Morgunblaðið - 08.07.1987, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1987
Fræðslumiðill
Fræðsluþættir The National Ge-
ographic Society er Stöð 2
sýnir á mánudögum afsanna þá
kenningu að fræðsluþættir þurfi
endilega að vera dauflegir og leiðin-
legir. Veldur hver á heldur og það
er greinilegt að fræðsluþættir þessa
aldargamla bandariska félagsskap-
ar The National Geographic Society
eru ríkulega fjármagnaðir en þætt-
imir varpa ljósi á undur þessarar
veraldar er við byggjum, eina
stundina dvelur myndaugað við
hinn kalda Carrara marmara sem
unninn er af fimmta ættlið ítalsks
marmarafyrirtækis og þá næstu
fylgjumst við með strangri þjálfun
bandarískra slökkviliðsmanna er
sérhæfa sig í baráttu við skógarelda
og svífa jafnvel niður í eldhafið í
fallhlífum. En einna eftirminnileg-
ust fannst mér svipmyndin af
japanska listasmiðnum er mótaði
hina fegurstu smíðisgripi úr risa-
vöxnum tijábútum. Nú líður að því
að nýr menntamálaráðherra setjist
í valdastólinn. Vil ég nota hér tæki-
færið og benda honum á hversu
liðtækur félagsskapur á borð við
The National Geographic Society
gæti orðið íslensku skólafólki, en
þessi félagsskapur fjármagnar ekki
aðeins heimildamyndagerð og út-
gáfu eins virtasta náttúrulífstíma-
rits heimsbyggðarinnar The
National Geographic Magazine, fé-
lagsskapurinn stendur og árlega
fyrir tugum leiðangra og rann-
sóknarferða um veröld víða. Þá
lætur félagsskapur þessi meðlimum
í té iandakort, upplýsingabæklinga
og myndbönd ef menn vilja kynnast
ákveðnum svæðum jarðarinnar
nánar. Ég minnist á þetta atriði hér
í dálki vegna þess að National Ge-
ographic þættir Stöðvar 2 leiddu
huga minn að þeirri óþægilegu stað-
reynd að sennilega er sjónvarpið á
ákveðnum sviðum skrefi á undan
íslenska skólakerfínu hvað varðar
öflun fræðsluefnis. Þessi staðhæf-
ing verður seint fullsönnuð en eitt
er víst að vandaðir fræðsluþættir
sjónvarpsstöðvanna eru feti framar
þeim kennslubókum sem íslensku
skólafólki er gjaman boðið uppá
þótt vissulega sé mikið af ágætu
kennsluefni á boðstólum hérlendis.
Að lokum vil ég nota tækifærið og
þakka Baldvini Halldórssyni fyrir
frábæran flutning á texta fyrr-
greindra fræðsluþátta.
Uppblástur heilans?
Að aflokinni sýningu hinnar ein-
staklega vönduðu og nærfæmu
bandarísku mánudagsmyndar ríkis-
sjónvarpsins: Manstu liðnar stund-
ir? hóaði Ingimar Ingimarsson
fréttamaður í nokkra aðstandendur
Alzheimer-sjúklinga og tvo lækna
er hafa kannað sjúkdóminn. Myndin
þrysti óþyrmilega á tárapokana
enda sárt að horfa uppá fómarlömb
þessa sjúkdóms og vamarleysi að-
standendanna einkum makans er
stendur oft uppi nánast einn og
yfirgefinn með framandi einstakl-
ing í fanginu. Er greinilegt að
mikils átaks er hér þörf því einsog
kom í ijós í hinum skilmerkilegu
viðtölum við aðstandendur Alz-
heimer-sjúklinganna er nánast
vonlaust að koma slíkum sjúkling-
um í vistun í Reykjavík og verður
helst að leita til nágrannabyggð-
anna. Hvemig væri að taka skerf
af Lottómilljónunum er virðast með-
al annars ætia að rata á Landsmót
Ungmennafélaganna - 10 milljónir
- eða brot af Happaþrennugróðan-
um til hjálpar öllu því fólki er
stendur ráðþrota gagnvart þessum
ógnvænlega sjúkdómi? í málefna-
samningi ríkisstjómarinnar er
ákvæði um endurskoðun happa-
drætta og ættu ráðherramir að
athuga vel hvert allur sá gróði fer,
dreifist hann á eðlilegan hátt til
góðra málefna eða ratar hann á
sffellt færri hendur? Efni í nýjan
þátt, Ingimar, og enn eitt; gefðu
þátttakendum ögn rýmri tíma til
að svara. Þú ert ekki lengur að elt-
ast við jónþorsteinsteingrím.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Stöð 2:
Bob Marley
■■■■ í kvöld verður sýnd á Stöð tvö upptaka frá
0020 tónleikum með reggae-tónlistarmanninum Bob
Marley. Tónleikar þessir voru haldnir árið
1977, flórum ámm fyrir dauða hans, í Rainbow-leik-
húsinu í London. Meðal laga sem flutt voru má nefna
No Woman No Cry, I Shot the Sheriff og Lively Up
Yourself.
