Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 50

Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. MAI 1987 Minning: Zophonías Zophonías- son bifreiðasljóri Fæddur6.júlí 1906 Dáinn 10. maí 1987 Hugurinn leitar heim til íslands, til Blönduóss, til afa og ömmu. En það er öðruvísi að hugsa til þeirra núna en áður, því nú er afi dáinn. Eiginlega erfítt að gera sér grein fyrir því. Minningarnar koma fram hver af annarri. Frá því þegar afí og amma komu í heimsókn í Eiða, á græna Bronconum, og ég hljóp út í glugga mörgum sinnum yfír dag- inn, til að vita hvort þau færu nú ekki að koma. Og svo gleðin og spenningurinn þegar þau loksins renndu í hlað. Því það að afi og amma kæmu í heimsókn, þýddi bíltúra í afa-bíl, sem var jú miklu meira spennandi en aðrir bílar. Og svo nennti afí örugglega að spila eða_ gera galdur. Ég minnist óþreyjunnar dagana áður en við fjölskyldan lögðum af stað í ferðalag til Blönduóss og hvað síðasti spölurinn milli Akur- eyrar og Blönduóss var oft agalega langur. En loksins var áfangastað náð og mikið var það góð tilfínning að aka „fyrir hornið" og sjá hús ömmu og afa blasa við. Það var ailtaf á sínum stað. Þegar ég varð eldri fór ég stund- um ein í heimsókn til þeirra með rútu. Rútuferðirnar voiu spennandi og gaman að prófa að ferðast á eigin spýtur. En jafnframt veitti það mikið öryggi að vita af því að afí myndi taka á móti mér við rútuna. Það brást heldur aldrei, og það besta var, afí var alltaf eins. Hversu mikið sem mér fannst ég hafa breyst og stækkað síðan síðast, þá var það alltaf sami afí, sem beið eftir mér. Ég fékk á tilfínninguna að afí og amma væru þeir stólpar í tilverunni sem aldrei myndu breyt- ast. Á sl. sumr þegar afí varð áttræð- ur átti ég þess kost að dvelja nokkra daga hjá þeim í gamla húsinu. Þá var ég nýkominn í sumarfrí frá Danmörku. Enn einu sinni kom ég með rútunni til Blönduóss og enn beið afí eftir mér. Ég hef aldrei fundið svo sterkt fyrir því sem þá, hvað það var mér mikils virði að eiga afa og ömmu, þar sem ég allt- af gat komið, ár eftir ár, og fundið sama öryggið, hlýjuna og sam- þykkið, þrátt fyrir að oft liði langur tími milli þess er við sáumst, sér- staklega hin síðari ár. Þetta voru góðir dagar sem við áttum saman sl. sumar og eru þeir mér dýrmæt minning. Sérstaklega er mér minnisstæð bílferðin í Borg- arQörðinn á afmælisdaginn. Það var skrýtin tilfínning að aka á fullri ferð á malbikinu og á sama tíma hafa afa við hlið mér og hlusta á hann segja frá, hvemig vegurinn hefði verið þegar hann byijaði að aka bíl og einnig heyra um ýmis atvik sem hann hafði upplifað á ferðum sínum. Það var eins og þess- ir staðir sem hann talaði um og ég annars aldrei hafði veitt athygli fengju nýjan blæ og meiningu. Eg var ríkari eftir þennan dag. Það er skrýtið að hugsa til þess, að næst þegar ég kem á Blönduós verður það ekki afí sem bíður eftir rútunni, tilbúinn til að taka á móti mér eins og alltaf áður. Annar stólp- inn sem mér fannst eins og aldrei myndi breytast, er horfínn, en minningin um yndislegan afa, lifír. Elsku amma, ég bið Guð að gefa þér styrk til að standa ein cftir og byija upp á nýtt, án afa. Til þín amma, mamma, Kolla, Dússi og alls hins skyldfólksins, sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi sorgin breytast í þakklæti og gleði yfir því að hafa fengið að hafa afa svo lengi hjá okkur. Drottinn cr minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. (Davíðssálmur nr. 23.) Kveðja frá Rúnu í Danmörku. Móðir okkar, ELÍSABET SIGURÐARDÓTTIR, andaðist á Hrafnistu mánudaginn 