Morgunblaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987 EDWARD eftir Gunnhildi Fannberg Eitt verkefna í námi mínu sl. haust var að ræða við fatlaðan ein- stakling. Það eð svo stutt er síðan eyðni kom fram í dagsljósið, og hraði útbreiðslu sjúkdómsins hefur valdið mikilli hræðslu manna á meðal, sem óhjákvæmilega hefur bitnað á eyðnisjúklingum, lék mér ' hugur á að kynnast eyðnisjúklingi og viðbrögðum hans við sjúkdómn- um. Með aðstoð Tueson AIDS Project (samtök homma í Tucson sem veita eyðnisjúklingum ýmis- konar aðstoð) tókst mér að lokum að komast í kynni við Edward, en aðrir eyðnisjúklingar, sem haft hafði verið samband við, treystu sér ekki til að ræða um sjúkdóm sinn, og segir það sína sögu. Edward (viðmælandi minn óskaði nafn- leyndar, þannig að Edward er ekki hans rétta nafn) hafði í fyrstu áhyggjur af því að hann væri ekki dæmigerður eyðnisjúklingur, hann væri eldri en flestir þeirra, væri fjár- hagslega stöndugur (sem getur ~ skipt höfuðmáli; í Bandaríkjunum getur eyðnisjúklingur átt von á því að frá greiningu kosti eyðni hann um 150 þúsund dollara), og loks það að hann hefur nú lifað í ár eftir að hann var greindur með eyðni á hæsta stigi. Við urðum þó sammála um, að opinber umfjöllun um eyðni hefði að mestu snúist um „verstu" tilfellin, og að gott væri að eitthvað heyrðist frá þeim sem vel gengur. Veitti Edward mér góð- fúslega leyfi til birtingar viðtalsins '■'* í þeirri von að einhverjum kæmi að gagni. Hér á eftir kemur saga Ed- wards, sögð með orðum hans þar sem því var komið við. Tekið skal fram, að skoðanir þær sem fram koma eru allar Edwards. Edward er 45 ára, hefur mast- ers-gráðu og starfar sem kennari á háskólastigi auk þess að reka eigið fyrirtæki. Hann er hommi, og fyrir einu ári fékk hann þá sjúkdóms- greiningu að hann væri með eyðni á efsta stigi og ætti um 6 mánuði eftir ólifaða. Edward er einbirni, sonur íhalds- samra foreldra af mótmælendatrú, sem eftir að hafa þraukað af kreppuárin voru mjög aðhaldssöm í fjármálum. Samband Edwards og foreldi'a hans hefur aldrei verið náið, jafnvel sem smástrákur átti hann sín leyndarmál, og hann leit- aði ekki til foreldra sinna þegar hann þurfti á aðstoð að halda. Þau voru stjórnsöm, reyndu að hafa hann sem smábarn — og reyna það að mörgu leyti enn þann dag í dag. Barátta hans fyrir sjálfstæði á ungl- ingsárunum var því mjög erfið. Eftir að námi lauk vaidi Edward stöðu í hernum til þess að hafa afsökun til að flytja að heiman frá stöðugu stappi við foreldrana, en herinn sendir starfsmenn sína víðsvegar um Bandaríkin. í gegnum árin hafa Edward og foreldrar hans haldið þægilegu símasainbandi, þar sem umræður hafa mestmegnis verið um veðrið, og sá tími sem hann hefur eytt með foreldrum sínum hefur verið vandræðalaus, ef hann hefur ekki farið yfir 3 daga — 5 daga samvistir þýddu rifrildi. Edward lýsir sjálfum sér sem áráttusömum perfeksjónista með kaldhæðnislega kímnigáfu, sem taki sjálfan sig of hátíðlega. Hann erfði áráttu foreldranna til að safna peningum til verri tíma, og neitaði sjálfum sér um margt til að geta búið í haginn fyrir fjarlæga framtíð sína. Hann hefur þó haldið góðum lífsstíl sem hann Iýsir sem íbúð, bíll, fei’ðalög og söfnun listmuna — eða eins og hann sagði