Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 64

Morgunblaðið - 27.05.1987, Page 64
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Skipverjar á Eyrarfossií yfirheyrslum SKIPVERJAR á Eyrarfossi, skipi <—* Eimskipafélagsins, hafa verið yfirheyrðir hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins frá því að skipið kom til hafnar á mánudag, vegna gruns um að áfengi hafi verið smyglað með skipinu. Eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu hinn 20. maí síðastliðinn, játuðu tuttugu skipveijar á Álafossi að hafa smyglað 1400-1500 flöskum af áfengi til landsins á síðasta ári. Þá var einnig verið að rannsaka málið sem tengist Eyrarfossi, en það mun vera enn viðameira. Þegar skip- ið lagðist að höfn á mánudag voru skipveijar boðaðir til yfirheyrslu hjá rannsóknarlögreglunni. > Rannsókn lögreglunnar á þessum málum hefur verið unnin í náinni samvinnu við tollgæsluna. Tollgæsl- an aflaði upplýsinga hjá tollyfirvöld- um. erlendis um kaup skipveija á áfengi og það er á grundvelli þeirra gagna sem lögregla byggir rannsókn sína. Eru lögreglumenn bjartsýnir á að málið takist að upplýsa á skömm- um tíma. Eldur í raðhúsi ENGINN slasaðist þegar eldur kom upp í tvíiyftu raðhúsi við Lækjarhvamm í Hafnarfirði um kl. 22:30 í gærkvöldi. Eldurinn var á efri hæð hússins, sem er í byg'gingu, en einungis er búið á neðri hæðinni. Ekki er vitað um eldsupptök. Gísli Ellertsson bóndi á Meðalfelli i Kjós notar góða veðrið til að bera á tún. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson I baksýn sést á ReynivaUaháls og Skarðsheiði. GRÓÐRIFER VEL FRAM UM ALLT LAND GRÓÐRI fer vel fram um allt land í veð- urblíðunni sem verið hefur að undanf- örnu. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri segir ánægjulegt hvað gróðurinn sé jafn- góður um allt land. Sauðburður er víðast hvar í miðjum klíðum. Þar sem hann byijaði fyrst er hann þó langt kominn. Jónas sagðist ekki vita annað en að sauðburðurinn hefði gengið vel um allt land. Það létti mikið á bændum þegar svona góðir dagar kæmu um sauðburðinn. Bændur eru einnig að vinna að öðrum vorverkum, svo sem við að bera á tún, setja niður kartöflur og fleira. Hvalkjötið á leið- inni til Islands Islenzk stjórnvöld mótmæla meðferð Þjóðverja á málinu HVALKJÖTIÐ, sem kyrrsett var í fríhöfninni í Hamborg, er á leið til landsins á ný eftir að hafa verið skipað um borð i skip Eimskipa- félags Islands. Rikisstjórn íslands hefur ákveðið að mótmæla meðferð þessa máls af hálfu vestur-þýzkra yfirvalda. Snarræði slökkviliðs- mannskom í veg fyrir stóiijón IttfiröL SNARRÆÐI starfsmanns rækjuverksmiðjunnar Bakka hf. í Hnífsdal, Páls Hólm, sem jafnframt er slökkviliðsmaður, kom í veg fyrir að stórtjón yrði þegar kviknaði í kyndiklefa rækjuverksmiðjunnar aðfara- nótt siðastliðins þriðjudags. Eiginkona Páls, Guðrún Rósen- bergsdóttir, varð vör við að reyk lagði upp frá rækjuverksmiðjunni, sem er næsta hús handan Stekkj- argötu í Hnífsdal um eitt leytið. Hún kallaði á bónda sinn sem þá var sofnaður og sagði honum að kviknað væri í. Páll hentist í bux- ur og vinnuslopp og hljóp rakleitt út í slökkvistöðina í Hnífsdal sem er skammt frá, en að henni hafði hann lykil. Þar náði hann í reyk- köfunartæki og tvö