Morgunblaðið - 27.05.1987, Side 36
TT36
'J' ÍÍÖk’ÓUÍíBtAEiIÖ; 'ÍÍÍbVtkÚöXtiÚá W'Wtf ’í 987
25 ára iiiaður játar
á sig líkamsárás
TUTTUGU og eins árs gamall
Akureyringnr varð fyrir
líkamsárás kl. rúmlega 6 að-
faranótt laugardagsins 16. maí
siðastliðinn. Málið er að fullu
upplýst og hefur árásarmaður-
inn játað verknaðinn.
Arásarmaðurinn, sem er 25 ára
aðkomumaður en búsettur á Ak-
ureyri nú, mun hafa gengið að
manninum að tilefnislausu og
slegið hann í andlitið með þeim
afleiðingum að hann kinnbeins-
brotnaði. Þá brotnuðu þtjár
tennur og tennur í efri gómi
losnuðu.
Sá er varð fyrir árásinni kærði
atburðinn ekki fyrr en í síðustu
viku til rannsóknarlögreglunnar á
Akureyri og með hjálp vitna tókst
að upplýsa málið á fimmtudaginn.
Þá var árásarmaðurinn handtek-
inn. Hann játaði strax og var síðan
sleppt að því loknu. Málið verður
sent ríkissaksóknara til frekari
meðhöndlunar.
Hjálparsveit skáta á Dalvík:
Byggir 300 fermetra
húsnæði í sjálfboðavinnu
Fyrsta skóflustungan tekin á morgnn
HJÁLPARSVEIT skáta á Dalvík
tekur fyrstu skóflustunguna að
nýju húsi sinu á morgun, upp-
stigningardag, kl. 17.00. Húsið
verður rúmlega 300 fermetrar
að stærð og mun innihalda
áhaldageymslu og bílageymslu
ásamt félagsaðstöðu.
Frmm ár eru nú liðin síðan Hjálþ-
arsveit skáta á Dalvík var formlega
stofnuð og eru félagar sveitarinnar
nú orðnir á fjórða tug. Aðalsteinn
Hauksson, sem sæti á í stjórn hjálp-
arsveitarinnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að draumurinn væri
að gera húsið fokhelt í haust, en
áætlað væri að fullgera húsið innan
fimm ára. Það veltur þó á hvernig
til tekst með fjármögnun bygging-
arinnar sem byggist nú að mestu á
fijálsum framlögum fyrirtækja,
stofnanna og einstaklinga. Auk
þess hefur Hjálparsveit skáta verið
með ýmiss konar sölustarfsemi í
gangi, eins og tíðkast víða annars
staðar, og í byrjun næsta mánaðar
verður gert landsátak í sölu á svo-
kölluðum bílkoddum, sem innihalda
fyrstu-hjálpar sjúkragögn. Aðal-
steinn sagði að slíkir koddar væru
tilvaldir í bifreiðir og jafnvel minni
báta.
Landsþing Hjálparsveita skáta
verður haldið á Akureyri á föstudag
og laugardag, 29. og 30. maí næst-
komandi, og munu aðalfulltrúar
þingsins verða viðstaddir á Dalvík
þegar fyrsta skóflustungan verður
tekin á lóð númer 8 við Gunnars-
braut. Bæjarstjórn Dalvíkur gaf
hjálparsveitinni lóðina og Menning-
arsjóður KEA gaf 50.000 krónur
til byggingarinnar.
Aðalsteinn sagði að hingað til
hefði starfsemi sveitarinnar verið í
tveimur herbergjum í skátaheimil-
inu á Dalvík sem þeir félagar hefðu
fyrir löngu sprengt utan af sér. Þá
hefði hjálparsveitin engan bílskúr
og hefði bíllinn því verið látinn
standa fyrir utan skátaheimilið
síðustu árin.
