Morgunblaðið - 12.06.1987, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Marhnútar
Igær fjallaði ég hér einkum um þá
ósvinnu að bjóða íslenskum böm-
um uppá að hlýða á enskuskotið
bamaefni og sagði þá meðal annars:
„Það hlýtur að vera fmmkrafa
íslenskra foreldra og bama þeirra að
allt bamaefni í sjónvarpi beri lesinn
íslenskan texta. Það er raunar móðg-
un við smáfólkið er á að erfa landið
að bjóða því uppá að hlýða stöðugt
á erlent tal og sennilega þekkjast
slík vinnubrögð hvergi nema hjá van-
þróuðum þjóðum er kremjast því
miður svo alltof oft undir hæl hins
alþjóðlega vitundariðnaðar." Þung
orð, kæm lesendur, en máski í tíma
töluð?
Svona til að lyfta andanum í sólar-
breyskjunni vík ég að aldeilis frábær-
um bamaþætti er bar fyrir hlustir í
ríkisútvarpinu í fyrradag, nánar til-
tekið innan marka Bamaútvarpsins
á rás 1. í þætti þessum er var send-
ur beint út alla leið frá Grímsey vom
þeir Vemharður Linnet og Öm Ingi
í aðalhlutverkunum. Vemharður
stýrði sjóstangamóti einu miklu þar
sem krýna átti: Aflakóng Bamaút-
varpsins og svo stóð Öm Ingi við
pönnumar í landi og matreiddi aflann
jafnóðum og hann barst af bryggju-
sporðinum. Kenndi þar margra grasa
en þeir Vemharður og Öm Ingi virt-
ust einkum hafa áhuga á marhnútin-
um og loks var hann tilbúinn . . .
MARHNÚTUR MEÐ RJÓMASÓSU!
Æpir kokksi og Vemharður Iýsir
flálglega réttunum: Hann líkist helst
humri, má ekki bjóða ykkur að
smakka! Nokkrar húsfrúr em mættar
í flæðarmálið: Æ, ég held ekki, ég
held ég hafi ekki lyst á þessu. En
Vemharður gefst ekki upp: Bara einn
bita? Húsfrúmar láta loksins tilleiðast
og enn spyr Vemharður Má ég heyra
smjattið? Ég vil fá gott smjatt. Ekki
fengust húsfrúmar í Grímsey til að
smjatta fyrir alþjóð er þær smökkuðu
marhnút — a la Öm Ingi, sem var
svo sem ekki von en hann Vem-
harður blessaður var alveg á valdi
ijómasósunnar og Öm Ingi hvatti
alla Grímseyinga að sækja nú rauðví-
nið oní bmggkjallara. Og ekki létu
bömin sitt eftir liggja því á land
streymdu marhnútar, ufsar og aðrir
gullfiskar vors gjöfula sjávar svo ört.
að ekki tókst að finna Aflakóng Bar-
naútvarpsins — hvar leynist aflakló-
in?
Fréttir
Svo sannarlega leynast stórfrétt-
imar víða, jafnvel í fjöruborðinu í
Grímsey þar sem marhnútar reynast
gullfiskar, annars er nú fréttamönn-
unum alla jafna ætlað að fiska upp
stórfréttimar og það þótt stórlaxar
séu ekki gengnir í ljósvakaelfuna.
Hefur mér þótt fremur dapurlegt að
fylgjast með eltingarleik ljósvakaf-
réttamannanna við stjómarmyndun-
argarpana. Vonandi tekur það fískerí
senn enda en ég lofaði hér I upphafi
að lyfta andanum svolítið í sólar-
breyskjunni.
Þessa dagana fyllist ljósvakaelfa
vor af stórlöxum og verð ég að hæla
fréttamönnum nKissjiíriyarpoiM® sr
mér virðast allir af vilja gerðir að
sinna sem best NATO-fundinum,
þessari merku ráðstefnu er gæti lagt
gmnninn að umfangsmestu afvopn-
unarsamningum aldarinnar. Þannig
lagði Amþrúður Karlsdóttir frétta-
maður líf og limi í hættu er hún flaug
á miðvikudaginn var inní „lofthelgi"
Hótels Sögu og svo stýrði Guðni
Bragason heldur langdregnum um-
ræðum um hlutverk Atlantshafs-
bandalagsins er komu í stað
endursýningar Sjötta skilningarvits-
ins, flórða þáttar. Hvað um það, þá
vom miðvikudagsfréttir ríkissjón-
varpsins óvenju flölbreyttar og
spönnuðu hvorki meira né minna en
fjörutíu mínútur. Athyglisverðasta
fréttaskotið fannst mér skreppa úr
skjóðu Ómars Ragnarssonar er sýndi
sjónvarpsáhorfendum örfoka land-
spildu í Grafningi er skógræktarmenn
hafa falast eftir en fá ekki að skrýða
ylríkum gróðri sökum andstöðu nok-
kurra bænda.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP
©
FÖSTUDAGUR
12. júní
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin — Hjördis
Finnbogadóttir og Óöinn
Jónsson. Fréttir eru sagðar
kl. 7.30 og siðan lesið úr
forystugreinum dagblað-
anna. Tilkynningar eru
lesnar kl. 7.25, 7.55 og
8.25. Erlingur Sigurðarson
talar um daglegt mál kl.
