Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 35
SÖLUGENGIVERÐBRÉFA ÞANN14. MAÍ1987
Einingabréf verö á einingu
Einingabrél 1
Einingabróf 2
Einingabrét 3
Lifeyrisbréf *erð a einlngu
Liloy risbréf
Skuldabréfaútboð
pr. 10.000,- kr.
pr. 10.000,- kr.
IllH
j Verðtryggð veöskuldabréf 2 gjeidd.«*ri
vopr tATr arr'"**rriJ1 nnr, r <tttm TíníTTAqnir
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAI 1987
Ungverskt stjórnarmálgagn:
Raoul Wallenberg var
fangelsaður að ósekju
„Játning“ sovéskra stjórnvalda liggur fyrir
öryggisþjónustunni fyrir að hafa
Búdapest. AP.
DAGBLAÐIÐ Magyar Hirlap,
sem er málgagn ungversku
ríkisstjórnarinnar, sagði ný-
lega, að fyrir lægi játning“
sovéskra stjómvalda þess efnis,
að sænski diplómatinn Raoul
Wallenberg hefði verið fangels-
aður að ósekju i Moskvu.
í grein, sem birtist í blaðinu,
meðan á þingi Heimsráðs gyðinga
stóð í Búdapest, var enn fremur
ítrekuð sú fullyrðing Sovétsijóm-
arinnar frá 1957, að Wallenberg
hefði látist af völdum hjartaáfalls
í fangavistinni árið 1947, 34 ára
að aldri. Margir þeirra, sem dva-
list hafa í sovéskum fangelsum,
telja sig þó hafa séð Wallenberg
eftir þann tíma - jafnvel nýverið.
í bréfi, sem systir Wallenbergs
ritaði og lesið var á þinginu við
sérstaka athöfn til minningar um
bróður hennar, heldur hún fram,
að hann sé enn á lífi, og biður
hún heiminn um hjálp til að ná
fanganum út úr Sovétríkjunum.
Raoul Wallenberg
Magyar Hirlap sakar Viktor S.
Abakumov, sem var yfirmaður
leynilögreglu sovéska hersins
1942-46, um að hafa haldið Wal-
lenberg í fangelsi.
Blaðið gagmýnir einnig ónafn-
greinda yfirmenn f sovésku
gefið sovéskum stjómmálamönn-
um viilandi upplýsingar um mál
Wallenbergs árum saman. Blaðið
hrósar Svíanum fyrir að hafa
bjargað lífi þúsunda gyðinga í
Ungveijalandi með því að útvega
þeim sænsk vegabréf.
Að sögn blaðsins skrifaði A.
L. Smoltsev, yfirmaður Lyuby-
anka-fangelsisins í Moskvu,
Abakumov og bað um leyfi til að
láta fara fram líkskoðun á Wallen-
berg. Svar Abakumovs hljóðaði á
þá leið, að Svíinn skyldi brenndur
þegar í stað.
Magyar Hirlap segir, að Abak-
umov hafi verið dæmdur til dauða
og tekinn af lífi fyrir margvísleg
„glæpaverk". Engin dagsetning
er nefnd í því sambandi.
Þetta var önnur greinin, sem
Magyar Hirlap birti um mál Wal-
lenbergs á um mánaðartíma.
Ungversk stjómvöld hafa látið
gera styttu af Wallenberg til að
heiðra minningu hans.
Austurríki:
Bandaríkjamenn leggja
fram gögn um Waldheim
Stuðningur Austurríkismanna við
forsetann þverrandi
Vfn, Reuler.
BANDARÍKJAMENN lögðu í gær
fram gögn til að sýna fram á hvers
vegna ákveðið var að Kurt Wald-
heim, forseti Austurríkis, skyldi
ekki leyft að koma til Banda-
ríkjanna i einkaerindum.
Þrír háttsettir embættismenn
bandaríska dómsmálaráðuneytisins
afhentu Egmont Foregger, dóms-
málaráðherra Austurríkis, gögn um
feril Waldheims í heimsstyijöldinni
síðari.
Bandaríski sendiherrann í Vín,
Ronald Lauder, var með embættis-
mönnunum og sagði hann við blaða-
menn að það ætti sér engin fordæmi
að bandarísk sljómvöld útskýrðu
ákvörðun um innanríkismál erlendis.
Þetta væri gert að ósk Austurríkis-
manna.
Austurríkismenn hafa sagt að það
sé bæði óskiljanlegt og óréttlátt að
Waldheim skuli hafa verið settur á
lista yfir fólk, sem ekki fær að fara
til Bandaríkjanna vegna gruns um
feril hans í heijum Hitlers. Waldheim
kveðst ekki hafa framið stríðsglæpi
í heimsstyijöldinni.
Lauder ræddi við Franz Vranitzky
kanslara og Alois Mock utanríkisráð-
herra í Vínarborg í gær og sagði að
nú væri komið að Austurríkismönn-
um að ákveða hvemig bmgðist yrði
við.
Bandaríkjamenn hafa aldrei áður
neitað leiðtoga vinveitts ríkis um að
koma til Bandaríkjanna og hefur
þetta mál vakið miklar pólitískar deil-
ur S Austurríki.
Þingheimur lýsti á fímmtudag yfir
stuðningi við Waldheim, en í umræð-
um um tillöguna spmttu upp miklar
deilur um hlut forsetans.
í dagblöðum í gær var vitnað í
gagnrýni þingmanna þriggja af fjór-
um flokkum á þingi á forsetann.
Hið útbreidda dagbiað Kurier sagði
að stuðningur við Waldheim væri ef
til vill að minnka, „en stíflan heldur
enn“.