UTVARP
©
MIÐVIKUDAGUR
8. júlí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. —
Hjördís Finnbogadóttir og
Óðinn Jónsson. Fréttir
sagðar kl. 8.00 og veð-
urfegnir kl. 8.15. Fréttayfirlit
kl. 7.30 en áður lesið úr
forystugreinum dagblað-
anna. Tilkynningar lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Fréttir
á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Dýrin í Bratthálsi",
saga með. söngvum eftir
Ingebrigt Davik. Kristján frá
Djúpalæk þýddi. Heiðdís
Norðfjörð les (3).
9.20 Morguntrimm. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Óskastundin. Umsjón:
Helga Þ. Stephensen.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón:
Edward J. Frederiksen.
(Þátturinn verður endurtek-
inn að loknum fréttum á
miðnætti.)
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Barna-
leikhús. Umsjón: Sigrún
Proppé. (Þátturinn verður
endurtekinn nk. sunnudags-
morgun kl. 8.35.)
14.00 Miðdegissagan: „Franz
Liszt, örlög hans og ástir"
eftir Zolt von Hársány. Jó-
hann Gunnar Ólafsson
Þýddi. Ragnhildur
Steingrímsdóttir les (17).
14.30 Harmónikuþáttur. Um-
sjón: Sigurður Alfonsson.
(Éndurtekinn þátturfrá laug-
ardegi).
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Gegn vilja okkar. Siðari
þáttur um afbrotið nauðgun
í umsjá Guðrúnar Höllu Tul-
iníus og Ragnheiðar Mar-
grétar Guðmundsdóttur.
(Endurtekinn þáttur frá
mánudagskvöldi).
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síödegistónleikar.
17.40 Torgið. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson og Anna M. Sig-
urðardóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.06 Torgiö, framhald.
I garðinum með Hafsteini
Hafliðasyni. (Þátturinnn
verður endurtekinn nk. laug-
ardag kl. 9.15.)
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
Staldrað við. Haraldur Ól-
afsson spjallar um mannleg
fræði, ný rit og viðhorf í
þeim efnum.
20.00 „Sumarnætur", laga-
flokkur op. 7 eftir Hector
Berlioz. Kiri Te Kanawa
syngur með Parísarhljóm-
sveitinni; Daniel Barenboim
stjórnar.
20.30 Sumar í sveit. Umsjón:
Hilda Torfadóttir. (Frá Akur-
eyri.) (Þátturinn veröur
endurtekinn daginn eftir kl.
15.20.)
21.10 Kvöldtónleikar.
a. Rudolf Buchbinder, Sab-
ine Meyer og Heinrich
Schiff leika þátt úr Píanótriói
eftir Ludwig van Beethoven.
b. Sænska útvarpshljóm-
sveitin leikur forleik að
leikhússvítu nr. 4 eftir Gösta
Nyström; Sixten Erling
stjórnar.
c. Ivo Pogorelich leikur á
píanó fyrsta þáttinn úr „Ga-
spard de la nuit" eftir
Maurice Ravel.
d. Hákan Hagegárd syngur
„Verzagen" og „Blaues
Auge", tvo Ijóðasöngva eftir
Johannes Brahms. Thomas
Schuback leikur með á
píanó.
e. Parísarhljómsveitin leikur
„Alborata del gracioso" eftir
Maurice Ravel. Herbert von
Karajan stjórnar.
f. Einar Jóhannesson og
Philip Jenkins leika „Fant-
asiestykke" fyrir klarinettu
og píanó eftir Carl Nielsen.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Frá útlöndum
Þáttur um erlend málefni i
umsjá Bjarna Sigtryggsson-
ar.
