Morgunblaðið - 16.05.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
49
I ÞINGHLÉI
STEFÁN
FRIÐBJARNARSON
Þingsályktanir:
Stefnumörkuntíl næstu framtíðar
Morgunblaðið/01. K. M.
Þessir fyrrverandi þingmenn gáfu ekki kost á sér til endurkjörs 1987: Helgi Seljan, Haraldur Ólafsson, Guðmundur J. Guðmundsson
(að baki Haraldar), Þórarinn Siguijónsson, Kolbrún Jónsdóttir, Ellert B. Schram, Kolbrún Jónsdóttir, Garðar Sigurðsson, Stefán
Benediktsson, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Ingvar Gíslason og Pétur Sigurðsson. Hvernig þingsályktunum, sem þau kunna að
hafa staðið að, reiðir af á nýju kjörtimabili, skal ósagt iátið.
Löggjöf er höfuðverkefni
Alþingis, það er að setja lög-
bundnar reglur um gerð
samfélagsins, samskipti þjóð-
félagsþegnanna, réttindi þeirra
og skyldur. Alþingi mótar og
stefnu til næstu framtíðar með
þingsályktunum. Þær hafa ekki
lagagildi, en fela engu að siður
í sér viljayfirlýsingu hins þjóð-
kjörna þings, æðstu valdastofn-
unar lýðveldisins, i þeim efnum
er þær fjalla um. Það er síðan
rikisstjórnar og handhafa
framkvæmdavaldsins að fylgja
þeim eftir, undirbúa mál og
þróa til samræmis við fram-
kominn meirihlutavilja Alþing-
is.
Meðferð ályktunartil-
lagna.
„Tillögur til þingsályktunar
skal bera upp í Sameinuðu þingi
og skulu þær vera í ályktunar-
formi", segir í 28. grein þingskapa
Alþingis. Umræður um slíkar til-
lögur skulu vera tvær. Þingnefnd-
ir §alla yfirhöfuð um tillögumar
milli umræðna.
Við fyrri umræðu hefur flutn-
ingsmaður fimmtán mínútur til
framsögu. Aðrir þingmenn og ráð-
herrar mega tala í allt að átta
mínútur. Hver ræðumaður má
taka tvisvar til máls. Síðan er leit-
að atkvæða um, hvort tillagan
skuli ganga til síðari umræðu, sem
og hvaða þingnefnd skuli fara
ofan í sauma málsins milli um-
ræðna.
Við síðari umræðu gilda ákvæði
36. greinar þingskaparlaga, sem
eru rýmri. Fýrsti flutningsmaður
má taka þrisvar til máls og ein-
stakir þingmenn gera stuttar
athugasemdir, eftir að hafa notað
ræðutíma sinn. Ráðherrar geta
talað eins oft og þeir vilja.
Um þingsályktanir, er fjalla um
stjómskipan, utanríkis- eða vam-
armál, staðfestingu fram-
kvæmdaáætlana, alþjóðasáttmála
eða milliríkjasamninga gilda
ákvæði 36. greinar bæði við fyrri
og síðari umræðu.
Þrátt fyr þá meginreglu að
ályktunartillögu skuli bera upp í
Sameinuðu þingi má leggja slíka
tillögu fram í þingdeild.
Framkvæmdaályktan-
ir.
Sem dæmi um framkvæmdaá-
lyktun má nefna þingsályktun um
vegaáætlun fyrir árin 1987-1990,
sem samþykkt var á síðasta þingi.
Samkvæmt henni hefur Vegagerð
ríkisins til ráðstöfunar 2150 m.kr.
1987, 3,816 m.kr. 1988, 3,912
m.kr. 1989 og 4000 m.kr. 1990.
Vegaáætlun mótar stefnu í þess-
um mikilvæga verkþætti næstu
ár, en nýtt Alþingi ræður hinsveg-
ar ferð, m.a. með ijárlagagerð og
í væntanlegri endurskoðun vegaá-
ætlunar, sem fram fer eftur tvö
ár. Um vegaáætlun hefur verið
fjallað áður í þessum þáttum.
Annað dæmi um fram-
kvæmdaáætlun er þingsályktun
um landgræðslu- og landvemd-
aráætlun fyrir árin 1987-1991,
sem nær til verkefna Land-
græðslu ríkisins, Skógræktar
ríkisins, Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins o.fl.
Fjölþætt ályktunar-
svið
Hér á eftir verða nefnd nokkur
efnisatriði - sýnishom - úr þings-
ályktunum síðasta þings, sem eins
og fyrr segir fela í sér stefnumörk-
un en hafa ekki lagagildi:
* „Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að endurskoða starf-
semi Þjóðhagsstofnunar og meta
hvort ekki sé hagkvæmt að fela
öðram verkefni hennar1'.
* „Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að láta fara fram
könnun á valdi í íslenzku þjóð-
félagi. Könnunin skal fólgin í því
að rannsaka og greina hvernig
háttað er völdum og valdahlut-
föllum stofnana og samtaka, bæði
opinberra og óopinberra"
* „Alþingi álytkar að fela ríkis-
stjórninni að skipa sjö manna
nefnd til að vinna að undirbúningi
þjóðarátaks í umferðaröryggi...".
* „Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að beita sér fyrir að
fram fari skipulegar rannsóknir á
botnlægum tegundum á grann-
slóð og kortlagningu slíkra miða
til að auðvelda veiðar, ekki sízt
innfjarða. Jafnframt verði athug-
uð hagkvæmni í veiðum botn-
lægra tegunda...".
* „Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að hraða undirbúningi
að skipulegri kennslu í ferðamál-
um. Veitt verði menntum í þeim
greinum er tengjast alhliða ferða-
mannaþjónustu...".
