Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 5

Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAI 1987 5 Hún er komin! Hún er komin til Islands, Macintosh II, tölvan sem beðið hefur verið eftir. Hún er engri annari tölvu lík, með sex sæti til stækk- unar hvenær sem þörf er á. Hún er fjölhæfari en flest- ar aðrar og þú getur tengt hana við “mainframe” tölvu eða Ethemet nettengingu. Macintosh II getur keyrt forrit sem eru skrifuð fyrir önnur styrikerfi eins og t.d. MS-DOS og AT&T UNIX- stýrikerfi. Nýi 13" litaskjárinn hefur meira en 16 milljón liti og svo góða upplausn að það má líkja honum við ljósmynd. Þú getur líka fengið aðra skjái hvort sem það er nýji 12" sv./hv. skjárinn eða ein- hvem af þeim “extra” stóru frá óháðu framleiðendunum (t.d. 19"MegaScreen eða 18"Radius). Þá verður hægt að fá inn- byggða 20, 40 eða jafnvel 80Mb harða diska í tölvuna. Allir þessir möguleikar eru þér til reiðu, vegna þess að háþróaðasti örgjörfi, sem enn hefur verið settur í einka- tölvu, er í Macintosh II. (Fyrir hina tæknilega þenkj- andi, þá meinum við 32 bita örgjörfann Motorola 68020). Auk hans er innbyggður sérstakur reikniörgjörfi (Mo- torola 68881) í tölvuna og saman keyra þeir hin flókn- ustu forrit á alveg ótrúlegum hraða. Þá er sama hvort um er að ræða flókið samspil gagna- grunns og reiknivangs, eða háþróað þrívíddar hönnunar- forrit. En stærsti kosturinn við Macintosh II tölvuna er hversu opin og sveigjanleg hún er, með nánast ótæmandi möguleikum til samskipta við aðrar tölvur og tengingu við allskonar aukabúnað. Þeir sem kynnast Macintosh, þeir kaupa ekki annað. AppleComputer SKIPHOLTI 19 SIMI 29800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.