23.10 Djassþáttur
— Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir
00.10 Samhljómur. Umsjón:
Edward J. Frederiksen.
r
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
8. júlí
18.30 Töfraglugginn — Endur-
tekinn þáttur frá 5. júli.
19.26 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Hver á að ráða? (Who's
the Boss? — 14. þáttur.
20.00 Fróttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Spurt úr spjörunum.
Tuttugasta og fyrsta lota.
21.10 Garöarstræti 79. (79
Park Avenue). Fjórði þáttur.
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur í sex þáttum
geröur eftir skáldsögu Har-
old Robbins um léttúöar-
drós í New Vork. Aöalhlut-
verk: Lesley Ann Warren,
David Dukes, Michael
Constantine og Raymond
Burr. Þýðandi Johanna Þrá-
insdóttir.
22.05 Nýjasta tækni og
vísindi. Umsjónarmaður
Sigðurður H. Richter.
22.35 Pétur mikli. Annar þátt-
ur. Nýr, fjölþjóða framhalds-
myndaflokkur í átta þáttum,
geröur eftir sögulegri skáld-
sögu eftir Robert K. Massie
um Pétur mikla, keisara
Rússlands (f. 1672, d.
1725). Hann vann sér þaö
helst til frægöar að opna
land sitt fyrir evrópskum
menningaráhrifum og koma
þjóð sinni til nokkurs
þroska. Aðalhlutverk Max-
imilian Schell, Lilli Palmer,
Vanessa Redgrave, Laur-
ence Olivier, Omar Sharif,
Trevor Howard, Hanna
Schygulla, Ursula Andress,
Elke Sommer og Mel Ferr-
er. Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
23.30 Dagskrárlok.
e
í
STOD2
MIÐVIKUDAGUR
8. júlí
§16.45 Blakkur snýr heim
(Black stallion). Bandarísk
kvikmynd frá 1983. Kelly
Remo og hesturinn Blakkur
urðu nánir vinir þegar þeir
komust lífs af úr skips-
skaða. En fortíö hestsins er
ekki gleymd því hinir réttu
eigendur hans feröast þús-
undir kílómetra til að leita
hans.
§ 18.30 Þaö var lagiö. Nokkr-
um tónlistarmyndböndum
brugöiö á skjáinn.
19.00 Benji. Myndaflokkur
fyrir yngri kynslóðina.
Glæpamenn töfra Vubi prins
og halda honum föngnum i
þorpi sem lagst hefur í eyði.
19.30 Fréttir.
20.00 Viðskipti. Þáttur um
viðskipti og efnahagsmál,
innanlands og utan. Stjórn-
andi er Sighvatur Blöndal.
20.16 Happ í hendi. Hinn
vinsæli orðaleikur í umsjón
Bryndlsar Schram.
§20.60 Gísling í Xanadu
(Sweet hostage). Nýleg
bandarísk mynd um geö-
sjúkling sem sloppiö hefur
út af hæli. Hann rænir ungri
stúlku og hefur hana á brott
meö sér í einangraöan kofa
fjarri mannabyggöum. Aðal-
hlutverk: Martin Sheen og
Linda Blair. Leikstjórn: Lee
Philips.
§ 22.20 Bob Marley. Upptaka
frá tónleikum Bob Marley.
Þar verður meðal annars
flutt mjög sérstök útgáfa af
laginu No woman, no cry.
§ 23.30 Leitin (Missing).
Bandarísk kvikmynd frá
1982 með Sissy Spacek og
Jack Lemmon í aöalhlut-
verkum. Leikstjóri: Costa-
Gavras. Mögnuð mynd sem
gerist eftir valdaránið í Chile
áriö 1973. Ungur Banda-
rtkjamaður hverfur og faöir
hans og eiginkona reyna aö
grennslast fyrir um afdrif
hans. Myndin er byggð á
sannsögulegum heimildum
og hlutu Costa-Gavras og
Donald Stewart Óskars-
verölaun fyrir besta handrit.
§ 1.30 Dagskrárlok.
(Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
01.00 Veðurfregnir. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
&
MIÐVIKUDAGUR
8. júlí
00.10 Næturvakt útvarpsins.
Gunnlaugur Sigfússon
stendur vaktina.
6.00 ( bítið. — Guömundur
Benediktsson.