25. maí sl. Sigurður Einarsson, Guðriður Einarsdóttir, Erlingur Einarsson, t Eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, SIGNE SIRNES GREIPSSON, lést í sjúkrahúsinu i Haugasundi mánudaginn 25. maí. Hallgrimur Greipsson, Anne Sirnes Greipsson, Linda Sirnes Greipsson, Anna Maria Sirnes. t STEINUNN SIGURBJÖRNSDÓTTIR fró Grímsey lézt í Landakotsspítala föstudaginn 22. mai 1987. Jarðsett verður frá Miðgarðakirkju i Grimsey föstudaginn 29. maí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sundlaugarsjóð Grímseyjar. Hafliði Guðmundsson, Stefán Friðfinnsson. ■f Móöir okkar, ■ VALGERÐUR BJARNADÓTTIR, Tjarnargötu 16, Keflavík, lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 25. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin. Allt fram streymir. Lífið er á stöðugri hreyfíngu, eins og áin, sem liðast í gegnum byggðina út í ómæl- ishafíð og sameinast þar upphafí sínu. Við menn stöndum á árbakka elfunnar og getum engu um það ráðið, hvert okkar endanlega lífshlaup verður, fremur en sand- kornin mörgu, sem áin safnaði saman við ósinn í fytra, en eru nú allt í einu horfin út á hafíð djúpa. Þannig er lífið á stöðugri ferð, jafnt mannlífið — þar sem kynslóðirnar koma og fara, einstaklingar fæð- ast, þroskast og lifa lífinu mislengi og hverfa svo á brautu — og svo hin árvissa hringrás náttúrunnar frá vori til sumars, sumri til hausts, vetri til vors. Og nú á þessu vori, nánar tiltek- ið 13. apríl sl., voru liðin sextíu ár frá því að ungur maður var á ferð frá Bjarnastöðum í Vatnsdal út á Blönduós við Húnafjörð. Það var vor í lofti þennan dag. Þessi ungi maður fór hratt yfír og hljóp við fót. Hann hugðist fara ferð fyrir mann, sem kennt hafði honum á bifreið. Þessi ungi maður, sem hér var á ferð, var Zophonías Zophoní- asson frá Bjarnastöðum. Hann hafði fengið orðsendingu frá öku- kennara sínum, Páli Bjarnasyni á Blönduósi, sem fyrstur eignaðist bifreið í Austur-Húnavatnssýslu. Páll hafði lofað að flytja fólk frá Blönduósi fram að Sveinsstöðum í Húnaþingi, þar sem bílvegur endaði til suðurs. En þennan umrædda dag varð Páll skyndilega upptekinn við að annast um konu sína, sem tók léttasótt og eignaðist dreng. Þess vegna hafði hinn ungi maður, Zop- honías Zophoníasson, brugðist hart við, er hann fékk orðsendinguna frá Páli og vildi mál hans leysa. Leiðin sem Zophonías þurfti að fara er yfir 20 km. Þegar út á Blönduós kom lagði Zophonías strax af stað með fólkið í bifreið Páls og ók því fram að Sveinsstöðum, síðan skilaði hann bifreiðinni til baka út á Blönduós og gekk svo heim um nóttina. Þar með hafði Zojihonías farið sína fyrstu ferð í bifreið á eigin ábyrgð og leysti um leið vanda kennara síns. Á þennan hátt hóf Zophonías starf sitt sem varði nær sextíu ár. Því var þessi ferð hans upphafíð af giftusamlegu starfí sem Zophoní- as lagði fram á lífsleiðinni til að ryðja brautina til hagsbóta fyrir Blönduós og nágrannabyggðir. Þar áttu vissulega fíeiri hlut að máli, en Zophonías var þessi einstaki maður, greiðvikinn, hjálpsamur, og úthaldsgóður. Zophonías Zojihoníasson var fæddur 6. júlí 1906 að Æsustöðum í Langadal. Foreldrar hans voru hjónin Zophonías Einarsson Andr- éssonar frá Bólu og Guðrún Pálmadóttir Sigurðssonar frá Æsu- stiiðum. Faðir hans féll frá áður en Hótel Saga Sími 1 20 13 Blóm og skreytingar við öll tœkifœri hann fæddist og var hann skírður eftir honum. Bróðir Zophoníasar hét Pálmi og var eldri en hann. Hér stóð því ekkjan ein með tvo syni sína komunga, en Guðrúnu Pálmadóttur var ekki físjað saman. Hún hélt áfram búi á Æsustöðum