Hann sakaði Miami Herald um
að hafa framið mannorðsmorð.
En ýmsir stjómmálaskýrendur
segja að ekki hafí verið ódrengilega
vegið að Hart. „Maður rannsakar
vitaskuld ekki kynlíf frambjóðanda
í þaula, eins og t.d. fjármögnun
kosningabaráttu," sagði sljóm-
málaskýrandinn William Schneider.
„Aftur á móti leitar maður að eldin-
um ef reyk leggur til himins. í þessu
tilfelli mátti greina reykjarkóf og
orðrómurinn var þrálátur."
Einnig segja sérfræðingar að
Hart hafi boðið hættunni heim. í
stað þess að svara stuttu og lagg-
ott: „Ykkur kemur þetta ekki við“,
sakaði hann pólitíska andstæðinga
sína um að breiða út slúðursögur
um sig og skoraði á blaðamenn að
fylgja sér við hvert fótmál.
„Blöðin em ekki sek um mann-
orðsmorðið á Gary Hart,“ skrifaði
dálkahöfundurinn Ellen Goodman.
„Við skulum kalla það sjálfsvíg."
En setjum svo að Hart hefði sagt
að kynlífið væri sitt einkamál.
Hefðu blaðamenn átt að halda sig
fjarri? Mikið er deilt um þessa
spumingu.
Dálkahöfundurinn Edwin Yoder
sagði að nánast öll blaðaskrif um
kynlíf stjómmálamanna ættu að
vera utan velsæmismarka til þess
að þeir nytu einhverrar friðhelgi.
Hann spyr hvers vegna J. Edgar
Hoover, fyrmrn yfír maður Banda-
rísku alríkislögreglunnar (FBI),
hafi gert sig sekan um fyrirlitlegt
athæfi þegar sími Martins Luther
King, Jr. var hleraður, en það telj-
ist aðdáunarvert að Miami Herald
skyldi hafa njósnað um Hart að
heimili hans. Margir blaðamenn í
Washington em samþykkir þessu
og segja að blaðamenn eigi ekki
að leggjast svo lágt að njósna um
fólk.
En þessir sömu blaðamenn segja
aftur á móti að réttlætanlegt sé að
greina frá kynlífi manna ef upplýs-
ingar em fengnar eftir hefðbundn-
um leiðum, eins og t.d. frásögn
vitnis.
Sara Fritz, blaðamaður Los
Angeles Times, sagði í sjónvarps-
umræðum að þá og þá aðeins ætti
að greina frá einkalífí stjómmála-
manna ef hætta væri á að hegðan
þeirra gæti dregið úr hæfni þeirra
til að gegna embætti.
Sagt er að John F. Kennedy hafi
átt vingott við flugfreyjur, leikkon-
una Marilyn Monroe, ritara í Hvíta
húsinu og Judith nokkra Campbell,
sem einnig var í tygjum við mafíu-
foringja. Samkvæmt Fritz hefði
aðeins átt að greina frá sambandi
Kennedy við Campbell vegna þess
að hægt hefði verið að nota það til
fjárkúgunar.
Skoðanakönnun Time
í NÝJASTA hefti tímaritsins
Time er birt skoðanakönnun þar
sem leitað er eftir viðhorfi al-
mennings til máls Garys Hart og
umfjöilunar fjölmiðla um það.
Tæpur helmingur aðspurðra
kvaðst telja að Gary Hart hefði
logið er hann neitaði þvi að hafa
haldið við Donnu Rice. 37 pró-
sent sögðu að efasemdir um
hæfni Harts til að gegna forseta-
embættinu hefðu vaknað í kjöl-
far hneykslisins. Hér á eftir fara
spumingamar og svör þeirra
sem tóku þátt í könnuninni.
Hvort þætti þér verra- að Gary
Hart hefði haft samræði við konu
þessa eða ekki sagt bandarísku
þjóðinni sannleikann?
Haft samræði við hana: 7%
Ekki sagt sannleikann: 69%
Tclur þú að efasemdir vakni um
hæfni Harts til að gegna forseta-
embættinu í kjölfar þessa?
Telja efasemdir vakna: 37%
Tefja að svo sé ekki: 60%
Telur þú það rétt eða rangt að
dagblöð og tímarit birti fréttir um
kynlíf forsetaframbjóðenda?
Rétt: 27%
Rangt: 67%
Dæmi: skuldabréf aö nafnverði kr. 100.000,- með 6% vöxtum og 2 gjald. ó
ári. Söluverð yröi kr. 95.000,-
KAUPÞtNG HF
Húsi verslunarinnar ■ sími 68 69 88
Sölustaður Lífeyrisbrefanna er hja Kaupþing hf.
13% av. umfr. verðtr.
11% av. umfr. verötr
Nafnvextir
Lónstimi
103,7% nafnávöxtun
Eigendur Einingabréfa, til hamingju
Við erum
2 ára
• Seld hafa verið 8.500 Einingabréf til 3.300 aðila.
• Verðmæti eigna í ávöxtunarsjóðum Einingabréfa 1,2, og 3
var 1. maí 1987 rúmlega 550 milljónir.
• Nafnávöxtun s.l. 2 ár var 103,7%, sem svarar til 17,1%
ávöxtunar - umfram verðtryggingu á ári.
• >eir sem þess óska, hafa fengið Einingabréf sín greidd út
samstundis.
• Endurskoðandi Einingabréfa 1, 2 og 3 er Endurskoðunar-
miðstöðin hf. -N. Manscher, Höfðabakka 9.
I