. Þá höfðu
válegir atburðir gerst sagði Sigríður
Hrönn. Auðunn Karlsson hafði selt
sér og félögum sínum meirihluta í
Frosta hf. Því var ákveðið á fundin-
um að leita allra leiða til að rifta
kaupunum og í framhaldi af því var
svo boðað til þessa borgarafundar.
Leitað til sýshimanns
Beiðni um fund í hreppsnefnd
föstudaginn 8. maí hundsaði Auð-
unn. Haft var samband við sýslu-
manninn í N-ísafjarðarsýslu og
krafðist að hann gætti þess að lög
væru haldin. Hann mun hafa haft
samband við Auðun en tilkynnti
Sigríði Hrönn síðan að Auðunn
ætlaði að kanna réttarstöðu sína í
málinu. Spurði hann síðan hvort
fundurinn væri nauðsynlegur. Það
þótti Sigríði Hrönn einkennilega
spurt. Sagðist ekki sjá að ástæða
væri til að hafa samband við sýslu-
mann nema erindið væri brýnt.
í lok ræðu sinnar skoraði Sigríð-
ur Hrönn Elíasdóttir varaoddviti á
oddvitann Auðun Karlsson að segja
af sér embætti áður en hann yrði
sviftur því.
Óháð Hálfdáni
Jónína Guðmundsdóttir varafull-
trúi A-lista í hreppsnefnd Súðavík-
urhrepps gerði að umræðu sinni
viðtal við Auðun Karlsson sem birt-
ist í Morgunblaðinu. Sagði hún að
Auðunn gæfí það í skyn að þær
Sigríður Hrönn, sem báðar eru
starfsmenn Sparisjóðs Súðavíkur
þar sem Hálfdán Kristjánsson er
sparisjóðsstjóri, létu Hálfdán segja
sér fyrir verkum á hreppsnefndar-
fundum.
Hún sagðist ekki láta Hálfdán
Kristjánsson né nokkum annan
segja sér hvað hún ætti að hugsa,
segja eða gera.
Hún sagði að það væm ekki
margir sem hefðu kjark til að selja
sjálfum sér hlutabréfín í Frosta hf.
Hún sagði það vera langt gengið
ef Auðunn Karlsson væri orðinn
hræddur við hana, auma einstæða
móður, sem að vísu borgaði hærri
skatta en hann, eignamikli og tekju-
hái maðurinn.
Svala valdagræðgi
Hálfdán Kristjánsson sagði í upp-
hafi ræðu sinnar að hann teldi að
aðferðir eigenda Togs hf. við að
komast yfír meirihluta hlutabréfa í
Frosta hf. væm til þess eins að
svala valdagræðgi þessara manna.
S-listamenn lofíiðu því fyrir
síðustu kosningar að beita sér fýrir
umbótum í atvinnumálum Súðavík-
ur en fram til þess tima höfðu
atvinnumálin öll verið á einni hendi.
Úrslit kosninganna virtust svo end-
urspegla þann vilja, en S-listi fékk
hreinan meirihluta í hreppsnefnd.
Beiskur kaleikur
ósigursins
Börkur Ákason, sem var helsti
hvatamaður að A-Iistanum, játaði
sig sigraðan og hafði sig í burtu
af staðnum. Hann er beiskur kal-
eikur ósigursins, þegar mikið er
lagt undir, sagði Hálfdán. Börkur
bauð hlutabréf sín til kaups fyrir
100 milljónir, en Frosti hf. bauð
honum 36,5 milljónir. Hálfdán tók
þátt í þeim samningaviðræðum
vegna tengsla við hluthafa. Hann
segir að Auðunn hafí þá komið að
máli við sig og sagt að hann hafi
gert Berki 50 milljóna króna tilboð
í bréfín, þar sem hann telji að með
því megi leysa málin. Hálfdán seg-
ist þá hafa mótmælt þessum
vinnubrögðum oddvitans, þar sem
hreppsnefnd hafí ekki verið gert
grein fyrir stöðu mála. Börkur hafði
svo samband um kvöldið og urðu
niðurstöður viðræðna þær að hann
seldi sinn hlut fyrir 52,3 milljónir.
Skrifað undir
Laugardaginn 5. júlí boðar svo
Karlsson til fundar eins og Hálfdán
orðaði það og tilkynnti þá að skrifa
ætti undir samning um sölu á hluta-
bréfunum þá síðar um daginn.
Hreppsnefnd gagnrýndi þessi
vinnubrögð, en þá varð kappinn sár
og sagðist bara vera að gæta hags-
muna hreppsins. Hann sagði að
hreppsnefndin gæti bara fellt sam-
komulagið. Hálfdán sagðist þá hafa
bent honum á að það þyrfti ekki
nema tvo menn í stjórn Frosta hf.
til að samþyklqa samkomulagið og
víst væri að hvorki Kristján Svein-
björnsson né Ólafur heitinn Gísla-
son myndu taka orð sín til baka
um það samkomulag sem þama
hafði náðst.
