Morgunblaðið - 16.05.1987, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
55
Söngtónleikar í Ytrí-
Njarðvíkurkirkju
eftir Bjarna J.
Gíslason
Föstudaginn 1. maí sl. hélt Steinn
Erlingsson, bariton-söngvari, tón-
leika í Ytri-Njarövíkurkirkju, við
undirleik David Knowles.
Steinn er Suðumesjabúum að
góðu kunnur, hann söng með Karla-
kór Keflavíkur um áraraðir og hafði
þar mörg einsöngshlutverk á hendi.
Þá hefur hann sungið með Kirkju-
kór Keflavíkurkirkju og farið með
honum til ísraels sem einsöngvari.
Einnig hefur Steinn sungið með
Skagfirsku söngsveitinni og víða
komið fram á skemmtunum og við
hátíðlegar athafnir.
Árið 1985 lauk Steinn einsöngv-
araprófi frá Söngdeild Tónlistar-
skóla Garðabæjar, þar sem hann
naut handleiðslu Snæbjargar Snæ-
bjamardóttur.
Efnisskrá tónleikanna var bæði
vönduð og fjölbreytt, innlend og
erlend lög og óperuaríur. íslensku
lögin Mánaskin eftir Eyþór Stefáns-
son, Þú ert eftir Þórarin Guðmunds-
son og Nótt eftir Áma Thorsteins-
son vom ljúf og áferðarfalleg í
meðferð Steins, en þróttmikil rödd
hans naut sín betur í lögum eins
og t.d. „On the road to Mandaley"
eftir Oley Speaks og Hraustir menn
eftir Sigmund Romberg, en þar fór
hann á kostum. Best fannst mér
Steini takast í Largo at Factotum,
úr Rakaranum frá Sevilla eftir
Rossini, þar sem reynir mikið á
Steinn Erlingsson söngvari.
söngvarann hvað sönghæfni og
túlkun varðar.
Undirleikur David Knowles var
frábær og auðsýnt að þar er mikill
hæfileikamaður á ferðinni.
Tónleikamir vom vel sóttir og
hylltu þakklátir áheyrendur lista-
mennina með blómum og innilegu
lófataki, urðu þeir að endurtaka
mörg laganna.
Höfundur er fyrrv. lögregluþjónn
íKeflavik og tónlistarunnandi.
Allir geta troðið
upp á vísnakvöldi
NAMSKEIÐ UM
AMARKAÐINN
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
Námskeiðið verður í umsjá Sigurðar B. Stefánssonar og Gunnars Helga Hálfdánarsonar með aðstoð
starfsmanna Fjárfestingarfélags íslands, Kaupþings og Verðbréfamarkaðar Iðnaðarbankans.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki í fjármáladeildumfyrirtækja,
opinberra sjóða og lífeyrissjóða og öllum þeim sem hafa áhuga
á verðbréfaviðskiptum.
Skráning þátttakenda og nánari upplýsingar í síma 621066.
Síðastliðið haust efndi Stjómunarfélag íslands til námskeiðs um
Verðbréfamarkaðinn. Námskeiðið þótti vera mjög tímabært því
þekking á eðli þessa markaðar hefur ekki vaxið til jafns við
umfang hans á undanfömum ámm. Nú hefur verið ákveðið að
endurtaka námskeiðið ef næg þátttaka fæst.
Á námskeiðinu hefur verið fjallað um eftirtalda þætti:
- Stefnumótun í íjármagnsuppbyggingu.
- Mat á fjármagnsþörf.
- Æskileg fjármagnsuppbygging.
- Helstu tegundir veröbréfa á innlendum markaöi og helstu form þeirra erlendis.
- Þáttur verðbréfa (hlutabréfa og skuldabréfa) í fjárhagslegri uppbyggingu fyrirtækja, rekstri
og fjárfestingu.
- Tæknilega hliðin: útreikningur gengis, affalla, ávöxtunar og annars kostnaðar.
- Tímaáætlanir við útgáfu og sölu verðbréfa.
- Skattalegar ívilnanir við verðbréfakaup.
- Breytingar á sparifjármarkaðinum og samanburður við ávöxtun spamaðar í viðskiptalöndunum.
- Samanburður á núverandi spamaðarformum.
- Helstu sjónarmið við ákvarðanatöku í verðbréfaviðskiptum: Einstaklingar - fyrirtæki - stofnanir.
- Kröfur Verðbréfaþings íslands - tengsl við verðbréfasala - tengsl við fjölmiðla.
- Ávöxtun innlends sparifjár í erlendum verðbréfum og/eða erlendum gjaldeyri.
- Markaðssetning verðbréfa. |-|—
Tími og staðar:
20.-21. maíkl. 13.00-17.00
í Ánanaustum
TÓNLISTARFÉLAGIÐ Vísna-
vinir heldur svokallað „opið
kvöld“ nk. mánudag, 18. maí.
Verður það frábrugðið venjulegu
vísnakvöldi að því leyti að öllum
er frjálst að troða þar upp.
í fréttatilkynningu frá Vísnavin-
um segir að slík kvöld hafi alltaf
mælst mjög vel fyrir þegar félagið
hefur staðið fyrir þeim og oft hefur
Frá vísnakvöldi.
Vinstrisósíal-
istar með fund
Vinstrisósíalistar efna til fund-
ar laugardaginn 16. maí nk. kl.
14.00 að Hverfisgötu 105.
Á fundinum verður framtíð
vinstrisósíalista rædd og ný viðhorf
sem skapast hafa í vinstrihreyfing-
unni eftir kosningar.
framsögumenn verða Einar D.
Bragason, Gestur Guðmundsson og
Bima Þórðardóttir.
hæfileikafólk einmitt stigið sín
fyrstu skref í sviðsljósinu við þessi
tækifæri. Vísnavinir hvetja því alla,
sem heima sitja og hafa ekki hing-
að til þorað að láta til sín heyra,
að mæta á „opna kvöldið" og leika
þar listir sínar.
„Opna vísnakvöldið" verður að
þessu sinni haldið í Duus-húsi og
hefst það kl. 20.30.
HRINGDU
SÍMINN ER
691140 691141
P»«gnnt>Iahíi»
NtPPARTS
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUMÁ LAGER:
kúplingar,kveikjuhluti;bremsuhluti,
STARTARA, ALTERNATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
FREMSTIR í VARAHLUTUM
BÍLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300