Morgunblaðið - 16.05.1987, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
V estur-Þýskaland;
Kohl kanslari leggst gegn
tillögn Sovétstj órnarimiar
Ógnvænlegustu vopnin undanskilin
Bonn, Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, hefur vísað á bug
tillögu Sovétmanna um uppræt-
ingu skammdrægra kjaraorku-
flauga. Talsmaður stjórnarinnar
birti í gær yfirlýsingu frá Kohl
þar sem hann sagði tillögur Sovét-
stjóraarinnar ógna öryggishags-
munum Vestur-Þýskalands.
Hvatti kanslarinn til þess að stór-
veldin semdu um algera uppræt-
ingu þeirra kjamorkuflauga sem
draga allt að 1.000 kílómetra.
„Samkomulag sem tekur aðeins
til skammdrægra flauga, sem draga
500 til 1.000 kílómetra, undanskilur
þau vopn sem ógna landi okkar. Því
verður samningur að taka til allra
þeirra kjamorkuflauga sem draga
allt að 1.000 kílómetra," sagði í yfír-
lýsingu kanslarans.
Ef gengið yrði að þessari kröfu
kanslarans þyrftu samningamenn
risaveldanna að komast að sam-
komulagi um upprætingu 10.000
kjamaodda til viðbótar, að mati sér-
fræðinga. Að auki yrðu þeir að taka
til við að ræða vopnabúnað sem aldr-
ei hefur borið á góma áður í af-
vopnunarviðræðum m.a. sökum þess
að hér er um gríðarlega flókinn
málaflokk að ræða. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Atlantshafsbandalag-
inu og Alþjóðlegu herfræðistofiiun-
inni í London (IISS) eru um 11.600
kjamaoddar í flaugum sem draga
skemur en 500 kílómetra. Eru oddar
þessir bæði í flugvélum og vígvallar-
vopnum af öllum hugsanlegum
gerðum. Ef vopn þessi yrðu jafn-
framt tekin til umræðu í Genf væm
hinar 'ýmsu samninganefndir í raun
að ræða um niðurskurð allra kjam-
orkuvopna í vopnabúrum stórveld-
anna. Vígvallarvopnin eru færanleg
og því yrði óhemju erfitt að semja
um fullnægjandi reglur varðandi eft-
irlit.
Helmut Kohl lagði ennfremur
áherslu á að hann styddi tillögu um
upprætingu meðaldrægra kjamorku-
flauga og kvaðst hann vænta þess
að þeir Ronald Reagan Bandarílqa-
forseti og Mikhail Gorbachev Sovét-
leiðtogi undirrituðu samkomulag
þessa efnis á þessu ári. „Stjómin
mun því styðja Reagan forseta eftir
megni í þeim samningaviðræðum,"
sagði í yfírlýsingu hans.
Deilur hafa verið innan stjómar
Kohls um hvemig bregðast eigi við
tillögu Sovétstjómarinnar frá því í
síðasta mánuði um útrýmingu
skammdrægra og meðaldrægra
flauga í Evrópu en þær draga 1.000
til 5.000 kílómetra. Flokkur Kohls,
kristilegir demókratar, hefur lýst sig
andvígan þessari tillögu en Hans-
Dietrich Genscher utanríkisráðherra
og flokkur hans, ftjálsir demókratar,
telur að ganga beri að henni.
Tilkynningin kom mjög á óvart
og er talið víst að hún muni síst
verða til þess að lægja deilumar.
Talsmaður stjómarinnar sagðist ekki
vita til þess að yfirlýsing kanslarans
hefði verið borin undir Genscher ut-
anríkisráðherra og flokk hans.