Sú staða sem oddvitinn hafði nú
komið hreppsnefndinni í var svipuð
og hjá sjálfstæðismönnum þegar
Þorsteinn Pálsson hafði rekið rýt-
inginn í bakið á Berta. Þeir urðu
að bakka hann upp, það var engin
leið til baka.
Hálfdán sagði að Auðunn hefði
borið það á sig í tveggja manna
tali að hann ætlaði að sölsa undir
sig völdin í Frosta með hlut föður
síns og aðstöðu varaoddvitans.
Hræðslubandalag
Á fundinum gerðist það svo að
oddvitinn gerði hræðslubandalag
við A-listann. Lista sem hafði verið
settur honum til höfuðs við síðustu
kosmngar.
Ástæðan fyrir hræðslubandalag-
inu sagði Hálfdán að hefði verið
að Auðunn hefði óttast að ein ættin
kæmi í stað annarrar og engir
molar myndu hijóta af borðinu nið-
ur á gólf til hans.
Hálfdán rakti síðan aðdragand-
ann að útboðinu á hlutabréfunum
og sölu þeirra og sagðist draga í
efa að fímmmenningamir hefðu
skilað inn tilboðum sínum á tilsett-
um tíma. Lokaorð hans vom:
I raun okkar eigu
„Eigum við að sætta okkur við
það, að það tækifæri sem við höfð-
um til að ráða okkur sjálf renni úr
greipum okkar? Eigum við að sætta
okkur við það að þurfa að lifa og
hrærast eins og ófrjálst fólk? Eigum
við að þurfa að líta upp til hús-
bændanna, sem hafa nú sölsað
undir sig með þessum siðlausa
hætti, sem við höfum orðið vitni
að, það sem er í rauninni okkar eign.
Súðavíkurhreppur átti þetta fyr-
irtæki. Eigum við að kijúpa á kné
og kyssa á vöndinn. Ef við viljum
það skulum við fara heim nú þeg-
ar. Ef ekki þá skulum við krefjast
þess, hér og nú, hvert einasta
mannsbam, að þau vinnubrögð sem
hér hefur verið lýst nái ekki fram
að ganga. Hvorki nú né í nokkurri
næstu framtið. Við erum fijálst
fólk. Við höfum rétt til að taka eig-
in ákvarðanir, og okkur á að líðast
að hafa skoðanir á mönnum og
málefnum." Síðan endaði hann
ræðu sína með erindi úr aldamóta-
kvæði Einars Benediktssonar:
Sjá hin ungboma tíð, vekur storma og stríð.
leggur stórhuga dðm á feðranna verk.
Heimtar kotungum rétt, og hin kúgaða stótt,
hristir klafann af sér, hún er voldug og sterk.
Einkastríð Auðuns
og* Hálfdáns
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir
sagðist ekki hafa setið hrepps-
nefndarfundinn þar sem ákveðið
var að reyna að ógilda söluna á
hlutabréfunum í Frosta hf. Hún
sagði að sér virtist að þama væri
Hálfdán Kristjánsson að fínna sér
leið til að heyja sitt einkastríð við
Auðun Karlsson. Hún sagði að mik-
ilsVert væri að fólk reyndi að draga
réttar ályktanir af orsökum þessara
átaka. Sagðist hún óttast að þessi
deila gæti dregið alvarlegan dilk á
eftir sér. Að máttarstólpar atvinnu-
lífsins á staðnum hyrfu frá Súðavík
vegna grófra aðdróttana um óheil-
indi og jafnvel afbrot. Er ekki
kominn tími til að þeir Hálfdán
Kristjánsson og Auðunn Karlsson
dragi ályktanir af þessari stað-
reynd. Ánnaðhvort með því að
setjast niður og gera út um þessar
deilur sín á milli eða hverfa báðir
úr hreppsnefnd. Mikilvægast er að
menn geri sér grein fyrir því að
þessi deila er rekin undir fölskum
formerkjum, meðal annars með því
að kasta á milli sín fjöreggi byggð-
arlagsins, sjálfum afkomumögu-
leikum fólksins. Hvað varðar
fullyrðingar Hálfdáns um að búið
hafí verið að gera samning við tvær
stúlkur í þorpinu um umboðshald
fyrir Skeljung hf., en Hrafnhildur
er núverandi umboðsmaður, sagðist
hún hafa fengið aðrar upplýsingar.
Að stilla saman strengi
Þegar hreppsnefndarmenn höfðu
lokið máli sínu var orðið gefið laust
og tók Sesselja Þórðardóttir fyrst
til máls. Hún sagði að fyrsta verk-
efni sveitarstjómarmanna ætti að
vera að stilla saman strengi sína
svo úr yrði sami hljómur. Hún
spurði hvort stefnuskrármál S-list-
ans frá því í fyrra um að koma
atvinnumálum í byggðarlaginu í
það horf að það yrði öllum til góða
hefði gleymst. Kemur það sveitarfé-
laginu til góða, að allir tekjuhæstu
mennimir skuli vera búsettir í öðr-
um sveitarfélögum? Þá gat hún
þess að hún og maður hennar,
Magnús Þorgilsson, hefðu leitað
eftir kaupum á fískvinnsluhúsum á
Langeyri, en eigendur Frosta hefðu
neitað að selja. Hún sagði að vegna
einræðishneigðar þeirra Frosta-
manna hefðu þau orðið að flytja
búsetu til ísafjarðar þótt þau vildu
miklu heldur búa áfram í Súðavík.