þar til Zophonías var kominn nær fermingu, en þá bauðst henni jörðin Bjarnastaðir í Vatnsdal. Flutti hún því þangað ásamt sonum sínum. Fljótlega tók hún í fóstur sex mán- aða svein, Þorbjörn Ólafsson, sem nú býr í Reykjavík. Hann varð þannig uppeldisbróðir Zophoníasar. Bjamastaðir eru lítil jörð yst í Vatnsdal, austan við einkar vinalegt stöðuvatn, sem Flóðið nefnist. I þessu fallega og víðfeðma umhverfi átti Zophonías heima næstu árin og vann við hin gömlu hefðbundnu störf íslensks sveitabúskapar eins og þau höfðu gengið til öld eftir öld. En einmitt á þessum ámm var nýtt vor í lofti yfír Islandi. Ný tækni og ný hugsun var að ryðja sér braut. Hið gamla Island, sem átti sér í ýmsu tilliti merka sögu, var slegið sprota nýjunga, sem áttu eftir að gerbylta gamla lífsstílnum. Ein þessara nýjunga var bifreiðin, sem fyrst kom til landsins á fyrsta áratug þessarar aldar og átti erfitt uppdráttar til að bytja með. En ungir menn eins og Zophonías skildu að hér var eitthvað á ferð- inni, sem bar framtíðina í skauti sér. Eins og áður er getið hafði verið mdd braut frá Blönduósi að Sveins- stöðum skammt frá Bjamastöðum. Eftir að Zophonías sá fyrsta bílinn fara þessa braut ákvað hann að fá bílstjórann, Pál Bjamason, til að kenna sér á bifreið. En ti! Reykjavíkur varð Zophonías að fara til að taka ökupróf. Hann lagði af stað með Goðafossi, nýlegu skipi Eimskipafélags íslands, í ársbyrjun 1927. Skipið hreppti vonskuveður og var veðurteppt á Húnaflóahöfn- um í viku, svo ferðin til Reykjavíkur tók hálfan mánuð. Þar tók Zophoní- as svo ökuprófið. Prófdómari var Egill Vilhjálmsson. Zophonías hlaut ökuskírteini númer eitt, gefíð út af embætti sýslumannsins í Austur- Húnavatnssýslu. Heim hélt Zop- honí- as svo um Borgames, Borgarfjörð og Holtavörðuheiði og gekk mest af leiðinni og var rétt mátulega kominn heim til þess að fara áður- nefnda ferð 13. apríl 1927. Næsta ár, 1928, keypti Zophoní- as sína fyrstu bifreið og varð bifreiðaakstur lifibrauð hans upp frá því. Þetta sama ár, þann 23. desember, gekk Zophonías að eiga Guðrúnu Einarsdóttur frá Blöndu- bakka. Þau stofnuðu heimili þar sem nú er Aðalgata 3 á Blönduósi og bjuggu þar í nær 60 ár. Börn þeirra á lífi eru: Zophonías, búsett- ur á Blönduósi, kvæntur Grétu Arelíusdóttur, Guðrún Sigríður, búsett á Eiðum, gift undirrituðum; og Kolbrún, búsett á Blönduósi, gift Guðjóni Ragnarssyni. Auk þess ólst upp hjá þeim um árabil Sigur- laug Ásgrímsdóttir frá Ásbrekku í Vatnsdal. Zophonías og Guðrún bytjuðu búskap af litlum efnum, en með bjartsýni til hins nýja íslands, sem gaf fyrirheit um betri tíma. En samt vat- erfítt að stofna til heimilis og hefja bílarekstur um 1930. Um all- ar aldir hafði „þarfasti þjónninn" haldið uppi samgöngum á Islandi yfir vegleysur og óbrúaðar ár. Veg- ir fyrir bíla þekktust því vart úti á landsbyggðinni og þjónusta var þá lítil. Zophonías varð því að gera meira en að aka , hann varð sjálfur að gera við, ef eitthvað bilaði og stundum að búa til varahluti með góðra manna aðstoð. Síðan skall kreppan á. Peningar hurfu þá úr daglegum viðskiptum. Þegar þá var komið sögu, hafði Zophonías tekið að sér áætlunar- ferðir inn í Vatnsdal, en vegur hafði verið ruddur inn dalinn vestan- verðan. Bændur höfðu ekki bein- harða peninga í kreppunni og gátu frekar borgað með afurðum. Svo að Zophonías og Guðrún tóku það til bragðs að koma sér upp dálitlu kúabúi. Jafnhliða tóku þau að sér afgreiðslu fyrir Olíuverslun Islands, sem þau önnuðust í 35 ár, frá 1929—1964. Þá sáu þau í árabil um þjónustu fyrir Bifreiðastöð