Júrgen Chrobog, talsmaður Gensc-
hers, vildi ekki tjá sig um yfírlýsing-
una og bar því við að hún hefði komið
sér gjörsamlega á óvart. Wolfgang
Mischnik, formaður þingflokks
fijálsra demókrata, sagði að tilkynn-
ing kanslarans væri ekki lokayfirlýs-
ing stjómarinnar. Talsmaður
Jafnaðarmannaflokksins sagði að
með þessu vonaðist Kohl til að fyrir-
byggja að samningaviðræður risa-
veldanna í Genf bæru árangur.
Talsmaður stjómarinnar vildi á
hinn bóginn ekki tjá sig um yfírlýs-
ingu bresku ríkisstjómarinnar frá því
á fimmtudag þess efnis að stjómin
gæti fallist á tillögu Sovétmanna
með ákveðnum skilyrðum. Yfirlýs-
ingin kom stjóm Kohls í opna skjöldu
því hún hafði vænst þess að aðild-
arríki Atlantshafsbandalagsins biðu
þess að vestur-þýska ríkisstjómin
kæmist að sameiginlegri niðurstöðu.
Bretland:
Samþykkja tillögnrnar
með vissum skilyrðum
f yinrlnn Ronfnp
London, Reuter.
BRESKA rikisstjórnin lýsti yfir þvi á fimmtudag að hún gæti fallist á
tillögu Sovétstjómarinnar um upprætingu meðal- og skammdrægra
kjaraorkuflauga með ákveðnum skilyrðum. Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins birti tilkynningu þessa og sagði stuðning ríkisstjómarinnar
bundin þvi skilyrði að öryggishagsmuna Vestur-Evrópuríkjanna yrði
gætt í hvivetna.
Var þetta fyrsta í fyrsta skipti sem
ríkisstjómin tjáir sig um tillögu Sov-
étmanna og kom tilkynningin á
óvart. Talsmaðurinn minnti á að
Atlantshafsbandalagið hefði lengi
hvatt til þess að samið yrði um tak-
mörkun skammdrægra kjamorku-
flauga. Almennt er litið svo á að
afstaða bresku ríkisstjómarinnar
skipti miklu um sameiginlega stefnu-
mótun Atlantshafsbandalagsins. Hið
sama gildir raunar um vestur-þýsku
ríkisstjómina i, sem er klofin í af-
stöðu sinni, en er ósammála bresku
ríkisstjóminni ef marka má yfirlýs-
ingu Heimuts Kohl kanslara frá í
gær.
Að sögn breskra embættismanna
er stjómin reiðubúin til að sam-
þykkja tillögu Sovétsyómarinnar
með því skilyrði að samið verði sam-
hliða um upprætingu meðaldrægra
og skammdrægra flauga. Sovét-
stjómin hefur á hinn bóginn lagt til
að samið verði sérstaklega um þær
skammdrægu. í annan stað vill
breska ríkisstjómin að fyrir liggi
skýrar og afdráttalausar reglur um
eftirlit. Einnig að samkomulag risa-
veldanna taki ekki til 72 Pershing
Ia eldflauga sem vestur-þýski flug-
herinn ræður yfír en Bandaríkjaher
ræður á hinn bóginn yfir þeim
kjamaoddum, sem unnt er að koma
fyrir í þeim. Loks krefst ríkisstjómin
þess að stórveldin semji um algera
útrýmingu skammdrægra flauga
hvar sem þær er að finna í heiminum
þannig að samkomulagið taki ekki
einvörðungu til Evrópuflauganna
svonefndu.
Embættismennimir bentu á að tvö
síðastnefndu atriðin kynnu að valda
deilum þar eð Sovétríkin hefðu kraf-
ist þess að samið yrði um Pershing
Ia flaugamar og að í tillögum þeirra,
sem lagðar hefðu verið fram í Genf,
væri gert ráð fyrir að einungis yrði
samið um Evrópuflaugamar.
Byttíngm á Fíji ógnun við
stöðugleika í S-Kyrrahafí
Sydney, Reuter.
