Morgunblaðið - 27.05.1987, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987
4-
4
Starfsfólk fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra:
Settur fræðslus^óri
dragi sig- til baka
STARFSFÓLK fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis eystra
samþykkti á fundi sínum í gær að skora á Ólaf Guðmundsson,
settan fræðslustjóra í Norðurlandi eystra frá og með 1. júní
nk., að draga sig til baka sem fræðslustjóra. Til tals hafði
komið hjá starfsfólkinu að ganga út, en hvorki þótti sú ákvörð-
un þjóna skólamálum í umdæminu né hagsmunum Sturlu
Kristjánssonar, fyrrverandi fræðslustjóra.
„Við ákváðum að vinna áfram
á þeirri braut sem við höfum gert
til þessa. Þetta þýðir þó ekki að
við leggjum biessun okkar á það
sem yfirvöld menntamála í landinu
hafa aðhafst að undanfömu. Við
bendum á að í grunnskólalögum
eru fræðsluráð gerð ábyrg fyrir
stofnsetningu þjónustu við skól-
ana. Við erum því starfsfólk
fræðsluskrifstofunnar og sitjum
við þvi áfram ekki síst vegna til-
mæla frá því,“ sagði Már Magnús-
son, sálfræðingur og starfsmaður
fræðsluskrifstofunnar, í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Starfsfólkið telur óhæft að sú
áralanga barátta, sem háð hefur
verið af hálfu fræðsluráðsins og
með Sturlu Kristjánsson í broddi
fylkingar, verði eyðilögð í einu
vetfangi fyrir gerræðislegar
ákvarðanir af hálfu eins ráðherra,
sem nú væri senn á förum, að
sögn Más.
„Með því að taka setningu í
starfíð, teljum við Ólaf vera að
útiloka ráðherra frá því að leysa
þessa deilu á friðsamlegan hátt.
Jafnframt viljum við skora á Ólaf
að draga sig til baka sjálfs sín
vegna. Hann mun þurfa að vinna
með fólki í skólunum hér sem
hafa í rauninni verið útilokaðir frá
því að sækja um starf fræðslu-
stjóra vegna tilmæla frá sínum
stéttarfélögum. Ekki er því óraun-
verulegt að ætla að samkeppnis-
skortur hafí ráðið því að Ölafur
var ráðinn. Þá hefur ráðherra
hunsað tvo aðra umsækjendur,
sem að mínu mati hafa bæði
starfsreynslu og menntun umfram
Ólaf til þessa starfs,“ sagði Már
að lokum.
VEÐURHORFUR í DAG, 27.05.87:
YFIRLIT á hádegi í gær: Norðaustur af landinu er 1033 millibara
víðáttumikil hæð. Um 1000 km suður í hafi er 1006 millibara djúp
lægð og frá henni lægöardrag norövestur á Grænlandshaf.
SPÁ: Hæg austan- og suðaustanátt á landinu, víða skýjað við suður-
ströndina en að mestu léttskýjað annars staðar. Hiti á bilinu 10 til
14 stig sunnan lands og vestan en 14 til 18 stig norðan- og norð-
austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR og FÖSTUDAGUR: Hægviðri eða suðaustan gola.
Víða lóttskýjað og hiti á bilinu 12 til 18 stig inn til landsins, en
sums staöar þokubakkar við ströndina og hiti á bilinu 8 til 13 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
X Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / » Slydda
/ * /
* * *
* # * * Snjókoma
* * *
■j o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
~ Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CX3 Mistur
—|- Skafrenningur
__ |~<^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyrl hhi 20 y»6ur ióttskýjað
Reykjavík 14 þokumóða
Bergen 12 léttskýjað
Helsinki 9 skýjað
Jan Mayen 7 léttskýjað
Kaupmannah. 18 léttskýjað
Narasarsauaq 4 léttskýjað
Nuuk -1 skýjað
Osló 19 lóttskýjað
Stokkhólmur 14 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 21 hálfskýjað
Amsterdam 19 skýjað
Aþena 21 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Berlín 17 heiðskfrt
Chlcago 18 þokumóða
Feneyjar 22 heiðskfrt
Frankfurt 22 léttskýjað
Hamborg 18 helðskfrt
Las Palmas 22 skýjað
London 20 mlstur
LosAngeles 14 skýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madrfd 21 hálfskýjað
Malaga 27 helðskfrt
Mallorca 23 léttskýjað
Miami 24 skýjaö
Montreal 14 léttskýjað
NewYork 13 alskýjað
París 23 skýjað
Róm 22 þokumóða
Vín 18 léttskýjað
Washlngton 18 alskýjað
Wlnnipeg 11 alskýjað
*
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason kemur með Fit HU til hafn-
ar í Grindavík siðdegis í gær.
