Morgunblaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 29
MÖRGÚNBLÁÖIÐ; MIÐV{KÚÚAGUR 27/MAt tð‘87 »29 Frakklandsforseti í Kanada: Mitterrand brýt- ur blað í samskipt- um þjóðanna Ottawa, Reuter. FRANCOIS Mitterrand, forseti Frakklands, braut á mánudag blað í sögn samskipta Kanada- manna og Frakka, sem verið hafa stirð undanfarna tvo ára- tugi. Mitterrand flutti ræðu á kanadíska þinginu og sögðu emb- ættismenn stjómarinnar að honum hefði tekist mjög vel upp. Ein setning ræðunnar skipti sköpum: „Vive le Canada, Vive la France" (Lengi lifi Kanada, lengi lifi Frakkland). Snurða hljóp á þráðinn milli Kanadamanna og Frakka árið 1967 þegar Charles de Gaulle, þáverandi Frakklandsforseti, lýsti yfir stuðn- ingi við aðskilnaðarsinna í Quebec, þar sem töluð er franska, í opin- berri heimsókn. „Vive le Quebec Libre“ (lengi lifi frjálst Quebec), sagði de Gaulle í ræðu sinni og kanadísk stjórnvöld urðu ævareið. Eftir að Mitterrand hafði talað í fjörutíu mínútur á þinginu í Ottawa kvaddi Brian Mulroney, forsætis- ráðherra Kanada sér hljóðs: „Nú hafa orðið þáttaskil í sögu sam- skipta Frakklands og Kanada. Við getum ekki breytt fortíðinni, en við getum breytt framtíðinni. Mitterrand hélt í gær frá Ottawa til Quebec eftir langar viðræður við Mulroney. Þeir ræddu um alþjóðleg stjórnmál og efnahagsmál og lögðu grunn undir leiðtogafund vest- rænna ríkja, sem haldinn verður í Feneyjum í júní. Mulroney og Mit- terrand lögðu einnig drög að stórauknum gagnkvæmum við- skiptum ríkjanna. Haft var eftir kanadískum emb- ættismönnum að Frakkar hefðu lýst yfir óánægju sinni með að Kanada menn virtust taka Breta og Banda- ríkjamenn fram fyrir þá þegar um iðnaðarsamninga væri að ræða. I gær ræddi Mitterrand við Ro- bert Bourassa, forsætisráðherra Quebec. Bourassa hefur tekist að draga úr spennu milli Quebec og enskumælandi hluta Kanada og hefur hann lýst sig reiðubúinn til að undirrita samkomulag um að Quebec verði nátengdara stjórninni í Öttawa. Þrátt fyrir áhuga Mitterrands á að bæta samskiptin við Kanada var búist við að hann legði áherslu á hið sérstaka samband, sem ríkir milli Frakklands og Quebec. Valdatafl í Seoul: Hassgert upptæktá Spáni Reuter Spænskir þjóðvarðliðar rannsaka 2.100 kg af hassi, sem berð voru upptæk í fjöllunum nærri Vigo á norðurhluta Spánar í fyrradag. Tveir menn voru handteknir þegar hassið fannst. And- virði efnisins er talið vera um 320 milljónir íslenskra króna. Ráðherrar reknir vegna morðs á námsmanni Seoul, Suður-Kóreu, Reuter. CHUN Doo Hwan, forseti Suð- ur-Kóreu, vék í gær forsætisráð- herra landsins og þremur háttsettum ráðherrum úr starfi og er litið svo á að hann hafi verið að treysta stöðu Rohs Tae- woo í baráttunni um arftaka hans i forsetaembætti. Roh er formaður Lýðræðisflokks réttlætis, sem er við völd í jandinu, og hafði hann krafist þess að mikl- ar breytingar yrðu gerðar á stjórn- inni til að stemma stigu við reiði almennings vegna dauða náms- manns, sem lét lífið í pyntingarklefa lögreglu. Lho shin-yong forsætisráðherra var látinn fara og kvaðst hann axla „pólitíska og siðferðilega ábyrgð" á þeim trúnaðarbresti, sem orðið hefði milli þjóðarinnar og stjórn- valda. Kim Mahn-je aðstoðarforsætis- ráðherra, Chung Ho-yong innanrík- isráðherra og Kim Seung-ky dómsmálaráðherra voru einnig reknir. Sérfræðingar segja þó að mestu máli skipti að Chang Se-dong, yfir- manni suður-kóresku leyniþjón- ustunnar, hafi verið vikið úr starfi. í dagblaðinu Joongang Daily News sagði að Chang hefði verið einn af nánustu samstarfsmönnum Chun forseta. Í blaðinu sagði að fréttaskýrend- ur bæði utan- og innanlands hefðu nýverið haldið fram að Chun og Lho, sem nú lætur af störfum for- sætisráðherra, hafí verið hugsan- legir keppinautar Roh um forsetaembættið. „Þessi