í sjálfs- hæðni — aðallega hlutir sem hafa endursölugildi. Hann leggur mikla áherslu á iðni og samviskusemi og ætlast til fyllstu afkasta frá sjálfum sér og öðrum. Að mati Edwards hefur velgengnin yfirleitt fylgt hon- um, og í hernum lýsti hún sér í endurteknum stöðuhækkunum. Þrátt fyrir það var hann aldrei öruggur um eigið ágæti, gat ekki slakað á og sagt að nú hefði hann náð nógu langt, sem þýddi að hann lagði enn harðar að sér, með fleiri stöðuhækkanir í kjölfarið . . . Sam- band Edwards við yfirboðara sína var gott, og þrátt fyrir að undir- mönnum hans þætti hann kröfu- harður og strangur, og sveifla svipunni, þá voru þeir yfirleitt ánægðir með árangurinn. Vinir voru bæði á meðal þeirra sem hann vann með, og aðrir utan hersins. Foreldrar Edwards vissu ekki að hann væri hommi, og þó að fleiri hommar séu í hernum en nokkurs staðar annars staðar, þá er kyn- hverfa bönnuð í hernum — þú ert rekinn ef kemst upp um þig. Ed- ward hélt því áfram að leyna kynhverfu sinni, stundaði eingöngu kynlíf í fríum sínum, og jafnvel þá í miklu hófi. Það sem helst skorti á að Edward væri fyllilega sáttur við líf sitt var að hann átti sér ekki ástvin, og þá helst sem lífsföru- naut. En hvað með það, hugsaði hann, úr því mætti bæta þegar hann færi á eftirlaun hjá hernum — sem hann gerði fyrir 5 árum eftir 20 ára starf. Nú hugðist hann loks- ins verða frjáls til að njóta kynlífs að hætti fullorðins fólks, laus við takmarkanir af hálfu hersins og foreldra sinna. Hann hafði áður verið á vegum hersins í Tucson og líkaði svo vel að hann keypti þar hús scm hann hugðist flytja í þegar hann hætti hjá hernum. En — þeg- ar foreldrar hans heyrðu að hann hefði keypt hús þar seldu þau sitt í þorpinu, þar sem þau höfðu búið alla sína tíð og fluttu til Tucson. Edward varð að sjálfsögðu illa við að sjá þannig klippt á tilraun sína til aukins fijálsræðis, og til mikillar armæðu fyrir foreldra hans breytti hann áætlunum sínum og flutti til Houston, þar sem er stór hommaný- lenda. Enduraðlögunin eftir starfið í hernum var erfið. Það var fullt af hlutum sem Edward langaði til að gera, sem hann hafði tilskilin próf til, þó hann vantaði reynslu. Hann opnaði lista-galleri sem fór fljótlega á hausinn. Fram að þeim tíma hafði Edward varla mistekist nokkur hlutur. Hann setti á fót annað fyrir- tæki, sem líka fór á hausinn. Tók hann þetta mjög nærri sér. í hern- um hafði framlag hans ávallt verið verðlaunað, en hér þurfti hann að takast á við öðruvísi veruleika. Hann var einnig einmana, hafði komist að raun um að ástalíf hans hafði ekki breyst til batnaðar svo neinu næmi við það að hætta hjá hernum, og helsta þörf hans er, og var, að hafa einhvern sem hann gæti elskað og sem elskaði hann. Eins og Edward segir: „Ef einhver kæmi til mín og segði, „þú ert maðurinn sem mig langar til að fá að eyða með lífi mínu,“ þá myndi ég hugsa mig um tvisvar áður en ég hafnaði honum.