BYLTINGIN á Fiji hefur skotíð leiðtogum eyrílqa á Kyrra-
hafi skelk í bringu. í þessum heimshluta hefur löngum
ríkt pólitískur stöðugleiki, en nú óttast embættís- og áhrifa-
menn að byltingin kunni að stefna honum í hættu. Kunnugir
telja að byltíngin gæti orðið til þess að draga úr vestrænum
áhrifum í Suður-Kyrrahafi og leiða til aukinnar spennu þar.
Reuter
Kvikmyndaleikkonan vinsæla
Rita Hayworth þegar hún var
upp á sitt bezta. Hún lezt í
gær á 68. aldursári eftir lang-
varandi baráttu við Alzheim-
ir-sjúkdóminn.
Rauðhærða
kynbomban
Rita Hay-
worth látín
New York, Reuter.
RITA Hayworth, kvik-
myndaleikkonan vinsæla,
og rauðhærða kynbomban,
eins og hún var oftast
nefnd, lézt í gær á heimili
dóttur sinnar eftir langvar-
andi baráttu við Alzheimer-
sjúkdóminn.
Rita Hayworth fæddist 7.
október árið 1919 í New York
og var því á 68. aldursári. Uppr-
unalegt nafn hennar var
Margarita Cansino. Hún var
dóttir dansara og byijaði að
sýna með foreldrum sínum að-
eins sex ára gömul. Starfsmað-
ur 20th Century-Fox
kvikmyndafyrirtækisins sá
hana á leiksviði í Mexíkó þegar
hún var 16 ára og bauð henni
til Hollywood til reynslu.
Fyrsta kvimyndahlutverk
hennar var dansatriði í mynd-
inni „Dante’s Inferno" en hún
sló síðan í gegn árið 1939 með
leik sínum í kvikmyndinni „Only
Angels Have Wings“. Hún var
síðan ein skærasta stjarna
Hollywood á fímmta áratugnum
og vann hvem leiksigurinn af
öðrum. Metaðsókn var að mynd-
um hennar.
Ljósmjmd af leikkonunni í
svörtum blúndunáttkjól var eft-
irsótt í heimsstyijöldinni síðari
og prýddi skála bandarískir
dáta. Mynd af henni var einnig
Iímd á aðra lqamorkusprengj-
una, sem varpað var á Japan.
Rita Hayworth gekk fímm
sinnum í hjónaband og var brúð-
kaup þeirra Aly Khan, sem var
frægur glaumgosi, víðfrægt.
Eignuðust þau dótturina Yasm-
in Khan, sem annaðist móður
sína síðustu árin, meðan hún
barðist við Alzheimir-veikina.
Jafnframt óttast menn að Líbýu-
menn, sem reynt hafa að tryggja
sér áhrif á Suður-Kyrrahafi, not-
færi sér ástandið á Fiji til að ala á
óvild þar.
Bob Hawke, forsætisráðherra
Ástralíu, sagði í gær að ekkert benti
til þess að erlent ríki stæði á bak
við valdaránið. Hann sagði það hins
vegar eiga sér stað á sama tíma
og reynt væri að stuðla að sundr-
ungu annars staðar á Kyrrahafinu,
en þar átti hann við undirróður
Líbýumanna í þessum heimshluta.
Eyríkið Vanuatu hefur sætt harðri
gagnrýni fyrir að koma á formlegu
sambandi við Líbýu, sem heitið hef-
ur uppreisnaröflum á svæðinu
stuðning, einkum í Nýju Kaledóníu,
sem lýtur frönskum yfírráðum.
Walter Lini, forsætisráðherra
Vanuatu, sagði i gær að byltingin
á Fiji gæti haft „óheppilegar afleið-
ingar" fyrir jaftivægi á svæðinu.
Hvatti hann Fijimenn til þess að
endurreisa lýðræðið sem fyrst ð&
það án ótilhlýðilegra utanaðkom-
andi áhrifa. í síðustu viku bannaði
Lini áströlskum og nýsjálenskum
herskipum og -flugvélum að koma
til Vanuatu.
