Morgunblaðið - 16.05.1987, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
62
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Þorkell
Hið nýja hús JC á íslandi, Hellusund 3, sem flestir þekkja eflaust
sem aðsetur Verzlunarskóla íslands, en þrátt fyrir að sá skóli sé
á burt munu menn áfram njóta tilsagnar og menntunar í húsinu.
Marta Sigurðardóttir tekur við afsali úr hendi Karls J.
Steingrímssonar. Á myndinni eru einnig Árni Þór Árnason og
Ásgeir Gunnarsson.
ili, síðan aðsetur Verslunarskóla
íslands og nú er húsið orðið heim-
ili JC Ísland. Húsið var teiknað
af Finni Ó. Thorlacius og eru
þýsk einkenni allsráðandi.
Meðal gesta við afhendinguna
var borgarstjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson,_ og einn af elstu
JC-félögunum, Ágúst Hafberg, en
hann var einn af stofnenda hreyf-
ingarinnar árið 1959 og fjórði
forseti JC ísland, 1964—1965.
Marta Sigurðardóttir, lands-
forseti hreyfíngarinnar, tók til
máls og bauð gesti velkomna. Því
næst tók til máls einn þremenn-
inganna, Karl J. Steingrímsson,
formaður húsnefndar. Ræddi
hann meðal annars um þær
hrakningar sem hreyfíngin hefur
orðið að þola síðustu ár og þörfina
á að úr rættist. Það skal tekið
fram að gengið hefur verið frá
leigusamningi á hluta húseignar-
innar til að standa undir eða
fjármagna kaupin að hluta.
Karl rakti feril og framgang
JC íslands og þakkaði leigutökum
fyrir snyrtilegar innréttingar og
góða umgengni. Einnig þakkaði
hann þeim einstaklingum sem
styrktu kaup hússins. Hann lauk
máli sínu með hvatningu til allra
JC-félaga í formi dæmisögu sem
hér fer á eftir; hvatningu um að
láta aldrei deigan síga, heldur
takast ótrauðir á við vandamál
líðandi stundar og þau verkefni
sem upp koma hveiju sinni. Við
látum dæmisögu Karls vera loka-
orðin hér:
Sagan er um fjóra menn sem
heita Sérhver, Einhver, Hver-
sem-er og Enginn.
Það þurfti að vinna áríðandi
verkefni og Sérhver var viss um
að Einhver mundi gerða það.
Hver-sem-er hefði getað gert það
en Enginn tók sig til og gerði
það. Þá varð Einhver reiður þar
sem þetta var í raun verksvið
Sérhvers. Sérhvetjum fannst hins
vegar að Hver-sem-er gæti vel
gert það, en Engum var ljóst að
Hver-sem-er myndi aldrei gera
það. Þetta endaði svo með því,
að Enginn gerði það sem Hver-
sem-er hefði getað gert!
Fjölmennl var við vígsluna. Frá vinstri sjást: Lára Pétursdóttir, Valdbnar Bergsson, Andrés Signrðs-
son, Davíð Oddsson, Arni Þór Árnason, Valdimar Olsen, Sigríður Egilsdóttir og Ingvi Ingason.
I C-hreyfíngin á íslandi, eða JC
J ísland hefur lengi alið með sér
þann draum að koma starfsemi
sinni undir eigið þak.
Laugardaginn 2. maí síðastliðinn
rættist sá draumur er félaginu var
formlega afhent til eignar hús-
eignin í Hellusundi 3, Reykjavík.
Þeir sem það gerðu og stóðu að
baki gjöfínni með styrktarfram-
lagi og fjársöfnun voru þeir Karl
J. Steingrímsson, formaður hús-
nefndar JC ísland, Ámi Þór
Ámason og Ásgeir Gunnarsson.
Húsið var upphaflega í einka-
eign þjóðkunnra hjóna, Ágústs
H. Bjamasonar, prófessors, og
Sigríðar Jónsdóttur. Það á sér
merka menningarlega sögu; var
fyrst valinkunnt menningarheim-
Davíð Oddsson, borgarstjóri, Karl J. Steingrímsson, formaður
húsnefndar, og Marta Sigurðardóttir, landsforseti JC-hreyfingar-
innar.
JC ísland í
eigið húsnæði
Loftbelgja-
keppni
Um síðastliðna helgi hófst loft-
belgjakeppni mikil í Kali-
fomíu. Keppnin nefnist Hin
alþjóðlega loftbelgjakeppni Gor-
dons Bennett og ert keppt bæði
um það hver komist fyrst á ákveð-
inn áfangastað.
Fremst á myndinni er Solvay-
belgurinn frá Sviss, fyrir miðju
Benihana frá Japan og loks
bandarískur belgur, sem heitir því
lítilláta nafni „Oriög Kalifomíu".
Þetta er í 81. sinn sem keppnin
er haldin, en þetta var í fyrsta
sinn, sem lagt var í hann að næt-
urlagi. Sérkennileg íþrótt.
Hér sést hvar belgirnir hefjast á loft í upphafi keppninnar.
COSPER
— Þetta er víst kona, mig minnir að þær líti svona út.