Grindavík:
Bj örgunarbátur-
inn dregur
Fit HU til hafnar
Grindavík.
BJ ÖRGUN ARBÁTURINN
Oddur V. Gíslason var i gær
fenginn til aðstoðar vélbátnum
Fit HU, sem var vélarvana út
af Selvogi. Á trillunni, sem er
8 tonn að stærð, eru tveir menn
en þeir voru að vifja grásleppu-
neta þegar startari við vélina
bilaði.
Tilkynning um að áhöfnin á
Fit HU ætti í vandræðum með
að koma vél bátsins í gang barst
upp úr klukkan 13. Áhöfnin á
Oddi V. Gíslasyni brást skjótt við
og var komin að trillunni um kl.
15. Fitur HU var tekinn í slef og
var komið með hann til Grindavík-
ur um kl. 18. Óskar Sævarsson
skipstjóri á Oddi sagði að engin
vandræði hefðu verið en leiðin var
um 20 mílur og gott í sjó.
Kr.Ben.
Garðabær:
Ingimundur
Sigurpálsson
bæjarsljóri
INGIMUNDUR Sigurpálsson
bæjarstjóri á Akranesi hefur
verið ráðinn bæjarstjóri Garða-
bæjar. Sextán menn sóttu um
starfið.
Ráðning Ingimundar var sam-
þykkt með atkvæðum allra
bæjarfulltrúa á fundi bæjarstjóm-
ar Garðarbæjar í gær.
Ingimundur Sigurpálsson
Ragnheiður O.
Björnsson látin
RAGNHEIÐUR O. Björnsson er
látin, 90 ára að aldri. Hún fædd-
ist í Kaupmannahöfn 25. desem-
ber 1897 og lést síðastliðinn
fimmtudag, 21. maí.
Ragnheiður fluttist ásamt for-
eldrum sínum þeim Oddi Bjömssyni
og Ingibjörgu Benjamínsdóttur frá
Kaupmannahöfn árið 1901 til Akur-
eyrar þar sem fjölskyldan settist
að. Stofnaði Oddur þá prentsmiðju
sína sem enn er starfandi á Akur-
eyri.
Ragnheiður starfaði á árunum
1919 til 1937 í Reykjavík í hann-
yrðaverslun Ágústu Svensen, en
fluttist þá aftur til Akureyrar og
stofnaði eigin hannyrðaverslun í
Hafnarstræti og rak hana til ársins
1972. Ragnheiður var ein af stofn-
endum ungmennafélagsins Velvak-
anda í Reykjavík og varð heiðurs-
félagi þess seinna. Hún stjómaði
dansflokki ungra stúlkna sem með-
al annars komu fram á Alþingishá
tíðinni 1930 og dönsuðu Vikivaka
— dansa sem Ragnheiður samdi
sjálf. Hún var einn af stofnendum
Zontaklúbbsins á Akureyri sem
ætlaður er konum eingöngu og
starfar að góðgerðarmálum. Hún
var kjörin heiðursfélagi klúbbsins
árið 1982.
Ragnheiður var ógift og barnlaus
alla sína ævi. Hún átti þrjá bræð-
ur, þá Bjöm sem var prestur, Sigurð
sem tók við af föður sínum sem
prentsmiðjustjóri og Þór, sem var
deildarstjóri hjá KEA.