7.20. Fréttir á ensku sagöar
kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna. Gunnvör Braga les
síðari hluta þýðingar Theó-
dórs Árnasonar á ævintýr-
inu „Litla klárnum" úr
bókinni „Gömul ævintýri”.
9.20 Morguntrimm. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Voðaskof', smásaga
eftir Steingrím Th. Sigurðs-
son. Höfundur les.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón:
Sigurður Einarsson. (Þáttur-
inn verður endurtekinn að
loknum fréttum á miðnætti.)
11.55 Útvarpið í dag.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
Ríkissjón-
varpið:
Perry Ma-
son
snýr aftur
■■■■ Perry Mason
00 50 snýr aftur, ný
bandarísk saka-
málamynd, er á dagskrá
sjónvarps í kvöld. Myndin
ijallar um hina vinsælu
söguhetju Earle Stanley
Gardners, Perry Mason,
veijandann sem leysti
morðgátur í réttarsalnum.
í þessari mynd er lögmað-
12.20 Hádegisfréttir.
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Franz
Liszt, örlög hans og ástir"
eftir Zolt von Hársány. Jó-
hann Gunnar Ólafsson
þýddi. Ragnhildur
Steingrímsdóttir byrjar lest-
urinn.
14.30 Þjóðlög.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Lesið úr forystugreinum
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03—19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Inga Eydal rabbar við hlust-
endur og les kveöjur frá
þeim, leikur létta tónlist og
greinir frá helstu viöburöum
helgarinnar.
/ FM10Z.2
FOSTUDAGUR
12. júní
7.00—10.00 Þorgeir Ást-
valdsson.
10.00—13.00 Jón Axel Ólafs-
son.
13.00—16.00 Gunnlaugur
Helgason.
16.00—19.00 Bjarni Dagur
Jónsson.
19.00—22.00 Helgi Rúnar
Óskarsson.
22.00—03.00 Stjörnuvaktin:
Stýrimaöur og dansstjóri
Einar Magnússon.
03.00—08.00 Bjarni Haukur
Þórsson heldur vöku fyrir
góðglöðum og alsgáðum
og er að fram í morgunsáriö.
landsmálablaöa.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síödegistónleikar:
a. Placido Domingo syngur
lög eftir Grever, D'Hardelot,
Simons, De Curtis og Loges
með Sinfónfuhljómsveit
Lundúna; Karl-Heinz Loges
stjórnar.
b. „Capriccio Italien" eftir
Pjots Tsjaíkovskí. Fílharm-
oníusveit Berlinar leikur;
Mstislav Rostropovitsj
stjórnar.
17.40 Torgiö. Umsjón: Ragn-
heiður Gyða Jónsdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald. Til-
kynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt
mál. Endurtekinn þáttur frá
morgni sem ErlingurSigurð-
arson flytur. Náttúruskoð-
urinn orðinn dómari og
Della Street, fyrrum ritari
hans, vinnur hjá vellríkum
iðjuhöldi. Hún er sfðan sök-
uð um að hafa orðið
húsbónda sínum að bana.
Þegar Mason fréttir þetta
gerist hann veijandi forn-
vinu sinnar. Með aðalhlut-
verk fara Rajrmond Burr
og Barbara Hale.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
12. júní
18.30 Nilli Hólmgeirsson.
19. þáttur. Sögumaður: Örn
Árnason. Þýöandi: Jóhanna
Þráinsdóttir.
18.55 Litlu Prúöuleikararnir.
Sjötti þáttur. Teiknimynda-
flokkur í þrettán þáttum eftir
Jim Henson. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson.
19.16 Á döfinni.
Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkom. ,
Umsjónarmenn: Guðmund-
ur Bjarni Haröarson, Ragnar
Halldórsson og Guðrúr
Gunnarsdóttir. Samsetning
Jón Egill Bergþórsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dag
skrá.