uppstokk- un ber því vitni að Roh er næst æðstur að völdum í herbúðum ráða- manna, bæði hvað varðar stöðu hans og nú áhrif,“ sagði í blaðinu. Valdaflokkurinn heldur þing 10. Rúmeníuheimsókn Gorbachevs: Vandamál verða ekki leyst með sjálfhælni Búkarest, Reuter. MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, sagði í gær á úti- fundi í Rúmeníu, þar sem fast hefur verið haldið i bókstafstrú marxisma af gamla skólanum, að fijálst streymi upplýsinga og lýðræði væri nauðsynlegt ef kommúnistaþjóðfélag ætti að halda velli. Gorbachev sagði á fundinum, sem Nicolae Ceausescu og þúsundir tilkvaddra Rúmena sóttu, að Sovét- menn hefðu nú hætt að guma sig af stórkostlegum árangri og þess í stað einbeittu þeir sér nú að því að leysa vandamál sín. Rúmenar hafa verið bandamenn Sovétmanna í 22 ár og hafa farið eigin leiðir undir stjórn Ceausescus og kommúnistaflokkurinn í Rúm- eníu er ekki ýkja hrifinn af endur- bótastefnu Gorbachevs. Var því nokkur broddur í ummælum Sovét- leiðtogans. „Við vitum að land ykkar þarf að leysa úr mörgum erfiðum vanda og ýmsir erfiðleikar steðja að ykkur í hinu daglega lífi,“ sagði Gorbach- ev. „Aftur á móti erum við þess fullvissir að rúmenska þjóðin mun ráða fram úr vandamálunum." Gorbachev vísaði þar til matar- og orkuskorts, sem hijáð hefur Rúmena, og hrakandi lífsskilyrða. Vestrænir hagfræðingar sagja að efnahagur Rúmena sé líklega sá bágbornasti í ríkjum Varsjárbanda- lagsins. Spjöldum með myndum af Mikhail Gorbachev Sovétleiðtoga og Ni- kolae Ceauseseu, forseta Rúmeníu, var haldið á loft í Búkarest, þegar Gorbachev koma þangað i opinbera heimsókn. júní og verður forsetaefni þá til- nefnt. Chun kveðst ætla að láta af embætti í febrúar, en þá lýkur sjö ára kjörtímabili hans. Chun hefur hafnað kröfum stjórnarandstöðunnar um að efna til almennra kosninga og með til- skipun hefur hann kveðið svo á um að fimm þúsund kjörmenn velji arf- taka sinn í desember. Lee Han-key, tiltölulega óþekkt- ur lögfræðingur, var skipaður forsætisráðherra. Jongang Daily News sagði að skipan manns, sem hefur ekki komist til mannvirðinga í röðum hersins, bæri því vitni að breyta ætti ímynd stjórnarinnar erlendis. Blaðið birti fyrst fréttir af láti námsmannsins Park Chong- chol og kom af stað öldum hneyksl- isins, sem nú hefur orðið fjórum ráðherrum að falli. Lögreglan sagði í fyrstu að námsmaðurinn frá há- skólanum í Seoul hefði látist af hjartaslagi í yfirheyrslu. Síðar var viðurkennt opinberlega að liðsmenn sérlegrar lögreglusveit- ar, sem berst gegn kommúnisma, hefði orðið manninum að bana. Lögregluþjónar hefðu verið að reyna að toga upp úr honum hvar annar námsmaður væri niðurkom- inn og í því augnamiði hefðu þeir reynt að kaffæra hann í baðkari. Park streittist á móti og kafnaði við það að hálsi hans var þrýst nið- ur á brún baðkarsins. Þessar uppljóstranir vöktu undr- un og ólgu og fyrirskipaði Chun forseti að gerð yrði rækileg rann- sókn á málinu. Rak hann lögreglu- stjóra landsins fyrir að koma ekki í veg fyrir dauða Parks og skipaði sérstaka nefnd til að tryggja að mannréttindi yrðu virt í Suður- Kóreu. Tveir yfirmenn úr hinni sérstöku kommúnistasveit lögreglunnar voru handteknir og ákærðir fyrir að pynta Park til bana. Talsmaður forsetans sagði þegar hann tilkynnti uppstokkunina í stjórninni að nú ætti að kveða niður allar efasemdir um mál Park Chong-chol í eitt skipti fyrir öll. Stúdentasamband VI heldur árlegan stúdentafagnað í Atthagasal Hótel Sögu föstudaginn 29. maí sem hefst með borðhaldi kl. 1 9.30. Miðar fást á skrifstofu VI á miðvikudag og föstudag og við innganginn. Þátttakendur í borðhaldi þurfa að tilkynna fulltrúa viðkomandi afmælisárgangs þátttöku sína í síðasta lagi á fimmtudag. Stjórnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.