Morgunblaðið - 27.05.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987
Skerpluhátíð Musica Nova:
Páll Eyjólfsson, gítarleikari
Nýi músíkhópurinn, Guðni Franzson, Signý Sgemundsdóttir, Kristinn Sigmundsson, Kolbeinn Bjarnason,
Anna Guðný Guðmundsdóttir og Arnþór Jonsson
Mikilvægasti þátt-
urinn í þessu starfi
er að flytja ný verk
- segir Mist Þorkelsdóttir, einn forsvarsmanna
MUSICA NOVA efnir til tón-
listahátíðar í Reykjavík dagana
27. mai til 3. júní. Musica Nova
eru samtök sem helga sig flutn-
ingi nýrra tónsmiða, bæði
íslenskra og erlendra. Að sögn
Mistar Þorkelsdóttur, eins af
forsvarsmönnum samtakanna,
hafa þau einnig annan mikil-
vægan tilgang, þann að veita
styrk til tónsmíða á íslandi.
„Mikilvægasti þátturinn í þessu
starfi er að flytja alveg ný verk,“
sagði Mist. „Á hverju ári gefum
við út fréttatilkynningu tii hljóm-
listarmanna um styrki sem við
veitum til tónsmíða. Hljómlistar-
menn geta pantað ákveðin verkefni
frá tónskáldum og sótt um styrk
til Musica Nova til að greiða fyrir
þau.
Það er alltaf fjöldi umsókna um
þessa styrki, en við höfum nefnd
sem velur úr umsóknunum. Að
þessu sinni voru þrjú verk valin,
eftir Olaf Axelsson, Atla Heimi og
Karólínu Eiríksdóttur. Eftir að
verkin hafa verið valin kemur þessi
höfuðverkur að finna tónleika þar
sem hægt er að flytja þau. Stund-
Mist Þorkelsdóttir ásamt dóttur sinni Guðrúnu Mist
FYRIR BÆNDUR - VERK-
TAKA - BJÖRGUNARSVEITIR
□ 250 cc fjórgengisvél □ Sjálf-
stæð fjöðrun á hverju hjóli □
Drifsköft □ Val um drif aftan/
aftan + framan □ Handlæsing
á drifi (100% læsing) □ 5 gírar
áfram 1 afturábak □ 3 gíra
lágadrif □ Hraðamælir □ 12 I.
bensíngeymir □ Hæð undir
lægsta punkt 20 sm. □ Þyngd
232 kg.
IRINN
MEÐ DRIFIÁ ÖLLUM HJÓLUM
um eru þau flutt ein og sér og þá
greiðir Musica Nova hljóðfæraleik-
urunum fyrir flutninginn. Það er
jú okkar hlutverk að sjá til þess
að ný verk séu flutt. Þeir aðilar,
sem hlutu styrk í vetur leituðu til
okkar um tónleika til að flytja
verkin.
Þessi tónleikai'öð, eða litla hátíð,
sem nú stendur fyrir dyrum varð
til fyrir tilviljun. Hljóðfæraleikarar
em alltaf svo uppteknir yfir vetur-
inn að það var ómögulegt að koma
þessari hátíð saman fyrr en skólar
voru búnir og fólk laust úr öðmm
störfum. Síðustu tvö árin hefur
mjög lítið verið frumflutt af nýjum
verkum, nema á Norrænum músík-
dögum síðastliðið haust, svo það
var af nógu að taka. Við ákváðum
því að gera tilraun með að halda
fimm tónleika á einni viku. Það
hefur gefist vel að hafa tónleika
svona þétt á Myrkum músíkdög-
um, sem eru haldnir í febrúar ár
hvert. En nú er komið sumar og
maður veit ekki hvernig gengur
að fá fólk til að koma á hveiju
kvöldi. Við ákváðum allavega að
reyna þetta, við emm jú alltaf að
leita að aðferð til að koma þessari
tónlist til skila.
Tónleikarnir áttu ekkert endi-
Iega að vera með áhersiu á íslenska
tónlist, heldur atvikaðist það
svona. Við höldum tónleikana víða
um bæinn, vegna þess að erfitt er
að fá inni og ekki alls staðar til
flyglar til að hægt sé að halda
tónleika.
Á þessai'i hátíð verða mörg ný
verk frumflutt, en verk Karólínu
er eina verkið, af þeim sem hlutu
styrk í vetur, til að verða flutt að
þessu sinni. Hin tvö em ekki tilbú-
in, en við stefnum að því að flytja
þau í haust.“
íslensk tónlist
1967-86. Stefán
Hörður og Þorsteinn
frá Hamri lesa úr ljóð-
um sínum.
Fyrstu tónleikarnir á Skerplu-
hátíð verða í Bústaðakirkju í kvöld
klukkan 20.30. Þar mun Nýi
músíkhópurinn flytja íslenska tón-
list frá ámnum 1967—1986. Þessi
hópur var stofnaður fyrir nokkr-
um mánuðum til að flytja nútíma-
tónlist, íslenska og erlenda. Stæi'ð
hans og gerð er breytileg eftir
viðfangsefnum, en á þessum tón-
leikum koma fram söngvararnir
Signý Sæmundsdóttir og Kristinn
Sigmundsson, ásamt Nýja músík-
hópnum, þeim Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur, píanóleikara,
Arnþóri Jónssyni, sellóleikara,
Guðna Franzsyni, klarinettleikara
og Kolbeini Bjarnasyni, flautu-
leikara.
Á efnisskránni eru „Sumir dag-
ar“ eftir Karólínu Eiríksdóttur,
við Ijóð eftir Þorstein frá Hamri,
Sex sönglög eftir Hjálmar H.
Ragnarsson við ljóð eftir Stefán
Hörð Grímsson, Klif eftir Atla
Heimi Sveinsson, Smátríó eftir
Leif Þórarinsson og Bagatella nr.
1 eftir Atla Ingólfsson. Verkin
eftir Leif og Atla Ingólfsson hafa
Tríó Guðnýjar Guðmundsdóttur, Gunnars Kvaran og Halldórs Har-
aldssonar