Fréttir á ensku sagðar kl.
8.30.
9.05 Morgunútvarp rásar 2.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón:
Guðrún Gunnarsdóttir og
Gunnar Svanbergsson.
18.05 Hringiöan. Umsjón:
Broddi Broddason og Erla
B. Skúladóttir.
19.00Kvöldfréttir.
19.30 íþróttarásin. Umsjón:
Ingólfur Hannesson, Samú-
el Örn Erlingsson og Georg
Magnússon.
22.05 Á miðvikudagskvöldi.
Umsjón. Kristín Björg Þor-
steinsdóttir.
00.10 Næturvakt útvarpsins.
Magnús Einarsson stendur
vaktina til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Umsjón: Tómas Gunnars-
son.
BY L GJA
MIÐVIKUDAGUR
8. júlí
07.00—09.00 Pétur Steinn og
morgunbylgjan. Pótur kem-
ur okkur réttu megin framúr
með tilheyrandi tónlist og
lítur yfir blöðin. Isskápur
dagsins?
Fréttir kl. 7.00. 8.00. og
9.00.
09.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir á léttum nótum.
Sumarpopp allsráöandi, af-
mæliskveðjur og spjall til
hádegis. Og við litum inn
hjá hyskinu á Brávallagötu
92.
Fréttir kl. 10.00. og 11.00.
12.00—12.10 Fréttir.
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Þor-
steinn spjallar við fólkið sem,
ekki er i fréttum og leikur
létta hádegistónlist.
14.00—17.00 Ásgeir Tómas-
son og slödegispoppiö.
Gömlu uppáhaldslögin og
vinsældalistapopp f réttum
hlutföllum. Fréttir kl. 14.00
15.00 og 16.00.
17.00—19.00 I Reykjavfk
sfödegis.
Fréttir kl. 18.00.
________________________^
19.00—21.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaði
Bylgjunnar. Flóamarkaður
milli kl. 19.03 og 19.30.
Tónlist til kl. 21.00.
21.00-24.00 Sumarkvöld á
Bylgjunni — Þorgrímur Þrá-
insson.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar — Ólafur Már
Björnsson. Tónlist og upp-
lýsingar um flugsamgöngur.
/ FM10Z.2
MIÐVIKUDAGUR
8. júlí
7.00— 9.00 Inger Anna Aik-
man. Morgunstund gefur
gull I mund og Ingerervökn-
uð fyrir allar aldir meö
þægilega tónlist, létt sþjall
og viðmælendur koma og
fara.
Stjörnufréttir kl. 8.30. Fréttir
einnig á hálfa tímanum.
9.00—12.00 Gunnlaugur
Helgason fer með gaman-
mál, gluggar í stjörnufræöin
og bregður á leik með hlust-
endum.
Stjörnufréttir kl. 11.55.
Fréttir einnig á hálfa timan-
um.
12.00—13.00 Pia Hansson at-
hugar hvað er að gerast á
hlustunarsvæði Stjörnunn-
ar, bókmenntir, kynning á
nýjum og gömlum bókum
og rabbaö við unga sem
gamla rithöfunda.
13.00—16.00 Helgi Rúnar
Óskarsson. Gamalt og gott
leikið af fingrum fram með
hæfilegri blöndu af nýrri tón-
list.
16.00—19.00 Bjarni Dagur
Jónsson. Verðlaunaget
raunin er á sínum staö milli
klukkan 5 og 6, síminn er
681900.
Stjörnufréttir kl. 17.30.
19.00—20.00 Stjörnutíminn.
The Shadows, Fats Dom-
ino, Buddy Holly, Brenda
Lee, Little Eva, Connie
Francis, Sam Cooke, Neil
Sedaka, Paul Anka.
20.00—22.00 Einar Magnús-
son. Létt popp á síökveldi
með hressilegum kynning-
um.
Stjörnufréttir kl. 23.00.
22.00—24.00 Inger Anna Aik-
man fær til sín 2 til 3 hressa
gesti og málin eru rædd
fram og til baka.
00.00— 7.00 Gfsli Sveinn
Loftsson Stjömuvaktin. Ljúf
tónlist, hröð tónlist
ALFA
Guös
FM 102,9
MIÐVIKUDÁGUR
8. júlí
8.00 Morgunstund:
orð og bæn.
8.15 Tónlist
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskráriok.