Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987
Rinus Michels:
Verð að
sætta mig
við þetta
„ÉG ER aldrei ánægður með jafn-
tefli gegn liðum eins og íslandi,
Möltu eða Kýpur," sagði Rinus
Michels, hinn þekkti þjálfari Hol-
lendinganna eftir leikinn. „Við
byrjuðum vel og eftir að við náð-
um forystunni hélt ég að þetta
yrði auðveldur leikur fyrir okkur.
En fyrri vítaspyrnan sem ísland
fékk breytti því. Ég skil ekki enn
þann dóm,“ sagði Michels, og
sagðist alls ekki fallast á að mark-
vörður sinn hefði ýtt við Guð-
mundi Steinssyni.
Michels sagði: „Knattspyrna er
bara barátta. Það er enginn munur
á áhugamönnum og atvinnumönn-
um lengur." Hann minntist á að
sér hefði þótt völlurinn mjög slæm-
ur og ekki hægt að leika netta
knattspyrnu á honum. „Við urðum
að leika „enska" knattspyrnu á
þessum velli," sagði hann. Hann
var á því að Holland hefði verið
nær sigri: „við sköpuðum okkur
fleiri tækifæri en fyrst við nýttum
*~-ékki fleiri færi verð ég að sætta
mig við jafntefli, þó ég sé alls ekki
ánægður, því það er reiknað með
að vinnum leik eins og þennan."
Morgunblaðið/Sverrir
• Já, fáðu þér bara sæti vinurl Hollenski markvörðurinn Stanley Monzo virðist þarna sitja í makindum
á baki Ágústar Más Jónssonar sem þarna brá sér í sóknina.
..Komum óhressir út-
af með 2:2-jafntef li“
-sagði Guðmundur Torfason sem skoraði bæði mörk íslands
„ÞAÐ ER ágætlega öruggt að
þruma þessu. Aðalatriðið er að
skora, hvernig sem það er gert,“
sagði Guðmundur Torfason, eða
Þrum-mundur Torfason eins
mætti kalla hann, eftir landsleik
íslendinga og Hollendinga f und-
ankeppni Olympfuleikanna í
knattspyrnu á Laugardalsvelli í
gærkvöldi. Guðmundur skoraði
bæði mörk íslands úr vrtaspyrn-
um í 2:2 jafnteflinu. Leikurinn fór
„ cólega af stað en eftir hlé var
hann fjörugur og skemmtilegur.
Áhorfendur voru aðeins 1.248 og
var leiðinlegt að vita til þess.
Ástæða þess hlýtur að hluta til
a. m. k. að vera bein sjónvarpsút-
sending.
„Ég er ánægður með leikinn en
ekki úrslitin. Leikurinn var
skemmtilegur og við gerðum okkar
besta en komum óhressirútafmeð
2:2-jafntefli,“ sagði Guömundur
ennfremur.
Leikurinn var mjög rólegur i byrj-
un, íslendingar bökkuðu allt of
mikið og virkuðu ragir. Hollending-
ar náðu forystunni eftir 14 mín.
Það var Meyer, hinn þeldökki fram-
.^Jierji þeirra, sem þrumaði í netið
af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá
hægri. íslendingar voru engan veg-
inn nógu ákveðnir þarna til að byrja
með en eftir hálftíma fengu þeir
vítaspyrnu og eftir það lifnuðu
þeir við. Hornspyrna kom frá
vinstri og markvörðurinn hrinti
hastarlega á bak Guðmundar
Steinssonar. Vítaspyrna var hár-
réttur dómur hjá þeim írska í svarta
búningnum - og raunar ekki oft
sem dómarar virðast hafa kjark til
að taka þessa ákvörðun við þessar
aðstæður. Guðmundur Torfason
skoraði þarna fyrra mark sitt -
markvörðurinn réð ekkert við firn-
afast skot hans.
Það voru ekki nema rúmar sjö
mín. liðnar af síðari hálfleik er ís-
land tók forystuna. Guðmundur
Steinsson náði boltanum af aft-
asta varnarmanni, óð upp völlinn
og sá hollenski braut á honum yst
í teignum. Vítaspyrna aftur dæmd
og hafi skot GuðmundarTorfason-
ar úr þeirri verið fast er ekki gott
að segja hvað ætti að kalla seinna
skotið. Boltinn small í markhorninu
eins og eldflaug - markvörðurinn
virtist álíka hræddur við að reyna
að verja og að hlaupa á móti járn-
brautarlest á fullri ferð!