Ak- ureyrar, en það fyrirtæki hélt uppi áætlunarferðum milli Akureyrar og Reykjavíkur. Einnig ráku þau lengi litla verslun á bakka árinnar Blöndu í sambandi við bensínafgreiðsluna. Þessi umsvif jukust svo til muna eftir að ísland var hernumið í heimsstyijöldinni síðari og íslend- ingar urðu fyrir áhrifum frá þeim darraðardansi. Það var því löngum á þessum árum í mörg hom að líta á heimili þeirra hjóna og urðu þau og böm þeirra, er þau ólust upp, að veita gestum og gangandi ýmis konar þjónustu. Þá var aldrei spurt um hver tími sólarhringsins var. Sem dæmi má nefna kom ósjaldan fyrir, þegar fjölskyldan var sest öll við matborð og ætlaði að taka sér hlé frá erli dagsins, að allir höfðu orðið að standa upp frá borðinu áður en máltíð lauk, nema gamla konan, Guðrún, móðir húsbóndans. Þess skal og getið að Zophonías hafði umboð um árabil fyrir Almennar tryggingar. Ef frístund gafst frá öllu þessu kenndi Zophonías á bif- reið. Zophonías var virkur í bifreiða- félaginu Neista á Blönduósi og heiðursfélagi síðustu árin. Zophonías var farsæll bifreiða- stjóri. Hann kunni þá list að aka jafnan heilum vagni í hlað. Með lagni og þrautseigju komst hann leiðar sinnar, jafnvel þegar sundin virtust lokuð. Þeim eiginleika hans og hug þeirra _sem hann ók fyrir er vel lýst af Ólafí Sigfússyni frá Forsæludal í eftirfarandi Ijóði: Til Zophoníasar Vatnsdæl- ingabílstjóra. Þig hefúr alltaf auðnan stutt ðkukempan slynga. Þú hefúr margan farminn flutt fyrir Vatnsdælinga. Þó að fannir féllu á grund í ferðum vetrar ströngum fannstu einhver opin sund — utan vegar Iðngum. Þökk og heiður, þeim sem ber því frá okkar kynning hvarflar hljótt um huga mér hlý og litrík minning. Þannig var Zophonías, traustur maður, rólegur og æðrulaus og hirðusamur um sitt starf, barngóð- ur og vinahlýr. En nú skilur leiðir, því krossgötur skerast og allt fram streymir, en stefnumarkið er þó eitt. Allt okkar ráð frá lífí til lífs er í hendi hans, sem var í upphafi, er og verða mun — Drottins sjálfs. I samanburði við hans almættisdýrð erum við menn eins og lítil sandkorn á bakka hinn- ar miklu elfar, sem stöðugt streymir fram og leitar síns upphafs, eins og áin hér hjá gamla heimilinu hans Zophoníasar. Og nú sit ég hér í stofunni hans og horfí út um gluggann, yfír ána slétta og lygna, út yfír Húnaflóann til Strandafjall- anna í norðvestri, sem gnæfa yfír eins og útverðir hins gamla og nýja Islands. Þess nýja íslands, sem ýmsir brautryðjendur hafa lagt stein í götuna og varðað veginn, svo við getum ekið í vagninum okk- ar áfram á vit framtíðar. Á þessari stundu við kross- göturnar eru mér því efstar í huga þakkir til míns kæra tengdaföður, þakkir fyrir hans starf, þakkir fyrir hvað hann var okkur, flölskyldunni á Eiðum, í sambandi við heimsókn- ir austur og móttökur hér. Megi Drottinn, sem öllu stýrir, tryggja lífsvagninum hans á nýrri akstursleið, velfarnað um alla eilífð. í þá miklu för lagði Zophonías Zophoníasson bifreiðastjóri 10. þ.m. og var burtkvaddur 16. þ.m. að við- stöddu margmenni. Það var hugnæm stund, hjálpaði þar til ljúf- ur söngur kirkjukórs Blönduóss- kirkju undir stjórn Jóns Tryggva- sonar, Ártúnum, góð ræða sóknarprestsins, sr. Árna Sigurðs- sonar, og síðast en ekki síst, hin talandi fegurð hins víðfeðma um- hverfis og undirspil náttúrunnar, virðulegt framstreymi árinnar, brotnandi bárurnar við ströndina og kvak fuglanna. Það var enn vor í lofti yfir Húnabyggð. Blessuð sé minning Zophoníasar Zophoniassonar, bifreiðastjóra, Blönduósi. Einar Þ. Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.