Morgunblaðið - 08.07.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
Hitaveita Suðurnesja:
50 mílljón tonn af heitum
jarðsjó úr iðrum jarðar
Þrýstingnr í jarðhitageymi minnkar ekki eins hratt og áður
Grindavík.
FRÁ ÞVÍ að Hitaveita Suðurnesja hóf dælingu á heitu vatni til
Grindavíkur fyrir rétt rúmum tíu árum hafa 50 milljón tonn af
heitum jarðsjó komið úr iðrum jarðar til hitunar húsnæðis á Suður-
nesjum. Vegna ótta um þurrð í jarðhitageyminum er fylgst með
öllum breytingum mjög nákvæmlega til að fyrirbyggja ótímabæra
þurrð á þessari nátturuauðlegð. Fyrir tveimur árum hófst niðurdæl-
ing á umfram heitavatni og nú
hitageymisins hefur hækkað, en
hins vegar minnkað.
Að sögn Geirs Þórólfssonar
stöðvarstjóra á Svartsengi hefur
þurft að hreinsibora borholurnar
annað hvort ár vegna kalkútfell-
inga.
„Nú kom hins vegar upp sú staða
fyrir stuttu, þegar við hugðumst
láta Jarðboranir hf. hreinsibcra
fímm holur af þeim sex sem eru í
notkun að einungis þurfti að
hreinsibora eina þar sem kalkút-
sýna mælingar að yfirborð jarð-
kalkútfelling í borholunum hefur
fellingin reyndist minni í hinum
holunum en var áætlað.
Hvort þessi breyting á kalkút-
fellingu á rætur að rekja til þess
að fýrir tveimur árum hófum við
að dæla niður í jarðhitageyminn
öllu umfram hitaveituvatni sem við
ekki nýttum í daglegum rekstri, er
enn ekki hægt að fullyrða.
Fylgst er með þrýstingi og hita-
stigi í jarðhitageyminum undir
Svartsengissvæðinu tvisvar á ári.
Sýnin sem koma upp gefa ekki til
kynna að þynning í jarðsjónum sé
nægilega mikil til að skýra minni
kalkútfellingu. Líklegri skýring er
að orðið hafi „enthalpiuhækkun" í
jarðhitageyminum sem getur stafað
af tveimur orsökum; hækkun á hita-
stigi, sem er ólíklegt, eða að
þrýstingur hefur lækkað, sem mér
finnst sennilegasta skýringin.
Helsta vandamálið hefur verið
lækkandi þrýstingur í jarðhita-
geyminum enda er hann ekki
óþijótandi en við höfum tekið 50
milljón tonn úr iðrum jarðar frá því
að dæling á heitu vatni til
Grindavíkur hófst fyri rétt rúmum
tíu árum. Aðrennslið er tregara en
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Jarðborinn Narfi eftir að borun
lauk, en mun minna þurfti að
bora út af holum, en upphaflega
var áætlað. Vegna þess sparaði
hitaveitan sér tvær milljónir
króna.
Geir Þórólfsson, stöðvarstjóri á
Svartsengi, með línurit, sem sýn-
ir þrýstinginn i jarðhitageymin-
um.
I/EÐURHORFUR í DAG, 08.07.87
YFIRUT á hádegi í gœr. Við suðausturströndina er 1007 millibara
djúp lægð á hreyfingu austur. Hæðarhryggur á Grænlandshafi
þokast norðaustur.
SPÁ: Útlit er fyrir hæga breytilega átt á landinu. Viö austurströnd-
ina verða smáskúrir framan af degi en annars þurrt og víða léttskýj-
aö. Hiti á bilinu 8 til 13 stig víðast hvar en þó öllu hlýrra á
suðausturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR: Hæg suðaustanátt, skýjað og dólítil súld á suð-
vesturlandi, en annars staðar hæg breytileg átt, víðast léttskýjað
og hlýtt í veðri.
FÖSTUDAGUR: Suðaustanátt um land allt og hlýtt í veöri. Þurrt á
norðausturlandi en víða rigning annars staðar.
TAKN:
O ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörín sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CO Mistur
—(- Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma htti veöur Akureyrí 10 rlgnlng Revklavlk 11 »kúr
Bergen 18 hilfský]að
Helsinkl 23 skýjaö
ian Mayen 6 skýjað
Kaupmannah. 22 tóttskýjaö
Narssarssuaq 9 alskýjað
Nuuk 6 rígning
Ostó 20 skýjað
Stokkhólmur 22 skýjað
Þórshöfn 13 skýjað
Algarve 27 mistur
Amsterdam 25 léttskýjað
Aþena 27 léttskýjað
Barcelona 27 mistur
Berifn 28 skýjað
Chlcago 21 skýjað
Feneyjar 26 léttskýjað
Frankfurt 27 hélfskýjað
Glaskow 18 léttskýjað
Hamborg 28 tóttskýjað
LasPalmas 25 skýjað
London 23 skýjað
Los Angales 17 alskýjað
Lúxemborg 21 þrumuveður
Madrfd 28 skýjað
Malaga 28 mlstur
Mallorca 28 mistur
Mlami 28 Wttskýjað
Montreal 21 alskýjað
NewYork 21 alskýjað
París 25 skýjað
Róm 28 þokumóða
Vfn 26 helðskfrt
Waahlngton 23 þokumóða
Winnipeg 18 skýjað
svo að það haldist jafnvægi á vatns-
yfirborðinu og því hófum við til-
raunir með niðurdælingu fyrir tveim
árum og dælum niður 15-20 % af
því magni sem við tökum upp. Okk-
ur virðist að við séum að ná stjóm
á vatnsyfírborðinu því samkvæmt
nýustu mælingum hefur það hækk-
að lítillega og dregið hefur úr
lækkun þrýstings".