íslendingar voru hins vegar
varla búnir að fagna marki Guð-
mundar þegar Hollendingar höfðu
jafnað. Strax í næstu sókn fékk
Marion Been knöttinn á víta-
teigslínu og skoraði með fallegu
skoti. Mikið áfall fyrir íslensku leik-
mennina sem þarna sváfu illilega
á verðinu. Það sýndi sig þarna að
ekki má missa einbeitinguna eitt
augnablik.
Ekki munaði miklu að Guðmund-
urTorfason bætti sínu þriðja marki
við um miöjan seinni hálfleik. Hann
skallaði glæsilega að marki eftir
fyrirgjöf Péturs Arnþórssonar en
hollenski markvörðurinn varði af
snilld, stökk eins og köttur í hor-
nið og sló boltann yfir. „Það var
sárt að sjá ekki á eftir boltanum
inn þarna," sagði Guðmundur eftir
leikinn.
Það er ekki slæmt að gera jafn-
tefli á heimavelli gegn Hollandi en
samt sem áður munaði ekki nema
sáralitlu að sigur ynnist. Eins og
áður sagði voru Islendingar full
rólegir í byrjun. Þeir höfðu, eins
og þeir komust að síðar, í fullu tré
við andstæðingana og hefðu mátt
vera sókndjarfari.
Friðrik var mjög góður í rriarkinu
og verður ekki sakaður um mörkin
tvö. Hann varði oft sérlega vel.
Þorsteinn og Ágúst voru langt frá
sínu besta í vörninni, náðu sér
ekki á strik, en Guðni var hins veg-
ar öruggur. Miðjumennirnir börð-
ust allir vel, en „mötuðu"
framherjana misvel. Pétur var
þeirra bestur. Guðmundarnir tveir
í framlínunni voru ógnandi, gáfu
varnarmönnunum aldrei frið.
Hollendingarnir voru nettir og léku
oft skemmtilega saman. Þeir léku
hins vegar rólega. Hefðu þeir beitt
skjótari upphlaupum hefðu þeir
getað skapað enn meiri hættu en
þeir gerðu. S H.
Sigfried Held:
Hefðum
getað
unnið
„ÞETTA var ágætis leikur. ís-
lenska liðið lék með hjartanu, og
var agað. Við hefðum getað unn-
ið en þetta er ekki slæmt. Ég er
því ánægður,“ sagði Sigfried
Held, landsliðsþjálfari, eftir leik-
inn. Hann sagði hollenska liðið
sterkt, það væri nóg að líta á úr
hvaða liðum leikmenn þess
kæmu til að sjá það, og þvi væri
frammistaða islensku strákanna
góð að sínu mati.
Held vildi ekki týna út bestu menn
liðsins að sínu mati, en nefndi þó
Friðrik. „Hann lék mjög vel nú eins
og gegn Ítalíu í fyrsta leiknum,"
sagði Held.
Guðni Kjartansson aðstoðarþjálf-
ari liðsins sagðist aldrei ánægður
með jafntefli því hann hefði viljað
vinna. „En ég verð að sætta mig
við þetta. Menn eru oft smeykir
við að gera mistök, þess vegna
var leikurinn rólegur í byrjun en
þegar strákarnir fundu að þeir
gátu alveg ráðið við þá léku þeir
mun betur." Hann sagði grátlega
að hafa fengið á sig seinna markið
- „menn voru sofandi þá,“ sagði
hann.
Hvað með framhaldið. Eigum
við raunhæfa möguleika á að
komast áfram?
„Eigum við ekki að segja að við
eigum alltaf möguleika þangað til
mótið er búið," sagði Guðni stutt
og laggott. Hann sagði andstæð-
ingana í gær dæmigert hollenskt
lið. „Ég er hrifinn af hollenskum
fótbolta en þegar spilar er taktískt
og ákveðið gegn þeim þá eigum
við alltaf möguleikga gegn þeim.
Það sýndi sig til dæmis er 21- ars
landslið spilaði við þá á sínum
tíma," sagði Guðni.
Morgunblaðið/Einar Falur
• Ámi Þór Árnason skorar hér seinna mark íslands gegn Belgíu i gær. Hann komst inní sendingu frá
varnarmanni tii markvarðar og vippaði laglega yfir belgíska markvörðinn.