Nýtt Dallas
Ragnheiður Gísladóttir vildi
leggja Qórar spumingar fyrir þá
Auðun Karlsson og Hálfdán Krist-
jánsson. í fyrsta lagi hvort þeir
vissu til hvers þeir hefðu verið kosn-
ir af kjósendum S-listans. í öðm
lagi hvort þeir teldu sig hafa efni
á því að sundra hér öllu, bara vegna
persónulegra deilna sem enginn
annar vildi taka þátt í. í þriðja lagi
hvort það hefði bara verið fyrirfram
ákveðið að Súðavík ætti að vera
eins og eitthvert Dallas, þar sem
allt snerist um deilur við að ná yfir-
ráðum. Og í fjórða lagi vildi hún
spyija Háifdán Kristjánsson að því,
hvort hann, ef hann næði yfírráð-
um, ætlaði að stjóma Frosta í
gegnum síma eins og hann hefur
stjómað Sparisjóði Súðvíkinga und-
anfarin ár. Hvort hann teldi það
vænlegt?
Guðfaðir A-listans
Heiðar Guðbrandsson sagðist
hafa átt sæti í síðustu hreppsnefnd.
Hann hefði hinsvegar ekki ætlað í
framboð aftur, en sagðist hafa ver-
ið guðfaðir að A-listanum í fyrra.
Sá listi hefði aðeins haft einn meg-
intilgang. Það væri að koma í veg
fyrir að þessi „kvikindi", Auðunn
Karlsson og Hálfdán Kristjánsson,
næðu völdum í sveitarfélaginu.
Síðan breyttust viðhorf á A-listan-
um og hvarf Heiðar frá honum og
hóf störf utan byggðarlagsins. Þó
fór það svo að þriðji listinn kom
fram og var Heiðar efsti maður á
honum. Hann sagði að megintil-
gangur listans hefði verið að þjappa
fólki saman um það fyrirtæki sem
þau áttu þá, undir stjóm Barkar
Ákasonar. Þá þóttu S-listamönnum
það hlægileg markmið.
Heiðar féll
Listi Heiðars náði ekki kjöri og
voru skýrar kosningar milli þeirra
sem vildu Börk og þeirra sem vildu
Hálfdán og Auðun. Þó taldi hann
að fólk hefði ekki viljað Auðun,
enda hafí hann lagt á það áherslu
að hann næði ekki kjöri sem þriðji
maður á S-lisa. Heiðar gagnrýndi
vinnubrögð Auðuns í síðustu
hreppsnefnd. Sagði að hann hefði
á fyrsta ári viljað selja hlutabréf
hreppsins í Frosta. Það þyrfti að
auka völd fólksins í fyrirtækinu.
Heiðar taldi að þama væri maðkur
í mysunni og sagðist hafa bent
mönnum á það. Hann sagðist jafn-
framt oft hafa átt í útistöðum við
Börk Ákason, en þeir hefðu alltaf
getað jafnað sín mál. Sagðist oft
hafa sagt að ekki væri hægt að
gera ráð fyrir atvinnurekanda sem
menn væm alltaf sáttir við.
Þá ertu bara rekinn
Núna höfum við fyrirtæki sem
við getum ekki átt í útistöðum við.
Ef þú ert ekki á sömu skoðun núna,
þá ertu bara rekinn. Hann sagðist
hafa varað Súðvíkinga við hvað
væri að gerast í málefnum Auðuns
Karlssonar og Barkar Ákasonar og
spurði fundarmenn hvað hefði kom-
ið á daginn. Óskhyggja þeirra eða
skoðanir hans.
H. Krisljánsson
Hálfdán Kristjánsson tók aftur
til máls og gat þess að Auðunn
hefði bent sér á það á síðastliðnu
hausti að til þess gæti komið að
þeir yrðu að taka höndum saman
um að leysa hlutabréfamál félags-
ins. Hálfdán hefði hafnað því,
sagðist efast um heilindi Auðuns,
auk þess sem hann hefði stofnað
sitt eigið fyrirtæki, H. Kristjánsson
hf., og hefði verið að afla því fyrir-
tæki viðskipta. Hann sagði að
breytingar væru að verða á eignar-
aðild atvinnufyrirtækja og sagðist
hafa reifað hugmyndir sínar um
valdskiptingu í Frosta hf.
Fyrirtæki fólksins
í þriggja manna stjóm sæti einn
fulltrúi frá hreppnum, sem ekki