Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 1

Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 1
64 SIÐUR STOFNAÐ 1913 118. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sri Lanka: Stórsókn hafin gegn skæruliðum Colombo, Madras, Reuter. STJÓRNARHERINN á Sri Lanka hóf í gær stórsókn gegn skæru- liðum aðskilnaðarhreyfingar tamíla á Jaffna-skaga. Rúmlega 3.000 hermenn taka þátt í að- gerðum þessum. Sóknar hersins hefur verið beðið lengi en skæruliðar hafa haft Jaffna-skaga á sínu valdi í rúm tvö ár. Fréttir af mannfalli eru á reiki. Skæruliðar sögðu í gær að rúmlega 100 óbreyttir borgarar hefðu fallið en öryggismálaráðherra stjórnar- innar sagði 22 menn hafa fallið á fyrstu fjórum klukkustundum árás- arinnar. Sóknin hófst í gærmorgun en skömmu áður hafði dreifibréfum verið varpað út úr flugvélum þar sem óbreyttir borgarar voru hvattir til að leita skjóls í skólum og kirkj- um. Lalith Athulathmudali öryggis- málaráðherra sagði að svo virtist sem árásin hefði komið skæruliðum í opna skjöldu og að stjórnarherinn stefndi að því að ná um fjórðungi Jaffna-skaga á sitt vald í þessari sókn. Varnarmáiaráðherrar NATO-ríkja funda í Belgíu: Treysta þarf hefðbundn- ar varnir Vestur-Evrópu Brussel, Reuter. JL Varnarmálaráðherrar aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins eru sammála um að treysta beri hefðbundnar varnir ríkja Vest- ur-Evrópu vegna fyrirsjáanlegra samninga risaveldanna um stór- fellda fækkun kjarnorkuvopna. Varnarmálaráðherrar og fulltrú- ar þeirra ríkja sem aðild eiga að Varnaráætlananefnd Atlants- hafsbandalagsins komu saman til tveggja daga fundar í Brussel í gær og sátu þeir Einar Bene- diktsson sendiherra og Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofustjóri varn- armáladeildar utanríkisráðu- neytisins, fundinn fyrir Islands hönd. Wolfgang Altenburg, formaður Hermálanefndar Atlantshafsbanda- lagsins, sagði ráðherrana hafa lýst Svíþjóð: Akærur birtar í vopnasölumálinu Stokkhólmi, Reuter. BIRTAR hafa verið ákærur á hendur tveimur mönnum sem sakaðir eru um að hafa skipulagt óleyfilega vopnasölu til ríkja í Miðausturlöndum, að því er Stig Age, ríkissaksóknari Svíþjóð- ar, skýrði frá í gær. Eru þetta fyrstu ákærur sem birtar eru í kjölfar rannsóknar á óleyfilegri vopnasölu Nobel-samsteypunnar til rikja sem eiga í ófriði í þessum heimshluta. Birtar voru ákærur á hendur þeim Mats Lundberg, fyrrum sölu- stjóra fyrirtækisins Nobel Kemi, sem framleiðir sprengiefni, og kaupsýslumanninum Karls-Erik Schmitz. Þeir eru sakaðir um smygl á vopnum og voru ákærumar í 42 liðum. Að sögn saksóknara má bú- ast við að fleiri ákærur verði birtar síðar í sumar þegar lokið er rann- sókn á vopnasölu Bofors-fyrirtækis- ins, sem er dótturfyrirtæki Nobel-samsteypunnar. Að sögn Stigs Age eru mennirn- ir ákærðir fyrir að hafa selt rúmlega 70 tonn af sprengiefni og rúm 58 tonn af púðri í byssukúlur til ríkja sem óleyfilegt er að selja vopn og vopnabúnað samkvæmt sænskum lögum. Mun þetta magn hafa jafn- gilt rúmum þriðjungi af framleiðslu Nobel Kemi á árunum 1981 til 1985. Þrátt fyrir það neyddust mennirnir tveir á stundum til að kaupa varning erlendis frá til að mæta þörfum viðskiptavina sinna m.a. írana. yfir eindregnum stuðningi við til- lögu hans um aukin útgjöld til hefðbundins vígbúnaðar. Kvað hann það hafa komið sér á óvart að hún skyldi