* „Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að láta undirbúa löggjöf
um fjármögnunarfyrirtæki".
* „Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að skipa nefnd til þess
að endurskoða gildandi lög sem
fjalla um ábyrgð þeirra sem tengj-
ast húsbyggingum og annarri
mannvirkjagerð".
* „Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að skipa nefnd til að
undirbúa heildarlöggjöf um aug-
lýsingar".
* „Alþingi ályktar að hvetja
til þess að efnt verði til ráðstefnu
hér á landi um vamir gegn meng-
un við ísland og annars staðar í
Norðaustur-Atlantshafi þar sem
sérstaklega verði fjallað um þá
hættu sem fiskistofnum og mann-
vist á þessu svæði er búin vegna
mengunar frá geislavirkum efn-
um“.
* „Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að undirbúa tillögur um
lífeyrisréttindi þeirra sem ein-
göngu sinna heimilis- og umönn-
unarstörfum...".
Aöeins sýnishorn
Þau dæmi um þingsályktanir,
sem hér að framan er drepið á,
era sýnishom en ekki tæmandi
upptalning.
Þessi sýnishom nægja þó til
að sýna fram á, hve fjölþætt þau
verkefni löggjafans era, sem
þannig era á könnunar- og undir-
búningsstigi, en þingsályktun er
á stundum fyrsta skref til fram-
kvæmdákvörðunar eða löggjafar.
Þaun sýna og að löggjafínn
felur framkvæmdavaldinu dijúg-
an hlut í undirbúningi löggjafar.
Framkvæmdavaldið hefur í hendi
sinni, þegar tímatakmörk era ekki
sett, hve hratt það gengur fram
í könnun, undirbúningi og stund-
um framkvæmd efnisatriða í
ályktunum Alþingis.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Sunnudagur 17. maí
Kl. 10.30 Brennlstein8fjöll —
Kistufell. Gengið frá Grinda-
sköröum i Brennisteinsnámurn-
ar og aö gignum Kistufelli. Verö.
600 kr.
Kl. 13.00 Þjóðleið mánaðarins:
Gengiö um gömlu þjóðleiöina frá
Djúpavatni og Lækjarvöllum yfir
Ketilstíg í Sveifluhálsi að hvera-
svæðinu Krísuvík. Létt ganga.
rjölbreytt leið. Verð 600 kr., fritt
f. börn m. fullorðnum. Brottför
frá BS(, bensínsölu.
Kvöldganga á mlðvlkud. 20.
maí. kl. 20.00: Óttarsstaðir —
Lónakot.
Helgarferðir 22.-24. maí. Þórs-
mörk og Eyjafjallajökull — Selja-
vallalaug.
Munið sumarleyfi f Útlvlstar-
skálunum Básum. Pantið
tímanlega. Útivist, Grófinni 1,
sími/símsvari: 14606. Sjáumst.
Útivist, ferðafólag.
Elím, Grettisgötu 62,
Reykjavík
Á morgun, sunnudag, verður
almenn samkoma kl. 11.00.
Ath. breyttan samkomutfma.
Verið velkomin.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag-
inn 17 maí:
1) Kl. 9.00 Skarðsheiðl - Helð-
arhorn (1053 m)
Ekið sem leiö liggur i Svinadal
og lagt upp á fjallið frá Hlfðar
túni eða Eyri. Verð kr. 800.-
2) Kl. 13.00 Seljafjall - Háafell
— Botnsdalur
Gengið frá Litla Botni í Hvalfiröi
upp með Selá og á Selfjall og
Háafell. Verð kr. 600.-
Brottför frá Umferöamiðstööinni,
austanmegin. Farmiðar við bil.
Fritt fyrir böm i fylgd fullorðinna.
Helgarferðir 22.-24. maf: Þórs-
mörk - Eyjafjallajökull.
Gist í Skagafjörösskála/Langa-
dal. Gengið yfir Eyjafjallajökul frá
Þórsmörk og komið niður hjá
Seljavallalaug. Upplýsingar á
skrifstofu Ferðafélagsins.
Ferðafélag íslands.
Amerískir karlmenn
vilja skrifast á við fsl. konur með
vináttu/giftingu í huga. Sendið
uppl. um starf, aldur, áhugamál
og mynd til: Rainbow Ridge, Box
190MB Kapaau, Hawaii 96755.
SKRR
Reykjavíkurmeistarar
Miðvikudaginn 20. mai kl. 20.30
fer fram f Árseli við Rofabæ
verðlaunaafhending fyrir
Reykjavikurmeistaratitla 1987.
Einnig veröa afhent verðlaun i
fyrmakeppni SKRR 1987. Kaffi-
veitingar.
Stjórn SKRR.
Krossinn
Auðbrckku 2 — Kópavojri
Almenn unglingasamkoma f
kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
raðauglýsingar
Ibúðarhúsnæði
Óska eftir íbúðarhúsnæði til leigu. Góð um
gengni. Tryggð og skilvísar greiðslur.
Halldór Lárusson,
sími: 77323.
radauglýsingar
Akureyri
4ra-5 herbergja íbúð óskast til leigu á Akur-
eyri nú þegar (helst í Lundahverfi) fyrir
starfsmann Morgunblaðsins. Góðri um-
gengni heitið. Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Upplýsingar í síma 96-23905 frá kl. 9.00-
18.00 og 96-26392 á kvöldin.
raðauglýsingar
Konur ath!
Verslun til sölu sem gefur mikla möguleika.
Hagstæð leiga. Lítill lager.
Upplýsingar í síma 79061, heimasími 12927..