20.40 Ráðherrafundur í Reykja-
vík. Fréttaskýringaþáttur um
fund utanríkisráðherra ríkja
Atlantshafsbandalagsins.
21.15 Derrick.
Fimmti þáttur. Þýskur saka-
málamyndaflokkur f fimmt-
án þáttum með Derrick
lögregluforingja sem Horst
Tanpert leikur. Þýðandi Vet-
urliði Guðnason.
22.20 Upp á gátt.
Þáttur um innlend málefni.
22.50 Perry Mason snýr aftur
(Perry Mason Returns).
Ný, bandarísk sakamála-
mynd. Aðalhlutverk:
Raymond Burr og Barbara
Hale. Á árunum
1957—1967 voru gerðir
270 sjónvarpsþættir um
Perry Mason, verjandann
sem leysti morðgátur f rétt-
arsalnum. Nú hefur þráöur-
inn verið tekinn upp aftur
með sjónvarpsmyndum um
þessa vinsælu söguhetju
Earle Stanley Gardners. I
þessari fyrstu mynd er lög-
maöurinn oröinn dómari og
Della Street, fyrrum ritari
hans, vinnur hjá vellríkum
iðjuhöldi. Hún er sfðan sök-
uð um að hafa orðiö
húsbónda sínum að bana.
Þegar Perry Mason fréttir
þetta segir hann af sér dóm-
araembættinu og gerist
verjandi fornvinu sinnar.
Þýðandi: Bogi Arnar Finn-
bogason.
01.00 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
12. júní
§ 16.45 Sheena, drottning
frumskógarins (Sheena).
Bandarísk ævintýramynd
með rómantfsku ívafi frá
1984 með Tanya Roberts,
Ted Wass, Donovan Scott
og Elisabeth of Toro í aöal-
hlutverkum. Leikstjóri er
John Guillermin.
Á unga aldri verður Sheena
viðskila við foreldra sfna í
myrkviöum frumskóga
Afríku. Ættflokkur einn finn-
ur hana og tekur að sér og
hún elst upp samkvæmt
lögmálum náttúrunnar.
Löngu seinna ferðast þátt-
argerðarmaður sjónvarps
um Afríku og verður Sheena
þá á vegi hans.
18.35 Knattspyrna —
SL-mótið — 1. deild. Um-
sjón: Heimir Karlsson.
19.30 Fréttir.
20.00 Heimsmetabók Gu-
inness (Guinness Book of
nöCörds).
Stærsturl Mesturl Lengst-
url Besturl Mesta átvagliðl
Stærsti stóllinnl Sterkasti
maður heimsl Allt þetta og
fleira í sama dúr er að finna
í heimsmetabók Guinnes.
Hinn kunni sjónvarpsmað-
ur, David Frost, kynnir þau
furðulegu og skemmtilegu
heimsmet sem þar má
fræðast um.
§20.50 Hasarleikur
(Moonlighting).
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur með Cybill
Sheperd og Bruce Willis í
aöalhlutverki.
Líf þeirra Maddie og David
hangir á bláþræði eftir að
bróðir Davids kemur í
óvænta heimsókn með ný-
fenginn auð. Leikstjóri:
Robert Butler.
§ 21.40 Annika (Annika).
Annar hluti af þrem um ást-
arsamband ungmenna frá
ólíkum þjóöfélögum. í aðal-
hlutverkum eru Christina
Rigner, Jesse Birdsall, Ann-
Charlotte Stalhammar,
Birger Österberg, Vas
Blackwood og Anders
Bongenhielm. Leikstjóri:
Colin Nutley.
Þriðji hluti er á dagskrá
sunnudaginn 12. júní.
§ 22.35 Einn á móti milljón
(Chance in a Million).
Breskur skemmtiþáttur með
Simon Callow og Brenda
Blethyn í aðalhlutverkum.
Fyrst stefnumót Tom
Chance og Allison Little
endar með ósköpum. Hún
kemur heim til sín seint að
kvöldi á nærklæðum einum
— að vísu í minkapels utan
yfir — bíllinn hennar er
skemmdur, óður hundur elt-
ir hana og Tom er kennt um
allt saman.
§ 23.05 Moröin á fyrirsætun-
um (Tbe Calendar Girl
Murders).
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá árinu 1984. I aöalhlut-
verkum eru Robert Culp,
Tom Skerritt, Barbara Perk-
ins og Sharon Stone.
Leikstjóri er William A. Grah-
am.