Að lokum sagði Geir að miðað
við núverandi vinnslu teljum við
okkur trygga í mörg ár fram í
tímann alla vega afskriftatíma
orkuversins en hins vegar höfum
við tiyggt okkur vinnsluréttinn á
Eldvarpasvæðinu.
— Kr.Ben.
Helgi Ölafsson sigr-
aði á útiskákmótinu
ÁRLEGT útiskákmót Skáksam-
bands íslands fór fram á
Lækjartorgi í gær og voru að
venju ýmsir af beztu skákmönn-
um landsins á meðal þátttakenda.
Úrslit urðu þau að Helgi Ólafsson
sem tefldi fyrir Guðmund Ara-
son, smíðajárn, sigraði eftir
einvígi við Margeir Pétursson,
sem tefldi fyrir Morgunblaðið.
Þar með var endir bundinn á
þriggja ára sigurgöngu Morgun-
blaðsins i keppninni.
Mótið átti að fara fram á mánu-
daginn en þá var því frestað vegna
þess að spáð var rigningu. Fóru þá
margir skákmeistarar fyluferð á
torgið og skildu hvorki upp né nið-
ur, því þar var glaðasólskin. í gær
þegar mótið fór fram var hins veg-
ar svalt og gekk á með skúrum.
Úrslit á mótinu urðu þessi:
1. Guðmundur Arason, smíðajám
(Helgi Olafsson)
6 v. af 7 mögulegum.
2. Morgunblaðið (Margeir Péturs-
son) 6 v.
3—6. VISA — ísland (Jóhann
Hjartarson) 5 v.
3—6. Sparisjóðurinn í Keflavík
(Erlingur Þorsteinsson) 5 v.
3—6. Útvegsbanki Islands hf.
(Bjöm Þorsteinsson) 5.v.
3—6. Björgun hf. (Davíð Ólafsson)
5 v.
7—12. Skeljungur hf. (Þorsteinn
Þorsteinsson) 4 V2 v.
7—12. Ragnar Bjömsson, hús-
A-HA kem-
urtílíslands
NORSKA h(jómsveitin A-HA er
væntanleg til íslands um miðjan
mánuðinn og mun halda tvenna
tónleika f Laugardalshöll dagana
17. og 18. júlf næstkomandi.
Hljómsveitin kemur hingað á
vegum Split hf., en sömu aðilar
stóðu að hljómleikum hljómsveitar-
innar Europe í Laugardalshöll í
fyrrakvöld.
gagnabólstrari (Kristján Guð-
mundsson) 4 V2 v.
7—12. Broadway, veitingahús
(Benedikt Jónasson) 4 V2 v.
7—12. Mál og menning (Bragi
Halldórsson) 4 V2 v.
7—12. Frón hf. (Gunnar Gunnars-
son) 4 V2 v.
7—12. Málning hf. (Elvar Guð-
mundsson) 4 v.
13—15. Búnaðarbanki íslands
(Hannes Hlífar Stefánsson) 4 v.
13—15. Verzlunarbanki íslands hf.
(Jóhannes Ágústsson) 4 v.
13—15. Samvinnuferðir Landsýn
(Pétur Kristbergsson) 4 v.
Keppendur voru alls 41 talsins.
Eina tapskák sigurvegarans var
gegn Þorsteini Þorsteinssyni eftir
æsispennandi skák. í lokin átti
Helgi hrók og riddara gegn einum
hrók Þorsteins og er sú staða talin
dautt jafntefli. Vinningstilraunir
Helga enduðu með því að hann féll
sjálfur á tíma, en hver keppandi
hafði aðeins sjö mínútur á skákina.
Skákstjórar á útimótinu vora
þeir Þráinn Guðmundsson, ólafur
Ásgrímsson og Ríkharður Sveins-
son.
Amessýsla:
45 óku of hratt
11 ölvaðir við akstur
SelíoMÍ.
LÖGREGLAN í Árnessýslu tók
um sfðustu helgi 45 ökumenn
fyrir of hraðan akstur, þar af
voru 11 ölvaðir. Auk þessa tók
vegalögreglan nokkra fyrir of
hraðan akstur.
Bifreiðamar vora stöðvaðar á
Hellisheiði, I Flóa, á Eyrarbakka-
vegi og víðar þar sem bundið slitlag
er. Margir ökumannanna vora á
leið heim úr fríi og vora full viljug-
ir heim og óku sumir nokkuð yfír
100 kílómetra á klukkustund. Um
var að ræða karla og konur á öllum
aldri.
Sig. Jóns.