Bandaríkjamenn, Bretar, Ástral-
ir og Nýsjálendingar hafa fordæmt
byltinguna. Sovétmenn vinna ötult
að því að ná auknum áhrifum í
þessum heimshluta en stjómin í
Kreml hefur þó ekki tekið afstöðu
til atburðanna á Fiji. Hin opinbnera
fréttastofa TASS birti þó frétt um
byltinguna í gær og segja stjóm-
málaskýrendur að efnistökin í
fréttinni bendi til að sovézkir leið-
togar hafi ekki verið yfir sig hrifnir.
Embættismenn og leiðtogar
eyríkja í Suður-Kyrrahafí hafa lýst
andúð sinni á því að Ratu Sir Kame-
sese Mara, fyrrum forsætisráð-
herra, skyldi hafa lagt byltingar-
mönnum í hemum lið. Mara var
forsætisráðherra Fiji í 17 ár, eða
þar til flokkur hans, Sambands-
flokkurinn, beið lægri hlut í kosn-
ingum 12. apríl sl. Mara var
ennfremur vel liðin leiðtogi Suður-
Kyrrahafsráðsins, sem 13 eyríki
eiga aðild að. Gremst nú leiðtogum
þessara ríkja að Mara skuli hafa
lagst á sveif með byltingarmönnum
og verið í foiystu fyrir því að ógilda
stjómarskrá^em hann átti sjálfur
stærstan þátt í að rita fyrir 17
ámm.
Framganga Mara gæti beinlínis
orðið til þess að einangra byltingar-
stjómina á Fiji og valda ringulreið
í Suður-Kyrrahafsráðinu, en leið-
togafundur þess er fyrirhugaður í
Apia, höfuðborg Vestur-Samóa,
eftir tvær vikur.
Eitt þeirra mála, sem líklega
verður fjallað um á fundinum, er
hvort viðurkenna beri byltingar-
stjómina, en það mál gæti allt eins
klofíð samtökin, að sögn kunnugra.
Lini, forsætisráðherra Vanuatu,
sagði í gær að ef Ástralíumenn
reyndu að bendia Líbýumenn við
atburðina á Fiji og gera samband
þeirra við Kyrrahafsríki að máli á
fundinum í Apia, kynni það að
marka upphafið að endalokum ráðs-
ins. Vanuatumenn hafa ekki aðeins
sætt gagnrýni fyrir vinskap sinn
við Líbýumenn. Það mæltist heldur
ekki vel fyrir er þeir gerðu nýlega
fískveiðisamninga við Sovétríkin,
en með því tryggðu Sovétmenn sér
hafnaraðstöðu á Suður-Kyrrahafí í
fyrsta sinn.
í maí 1980 sendi Papua . New
Guinea herlið til Vanuatu til að
bæla niður uppreisn manna, sem
risið höfðu upp gegn stjóm landsins
og náð ejmni eyjanna, Espiritu
Santos, á sitt vald. Háttsettur emb-
ættismaður í Papua New Guinea
sagði hins vegar í gær að um allt
annað ástand væri að ræða á Fiji
og útilokaði íhlutun þar.
Ástralir og Nýsjálendingar eru
hins vegar með herskip við Fiji og
hvomgt ríkjanna hefur viljað úti-
loka fhlutun. Vestrænir stjómarer-
indrekar sögðu í gær að íhlutun
mundi mælast illa fyrir meðal íbúa
annarra ríkja f Suður-Kyrrahafí,
sem vom nýlendur þar til þau hlutu
sjálfstæði tiltölulega nýlega.
Sérfræðingar á sviði vamarmála
segja að byltingin á Fiji muni
eflaust draga úr áhuga manna á
sameiginlegum vömum og öðm
samstarfi á sviði hermála. Það
muni, þegar til lengri tíma er litið,