“ Hann velti fyr- ir sér hvaða ástæður gætu verið fyrir að ástalíf hans gekk ekki upp og komst að þeirri (röngu) niður- stöðu að hann hefði óaðlaðandi útlit. Hann gekkst því undir minni- háttar andlitsskurðaðgerð, sem breytti sjálfsáliti hans til hins betra, án þess að hafa nokkur áhrif á ástalífið. Eftir 18 mánaða búsetu í Hous- ton keypti Edward hús og flutti í það. Stuttu seinna eyðilagði fellibyl- ur húsið að mestu — á meðan Edward var inni í því. Þó hann slyppi við meiri háttar meiðsli var þetta hin mesta lífsraun, og síðan gerði hann þau mistök að búa í húsinu á meðan á viðgerðum á því stóð, sem tók mjög langan tíma og var mjög stfessandi. Þann tíma sem Edward bjó í borg þessari voru foreldrar hans stöðugt að hringja til hans. Annað hvort hringdi faðir hans og sagði móður hans svo veika að þetta væri örugglega hennar síðasta, eða þá að móðir hans hringdi og kvað föðurinn vera að leggjast á spítala. Edward þurfti því margoft að fljúga til Tucson, samkvæmt beiðni for- eldranna. Að lokum komst hann að þeirri niðurstöðu að þetta hefði svo truflandi áhrif á frelsi/líf hans að hann gæti alveg eins flutt til Tuc- son, þar sem hann myndi búa í aðeins 10 km fjarlægð frá foreldr- um sínum og gæti þannig verið við hendina ef eitthvað kæmi upp á, en reyna þá um leið að koma hlutun- um þannig fyrir að hann gæti haldið einkalífi sínu í friði. Áður en hann var tilbúinn til þess að flytja frá Houston fékk hann það gott tilboð í húsið að hann seldi það og flutti í íbúð þar sem hann bjó síðustu 6 mánuðina áður. en hann flutti til Tueson. Eftir flutninginn til Tucson setti Edward nýtt fyrirtæki á stofn, sem að þessu sinni gekk vel frá byijun, og hóf jafnframt nám til frekari réttinda. Fimm dögum eftir að hann lauk síðasta prófinu var hann lagð- ur á sjúkrahús með lungnabólgu, sem leiddi til greiningarinnar á eyðni. Síðustu 3 árin fyrir eyðnisgrein- inguna hafði Edward öðru hvoru fengið smá kvilla (sem var óvenju- legt, þar sem hann hafði alla tíð verið mjög hraustur). Hann hafði vett fyrir sér hvort hann gæti verið með eyðni og hafði nokkrum sinn- um spurt þáverandi lækni sinni (í Houston) hvort svo gæti verið, en ávallt fengið afdráttarlausa neitun. Stuttu eftir að eyðni var greind hjá Edward frétti hann að þessi læknir hans hefði látist af völdum eyðni, og ályktaði því að hann hefði verið að afneita eigin einkennum þegar hann neitaði möguleikanum á því að Edward gæti verið með eyðni. Áður en Edward fékk lungna- bólguna hafði hann lengi haft kvef og hafði fengið hvíta bletti í kokið, en frestaði því að fara til læknis þar til að hann var tilneyddur vegna lungnabólgunnar. Þrátt fyrir að hann hefði velt fyrir sér möguleik- anum á eyðni líkti hann sjúkdóms- greiningunni við að lenda undir tonni af múrsteinum. Eins og hann segir, þá er „ekkert, ekki nokkur skapaður hlutur, sem getur undir- búið þig fyrir að heyra að þú sért með eyðni". Fyrstu viðbrögð hans voru þó, þegar læknirinn sagði hon- um að hann gæti búist við að eiga 6 mánuði ólifaða, að hann sagði „guði sé lof, ég þarf þá aldrei að fara til tannlæknis aftur“. En um leið og læknirinn yfirgaf hann hvolfdist inntak þess sem læknirinn hafði sagt yfir hann af fullum þunga og hann faldi höfuðið undir koddanum og hágrét. Grátur hafði ekki átt stóran hlut í lífi hans fram að þessu. Um tíma voru viðbrögð Edwards hugsanir á við „þetta er óréttlátt, það er svo margt sem ég á ógert, hvers vegna ég?“ og „ég sem hef lifað svo takmörkuðu kynlífi, því skyldi þetta koma fyrir mig?“ Síðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.