Nokkrar fyrirsætur tfmarits-
ins Paradís eru myrtar á
óhugnanlegan hátt. Lög-
reglan er fengin til að
rannsaka málið leynilega.
Margir eru í’rungöir oa revn-
ist morðgátan ærið flókin.
Myndin er bönnuð böm-
um.
§ 00.35 Magnum Pl.
Bandariskur sakamálaþátt-
ur með Tom Sellek í aðal-
hlutverki.
§ 1.25 Höföingjamir (Warri-
ors).
Bandarísk bfómynd frá árinu
1979. f aöalhlutverkum eru
Michael Beck, James Rem-
ar, Thomas Waites, Dorsey
Wright, Brian Tyler og De-
borah Van Valkenburgh.
Leikstjóri: Walter Hill.
Óformlegt stríð ríkir meöal
óaldarflokka New Vork-
borgar vegna launmorös á
einum aðalforingjanum.
Þeir grunuðu eru hundeltir
af öðrum óþjóöalýð borgar-
innar og færist harka í
leikinn þar sem allir eru vel
vopnum búnir.
Myndfn er stranglega
bönnuð bömum.
2.55 Dagskrárlok.
un.
20.00 Píanókvintett í f-moll op.
34 eftir Johannes Brahms.
Arthur Rubinstein og
Guarnieri-kvartettinn leika.
20.40 Kvöldvaka.
a. Leiðsögn f Iffsins amstri.
Þorsteinn Matthíasson les
frásögn sem hann skráði
eftir Svanmundi Jónssyni frá
Skaganesi í Mýrdal.
b. Ljóð eftir Jakobínu John-
son. Þórunn Elfa Magnús-
dóttir les.
c. Eyöibýliö og síðasti ábú-
andinn. Ágúst Vigfússon
flytur frumsaminn frásögu-
þátt.
21.30 Tifandi tónar. Haukur
Ágústsson leikur létta tón-
list af 78 snúninga plötum.
(Frá Akureyri.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Vfsnakvöld. Ingi Gunnar
Jóhannsson sér um þáttinn.
23.00 Andvaka. Umsjón Pálmi
Matthíasson. (Frá Akureyri.)
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón:
Sigurður Einarsson. (Endur-
tekinn þáttur frá morgni.)
01.00 Dagskrárlok. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
ái
FÖSTUDAGUR
12. júní
00.10 Næturútvárp. Magnús
Einarsson stendur vaktina.
6.00 í bftið. Snorri Már Skúla-
son léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veöri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist í
morgunsáriö. Fréttir á
ensku eru sagöar kl. 8.30.
9.05 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Skúla Helgasonar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón:
Leifur Hauksson, Guðrún
Gunnarsdóttir og Gunnar
Svanbergsson.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddgson og Erla
B. Skúladóttir.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Lög unga fólksins. Val-
týr Björn Valtýsson kynnir.
22.05 Snúningur. Umsjón:
Vignir Sveinsson.
00.10 Næturútvarp. Óskar
Páll Sveinsson stendur vakt-
ina til morguns.
FÖSTUDAGUR
12. júní
07.00—09.00 Pétur Steinn og
morgunbylgjan. Pétur kem-
ur okkur réttu megin framúr
með tilheyrandi tónlist og
lítur yfir blöðin. Fréttir kl.
7.00, 8.00 og 9.00.
09.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir á léttum nótum.
Sumarpoppið á sínum stað,
afmæliskveðjur og kveðjur
til brúðhjóna. Fréttir kl.
10.00 og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Þor-
steinn spjallar við fólkið sem
ekki er í fréttum og leikur
létta hádegistónlist. Fréttir
kl. 13.00.
14.00—17.00 Ásgeir Tómas-
son og föstudagspoppið.
Ásgeir hitar upp fyrir helg-
ina. Fréttir kl. 14.00, 15.00,
16.00.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir f Reykjavík siðdeg-
is. Ásta leikur tónlist, lítur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólk sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.00-18.10 Fréttir.
19.00—22.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaði
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
22.00—02.00 Haraldur G!s!a-
son nátthrafn Bylgjunnar
kemur okkur í helgarstuð
með góðri tónlist.
03.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar — Ólafur Már
Björnsson leikur tónlist fyrir
þá sem fara seint í háttinn
og hina sem fara snemma
á fætur.
ALFA
■iMhi ÉHii»».m.
FM 102,9
FÖSTUDAGUR
12. júní
8.00 Morgunstund: Guös
orð og bæn.
8.1 E Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Hlé.
21.00 Blandaö efni.
24.00 Dagskrárlok.