kolsýru- slökkvitæki og óð inn í kyndiklef- ann þaðan sem dökkan olíureykinn lagði út. Hann tæmdi bæði tækin á loftið yfir olíukyndi- tækinu og niður eftir veggnum. Honum fannst þá að eitthvað glæddi eldinn og grunaði að olía spýttist úr kynditækinu. Hann hljóp þá að inngangi hússins, Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Páll Hólm, starfsmaður rækju- verksmiðjunnar Bakka hf. og slökkviliðsmaður. braut þar rúðu í útihurð, hljóp að rofa og lokaði fyrir rafstraum að kynditækinu. Síðan greip hann önnur tvö slökkvitæki sem þarna voru og réðist með þeim gegn eldinum sem enn var einungis í kyndiklefanum. Með aðstoð slökkviliðs frá Hnísfdal og Isafirði tókst svo að ráða niðurlögum eldsins. Páll sagði í viðtali við Morgunblaðið að mestu hefði varðað að hann er lærður reykkafari og hafði ein- mitt verið á námskeiði sem Brunamálastofnun ríkisins hélt um síðustu helgi þar sem sýndar voru kvikmyndir um olíuelda og hvernig ætti að bregðast við þeim. - Úlfar Matthías Á. Mathiesen utanríkis- ráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að hugmyndin um að endursenda kjötið til íslands hafi komið frá sendiráði Islands í Bonn. Eftir að forsvarsmenn Hvals hf. samþykktu þessa málsmeðferð var fengin undanþága frá gildandi reglum. „TILGANGINUM er að stórum hluta náð, ef menn eru almennt tilbúnir til að bæta ástandið á sumardvalarstöðunum, en til okkar hafa snúið sér í dag ótal aðilar sem segjast hafa byijað úrbætur. Hér hefur ekki linnt símhringingum," sagði Guðjón Bjarnason, framkvæmdastjóri Barnaverndarráðs, þegar Morg- unblaðið talaði við hann um viðbrögð manna við frétt Morg- Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sagði í samtali við Morgun- blaðið, að hann væri alls ekki ánægður með þessa lausn málsins. Hann væri ekkert hrifinn af því að vera senda kjötið fram og aftur vegna samþykkta í Þýzkalandi, sem engir vissu um. Úr því sem komið væri, þýddi ekkert annað en taka unblaðsins í gær. Þar greindi hann frá því að víða væri ófremd- arástand hvað brunavarnir snerti og ekki yrði veitt leyfi til reksturs sumarbúða sem upp- fylltu ekki tilsett skilyrði. Úttekt Brunamálastofnunar, sem meðal annars nær til heimavistarskóla, er ekki lokið. „Þetta er umfangsmikið verkefni og því er ekki lokið. Það er fjöldinn allur af stöðum úti um allt land sem kjötið heim aftur og senda eftir öðrum leiðum til Japans. „Það var utanríkisráðuneyti Vestur-Þýzkalands sem beitti sér fyrir því að fá staðfestingu réttra yfirvalda að beiðni utanrikisráðu- neytisins hér,'“ sagði Matthías. „En við erum að sjálfsögðu óánægðir með framgang þessa máls og mun- um gera athugasemdir í orðsend- ingu til vestur-þýzka utanríkisráðu- neytisins." Sjá nánari fréttir á bls. 37. þarf að fara á og ég er ekki tilbú- inn á þessu stigi málsins til að veita upplýsingar um ástand einstakra staða. Á þessum málum verður að taka með mikilli gætni og tillitsemi gagnvart mörgum aðilum," sagði Sveinbjöm Sigtryggsson, hjá Brunamálastofnun ríkisins, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Guðjón Bjamason sagði að mikið hefði verið um símhringingar frá foreldmm í gær. Sumardvalarheimili og sumarbúðir: Urbætur víða hafnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.