hafa hlotið svo af- dráttarlausan stuðning. Tillögu sína sagðist hann hafa stutt með þeim rökum að samkomulag um uppræt- ingu kjarnorkueldflauga í Evrópu myndi tryggja Sovétmönnum ógn- vænlega yfírburði á sviði hefð- bundins vígbúnaðar. „Hernaðarsér- fræðingar hafa ekki í hyggju að koma í veg fyrir samkomulag risa- veldanna. Okkur eru hins vegar greidd laun fyrir að fræða stjórn- málamenn um afleiðingar þess,“ sagði Altenburg. Hann lét þess einnig getið að ekki væri fyrirsjáanlegt að sam- komulag næðist um jafnvægi á sviði hefðbundins vígbúnaðar í Evrópu og því þyrftu NATO-ríkin að treysta vamir sínar með því að veita aukn- um fjármunum til þeirra. Caspar Weinberger, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði að aðildarríkjunum bæri að tryggja að alþjóða siglingaleiðum yrði haldið opnum og vísaði til árásar íraka á bandarísku freigátuna „Stark“ á Persaflóa. Weinberger sagði frétta- mönnum er hann var á leið til fundarins í Brussel að Bandaríkja- menn, Bretar og Frakkar héldu uppi gæslu á Persaflóa og að að- stoðar fleiri ríkja Atlantshafsbanda- lagsins væri þörf. Weinberger ítrekaði þessa skoðun sína á fundin- um en Atlantshafsbandalagið hefur jafnan neitað að taka þátt í hern- aðarumsvifum utan varnarsvæðis síns. Framkvæmdastjóri flokks kristi- legra demókrata í Vestur-Þýska- landi sagði í gær að stjórnarflokk- arnir tveir gætu fellt sig við útrýrningu meðal- og skamm- drægra flauga í Evrópu með því skilyrði að jafnframt yrði samið um upprætingu vígvallarvopna sem draga innan við 500 kílómetra. Grænland: Góð þátt- taka í kosn- ingunum KOSIÐ var til landsþingsins á Grænlandi í gær. Búist var við allgóðri þátttöku þrátt fyrir illviðri í nokkrum af- skekktum byggðalögum. Þær upplýsingar fengust frá útvarpinu í Grænlandi í gær- kvöldi að búist væri við 68 prósenta kjörsókn en 37 þúsund manns voru á kjörskrá. Flugskil- yrði voru víða erfið og á nokkrum stöðum þurftu kjós- endur sjálfír að útbúa kjörseðla þar eð ekki reyndist unnt að flytja þangað Iögformleg gögn. Skoðanakannanir fóru ekki fram fýrir kosningarnar en því er almennt spáð að mynduð verði ný samsteypustjórn. í marsmánuði slitnaði upp úr samstarfi stjómarflokkanna tveggja Siumut og Inuit Ataq- atgitiis vegna deilna um ratsjár- stöð Bandaríkjamanna í Thule. Eitt helsta deilumál kosning- anna var aukinn einkarekstur atvinnufyrirtækja í stað mið- stýringar en henni hefur heimastjórnin verið fylgjandi. Þjóðaratkvæðagreiðsla á írlandi IRAR gengu í gær til þjóðaratkvæðagreiðslu sem kann að ráða úrslitum um framtið aðildar landsins að Evrópubandalaginu. Kjósendur voru beðnir að segja álit sitt á fyrirhugaðri stjórnar- skrárbreytingu sem tryggir rétt stjórnvalda til aukinnar samvinnu á sviði utanríkismála á vettvangi Evrópubandalags- ins. Charles Haughey forsætisráðherra hefur sagt að framtíð Irlands innan bandalagsins verði stefnt í voða verði stjórnar- skrárbreytingin felld. Kosningaþátttaka var dræm en búist er við að breytingin verði samþykkt. Morgunblaðið/Kristján G. Amgrímsson Skorað gegn Hollendingum Guðmundur Torfason skoraði úr tveimur undankeppni Ólympiuleikanna í knattspyrnu. vítaspyrnum á Laugardalsvelli í gærkvöldi Hér skorar Guðmundur úr fyrra vítinu. er ísland og Holland gerðu jafntefli, 2:2, í Sjá nánar á blaðsíðu 62 og 63. YOJA.i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.