Akureyrarkirkja:
„Musica Antiqua Is-
land“ heldur tónleika
Hljóðbylgjan á Ráðhústorgi
ÞEIR sóldýrkendur Hljóðbylgjunnar, sem ekki
gátu hugsað sér að vera inni í góða veðrinu
um helgina og útvarpa þaðan, drifu sig út með
tæki sín og tól og nutu góða veðursins ásamt
öðrum sólþyrstum Akureyringum. Hér eru
þeir Ingólfur Magnússon, Guðmundur Þor-
steinsson og Ómar Pétursson að útvarpa frá
miðju Ráðhústorginu. Hátölurum var síðan
komið upp i miðbænum svo glumdi í þeim félög-
um og léttri sumartónlist þess á milli.
Ingvar Þorvaldsson ásamt tveim verka sinna.
Sýnir í Gamla Lundi
INGVAR Þorvaldsson opnar málverkasýningu að Gamla Lundi
á Akureyri fimmtudaginn 28. maí kl. 16.00. Á sýningunni eru
36 vatnslitamyndir málaðar á þessu og síðasta ári. Sýningin er
opin kl. 14.00-22.00 um helgar og kl. 17.00-22.00 virka daga,
og stendur til mánudagsins 8. júní.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Dröfn Friðfinnsdóttir við verk á sýningu sinni.
Sýnir í Dynheimum
DRÖFN Friðfinnsdóttir sýnir þessa dagana verk sín í Dyn-
heimum á Akureyri. Sýning Drafnar stendur fram á sunnudags-
kvöld og er opin virka daga frá kl. 17.00 til 20.00 og um helgina
frá kl. 14.00 til 22.00. A sýningunni eru 25 klippimyndir og
átta málverk sem Dröfn hefur unnið á þessu ári og síðasta.
TRÍÓIÐ „Musica Antiqua heldur
tónleika í Akureyrarkirkju á
morgun, uppstigningardag, kl.
17.00. Tríóið skipa CamiIIa Söder-
berg blokkflautuleikari, Ólöf
Sesselja Óskarsdóttir sellóleikari,
sem leikur á viola da gamba, og
Snorri Örn Snorrason, sem leikur
á lútu og bassalútu.
Félagsskapurinn „Musica Antiqua"
var stofnaður árið 1981 af ofan-
greindum listamönnum auk Helgu
Kirkjudagur í
Glerárkirkju
KIRKJUDAGUR í Glerárkirkju
verður haldinn á morgun, upp-
stigningardag. Dagskráin hefst
með guðsþjónustu klukkan 14.00.
Kirkjukór Lögmannshlíðarsóknar
syngur og sóknarpresturinn séra
Pálmi Matthíasson predikar.
Eftir guðsþjónustuna verður
kirkjukaffi Kvenfélagsins Baldurs-
brár. Þá mun kirkjukórinn bregða á
leik í léttum sumarlögum og syngja
jafnvel utan dyra ef veður leyfir. Söl-
utorg verður sett upp í kirkjuskipinu
og verða þar á boðstólum sumarblóm
og §ölær blóm. Einnig verður almenn-
ur söngur.
Þá verður boðið upp á akstur til
kirkju. Þeir, sem hans óska, eru beðn-
ir að hringja í síma 27575 milli kl.
12.00 og 13.30 og verða þeir síðan
sóttir og ekið til baka að lokinni dag-
skrá.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Ingólfsdóttur semballeikara til þess
að kynna og flytja gamla tónlist með
upprunalegum hljóðfærum. Vafa-
laust muna margir eftir heimsókn
þeirra til Akureyrar í febrúar 1982
er haldnar voru kynningar og tónleik-
ar í sql Menntaskólans á vegum
tónlistarfélagsins, Tónlistarskólans
og Menntaskólans á Akureyri.
Tríóið hóf að starfa saman 1984
og fór það ár í tónleikaferðalag til
Svíþjóðar og Austurríkis. Þau leika
einkum tónlist frá renesans- og bar-
rokk-tíma og á tónleikunum á
fimmtudag verða flutt verk eftir
franska, sænska og ítalska tónsmiði
frá 17. og 18. öld.
Tríóið „Musica Antiqua Island"
skipa Camilla Söderberg, Ólöf
Sesselja Óskarsdóttir og Snorri
Öm Snorrason.